Morgunblaðið - 27.08.2015, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2015
Mán. - fim. kl. 09-18 - Föstud. kl. 09-17
Lokað á laugardögum í sumarÞITTERVALIÐ
Þú velur að kaupa innréttinguna í
ósamsettum einingum, eða lætur okkur um
samsetninguna. Að sjálfsögðu önnumst við
líka uppsetningu og endanlegan frágang.
Fullkomin þjónusta, eigið verkstæði.
FJÖLBREYTTÚRVALAFHURÐUM,FRAMHLIÐUM,
KLÆÐNINGUMOGEININGUM
ELDHÚSINNRÉTTINGAR
STYRKUR - ENDING - GÆÐI
HÁGÆÐADANSKAR
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
15ÁRA
STOFNAÐ2000
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Ö
fugt við það sem oft er
haldið fram varpar ný-
leg skýrsla frá Pew-
stofnuninni með yfir-
skriftinni Táningar,
tækni og vinátta, óvenjulega jákvæðu
ljósi á vináttutengsl og sambönd sem
unglingar mynda í hinum stafræna
heimi. Ekki aðeins eignast þeir vini í
gegnum samfélagsmiðla, tölvuleiki,
skilaboða-öpp og þvíumlíkt, heldur
finna unglingar á aldrinum 13 til 17
ára samhliða ýmsar leiðir til að
styrkja sambönd sín við vini í raun-
heimi.
Niðurstöðurnar ganga á skjön
við þau viðteknu og ógnvænlegu
varnarorð um að netheimar svipti
unglingana hæfileikanum til að eiga
samskipti við fólk augliti til auglitis.
Og þá mýtu að þar sem þeir væru
stöðugt fyrir framan tölvuskjái yrðu
þeir berskjaldaðri en ella gagnvart
einelti og illsku heimsins, auk þess
sem þeir freistuðust til að leika tölvu-
leiki í óhófi og sér til óbóta. „Full-
orðnir hafa haft tilhneigingu til að líta
á þann tíma sem unglingar verja í
spjall og annað á netinu sem léttúð-
uga skemmtun og algjöra tímaeyðslu.
Við komumst þvert á móti að því að
það er mikilvægt fyrir unglinga að
mynda og viðhalda þessum vina-
tengslum í lífi sínu,“ sagði Amanda
Lenhart, aðalhöfundur rannsókn-
arinnar og aðstoðarforstjóri rann-
sókna hjá Pew-stofnuninni.
20% höfðu hitt netvininn
í eigin persónu
The New York Times rýndi í
rannsóknina og gerði því skóna að
samskipti unglinga á netinu væru
vissulega mikilvæg vegna þess að
margir ættu þess ekki kost að „hanga
með“ vinum sínum í eigin persónu.
Utan skólans kváðust 25% eiga sam-
skipti við vini sína augliti til auglitis
daglega, 39% á nokkurra daga fresti,
og um þriðjungur sjaldnar. Lenhart
segir margt koma í veg fyrir að ung-
lingar geti átt slík samskipti, til dæm-
is séu margir foreldrar þeirrar skoð-
unar að umhverfið sé ekki eins
öruggt og áður fyrir unglinga að fara
frjálsir allra sinna ferða, gangandi
eða hjólandi. „Í netheimum geta ung-
lingar aftur á móti verið með vinum
sínum, sem þeir hafa ekki tök á að
hitta í eigin persónu,“ segir Lenhart.
Netheimar gefa unglingum líka
tækifæri til að víkka út félagshring-
inn. Samkvæmt rannsókninni höfðu
fleiri eignast vini á netinu (57% einn
vin og 29% fleiri en fimm vini) heldur
en í verslunarmiðstöðinni eða á
íþróttaviðburðum. Sumir kynntust
þegar netvinur kynnti nýjan vin til
sögunnar í hópspjalli eða skilaboða-
appi, aðrir gegnum tölvuleiki, blogg
eða samfélagsmiðlana Facebook og
Instagram. Flestir urðu aldrei meira
en vinir á netinu því einungis 20%
unglinganna sögðust hafa hitt netvin-
inn í eigin persónu.
Bæði strákar og stelpur sögðu
netsamskipti, t.d. á samfélagsmiðlum,
færa þau nær vinum sínum í raun-
heimi. Sem dæmi fannst 83% not-
endum samfélagsmiðla þeir þannig
vera betur með á nótunum um hvað
væri að gerast í lífi vina sinna og 70%
sögðust gera sér betri grein fyrir líð-
an og tilfinningum vina sinna. 68%
trúðu því að netvinirnir stæðu með
þeim gegnum súrt og sætt.
Sama dramatíkin
Dramatíkin í lífi unglinganna í
netheimum reyndist um margt lík
þeirri sem tíðkast í raunheimum.
Margir urðu fyrir sárum vonbrigðum
ef tölvuleikjapersónu þeirra var
„eytt“, tóku nærri sér að lenda í orða-
hnippingum eða sjá skilaboð um
partý og vera ekki boðið. Á stundum
blossaði líka öfundin upp þegar þeir
sáu hið fullkomna líf sem vinirnir á
samfélagsmiðlunum birtu af lífi sínu.
„Unglingarnir eru meðvitandi
um og hafa áhyggjur af að aðrir setji
á netið ýmislegt sem þeir sjálfir hefðu
enga stjórn á, enda er tilhneiging til
að dæma fólk eftir því hvernig það
birtist samfélagsmiðlum,“ segir Len-
hart og nefnir til að mynda þá sem yf-
irfara háskóla- og eða atvinnuum-
sóknir. „Allir láta sig varða hvernig
þeir koma fyrir. Unglingar hafa alltaf
tekið sér góðan tíma í að ákveða í
hverju þeir eigi að vera, hvernig þeir
eigi að hafa hárið, hvað þeir eigi að
segja. Í þessum stafræna heimi eru
slíkar ákvarðanir hins vegar mun af-
drifaríkari en áður,“ segir Lenhart.
Hún hefur lög að mæla því eins
og alkunna er hverfur ekkert af sjálfu
sér af netinu. Hvorki hallærislega
myndin né fljótfærnislegu eða dóna-
legu ummælin. Að sögn Lenhart er
þó margt sem bendir til að skömmin
yfir slíkum glappaskotum á netinu
dofni með tímanum rétt eins og ax-
arsköft unglinga í aldanna rás hafi yf-
irleitt ekki fylgt þeim lífið á enda.
„Um síðir verður kannski ekki litið á
þig sem manneskju af holdi og blóði
nema þú eigir þér óheppilega sögu á
netinu,“ spáir hún.
Vinatengsl í netheimum mikilvæg
Þrátt fyrir bölsýnisraus
um að vaxandi netnotkun
unglinga valdi félagsfælni
og félagslegri einangrun,
leiðir ný bandarísk rann-
sókn annað í ljós.
Morgunblaðið/Eggert
„Um síðir verður
kannski ekki litið á þig
sem manneskju af
holdi og blóði nema þú
eigir þér óheppilega
sögu á netinu.“
Samskiptin Í netheimum geta
unglingar átt samskipti við vini
sína sem þeir hafa ekki tök á að
hitta í eigin persónu.
Árleg bæjarhátíð Seltjarnarness
hefst í dag og lýkur sunnudaginn
30. ágúst. Seltirningar hafa verið
hvattir til að taka dagana frá og
skreyta hverfið sitt, hús og lóðir í
svokölluðum hverfalitum. Sú hefð
hefur einnig myndast kringum há-
tíðina að íbúar hverfa standi fyrir
sameiginlegum viðburðum í sínu
hverfi, svo sem vöfflukaffi, götug-
rilli og skemmtunum fyrir ball.
Dagskrá hátíðarinnar er fjöl-
breytt, t.d. verða djasstónleikar
með Bogomil Font og Tómasi R.
Einarssyni og hljómsveit í Félags-
heimilinu í kvöld kl. 21-23.30 og
brekkusöngur í Plútóbrekku kl.
19.30-21 á föstudaginn. Ýmsir sem
verið hafa áberandi í tónlistarlífi
bæjarins síðustu árin verða það líka
í brekkusöngnum. Þá verður stuð-
ball með Made-In Sveitinni og
Hreim í fararbroddi í Íþrótta-
miðstöðinni á laugardagskvöldið.
Af öðrum viðburðum má nefna
sundlaugarpartí, heilreiðatúr með
Bjarna Torfa, frisbígolfmót og
þrautagöngu bæjarbúa, sem felst í
að börn og fullorðnir spreyta sig á
þrautum víðs vegar um bæinn.
Nesstofa og Lyfjafræðisafnið
verða opin alla helgina kl. 13 til 17
og í sýningarrýminu í Nesi er Lis-
tería, samsýning fimm listamanna.
Bæjarhátíð Seltjarnarness
Þrautaganga, djass og stuð
Morgunblaðið/hag
Það jafnast ekker á við djass Bogomil Font og Tómas R. Einarsson spila.
Morgunblaðið/Styrmir Kári