Morgunblaðið - 27.08.2015, Qupperneq 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2015
Kennarar við Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra á Sauðárkróki,
FNV, hafa sent frá sér ályktun, en
þeir telja forsendur brostnar fyrir
innleiðingu nýs vinnumats kennara
í framhaldsskólum. Nú sé komið í
ljós að frá fyrstu kynningu á vinnu-
matinu hafi verið skekkja og sú út-
gáfa matsins hafi verið notuð til
grundvallar í kosningu um kjara-
samning kennara. Í nýjustu útgáfu
af reikniverki fyrir vinnumatið hafi
skekkjan verið lagfærð, en hún tek-
ur til útreikninga á álagi fyrir 29.
og 30. nemandann annars vegar, og
hins vegar til álags vegna
nemendafjölda umfram hámarks-
fjölda.
Telja forsendur
vinnumats brostnar
Sauðárkrókur Kennarar FNV álykta.
Jóhann Ólafsson
johann@mbl.is
Íslenska fyrirtækið Digon Games
gefur út fótboltaleikinn Kickoff CM
í dag. Að baki útgáfu leiksins liggur
mikil og löng vinna starfsmanna,
stjórnarmanna, fjárfesta og annarra
sem komið hafa að leiknum. Um
þriggja ára verkefni er að ræða sem
er fjármagnað að mestu leyti af
einkafjárfestum. Kostnaður hljóðar
upp á um 150 milljónir króna.
Engin tölvugerð lið
„Þróun leiksins hefur staðið yfir í
þrjú ár og kostað blóð, svita og tár,“
segir Guðni Rúnar Gíslason leikja-
hönnuður við Morgunblaðið.
Hann segir að leikurinn sé nokk-
urs konar „manager“-leikur á net-
inu en samt sé hann frábrugðinn
þeim hefðbundnu leikjum. „Hjá okk-
ur er um að ræða einn leikjaheim
þar sem allir notendur eru saman.
Það eru því engin tölvugerð lið, bara
ég að spila á móti vinum mínum.
Einnig stjórna notendur dagskránni
alveg sjálfir. Við erum því ekki að
skipuleggja leiki fyrir þig, heldur
ferð þú inn í leikinn og spilar þína
leiki. Það gerir leikinn óformlegan
en verður líka til þess að mikil
spenna getur myndast snögglega.“
Einn músarsmellur
Guðni segir að sáraeinfalt sé að
skrá sig í leikinn og búa til lið. „Fólk
fer inn á síðuna okkar, kickoff.is, og
er leitt áfram í gegnum sáraeinfalt
skráningarferli.“ Núna snúist
markaðssetning leiksins um Ísland
og vegna þess að flestir séu með að-
gang að Facebook geti fólk skráð
sig þar með einum músarsmelli.
„Síðan tekur það bókstaflega nokkr-
ar sekúndur að búa til lið, þú ein-
faldlega velur nafn á lið og þá er
það klárt.“ Leikurinn er fyrst
um sinn aðgengilegur í vafra
en næsta mál á dagskrá er
að gera hann kláran fyrir
spjaldtölvur og síma.
Guðni segir tekjumódel leiksins
vera traust. „Við teljum það okkar
helsta styrkleika, fyrir utan
skemmtilegan leik. Leikurinn er
ókeypis en tekjumódelið er tvíþætt.
Annars vegar sóttum við um einka-
leyfi í Bandaríkjunum fyrir auglýs-
ingamódel, en á ákveðnu stigi í
leiknum geta notendur fengið tilboð
um styrktaraðila og þá geturðu valið
hverja þú getur samið við. Þetta eru
þá alvöru vörumerki og við höfum
samið við Ölgerðina um að greiða
fyrir birtingu á þremur alþjóðlegum
vörumerkjum í leiknum. Pepsi er
búið að samþykkja þessa birtingu
og við höldum áfram að vinna í
þessu.“
Guðni er spenntur fyrir framhald-
inu og segir prófanir hafa komið
mjög vel út. „Við erum mjög ánægð
með það. Það verður gaman að
keyra leikinn í gang og sjá hver við-
brögðin verða við þessu öllu saman.“
Íslenskur „manager“-fót-
boltaleikur kemur út í dag
Þróun leiksins staðið yfir í þrjú ár Einfalt að skrá sig og hefja leik
Ljósmynd/Guðni Rúnar Gíslason
Lið Engin tölvugerð lið eru í leiknum og munu spilarar því aðeins geta keppt innbyrðis. Guðni telur það mikinn kost.
Guðbrandur
Jónsson, sem vill
finna flak danska
herskipsins
Gautaborgar,
segir að hann
þurfi ekki forn-
leifafræðing eða
leyfi Minjastofn-
unar til að reyna
að finna keðjur,
fallbyssur og bal-
lest skipsins. Guðbrandur segist að-
eins vilja finna hlutina en ekki
rannsaka og lögin ná ekki yfir slíkt.
Í Morgunblaðinu á mánudag
sagði Kristín Huld Sigurðardóttir,
forstöðumaður Minjastofnunar, að
aðeins fornleifafræðingar mættu
rannsaka fornminjar og benti á að
brot gegn minjavernd geti varðað
fangelsi. „Mér fannst Minjanefnd
taka heldur harkalega til orða á
mánudag. Það voru stór orð sem
þar voru látin falla. Fornleifafræð-
ingur þarf ekkert að koma fyrr en
eitthvað er fundið. Ég vil finna en
ekki rannsaka,“ segir Guðbrandur.
benedikt@mbl.is
Vill finna en ekki
rannsaka flakið
Farið Skipið sökk
hér við land 1718.
Leikjahönnuðirnir vilja fyrst um sinn fá eins marga notendur til að spila
leikinn og mögulegt er. Með því geta þeir séð hvernig notendur hegða sér
í leiknum, hvað þeir gefa af sér í tekjum og fleira í þeim dúr. „Það mun
síðan nýtast okkur í vinnunni áfram þegar við förum í markaðssetningu
erlendis,“ segir Guðni R. Gíslason.
Notendur geta einnig greitt fyrir ákveðna „flýtimeðferð“ í
leiknum.
„Notendur eru þá að uppfæra einhver atriði hjá sínu liði
og geta sleppt því að bíða í kannski klukkustund með því að
borga. Þá greiða þeir með gjaldmiðli innan leiksins. Þó að þú
getir fengið þennan gjaldmiðil innan leiksins geturðu einn-
ig keypt hann með alvöru peningum og einhverjum
hluta spilara þykir þetta áhugavert,“ segir Guðni, en
þeir óþolinmóðustu geta því greitt smá gjald og
sleppt því að bíða, sem getur jú verið þreytandi.
Hægt að kaupa „flýtimeðferð“
HÖNNUN Á NÝJA LEIKNUM
Guðni R. Gíslason.
Samkvæmt nýrri skoðanakönnun
Gallup eru færri sem segjast vera
trúaðir en meðaltal sömu könnunar
segir á heimsvísu, eða 51% hér á
landi á meðan hlutfallið er 63% á
heimsvísu. Hér á landi sögðust 30%
ekki vera trúaðir einstaklingar, 14%
sögðust vera trúleysingjar en 5%
tóku ekki afstöðu til spurningarinn-
ar um hversu trúaðir viðkomandi
væru.
Á heimsvísu sögðust 22% ekki
vera trúaðir einstaklingar, 11%
sögðust vera trúleysingjar og 4%
tóku ekki afstöðu. Könnun alþjóð-
legu Gallup-samtakanna, sem Gallup
á Íslandi á aðild að, náði til 64 þús-
und manns víðs vegar um heim.
Spurt var um hversu trúað fólk væri,
burtséð frá því hvort það sækti
trúarlegar samkomur eða staði.
Trú mældist útbreiddust á Taí-
landi en þar á eftir koma Armenía,
Bangladess, Georgía og Marokkó.
Flestir sannfærðir trúleysingjar eru
í Kína, af þeim þjóðum sem spurðar
voru, eða nær helmingi fleiri en hjá
nokkurri annarri þjóð, segir í frétta-
bréfi Gallup. Þar á eftir koma Hong
Kong, Japan, Tékkland og Spánn.
Af einstökum heimshlutum er
hæsta hlutfall trúaðra í Afríku og
Miðausturlöndum. Þar sögðust átta
af hverjum tíu vera trúaðir.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Trú Rétt ríflega helmingur Íslendinga segist vera trúaður, samkvæmt nýrri
könnun Gallup. Um 44% segjast ekki vera trúuð, þar af 14% trúleysingjar.
Íslendingar minna
trúaðir en aðrir
Strandgötu 24 – 220 Hafnarfjörður
Sími 565 4100 - www.nyform.is
Eldhúsborð og stólar teg. Kelly Komnir aftur margir litir Borðstofuhúsgögn teg. Amadeus
1 Teg. Giulia 3 – 1 – 1
Opið virka daga kl. 10–18
Laugardaga kl. 11–15
Erum á Strandgötu 24, Hafnarfirði