Morgunblaðið - 27.08.2015, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2015
DRAUMADVÖL Á BALÍ 1.–13. NÓVEMBER
Frábær sérferð til Bali, fararstjóri
er Vilborg Halldórsdóttir sem er
ein af þeim fjölmörgu sem hafa
fallið fyrir eyjunni eftir að hafa
dvalið þar.
VERÐ FRÁ
379.900 KR.
á mann m.v. 2 fullorðna í tvíbýli.
Úrval Útsýn | Hlíðasmára 19 | 201 Kópavogi | 585 4000 | uu.is
þjóðleg glæpasamtök sem stunda
mansal frá fátækari löndum og yfir
til Vestur-Evrópu, þá kemur upp
spurningin hvar mansalsfórnar-
lömbin eru sett niður; hvar mark-
aðurinn fyrir vændi er og hverjir eru
tilbúnir að taka við þolendum man-
sals. Oft er horft á staði þar sem
ferðamennska er mikil og talsvert af
alþjóðlegri traffík,“ segir Helgi og
bendir á að nú komi yfir milljón
ferðamenn árlega til Íslands.,
„Þá útskýrir Helgi að ef mál sem
varða vændiskaup á Íslandi sl. fjög-
ur ár eru skoðuð, kemur fram að
vændiskaupendur eru fyrst og
fremst íslenskir karlar. Um 30-40
konur hafa verið skilgreindar sem
brotaþolar fyrir vændissöluna og
helmingurinn af þessum konum er
útlendingar.
Túristarnir sóttu nektarstaðina
„Þegar nektarstaðirnir hér á landi
voru í sem mestum blóma í kringum
aldamótin og veltan skipti hundr-
uðum milljóna króna á ári, var alveg
ljóst að það var ekki bara íslenskur
karlpeningur sem nýtti sér þjónustu
nektardansstaðanna, heldur líka
túristar. Við sáum að útlendingar
leituðu í þessa afþreyingu, ef svo má
að orði komast, þannig að þetta er
þekkt hér á landi. Það er alveg ljóst
að í þessum jaðarheimi, vændi eða
kynlífsþjónustu, horfa menn mikið
til ferðamanna,“ segir Helgi.
Yfir milljón ferðamenn á ári
Berst þá talið að því hvaða áhrif
aukin eftirspurn eftir vændi hafi á
mansal til Íslands. „Ef þetta eru al-
Brynja B. Halldórsdóttir
brynja@mbl.is
Merkingum við Glym í Botnsdal er
ábótavant og gönguleiðin þar er
ekki hættulaus fyrir ferðamenn.
Þetta segir Kjartan S. Þorsteins-
son, björgunarsveitarmaður á
Akranesi. Björgunarsveitin þurfti,
bæði í ágúst og apríl á þessu ári, að
koma fólki til bjargar á þessu svæði
en erfitt getur verið að komast yfir
ána með slasaða. Aðeins er hægt að
komast yfir ána á tvenns konar
máta. Annars vegar að ganga yfir
gamlan símastaur sem hefur verið
lagður yfir brúna og halda í vír sem
hefur verið strengdur yfir. Hins
vegar að vaða yfir ána, sem er, að
sögn Kjartans, oft og tíðum afar
straummikil.
Slys hafa aukist á svæðinu í
takt við fjölgun ferðamanna
Fyrr í þessum mánuði ökkla-
brotnaði kona á göngu á stígnum
við gilið. Björgunarsveitarmenn
þurftu þá að bera konuna í sjúkra-
börum niður stíginn, festa börurnar
í vírinn, leggja þær þvert yfir staur-
inn og ýta henni yfir á meðan björg-
unarsveitarmenn óðu yfir ána. Þá
lenti gönguhópur í hrakningum á
svæðinu í apríl. „Tvær ungar mann-
eskjur duttu í ána og blotnuðu. Þær
náðu að krafla sig til baka en voru
ansi kaldar þegar þær komu í land.
Þetta var að vetri til og þá var búið
að taka staurinn í burtu, líklegast
vegna ísingar í vatninu. Þá var eina
leiðin að festa þær í vírinn og koma
þeim yfir ána
þannig,“ grein-
ir Kjartan frá.
Hann segir
slys hafa aukist
á svæðinu, í
takt við fjölda
ferðamanna og
bætir við:
„Leiðin er orð-
in mjög vinsæl
og alltaf eru
bílar á bílaplan-
inu og stöðug
umferð,“ segir hann.
Þá bendir hann á, að aðstæður
við Glym séu varasamar fyrir
ferðamenn, sem eigi til að slasast.
„Þetta er ekki hættulaus leið og
merkingar vantar, bæði leiðbein-
andi merkingar og hættumerk-
ingar. Það hefur eitthvað verið gert
í þeim efnum, þ.e. bönd hafa verið
strengd til að leiðbeina fólki, en
betur má ef duga skal,“ segir Kjart-
an.
Brú þyrfti að vera nokkuð há
Björgunarsveitin hefur ekki ósk-
að formlega eftir brú yfir ána en
meðlimir hennar hafa rætt mál-
efnið sín á milli. Kjartan bendir þó
á, að slík brú yrði að vera nokkuð
há, enda taki ísingar í ánni venju-
legar göngubrýr með sér. ,,Þetta
hefur allt gengið vel hjá okkur
hingað til en það er ákveðin áhætta
fólgin í því að vaða ána eða að bera
slasaðan einstakling upp á staur og
ýta honum þannig yfir ána,“ segir
hann að lokum.
Merkingar
skortir við Glym
Foss Glymur í
Botnsdal í Hvalfirði.
Aðeins hægt að vaða yfir ána eða
ganga eftir gömlum símastaur
Björgunarsveitir og þyrla Land-
helgisgæslunnar voru kallaðar út
eftir að drengur féll og slasaðist á
göngu á hálendinu í gær. Slysið
varð á milli Hrafntinnuskers og
Álftavatns þar sem hann var í hópi
samnemenda sinna á göngu.
Í fyrstu var ekki hægt að lenda
þyrlunni nærri slysstað og því voru
læknir og sigmaður sendir um 3 km
leið fótgangandi til þess að búa
hann undir flutning. Aðstæður
nærri slysstað bötnuðu í kjölfarið
og gat þyrlan sótt drenginn án þess
að flytja þyrfti hann langa leið.
Meiðsl hans voru ekki talin alvar-
leg en hópurinn komst áfram leiðar
sinnar án frekari aðstoðar.
Þyrla sótti slasaðan
dreng á hálendið
nær Hrafntinnuskeri
Ísak Rúnarsson
isak@mbl.is
„Það er orðið þröngt um set hjá okk-
ur en við leitum lausna á því eins og
þurfa þykir,“ segir Þorsteinn Gunn-
arsson, staðgengill forstjóra, um
hvernig sé ástatt í húsnæðismálum
Útlendingastofnunar, en mikill fjöldi
hælisleitenda hefur komið til landsins
í mánuðinum. Sl. mánudag sóttu 14
einstaklingar um hæli en almennt
hafa hælisleitendur verið á milli 15-18
í hverjum mánuði það sem af er ári.
Útlendingastofnun gerir samn-
inga við sveitarfélög um hýsingu
hælisleitenda. „Við erum með samn-
inga við sveitarfélögin Reykjanesbæ
og Reykjavík um að taka við
ákveðnum fjölda og svo þjónustum
við sjálf allt sem er umfram það. Við
erum með húsnæði þar sem við tök-
um á móti fólki, það er svona að fyll-
ast hjá okkur núna en þá reynum við
að koma fólki yfir í önnur úrræði svo
það sé pláss fyrir þá sem koma nýir
inn,“ segir Þorsteinn.
Hann bætir þó við að almennt
megi sjá fjölgun hælisleitenda á
haustmánuðum og það sama eigi sér
stað á öðrum Norðurlöndum, a.m.k.
í Svíþjóð og Noregi. Hann segir að
Útlendingastofnun muni taka sam-
an tölur og samanburð um komu
hælisleitenda til landsins um mán-
aðamótin en þá skýrist mögulega
hvort um tímabundna fjölgun sé að
ræða.
32 hafa sótt um í ágústmánuði
Á þriðjudaginn var eitt ár síðan
Rauði krossinn tók að sér réttinda-
gæslu fyrir hælisleitendur, en á þeim
tíma hafa 220 manns sótt um hæli á
Íslandi. Tólf þeirra hafa hlotið al-
þjóðlega vernd á Íslandi.
Fólkið sem hingað hefur leitað er
af 39 ólíkum þjóðernum, langflestir
eru frá Albaníu en þar á eftir kemur
fólk frá Makedóníu, Sýrlandi, Úkra-
ínu og Írak. Samkvæmt Rauða
krossinum hafa 32 einstaklingar sótt
um vernd í ágústmánuði og hafa um-
sækjendur aldrei verið jafn margir í
einum mánuði þó hann sé ekki liðinn
enn.
„Þröngt um set hjá okkur“
Húsnæði Útlendingastofnunar að fyllast vegna mikils straums hælisleitenda
undanfarin mánuð Á síðastliðnu ári hafa 220 manns sótt um hæli á Íslandi
Helgi telur að Ísland ætti að vera betur í stakk búið til
að takast á við mansal en mörg önnur lönd á meginlandi
Evrópu, þar sem auðveldlega er hægt að ferðast á milli
landamæra á bifreiðum. Ísland ætti að hafa meiri burði
til að vinna bug á mansali en aðrar þjóðir. Helgi segir að
vel hafi tekist að draga úr starfsemi nektardansstaða,
eða í það minnsta að gera hana duldari, með löggjöf.
„Hvað varðar kynlífsbylgjuna sem getur komið með
auknum ferðamannastraumi, er örugglega hægt að
hafa áhrif á starfsemina með aðgerðum stjórnvalda, því
við höfum gert það áður, t.d. gagnvart nektardansstöð-
unum og mótorhjólagengjunum á allra síðustu árum. Ef við viljum, ætt-
um við að geta haft eitthvert taumhald á starfsemi af þessu tagi.“
Ísland betur í stakk búið
AÐGERÐIR Í BARÁTTUNNI VIÐ MANSAL
Helgi
Gunnlaugsson
Ingvar Smári Birgisson
isb@mbl.is
Helgi Gunnlaugsson, afbrotafræð-
ingur og prófessor í félagsfræði við
HÍ, telur að aukinn straumur ferða-
manna geti leitt til aukinnar eftir-
spurnar eftir kynlífsþjónustu og
fíkniefnum.
„Þetta sjáum við í mælingum á
kynlífshegðan fólks. Þegar fólk er
spurt hvort það hafi keypt vændis-
þjónustu, er yfirleitt spurt ef svarið
er já undir hvaða kringumstæðum
og eitt algengasta svarið er ferðalög,
þegar menn eru fjarri heimkynnum
og einir, t.d. í viðskiptaferðalögum,“
segir Helgi og bætir við að svipað
eigi oft við um fyrstu reynslu af
notkun fíkniefna.
Lögreglunni ekki ókunnugt
Alda Hrönn Jóhannsdóttir, að-
stoðarlögreglustjóri lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu, fullyrti í
Morgunblaðinu í gær að aukinn
ferðamannastraumur hefði leitt til
vaxtar í kynlífsferðamennsku og
vændi á Íslandi. Hún sagði að dæmi
væru um að erlendir ferðamenn
kæmu til landsins til að taka þátt í
kynlífsferðamennsku. Þá hafi til-
kynningar borist um að vændi sé
stundað á hótelum og airbnb-
íbúðum.
Lögreglan rannsakar nú á annan
tug mansalsmála sem teygja sig til
allra heimsálfa og tengjast ýmist
kynlífsþrælkun, nauðungarvinnu
eða málamyndahjónaböndum. Talið
er að konur og ungmenni hafi verið
flutt til landsins frá Austur-Evrópu,
Kína og Nígeríu.
Vöxtur ferðaþjónustu
gæti ýtt undir vændi
Helmingur vændiskvenna kemur erlendis frá
Þessi maður nýtti góðviðrið á suðvesturhorninu til
góðra verka á húsþaki í Hafnarfirðinum og málaði bæ-
inn rauðan fyrir sinn part. Fari sem sýnist í veðurspám
gætu menn brátt farið að rigna inni með húsverkin.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hver að verða síðastur í húsverkunum