Morgunblaðið - 27.08.2015, Qupperneq 1
F I M M T U D A G U R 2 7. Á G Ú S T 2 0 1 5
Stofnað 1913 200. tölublað 103. árgangur
ÁSÓKN Í
HUGVERKA-
FYRIRTÆKI
ÚR MINKABÚI Í FISKVERKUN ÓTAL ÆVINTÝRA-
FERÐIR Í BOÐI
UM ALLAN HEIM
Á FERÐ UM ÍSLAND 54-55 HAUSTFERÐIR 2015 66-77VIÐSKIPTAMOGGINN
Stjórnendur Hildu, eignasafns
sem er að öllu leyti í eigu Seðla-
banka Íslands, hafa á fyrri hluta
ársins 2015 selt eignir, sem bók-
færðar voru á 5,9 milljarða, út úr
félaginu. Það hafa þeir gert í að-
draganda þess að félagið hefur nú
verið auglýst til sölu. Meðal þess
sem selt hefur verið eru verðmæt-
ustu fasteignirnar sem félagið átti
en það eru eignir í Lágmúla 6-8,
Fosshálsi 25 og Suðurhrauni 3 í
Garðabæ. »Viðskipti
Hafa selt 6 milljarða
af eignum Hildu í ár
Vetrar- og langtímaleiga
» Toyota Aygo árgerð 2014
kostar 48.900 kr. á mánuði
miðað við vetrarleigu.
» Sambærilegt verð fyrir
Chevrolet Spark er 49.900 kr.
Brynja Björg Halldórsdóttir
brynja@mbl.is
Morgunblaðið gerði úttekt á fram-
boði bíla á leigu, verði þeirra og
þjónustu sem innifalin er í verðinu.
Í ljós kom að hæglega má leigja
smábíl fyrir minna en 50 þúsund
krónur á mánuði, þar sem trygg-
ingar, bifreiðagjöld, dekkjaskipti
og ýmiss konar þjónusta er inni-
falin. Þó er mismunandi eftir bíla-
leigum hversu mikil þjónusta og
viðhald er innifalið. Verðið hækk-
ar þó snarlega sé óskað eftir
stærri bílum, svo sem jeppa eða
sendibíl.
Margar bílaleigur bjóða einnig
upp á svokallaða vetrarleigu, þar
sem leigutímabilið miðast við sept-
ember/október og fram í maí/júní.
Slík leiga tryggir almennt aðeins
lægra verð en langtímaleiga, sem
getur verið á bilinu 12-36 mánuðir.
Bílaleigurnar Hertz, Sixt, Avis,
Ratio og Thrifty Cars veittu upp-
lýsingar um verð og þjónustu.
Uppgefið verð miðast við að eknir
séu 1.250-1.750 kílómetrar á mán-
uði. Hægt er að greiða aukalega
fyrir fleiri kílómetra á mánuði.
Bítast um besta bílaverðið
Hægt að leigja sér smábíl undir 50 þúsund krónum á mánuði Margar bíla-
leigur bjóða upp á sérstaka vetrarleigu Leigutíminn getur verið 1-48 mánuðir
MMikil samkeppni í bílaleigu »20
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Helgi S. Gunnarsson, forstjóri fast-
eignafélagsins Regins, segir að vaxta-
stig og fjármagnskostnaður sem því
fylgi valdi því að ekki séu forsendur
fyrir því að byggja upp íbúðaleigu-
markað á Íslandi.
„Íbúðaleigumarkaður er allt ann-
ars eðlis en sá markaður sem við er-
um starfandi á og hann er ekki líkleg-
ur til að skila mikilli arðsemi eins og
staðan er, jafnvel þó að kvartað sé
undan háu leiguverði,“ segir Helgi í
opnuviðtali í Við-
skiptaMogganum
í dag.
Hann telur að
leigufélög verði að
hafa aðgengi að
lánsfé sem beri
um 3% raunvexti
og að það muni
ekki gerast án
samstillts átaks
stjórnvalda, verkalýðshreyfingarinn-
ar og lífeyriskerfisins. „Ég er einfald-
lega þeirrar skoðunar að það sé ekki
hægt að byggja upp leigufélög sem
mæta þeirri þörf og eftirspurn hvað
varðar leiguverð á íbúðamarkaði fyrr
en þessu verður kippt í liðinn,“ bætir
Helgi við.
Lífeyrissjóðir í lykilhlutverki
Helgi segir að slíkar aðgerðir
myndu þurfa að fela í sér tilslakanir af
hálfu lánveitenda hvað varðar ávöxt-
unarkröfu þeirra fjármuna sem þeir
myndu leggja til. Þar vísar hann til líf-
eyrissjóða en segir að verkalýðsfélög,
atvinnulíf og hið opinbera þurfi einnig
að standa að því að tryggja lægri fjár-
magnskostnað. »Viðskipti
Lækka verður vaxtakostnað
Íbúðaleigumarkaðurinn í ógöngum að mati forstjóra Regins
Helgi S.
Gunnarsson
Líf og fjör var í nágrenni Háteigsskóla í gær, en
þar fá nemendur tækifæri til að sleikja sólina í
fyrstu íþróttatímum skólaársins. Göngustígum
hverfisins deila þau með nágrönnum skólans
sem margir fá sér langa göngutúra í góðviðrinu.
Síðari hluta vikunnar er útlit fyrir að víða um
land dragi fyrir sólu og það fari að rigna, eink-
um norðan til. Ef marka má langtímaspá má þó
gera ráð fyrir þurrviðri víðast hvar um helgina.
Ungir sem aldnir njóta veðurblíðunnar í sumarlok
Morgunblaðið/Eggert
Blíðviðri í borginni síðustu daga
Helgi Gunn-
laugsson, af-
brotafræðingur
og prófessor í fé-
lagsfræði við HÍ,
telur að aukinn
straumur ferða-
manna geti leitt
til aukinnar
eftirspurnar eft-
ir kynlífsþjón-
ustu og fíkni-
efnum. Mælingar á kynlífshegðan
sýna að ef fólk kaupir vændisþjón-
ustu, þá er algengt að það geri það í
ferðalögum, þegar það er fjarri
heimkynnum sínum.
Ferðaþjónusta og
vændi vaxa saman
Ísland Vændið eltir
eftirspurnina.
Afkoma kúabúa hefur ekki batnað í
samræmi við aukna framleiðslu og
auknar tekjur af mjólkursölu.
Kostnaður við fóður hefur vaxið
mikið og ýmsir aðrir kostnaðarliðir.
Þá hafa laun bænda hækkað.
Landssamband kúabænda hefur
tekið saman upplýsingar um afkomu
kúabúa á síðasta ári. Það er gert
með athugun á úrtaki búa frá bók-
haldsþjónustum búnaðarsamtak-
anna. Þetta gera samtökin vegna
þess hversu seint Hagstofa Íslands,
sem annast hagsýslugerð fyrir land-
búnaðinn, skilar sínum niðurstöðum.
Framkvæmdastjóri LK segir að
bændur þurfi upplýsingar um stöðu
greinarinnar á hverjum tíma. »22
Afkoman ekki batnað
í samræmi við tekjur
Í fjósi Auka þarf fóðrun og fjölga
kúm til að auka framleiðslu.
Viðskiptabankarnir þrír, Arion
banki, Landsbanki og Íslandsbanki,
skiluðu samtals 42,5 milljörðum
króna í hagnað eftir fyrstu sex
mánuði ársins. Það er 4,5 milljörð-
um króna minni hagnaður en á
sama tíma í fyrra. Arion banki skil-
ar mestum hagnaði, 19,3 milljörð-
um króna, þá var Landsbankinn
með 12,4 milljarða króna hagnað
og Íslandsbanki hagnaðist um 10,8
milljarða króna. »Viðskipti
Uppgjör Arion banki er sá bankanna sem
skilaði mestum hagnaði og meiri en í fyrra.
42,5 milljarða
hagnaður bankanna