Morgunblaðið - 27.08.2015, Page 32
32 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2015
www.thor.is
ÞÓR HF - UMBOÐSAÐILI EPSON Á ÍSLANDI Í MEIRA EN 30 ÁR
EPSON EXPRESSION HOME XP-322
Einfaldur og góður prentari og skanni fyrir skólafólk.
13.00
0
EPSO
N Exp
ressio
n
Home
XP-32
2
,-
TÖLVUVERSLUN - ÁRMÚLA 11
ÞÓR HF
Þráðlaus fjölnotaprentari (skanni, ljósritun og
prentun). Hentar vel til að prenta allt frá texta yfir í
góða ljósmynd. Beinn stuðningur við iPhone/iPad og
Android. Hægt er að fá APP til að prenta og skanna
með iOS og Android tækjum. Allar helstu skipanir á
skjá. Hagkvæmur í rekstri.
EPSONWORKFORCEWF5620
20
ppm*
EPSONWorkForce Pro eru fjölnota skrifstofuprentarar
(fax, skanni, ljósritun, prentun og tölvupóstur).
Nettengdur/þráðlaus prentari með þægilegan
snertiskjá. Prentar allt að 20 síður á mínútur og getur
prentað báðummegin á blaðið. Auðvelt að skipta um
blek. Hægt að prenta á umslög og þykkari pappír.
EPSONWorkForce Pro er ný kynslóð umhverfisvænna
bleksprautuprentara sem leysir af hólmi gömlu
laserprentarana.
49.30
0
EPSO
NWo
rkFor
ce
ProW
F-562
0DWF
,-
Karl Eskil Pálsson
karlesp@simnet.is
„Ég er alinn upp við sjávarsíðuna og
hef átt nokkra eikarbáta í gegnum
tíðina. Ég var fimmtán ára gamall
þegar ég keypti fyrsta súðbyrða tré-
bátinn, sem fluttur var frá Sand-
gerði í bílskúrinn til uppgerðar.
Báturinn fyllti auðvitað vel upp í bíl-
skúrinn, þar sem ég dyttaði að
honum með hjálp góðra vina. Það er
ástríða hjá mér að gera upp gamla
eikarbáta, kynna mér sjóminjar og
strandmenningu. Forfeður mínir
voru sjómenn og kannski hef ég
þetta frá þeim, en hvernig sem á því
stendur hefur þetta verið mér mjög
svo hugleikið í gegnum tíðina,“ segir
Lárus H. List, listamaður á Akur-
eyri. Hann hefur nú eignast enn einn
eikarbátinn, sem er Fjóla BA 150.
Lárus sigldi Fjólu frá Reykhólum til
Akureyrar í síðustu viku.
Megum ekki missa fleiri báta
„Báturinn var smíðaður á Fá-
skrúðsfirði árið 1971 og er um 17
metra langur, með þessari fínu
Gardner-vél sem er algerlega ein-
stök. Birkir Guðmundsson, báta-
áhugamaður og vinur minn, sem er
að gera upp Pilott BA í Reykjavík,
kom okkur Jóhannesi Haraldssyni,
fyrrverandi eiganda Fjólu, saman.
Jóhannes hringdi einfaldlega í mig
og spurði hvort ég hefði áhuga á að
taka við bátnum, með það að mark-
miði að gera hann upp og varðveita.
Ég þurfti nú ekki að hugsa málið
lengi, enda er Fjóla um margt í mjög
góðu standi, þannig að það eru
spennandi tímar framundan hjá mér
og eflaust fæ ég gott fólk í lið með
mér varðandi framhaldið. Ég þakka
mínum sæla fyrir að Jóhannes hafi
viljað koma bátnum til fólks sem
hefur áhuga á að varðveita íslenska
skipasögu. Siglingin hingað norður
gekk vel, enda veðrið ákjósanlegt.
Eikarbátum hefur fækkað mikið
og við hreinlega megum ekki við því
að missa fleiri frá okkur. Skilningur
á varðveislu gamalla báta og skipa
hefur vissulega farið vaxandi á und-
anförnum árum, en sú var tíðin að
slíkir bátar þóttu best geymdir á
áramótabrennum landsmanna og við
sem vildum varðveita þessi skip og
báta vorum einfaldlega álitin eitt-
hvað skrýtin.“
Ástríða lykilatriði
Lárus segir að á Akureyri séu um
margt góðar aðstæður til að gera
upp eikarbáta og bendir á Húna II,
sem var smíðaður á Akureyri árið
1963. „Það var búið að taka Húna II
af skipaskrá á sínum tíma og til stóð
að eyða honum á áramótabrennu.
En honum var bjargað og kom hing-
að 2005 í ágætis standi. Ég átti
frumkvæðið og hugmyndina að
Húnaverkefninu, sem gekk eftir eins
og við þekkjum það hér.
Margir hafa komið að viðhaldi
Húna II og ég held að augu landans
séu að opnast í þessum efnum. Það
tekur nokkur ár að gera upp slíkt
skip og er ekki á færi eins manns, en
margt gott fólk kemur til með að
leggjast á árarnar með mér í þessu
nýjasta verkefni. Við getum sagt að
ástríða sé lykilatriðið í slíku verkefni
og hérna á Akureyri er stór hópur
sem hefur metnað og vilja til að
varðveita söguna og gera upp slíkan
bát. Fjóla verður án efa fallegt blóm
í flórunni með tíð og tíma. Þótt ekki
séu liðnir margir dagar frá því Fjólu
var lagt hérna við Torfunefsbryggju,
hafa þegar margir sett sig í sam-
band við mig og lýst yfir áhuga á að
koma að endurgerðinni, þannig að
ég er viss um að þetta verkefni kem-
ur til með að verða gjöfult og
skemmtilegt.“
Lárus segir að almennt hafi verið
hlegið að hugmyndinni um að hafa
menningartengdan eikarbát við
Torfunefið á Akureyri á sínum tíma.
„Já, já, blessaður vertu, en
draumur minn og hugmyndasmíð
rættist með komu Húna II hingað.
Við vorum nokkrir sem gengum í að
vinna úr þessari hugmynd minni og
fjármagna kaupin á Húna II og til að
gera langa sögu stutta má segja að
afstaðan hafi breyst mikið þegar
Kristján Vilhelmsson í Samherja
bættist í hópinn. Þá fóru hjólin að
snúast hraðar og fyrr en varði fórum
við að sjá til lands varðandi fjár-
mögnun og fleira. Mörgum fannst al-
gjör vitleysa að varðveita þessa
gömlu báta, en í dag dettur engum í
huga að hlæja. Túristarnir mynda
þessa gömlu báta í gríð og erg, sem
segir okkur auðvitað mikið. Það er
sál í þessum bátum og flestir þeirra
geyma merkilegar sögur.“
Lárus segist ekki sjá eftir tíman-
um sem hann hefur varið í endur-
gerð og varðveislu gamalla eikar-
skipa. „Ég eflist með hverju árinu og
Fjóla BA 150 verður líklega ofarlega
í huga mér næstu árin. Ég hlakka
bara til, enda er viðhorfið allt annað
og jákvæðara en þegar ég talaði fyr-
ir Húnaverkefninu á sínum tíma,“
segir Lárus H. List.
Það er sál í þessum eikarbátum
Þegar Lárus H. List talaði fyrir varðveislu trébáta eins og Húna II var hlegið að honum Gamlir eikar-
bátar þóttu best geymdir á áramótabrennum Næsta verkefni Lárusar er að endurbyggja Fjólu BA
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Fallegt blóm „Fjóla verður án efa fallegt blóm í flórunni með tíð og tíma,“ segir Lárus H. List. „Hérna á Akureyri
er stór hópur fólks sem hefur metnað og vilja til að varðveita söguna og gera upp slíkan bát.“
Í höfn Lárus H. List, myndlistarmaður og áhugamaður um varðveislu tré-
báta, kemur með bátinn Fjólu til Akureyrar í síðustu viku.
Eikarbáturinn Húni II á Akureyri
varð landsfrægur árið 2013 þegar
hann fór tvær siglingar umhverfis
landið, þá síðari með hóp tónlist-
arfólks, sem kallaði sig Áhöfnina á
Húna. Síðan þá hefur bátnum m.a.
verið siglt til Noregs og Danmerk-
ur.
Fyrir um 20 árum stóð til að farga
Húna en nú sinnir hann marg-
víslegum verkefnum og í kringum
hann starfar fjölmennt og öflugt
hollvinafélag sem sér um rekstur
hans og viðhald.
Báturinn, sem er 130 tonn, var
gerður út til fiskveiða í um 30 ár, að-
allega frá Skagaströnd til síldveiða,
en lengst af frá Höfn í Hornafirði
þar sem hann var nefndur Hauka-
fell. Síðan hlaut hann nafnið Gauti
og síðar Sigurður Lárusson frá
Hornafirði. Húnanafnið fékk skipið
aftur er því var bjargað frá niðurrifi
árið 1994; raunar stóð til að brenna
hann á næstu áramótabrennu. Hjón
úr Hafnarfirði, Erna Sigurbjörns-
dóttir og Þorvaldur Skaptason,
björguðu honum, gerðu hann haf-
færan á ný og gerðu hann út sem
hvalaskoðunarbát frá Skagaströnd
og Hafnarfirði. Í þeim siglingum
var Húni um hríð, uns hollvina-
félagið útvegaði fé til kaupa á hon-
um og afhenti hann Iðnaðarsafni
Akureyrar, sem síðan fól félaginu
rekstur hans og viðhald.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Húni II Mikill mannfjöldi tók jafnan á móti áhöfninni á eikarbátnum Húna II
á viðkomustöðum bátsins í hringsiglingunni sumarið 2013
Eikarbátur á hring-
ferðum um landið