Morgunblaðið - 27.08.2015, Síða 14
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Jón Björnsson, forstjóri Festi, sem á
Krónuverslanirnar, segir það geta
haft áhrif á verð innfluttra vara til Ís-
lands ef evran haldi áfram að veikjast
gagnvart Bandaríkjadal.
Fjallað var um væntanlega lækkun
flugfargjalda og flutningskostnaðar í
Morgunblaðinu í gær, í tilefni af mik-
illi lækkun olíuverðs. Voru leiddar að
því líkur að þessi þróun kynni að
lækka vöruverð á Íslandi. Töldu
greinendur að áhrif verðhruns á olíu
og hrávöru myndu jafnvel minnka
innflutta verðbólgu í haust meira en
spáð var og það jafnvel leiða til minni
verðbólgu en áætlað var.
Jón Björnsson svaraði því til í
tölvupósti að það skipti miklu máli
fyrir innkaupsverðið hvernig gengi
dollarans þróaðist gagnvart evru.
„Flest sem við kaupum inn er í
evru en við kaupum það af aðilum
sem kaupa inn í dollar. Þar lítur
myndin ekki nógu vel út en ef okkar
birgjar taka á sig verðhækkun munu
þeir hækka verðið til okkar í framtíð-
inni,“ skrifaði Jón í svari sínu.
Finnur Árnason, forstjóri Haga,
sagði í svari sínu að „álagning félags-
ins hafi frekar verið að lækka undan-
farin misseri, sem sé staðfesting á því
að gengisstyrking íslensku krónunn-
ar hafi skilað sér í lægra vöruverði til
viðskiptavina félagsins“.
Vaxtamunur kalli á innstreymi
Ragnar Björn Ragnarsson, gjald-
eyrismiðlari hjá Arion banka, segir
aðspurður ekki sjálfgefið að veiking
evru gagnvart Bandaríkjadal muni
leiða til hærra verðs á vörum sem
fluttar séu inn til Íslands.
Hann segir dollarann munu styrkj-
ast gagnvart evru ef bandaríski seðla-
bankinn hækki vexti. Ástæðan sé sú
að þá muni vaxtamunur milli dollara
og evru aukast og fjármagn streyma
til Bandaríkjanna, meðal annars
vegna kaupa á skuldabréfum. Mark-
aðurinn hafi reiknað með vaxtahækk-
unum í Bandaríkjunum í september
en það hafi breyst eftir hlutabréfa-
hrunið í Kína og víðar um heim. Nú sé
horft til desember.
Hann segir að ef vaxtamunur milli
dollara og evru aukist muni það festa
evruna í sessi sem lágvaxtarmynt
sem fjárfestar noti til að fjármagna
viðskipti á öðrum myntsvæðum.
Djúptækur vandi í mörgum löndum á
evrusvæðinu verði ekki leystur í ná-
inni framtíð. Vextir á evrusvæðinu
verði að líkindum áfram lágir.
Samandregið telur Ragnar Björn
meiri líkur á að dollarinn muni styrkj-
ast gagnvart evrunni. Það geti líka
gerst að beðið verði með vaxtahækk-
anir í Bandaríkjunum vegna þess að
innflutt verðbólga sé að minnka.
Gengi gjaldmiðla á borð við kínverska
júanið sé að gefa eftir og við það verði
innfluttar vörur til Bandaríkjanna
ódýrari. Verði þróunin á þennan veg
geti það seinkað styrkingu dalsins
gagnvart evru. Varðandi spár um
þróun vöruverðs á Íslandi næstu
misseri segir Ragnar Björn að verð á
hrávöru muni ekki fylgja gengi dals-
ins að öllu leyti.
Dýr dollari myndi fæla frá
Það sé hæpið að segja að styrking
dollarans muni hafa neikvæð áhrif á
verð innfluttra vara á Íslandi, sem
keyptar séu inn í evrum.
„Markaðurinn finnur út úr þessu.
Ef dollarinn er dýr fara fyrirtækin
einfaldlega annað. Styrking dollarans
þarf ekki endilega að þýða að hrávör-
ur verði dýrari. Ef dollarinn styrkist
um 10% mun hveiti til dæmis ekki
hækka um 10% gagnvart öðrum
myntum,“ segir Ragnar Björn.
Heiðar Guðjónsson fjárfestir segir
styrkingu evrunnar gagnvart Banda-
ríkjadal á síðustu vikum þvert á hrak-
spár um að gengi evru myndi halda
áfram að veikjast í fyrirsjáanlegri
framtíð. Evran hafi í kjölfar evru-
kreppunnar orðið að fjármögnunar-
mynt, líkt og japanska jenið hafi verið
síðan í upphafi 10. áratugar síðustu
aldar. Það er að segja mynt með lága
vexti á svæði þar sem er lítill hag-
vöxtur. Var tíundi áratuginn í Japan
nefndur „glataði áratugurinn“, enda
ávannst þá lítið í efnahagsmálum.
„Evran hefur verið að styrkjast,
þvert á allar væntingar. Flestir búast
við því að vöxtur á evrusvæðinu verði
hægari en í Bandaríkjunum. Þá
hugsa menn með sér að það hljóti að
koma fram í genginu. Sagt er að evr-
an sé lágvaxtamynt sem muni veikj-
ast gagnvart öðrum myntum á svæð-
um þar sem er meiri hagvöxtur.
Menn kaupa því eignir á vaxtarsvæð-
um og taka lán fyrir kaupum í evrum.
Fyrir vikið verður evran fjármögnun-
armynt. Þess vegna kalla ég evruna
hið nýja jen,“ segir Heiðar.
Hann segir þorra fjárfesta hafa
verið sömu megin í þessum viðskipt-
um. Nú neyðist margir til að selja
eignir vegna mikillar lækkunar í
kauphöllunum.
„Menn hafa tekið mikið af lánum í
evrum og verða fyrir höggi þegar
eignirnar rýrna þegar hlutabréfa-
markaðir falla [í kjölfar snarprar
lækkunar í Kína] og áhættuálagið
eykst. Á hinum endanum segja lán-
veitendur að þetta sé áhætta sem þeir
gerðu sér ekki grein fyrir. Þeir segja
lántakanum að koma með frekari
tryggingar. Ef lántakinn getur það
ekki þarf hann að gera upp hluta af
láninu. Þannig að ég tel að evran hafi
verið að styrkjast vegna þess að of
mikil spákaupmennska hafi verið í þá
átt að evran sé að fara að veikjast um
ókomna tíð. Nú gengur þetta svona til
baka,“ segir Heiðar, sem spáir því að-
spurður að gengi krónu muni halda
áfram að styrkjast. Hversu mikil sú
styrking verði muni ráðast af aðgerð-
um Seðlabankans og ríkisstjórnar-
innar.
Skiptar skoðanir um
áhrif veikari evru
Gjaldeyrismiðlari er ekki sammála forstjóra Krónunnar
Gengi evru gagnvart Bandaríkjadal
Spá Goldman Sachs til 2018*
1,15
1,10
1,05
1,00
0,95
0,90
0,85
0,80
26.08. 2015 2016 2017 2018
*Hér er miðað við gengisskráningu kl. 15.45 í gær og spá sem
birtist í The Global FXAnalyst, riti Goldman Sachs, 9. júlí sl.
1,14
0,85
0,8 0,8
Jón
Björnsson
Finnur
Árnason
Ragnar Björn
Ragnarsson
Heiðar
Guðjónsson
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2015
50%
afsláttur
Flottir
fyrir helgina!
Vel fylltur í 70-85B og
75-85C á kr. 5.850-
buxurnar kr. 1.995
Mjúkur í 75-90CD
á kr. 5.850,
buxur kr. 1.995
Póstsendum hvert á land sem er | Laugavegi 178 | Opið mán-fös 10-18 | S. 551-2070/551-3366 | www.misty.is
Léttir og þægilegir dömuskór úr leðri með 50% afslætti
Enn rýmum við til
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
sími 571 5464
www.tiskuhus.is
Útsölulok
70% afsláttur af
öllum útsöluvörum
Smart föt, fyrir
smart konur
Reiknast af upphaflegu verði
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Um 23% nemenda á iðnnáms-
brautum Verkmenntaskóla Austur-
lands, VA, koma beint úr 10. bekk og
tæp 37% þeirra sem nú hófu nám í
grunndeildum iðngreina í Verk-
menntaskóla Akureyrar, VMA, luku
10. bekk í vor. Þetta er talsvert
hærra hlutfall en landsmeðaltalið.
Samkvæmt tölum Menntamála-
stofnunar völdu 14% 10. bekkinga
verknám og í Morgunblaðinu í gær
sagði Jón B. Stefánsson, skólameist-
ari Tækniskólans, að fáir innrituðust
til náms þar strax eftir grunnskóla.
Skólameistarar VA og VMA segja
mismunandi atvinnulíf helstu skýr-
inguna á muninum á aðsókn í iðnám á
höfuðborgarsvæðinu og á lands-
byggðinni.
„Þau eru helst að fara í grunnnám
bygginga- og mannvirkjagreina,
málm- og véltæknigreina og rafiðna-
greina,“ segir Elvar Jónsson, skóla-
meistari VA. Hann segir að 140 nem-
endur séu í dagskóla í VA, helmingur
þeirra á iðnnámsbrautum.
Sterk hefð fyrir iðnnámi
„Við erum í miklu samstarfi við at-
vinnulífið og höfum gert mikið í að
markaðssetja námið hjá okkur,“ seg-
ir Elvar spurður um ástæður þess-
arar miklu aðsóknar. Einn þáttur
markaðssetningarinnar er að nem-
endur í 9. bekk koma eina viku á
sumri í verknámsviku í skólanum þar
sem þeir kynnast störfum sem tengj-
ast verknámsgreinum og er þetta
hluti af vinnuskólanum á staðnum.
„Mér sýnist þetta vera að skila ár-
angri.“
Hjalti Jón Sveinsson, skólameist-
ari Verkmenntaskólans á Akureyri,
VMA, segir að tæp 37% þeirra ný-
nema sem hófu nám við skólann núna
í haust komi beint úr 10. bekk. T.d.
séu þeir 25 af þeim 60 sem hófu nám í
málm- og véltæknigreinum og tæpur
helmingur þeirra sem hófu nám í
matvælagreinum.
„Starfsumhverfið er öðruvísi hér
en á höfuðborgarsvæðinu,“ segir
Hjalti Jón. „Hér er sterk hefð fyrir
iðnnámi og atvinnulífið er áberandi á
þessu sviði. Við erum t.d. með öflug
fyrirtæki á sviði rafiðnaðar og málm-
iðnaðar, við erum með stórar útgerð-
ir og þessi fyrirtæki soga fólk til sín.“
Hjalti Jón segir að hann hafi
merkt þá breytingu undanfarin ár að
í skólann komi einbeittir nemendur
sem ætli sér í áframhaldandi tækni-
nám. „Þetta er greið leið fyrir dug-
lega krakka og ég held að foreldrar
séu að átta sig á því að þetta er góð
leið til að mennta sig. Þetta snýst líka
um að mennta sig til að vinna á svæð-
inu, ekki að mennta sig til að flytja í
burtu.“
Iðnnám nýtur
hylli úti á landi
Mennta sig til að vinna á svæðinu
Greið leið fyrir duglega krakka
Elvar
Jónsson
Hjalti Jón
Sveinsson