Morgunblaðið - 27.08.2015, Side 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2015
ER KOMINN TÍMI
Á SJÓNMÆLINGU?
Traust og góð þjónusta í 19 ár
Hamraborg 10 – Sími: 554 3200 – Opið: Virka daga 9.30-18
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Ungfrú Ísland fer fram þann 5.
september, en keppnin verður þá
endurvakin eftir að hafa legið í dvala
í tvö ár. Keppnin er gríðarlega vin-
sælt umræðuefni og hafa flestir skoð-
un á henni. Alls
eru 19 þúsund
áskrifendur að
Snap-
chat-reikningi
keppninnar,
ungfruisland, en
þar má sjá hvað
fer fram bak við
tjöldin. „Það er
alltaf mikið umtal
í kringum svona
keppni. Fólk elsk-
ar að tala um Ungfrú Ísland og vissu-
lega hefur Snapchat aukið umtalið,
en þetta er gríðarlega skemmtileg
leið að kynnast keppendum og und-
irbúningnum og bak við tjöldin,“ seg-
ir Fanney Ingvarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri keppninnar í ár og
fyrrverandi Ungfrú Ísland. „Undir-
búningurinn fyrir lokakvöldið er
númer eitt, tvö og þrjú og ekki síður
mikilvægur en sjálft lokakvöldið. Við
erum búin að vera saman í þrjá mán-
uði og hittast, æfa og upplifa
skemmtilega hluti. Hópurinn fór
meðal annars á Dale Carnegie-
námskeið. Snapchat er hugsað til að
fá innsýn í keppnina, hvernig und-
irbúningi er háttað og hvað er hægt
að læra af honum.
Það eru núna 19 þúsund áskrif-
endur að Snapchat-reikningi keppn-
innar. Einhverjir vilja ekki viður-
kenna að þeir séu að fylgjast með en
það skoða þetta margir. Við höfum
fengið góð viðbrögð enda hafa marg-
ir skoðun á þessari keppni en heilt
yfir hefur þetta ævintýri verið stór-
skemmtilegt.“
Eigendaskipti urðu á keppninni í
fyrra þegar Björn Leifsson og Haf-
dís Jónsdóttir, kennd við World
Class, keyptu keppnina og verður
hún haldin í Hörpu. „Það var bara
eitt ár sem keppnin var ekki og það
var aldrei spurning um að koma til
baka núna í ár. Undirbúningur hefur
gengið vel, stelpurnar æfa mikið og
góðir gestir hafa komið til okkar í
heimsókn. Við höfum haldið marga
fyrirlestra fyrir stelpurnar sem
koma til með að hjálpa þeim í fram-
tíðinni, meðal annars hvernig sé best
að koma fram í fjölmiðlum, því að
þetta eru allt óvanar stelpur að koma
fram og sigurvegaranum er skyndi-
lega hent í sviðsljósið.“
Góðgerðarstarf skiptir máli
Keppendur hafa sinnt góðgerðar-
starfi af miklum myndarskap og
þannig hljóp stór hluti hópsins í
Reykjavíkurmaraþoninu til góðs. Þá
hefur verið haldinn fatamarkaður,
sérstök bíósýning verður á mánudag
í Laugarásbíói til styrktar lang-
veikum börnum og þá gerðu nokkrir
keppendur sérstaka auglýsingu fyrir
Kvennaathvarfið. „Það er magnað að
sjá hvað stelpurnar hafa hrist upp úr
erminni. Stelpurnar taka allar þátt í
góðgerðarstarfseminni. Ágóðinn af
bíósýningunni rennur allur óskiptur
til langveikra barna. Myndin No
Escape verður þá forsýnd og mið-
arnir verða seldir á 1.000 krónur.“
Góð stemning utan vallar
Stemningin í hópnum er mjög góð,
segir Fanney, og kemur það henni
ekki á óvart. Sjálf kynntist hún
mörgum góðum vinkonum í keppn-
inni sem hún tók þátt í. „Það er klisja
að segja svona en það er gaman að
taka þátt í svona keppni fyrir félags-
skapinn. Það er staðreynd. Margar
stelpur í dag, sem hafa tekið þátt í
Ungfrú Ísland, halda enn hópinn
sem tók þátt með þeim og eiga marg-
ar góðar vinkonur. Það hefur sitt að
segja. Sjálf kynntist ég einni af mín-
um bestu vinkonum þegar ég tók þátt
í Ungfrú Ísland. Það er vissulega stór
hluti af þessu. Utan vallar er líka góð-
ur mórall, sem gerir ferlið skemmti-
legra.“
Fer til Kína
Sú sem verður krýnd Ungfrú Ís-
land, eða Miss World Iceland, fer í
keppnina Ungfrú heim, eða Miss
World, sem fram fer í borginni Sanya
í Kína þann 19. desember. Fanney
þekkir borgina vel, en hún keppti þar
á sínum tíma og heillaðist af landi og
þjóð. „Það eru forréttindi að ferðast
og sjá hluta heimsins. Kína var æðis-
leg. Ég var alls í fimm vikur, þar sem
við fórum til Peking, Shanghai og
Mongólíu meðal annars. Síðustu tvær
vikurnar dvaldi ég í Sanya, þar sem
lokakvöldið fór fram. Þetta var frá-
bær ferð. Ég kvarta allavega ekki.“
Keppt um titla
Stóra stundin nálgast, en keppnin
fer fram í Hörpu. Undirbúningi hefur
verið breytt og stelpurnar skrifa ekki
lengur undir stranga samninga. Þá
verður engin í öðru eða þriðja sæti
heldur verður keppt um fimm titla, en
auðvitað vilja allar vinna stóra titilinn,
Ungfrú Ísland.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Æfing Keppendur í Ungfrú Ísland á æfingu í vikunni en keppnin fer fram 5. september. Sigurvegarinn tekur þátt í Ungfrú heimi eða Miss World í borginni Sanya í Kína þann 19. desember.
Bak við tjöldin á Ungfrú Íslandi
19 þúsund manns fylgjast með keppendum í Ungfrú Íslandi á forritinu Snapchat Sigurvegarinn
fer til Kína Ekki lengur skrifað undir stranga samninga Vinátta sem endist að eilífu
Síminn skoðaður Hér skoða þær Indíana Svala, Kristjana, Bertha María,
Íris Rós og María Björk Snapchat-reikningi keppninnar.Fanney Ingvarsdóttir