Morgunblaðið - 27.08.2015, Side 22

Morgunblaðið - 27.08.2015, Side 22
22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2015 Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 bokun@baendaferdir.is Síðumúla 2, 108 Reykjavík Í þessari skemmtilegu ferð til Þýskalands, Frakklands og Sviss kynnumst við lífinu í bænum Oberkirch í Svartaskógi, skoðum aldagamla kastala, gauksklukkur og förum í siglingu á ánni Ill. Við heimsækjum háskólaborgina Heidelberg, Basel í Sviss og ökum Vínslóðina í Alsace.Auðveld og skemmtileg haustferð, þar sem gist verður á einu hóteli alla ferðina. Verð: 174.400 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! Sp ör eh f. Fararstjóri: Þórhallur Vilhjálmsson 8. - 15. október Haustlitir í Svartaskógi Haust 8 SVIÐSLJÓS Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Það er ein af frumskyldum hags- munasamtaka eins og okkar að vakta afkomu greinarinnar á hverjum tíma. Það gera hliðstæð samtök í nágranna- löndunum,“ segir Baldur Helgi Benjamínsson, framkvæmdastjóri Landssambands kúabænda. Sam- bandið hefur gefist upp á því að bíða eftir opinberum tölum um afkomu kúabænda og haf- ið söfnun og úr- vinnslu eigin upp- lýsinga. Þar kemur fram að heildartekjur kúa- búa jukust nokkuð á síðasta ári en af- koman hefur ekki batnað í takti við það. Hagstofan tók við hagskýrslugerð landbúnaðarins þegar Hagþjónusta landbúnaðarins var lögð niður. Það hefur orðið til þess að mjög hefur dregist að vinna úr upplýsingunum. Hagstofan birti til að mynda niðurstöður fyrir árið 2013 nú í júlímánuði. „Við tókum þær út og gerðum grein fyrir þeim en það verð- ur að viðurkennast að þetta eru orðn- ar ansi gamlar upplýsingar. Það er þó ákveðið gagn í þeim. Hagstofan bygg- ir á yfirgripsmeiri gögnum en við er- um með og gerir ítarlegri greiningar en við höfum átt kost á. Vandamálið liggur fyrst og fremst í tímanum, hvað upplýsingarnar eru orðnar gamlar,“ segir Baldur Helgi. Í samræmi við ályktun frá aðal- fundi Landssambands kúabænda var leitað eftir samvinnu við bókhalds- þjónustur búnaðarsambandanna um upplýsingar til að gera úttekt á stöð- unni 2014 og þróuninni frá árinu á undan. Fengust búreikningar 39 búa af Suður-, Vestur- og Norðurlandi og notaði Baldur Helgi 38 þeirra í sam- antekt sem birt hefur verið á vef LK. Mjólkurframleiðsla jókst á árinu 2014, miðað við árið á undan, eins og vitað var. Meðalinnlegg búanna 38 var 277 þúsund lítrar, sem er liðlega 22 þúsund lítra aukning. Hefur fram- leiðslan aukist um tæp 9% á milli ára. Baldur segir að þetta sé í ágætu sam- ræmi við framleiðsluaukninguna í landinu á síðasta ári. Stærð búanna er afar misjöfn. Það minnsta fram- leiddi 100 þúsund lítra en það stærsta 700 þúsund lítra. Tekjur af mjólkursölu jukust um tæplega 2,8 milljónir kr. að jafnaði á bú. Það er vegna aukinnar fram- leiðslu og hækkunar á mjólkurverði til bænda sem ákveðin var síðla árs 2013. Á móti kom að tekjur af nauta- kjötsframleiðslu minnkuðu. Í heildina jukust rekstartekjur búanna úr um 40 milljónum í 42 milljónir, eða um 2 milljónir á bú. Aukinn fóðurkostnaður Kostnaður jókst einnig verulega og í heildina meira en tekjurnar. Þar sker fóðurkostnaður og aðkeypt þjónusta sig úr. Fóðurkostnaðurinn hækkaði að meðaltali um 900 þúsund krónur á bú og þjónusta um 600 þús- und krónur. Á móti kemur að áburður og sáðvörur lækkuðu í verði og með- alkostnaðurinn minnkaði um 640 þús- und vegna þess. Athygli vekur að fóðurkostnaður skuli aukast því að talið er að fóð- urverð hafi lækkað. Í greiningu LK kemur fram að áætla megi að notkun á kjarnfóðri hafi aukist um nærri 20%. Fyrningar jukust, sem og vaxta- gjöld. „Sjá má að þessi bú hafa ráðist í talsverðar fjárfestingar bæði þessi ár. Fjárfestingar eru meiri en afskriftir, sem sýnir að bændur eru ekki að ganga á eignir sínar. Það verður einn- ig að líta til þess að afar litlar fjárfest- ingar voru eftir hrun og þörfin fyrir endurnýjun því umtalsverð. Ánægju- legt er að sjá að bændur hafa að ein- hverju leyti náð að fara í þær,“ segir Baldur. Um leið getur hann þess að vaxtagreiðslur séu annar eða þriðji hæsti kostnaðarliður á hverju búi. Það sé áhyggjuefni en segi ákveðna sögu um rekstrarumhverfið hér á landi, í landbúnaði eins og öðrum at- vinnugreinum. Vextir séu háir og erf- itt að bera sig saman við nágranna- lönd þar sem bændur nái að fjármagna sig á allt öðrum kjörum. Þegar litið er til niðurstöðunnar, þar sem hagnaður af rekstri búanna hefur minnkað þrátt fyrir tekjuaukn- ingu, segir Baldur að hann hefði viljað sjá meira af tekjunum sitja eftir hjá bændum. Tekjuaukinn renni þó að einhverju leyti til bændanna með auknum launagreiðslum. Búin hafi verið í stakk búin til að greiða eig- endum sínum hærri laun. Samkvæmt samantektinni hafa laun og launa- tengd gjöld aukist úr um 6,1 milljón að meðaltali á bú í tæpar sjö milljónir. Mikill breytileiki í kostnaði Baldur segir að þegar hagsmuna- samtökin hafi sjálf aðstöðu til að vinna með upplýsingar um afkomu búanna sé hægt að gera ýmsar grein- ingar. Nefnir hann mikilvægi þess að sjá breytileikann í kostnaðarliðum svo að bændur geti miðað sig við aðra. Nefnir Baldur að hann hafi slegið lauslega á kjarnfóðurkostnað á lítra. Komið hafi í ljós að hann sé mjög breytilegur; frá því að vera innan við 20 krónur á lítra og upp í 35 krónur. „Þetta spannar breitt bil og sýnir að víða er svigrúm er til að gera betur í rekstrinum.“ Þá segir hann að ekki megi gleyma því að tölurnar séu nýjar. „Mér finnst vandræðalegt að koma á fundi með bændum og sýna þeim gamlar tölur um reksturinn. Menn hafa ekki áhuga á því. Þeir eru uppteknir af því hver staðan er núna,“ segir Baldur. Svigrúm til að gera betur  Landssamband kúabænda safnar upplýsingum um rekstur kúabúa á árinu 2014  Tekjur bænda af mjólkursölu jukust um 2,8 milljónir  Fóðurkostnaður og aðkeypt þjónusta jókst á móti Morgunblaðið/Kristinn Stækkun Kúabændur nýta góðærið í mjólkursölunni til að fjárfesta í tækjum og mannvirkjum. Byggð eru ný fjós og önnur endurbætt eða stækkuð. Baldur Helgi Benjamínsson Mjólkurframleiðslan er mikil þessa mánuðina og jafnvel meiri en búist var við. Það var söguleg ákvörðun að auka greiðslumarkið um 15 milljónir lítra á þessu ári en náðst hefur að auka fram- leiðsluna sem því nemur og jafn- vel meira því nú stefnir í að fram- leiðslan fari yfir 140 milljón lítra. Greiðslumarkið var aukið úr 125 í 140 milljónir lítra fyrir þetta ár. Þar af voru fjórar milljónir til að koma birgðastöðunni hjá mjólkuriðnaðinum í lag. Baldur Helgi Benjamínsson segir að birgðir af mjólkurfitu hafi verið orðnar óþægilega litlar. Það hafi aðeins þurft að auka kvótann í eitt ár til að laga birgðastöðuna. Því hafi verið fyrirsjáanlegt að greiðslumarkið yrði lækkað aftur þegar þessu marki yrði náð, nema svo ólíklega vildi til að sú gríðar- lega söluaukning sem verið hefur síðustu ár héldi áfram. Nú liggur fyrir, að hans mati, að fram- leiðslan verði 141-142 milljónir lítra í ár. Greiðslumarkið á að taka mið af sölu og birgðastöðu. Það þýðir að hans sögn að greiðslumarkið muni minnka um 5-6 milljónir lítra. Ákvörðun um kvóta næsta árs verður tekin í næsta mánuði. Það skiptir ekki öllu máli fyrir þá bændur sem hafa verið að auka framleiðsluna hvað mest hvert greiðslumarkið verður á næsta ári. Þeir fá áfram greitt fyrir alla mjólk sem þeir leggja inn því að Mjólkursamsalan hef- ur lýst því yfir að greitt verði fullt afurðastöðvaverð fyrir alla mjólk út næsta ár. Til þess að fá fullar bein- greiðslur frá ríkinu þurfa bænd- ur að framleiða að fullu það greiðslumark sem úthlutað er. Það hefur valdið erfiðleikum hjá þeim bændum sem ekki hafa haft aðstöðu til að bæta miklu við þegar greiðslumarkið hefur verið hækkað stórlega. Ef greiðslumarkið minnkar aftur á næsta ári skapar það þeim hópi bænda visst andrúm. Greiðslumark lækkar líklega um 5 til 6 milljónir lítra BIRGÐASTAÐAN KOMIN Í LAG Morgunblaðið/Kristinn Kýr Dregið hefur úr vexti mjólkursölunnar og birgðastaðan er komin í lag. Það mun leiða til þess að mjólkurkvóti næsta árs verður minni.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.