Morgunblaðið - 05.08.2015, Page 32

Morgunblaðið - 05.08.2015, Page 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 2015 Hasarmyndin Mission: Impossible – Rogue Nation með Tom Cruise í aðalhlutverki aflaði mestra miða- sölutekna um nýliðna helgi af þeim kvikmyndum sem sýndar eru í bíó- húsum landsins, en alls hafa rétt rúmlega átta þúsund manns séð myndina frá því að hún var frum- sýnd sl. fimmtudag. Teiknimyndin Minions, sem fjallar um skósveinana úr kvikmyndinni Aulinn ég, er aðsóknarmesta mynd- in á topp tíu listanum þessa vikuna, en alls hafa tæplega 41 þúsund kvikmyndagestir séð myndina á sl. fjórum vikum. Næst á eftir henni í vinsældum kemur Jurassic World, en alls hafa tæplega 39 þúsund gestir séð kvikmyndina frá því hún var frumsýnd fyrir átta vikum. Bíólistinn 31. júlí - 2. ágúst 2015 Nr. Var síðast Vikur á listaKvikmynd Mission: Impossible – Rogue Nation Minions Ant-Man Pixels Inside Out Paper Towns Amy The Gallows Hrútar Jurassic World Ný 1 2 3 5 4 Ný 6 7 11 Ný 4 3 2 7 2 Ný 2 10 8 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Mission: Impossible skýst beint á toppinn Í ham Rebecca Ferguson og Tom Cruise í hasarmyndinni Mission: Impossible – Rogue Nation. Bíóaðsókn helgarinnar Sænski stórleikarinn Max von Sydow mun fara með hlutverk í sjöttu þáttaröðinni af Game of Thrones sem frumsýnd verður næsta vor. Frá þessu greinir Enter- tainment Weekly á vef sínum. Þar kemur fram að von Sydow muni fara með hlutverk hins alvitra þríeygða hrafns, sem í fjórðu þátta- röðinni hjálpaði Bran Stark að þróa yfirnáttúrulega hæfileika sína. Max von Sydow tekur við hlutverkinu af Struan Rodger. Samkvæmt heimildum Entertain- ment Weekly fara tökurnar á sjöttu þáttaröðinni fram um þessar mund- ir. Ekki er reiknað með að viðvera von Sydow á skjánum verði mikil en hlutverk hans þykir engu að síð- ur mjög mikilvægt fyrir alla fram- vinduna. Ekki liggur ljóst fyrir hvort von Sydow verði með í fleiri þáttaröðum, en Variety hefur haft eftir Michael Lombardo, for- stjóra HBO sem framleiðir þætt- ina, að þáttarað- irnar verði a.m.k. átta áður en yfir lýkur. Max von Sy- dow, sem fagnaði 86 ára afmæli sínu í apríl sl., á að baki glæstan kvikmyndaferil, en meðal mynda sem hann hefur leikið í eru The Ex- orcist, Minority Report, Star Wars: The Force Awakens og Pelle Erobreren, en fyrir síðastnefndu myndina var von Sydow árið 1987 tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir besta leik í aðalhlutverki fyrir túlk- un sína á Lassefar, föður Pelle. Max von Sydow með í Game of Thrones Max von Sydow Pixels Geimverur mistúlka myn- bandsupptökur af sígildum tölvuleikjum úr spilakössum og líta á þær sem stríðs- yfirlýsinu. Þær ákveða að ráðast á Jörðina og nota leikina sem fyrirmyndir fyrir fjölbreyttum árásum. Metacritic 27/100 IMDB 5,5/10 Laugarásbíó 17.00 Smárabíó 20.00, 22.20 Borgarbíó Akureyri 17.50 Amy 12 Heimildamynd eftir Bafta verðlaunahafann Asif Ka- padia um söngkonuna Amy Winehouse sem lést árið 2011. Í myndinni er sýnt áð- ur óbirt myndefni og er leit- ast við að segja harmræna sögu söngkonunnar hæfi- leikaríku með hennar eigin orðum. Metacritic 85/100 IMDB 8,0/10 Háskólabíó 18.00, 21.00 Paper Towns Margo (Cara Delevingne) hverfur skyndilega eftir að hafa farið með Quentin (Nat Wolff) í næturlangt ævintýr og nú er það á herðum Quentin að finna hana aftur. Metacritic 57/100 IMDB 7,1/10 Smárabíó 17.40 Háskólabíó 20.00, 22.40 The Gallows 16 Tuttugu ár eru liðin síðan að maður lést í miðju leikriti. Nemendurnir koma nú sam- an til að setja leikritið upp á ný en það heppnast ekki sem skyldi. Metacritic 30/100 IMDB 4,6/10 Sambíóin Álfabakka 22.45 Sambíóin Kringlunni 22.30 Sambíóin Akureyri 22.45 Ant-Man 12 Scott Lang er vopnaður of- urgalla sem getur minnkað þann sem klæðist honum en aukið styrk hans um leið. Gallinn kemur sér vel þegar hjálpa þarf læriföðurnum að fremja rán og bjarga heim- inum. Metacritic 64/100 IMDB 8,0/10 Sambíóin Álfabakka 15.00, 17.20, 20.00, 22.45 Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 17.20, 20.00 Sambíóin Akureyri 20.00 Minions Skósveinarnir eru hér mætt- ir í eigin bíómynd. Í gegnum tíðina hafa þeir gegnt mik- ilvægu hlutverki, að þjóna metnaðarfyllstu skúrkum allra tíma, en eru nú orðnir þreyttir á nýja stjóra sínum. Metacritic 56/100 IMDB 6,8/10 Laugarásbíó 16.00, 18.00 Sambíóin Álfabakka 15.40, 17.50, 20.00 Smárabíó 15.30, 15.30 Háskólabíó 17.30 Borgarbíó Akureyri 17.50 Webcam 16 Lífið er afar frjálslegt hjá framhaldsskólastelpunni Rósalind en þegar hún fer að fækka fötum á Netinu breyt- ist allt. Morgunblaðið bbbnn Háskólabíó 17.30, 22.10 Magic Mike XXL 12 Mike og félagar setja upp eina sýningu í viðbót á Myrtle Beach, en þrjú ár eru liðin síðan Mike hætti í nekt- ardansinum. Metacritic 60/100 IMDB 6,3/10 Sambíóin Álfabakka 20.00 Sambíóin Kringlunni 20.00 Terminator: Genisys 12 Árið er 2009 og John Con- nor, leiðtogi uppreisnar- manna, er enn í stríði við vél- mennin. Morgunblaðið bbbnn Metacritic 39/100 IMDB 7,1/10 Sambíóin Álfabakka 22.20 Inside Out Ung stúlka flytur á nýtt heimili og tilfinningar hennar fara í óreiðu. Metacritic 93/100 IMDB 8,8/10 Sambíóin Álfabakka 15.40, 17.50 Sambíóin Kringlunni 17.50 Sambíóin Akureyri 17.40 Spy 12 Susan Cooper, CIA, er hug- myndasmiðurinn á bak við hættulegustu verkefni stofn- unarinnar. Morgunblaðið bbbmn Metacritic 84/100 IMDB 7,4/10 Smárabíó 22.20 Hrútar 12 Bræðurnir Gummi og Kiddi hafa ekki talast við áratug- um saman. Morgunblaðið bbbbm Metacritic 83/100 IMDB 8,2/10 Háskólabíó 17.30, 20.00 Bíó Paradís 20.00 Fúsi Bíó Paradís 18.00, 20.00 Skammerens Datter Bíó Paradís 20.00 Gett: The Trial of Viviane Amsalem Bíó Paradís 17.45 Amour Fou Bíó Paradís 22.00 París norðursins Bíó Paradís 22.00 Leviathan Bíó Paradís 17.00 Human Capital Bíó Paradís 22.15 Upplýsingar og ábendingar sendist á netfangið bio@mbl.is Kvikmyndir bíóhúsanna Ethan og félagar taka að sér erfiðara verkefni en þeir hafa nokkru sinni áður tekið að sér. Nú þarf að uppræta Samtökin, alþjóðleg glæpasamtök, en vandinn er sá að Samtökin eru jafn hæf og þau. Metacritic 75/100 IMDB 8,5/10 Laugarásbíó 20.00, 22.35 Sambíóin Álfabakka 14.50, 14.50, 17.15, 17.15, 20.00, 20.00, 22.45, 22.45 Sambíóin Egilshöll 17.20, 20.00, 21.30, 22.45 Sambíóin Kringlunni 18.00, 21.00, 22.30 Sambíóin Akureyri 17.15, 20.00, 22.45 Sambíóin Keflavík 22.45 Smárabíó 17.15, 20.00, 22.45 Mission: Impossible - Rogue Nation 12 Fjögur ungmenni eru send í annan heim sem er stórhættulegur og hefur ferðalagið hryllileg áhrif á líkama þeirra. Laugarásbíó 20.00, 22.15 Sambíóin Álfabakki 15.20, 17.40, 20.00, 22.20 Sambíóin Egilshöll 17.40, 19.00, 20.00, 22.20 Sambíóin Keflavík 21.00 Smárabíó 17.40, 17.40, 20.00, 20.00, 22.20, 22.20 Borgarbíó Akureyri 20.00, 22.20 Fantastic Four Amy (Schumer) trúir ekki á að sá eini rétti" sé til og nýtur lífsins sem blaðapenni. Málin vandast heldur þegar hún fer að falla fyrir nýjasta viðfangsefninu sem hún er að fjalla um. Metacritic 75/100 IMDB 6,9/10 Laugarásbíó 17.00, 20.00, 22.35 Smárabíó 17.15, 20.00, 22.40 Háskólabíó 20.00, 22.20 Borgarbíó Akureyri 20.00, 22.00 Trainwreck 12 Trainwreck Trainwreck er nýjasta mynd leik- stjórans Judd Apatow, sem m.a. gerði The 40-Year-Old Virgin og Knocked Up. Myndin fjallar um hinna eldhressu Amy, sem aldrei hefur trúað á þann eina rétta. Hún nýtur lífsins frjáls sem lausapenni og er laus við allar skuldbindingar, eða svo hefur hún sannfært sjálfa sig um. Í raun og veru er hún í tómu tjóni í einkalífinu og til að kóróna það er hún byrjuð að falla fyrir nýjasta viðfangsefni sínu, sem er heillandi og viðkunnanlegur íþróttalæknir sem nefnist Aaron. Amy Schumer skrifar handritið og leikur nöfnu sína, en Bill Hader leikur Aaron. Metacritic: 75/100 Rotten Tomatoes: 85% Fantastic Four Fjórir ungir vísindamenn ferðast inn í annan heim utan jarðar og öðlast þar óvænta ofurkrafta sem eiga eftir að gagnast þeim vel í baráttunni við dr. Doom, fyrrver- andi samherja en nú illan óvin. Kvikmyndin Fantastic Four er byggð á samnefndu ofurhetjuteymi sem kom fyrst fram í teiknimynda- blöðum frá Marvel síðla árs 1961 og var fyrsta ofurhetjuteymið sem Stan Lee skapaði og lagði grunn- inn að því að gera Marvel að því stórfyrirtæki sem það er í dag. Hér er ekki um að ræða framhald af Fantastic Four-myndunum frá 2005 og 2007 heldur nýtt upphaf, þ.e. sagan er sögð frá upphafi, en á nýjan hátt. Leikstjóri er Josh Trank en í aðalhlutverkum eru Ja- mie Bell, Kate Mara, Michael B. Jordan, Miles Teller og Toby Keb- bell. Enga samantekt á gagnrýni er að finna um myndina. Amour Fou Bíó Paradís hefur tekið til sýningar nýjustu mynd hins virta austur- Bíófrumsýningar Ofurkraftar og ástarflækjur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.