Morgunblaðið - 27.08.2015, Blaðsíða 34
34 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2015
SVIÐSLJÓS
Svanhildur Eiríksdóttir
Reykjanesbæ
Ljósanæturhátíð Reykjanesbæjar,
sem er ein stærsta bæjarhátíð lands-
ins og spannar rúma fjóra daga, hef-
ur fest sig rækilega í sessi, enda
haldin í 16. sinn í ár. Heimamenn og
gestir geta sem fyrr reitt sig á að
fyrstu helgina í september verði
Ljósanótt haldin hátíðleg. Fram-
kvæmd hátíðarinnar er nokkuð hefð-
bundin eins og fyrri ár; blöðrum er
sleppt við setningarathöfn, allt sýn-
ingarrými er nýtt fyrir fjölbreyttar
sýningar, söluaðilar bjóða vörur sín-
ar og framleiðslu, myndlistarfólk
býður verk sín á uppboði og tónlist
mun óma um allan bæ. Sem fyrr er
heimafólk í öndvegi og nokkuð er um
ferska vinda.
Notaleg stemning
í gamla bænum
Meðal skemmtilegra nýjunga í ár
eru tónleikar heima í stofu í gamla
bænum föstudagskvöldið 4. septem-
ber, þar sem fjórar hljómsveitir
halda tónleika á jafnmörgum heim-
ilum. Yfirskrift tónleikanna er
„Heima í gamla bænum“ og eru allir
tónlistarmennirnir af Suðurnesjum.
Að sögn Dagnýjar Gísladóttur,
menningarmiðlara og eins af for-
sprökkum tónleikanna, hefur verk-
efnið verið mjög skemmtilegt í undir-
búningi og það sem meira er, þau
hafi kynnst nágrönnum sínum betur,
sem sé bónus. „Þetta er nefnilega svo
skemmtilegt fólk upp til hópa og allir
eru tilbúnir að leggja fram vinnu og
hugmyndir svo að þetta verkefni
megi verða að veruleika. Staðsetn-
ingin er tilvalin enda er gamli bærinn
eins og lítið þorp í bænum og
skemmtileg umgjörð um svona nota-
legt verkefni,“ segir Dagný.
Hljómsveitirnar fjórar sem spila
eru Æla, Trílógía, Gálan og Sígull.
Hver hljómsveit leikur tvisvar sinn-
um, 40 mínútur í senn. Tónleikar
verða bæði kl. 21.00 og 22.00 þannig
að gestir geta gengið á milli og fengið
brot af öllu ef þeir vilja. Dagný segir
miðafjölda takmarkaðan enda ekki
ótakmarkað pláss í stofunni heima,
en möguleiki sé á að færa tónleikana
út í garð ef veður leyfi. „Við búumst
við notalegri stemningu í gamla bæn-
um og hlökkum til að hitta bæjar-
búa.“ Miðasala er á tix.is.
Lög 7. og 9. áratuganna
Aðstandendur tónleikaraðarinnar
Með blik í auga lofa ekki síður nota-
legri stemmningu og ýfingu ljúfra
minninga þegar taktur og tíðarandi
útvarpsþáttanna „Lög unga fólksins“
verður rifjaður upp með stór-
stjörnum í bland við heimamenn.
„Allir sem komnir eru á besta aldur
muna eftir þessum útvarpsþáttum,
sem hófust á þriðjudagskvöldum en
voru síðan fluttir yfir á mánudags-
kvöld. Í þessum útvarpsþáttum réð
unga fólkið tónlistarvalinu og gat
sent kveðjur. Ekki var óþekkt að við
sætum við útvarpssamstæðuna og
tækjum upp lögin á kassettu, sem
síðan var spiluð aftur og aftur þar til
næsti þáttur fór í loftið,“ sagði Krist-
ján Jóhannsson, einn aðstandenda
Með blik í auga. Hann sagðist sjálfur
muna eftir kveðjum til sætu strák-
anna á Cortínunni eða Mustangnum
og til allra þeirra sem voru á balli í
Stapa sl. laugardagskvöld. „Þar hafði
maður kannski verið og eftir kveðj-
una voru þulin upp nöfn vina og
kunningja. Við ætlum að rifja upp
þennan tíðaranda í máli og myndum
og flytja þau lög sem heyrðust í þess-
um vinsælasta útvarpsþætti unga
fólksins milli 1960 og 1990.“
Hljómsveitin verður að mestu
skipuð heimamönnum en söngvarar í
sýningunni eru þau Egill Ólafsson,
Stefanía Svavarsdóttir, Pétur Örn
Guðmundsson og Eyþór Ingi Gunn-
laugsson. Tónlistarstjórn er í hönd-
um Arnórs Vilbergssonar, sem einn-
ig fer fingrum um Hammond-orgelið,
en handritshöfundur og fararstjóri
tímaferðalagsins er sem fyrr Krist-
ján Jóhannsson. Auk frumsýningar-
innar á miðvikudag í Andrews-
leikhúsinu á Ásbrú verða tvær sýn-
ingar sunnudaginn 6. september.
Miðasala er á midi.is.
Heimamenn í öndvegi
Þáttur bæjarbúa í ljósanætursýn-
ingu Listasafnsins verður óvenju
mikill í ár því að Ljósop, félag áhuga-
ljósmyndara á Suðurnesjum, ætlar
að sýna andlit bæjarbúa sem félagið
hefur safnað á undanförnum mán-
uðum, undir stjórn Björgvins Guð-
mundssonar. Sýningin heitir „Andlit
bæjarins“ og mun standa í tæpa tvo
mánuði. Þá verður tónlist laugar-
dagskvöldsins, sem að jafnaði er há-
punktur Ljósanætur, að mestu leyti
flutt af tónlistarfólki af Suður-
nesjum. Þar mun Kolrassa krók-
ríðandi stíga á svið, Sígull og Guð-
mundur Rúnar Lúðvíksson, auk þess
sem flutt verður brot úr sýningunni
„Sveitapiltsins draumur – Rúnar Júl-
íusson 70 ára“ sem flutt var í Stapa í
vor.
Árgangagangan á laugardeginum,
þar sem hver árgangur hittist við við-
komandi húsnúmer á Hafnargötu og
gengur niður götuna að hátíðar-
sviðinu, er árviss og alltaf vinsæl,
enda koma margir í bæinn til að hitta
gömlu félagana. Sá árgangur sem
fagnar fimm tugum skipar sérstakan
sess í göngunni ár hvert.
Börnin verða ekki svikin um dag-
skráratriði. Þó að tívolítækin séu allt-
af vinsæl má finna marga dag-
skrárliði fyrir börn sem eru
gjaldfrjálsir. Tveir ávextir úr
Ávaxtakörfunni mæta á Bókasafn
Reykjanesbæjar kl. 11.00 á laug-
ardagsmorgun til að lesa og syngja
og síðan hefst fjölskyldudagskrá á
hátíðarsviði kl. 14.00 sem Leikhóp-
urinn Lotta stýrir, auk þess að vera
sjálfur með leikþátt. Skessan býður í
lummur frá 14.30 og á sama tíma
sýnir Brúðubíllinn aftan við Duus
safnahús. Unglingum í 5.-7. bekk
verður boðið í sundlaugarpartí síð-
degis á föstudag og Ljósanæturballið
í Stapa á föstudagskvöld verður fyrir
nemendur í 8.-10. bekk.
Dagskrá Ljósanætur 2.-6. septem-
ber má nálgast í heild sinni á vefnum
www.ljosanott.is.
Tónleikar á fjórum heimilum
Undirbúningur Ljósanæturhátíðar stendur nú sem hæst Setningarathöfnin eftir viku en hátíð-
inni þjófstartað á miðvikudag með tónleikaröðinni Með blik í auga Nú er þemað Lög unga fólksins
Ljósmynd/Guðlaug María Lewis
Ljósanótt Styrktaraðilar, í fremstu röð f.v., Hallur Geir Heiðarsson frá Nettó
og Kaskó, Jóhann Snorri Sigurbergsson frá HS Orku og Einar Hannesson frá
Landsbankanum, ásamt Kjartani Má Kjartanssyni bæjarstjóra.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Æfing Arnór Vilbergsson, hljómsveitarstjóri Laga unga fólksins, stýrir hér hljómsveitinni á fyrstu æfingu hennar í
vikunni. Aftan við Arnór eru Sólmundur Friðriksson bassaleikari og Júlíus Guðmundsson trommari.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Gálan Júlíus Guðmundsson tónlistar-
maður fær nokkra tónlistarmenn til
liðs við sig á stofutónleikum.
„Það þarf fólk eins og þig,“
söng Rúnar Júlíusson í vinsælu
lagi og segja má að þessi lína
gæti verið einkennislína Ljósa-
nætur í ár. Í sumar var sent út
bréf til fjölda fyrirtækja á svæð-
inu og leitað eftir fjárhags-
legum stuðningi við fram-
kvæmd hátíðarinnar.
Síðastliðinn þriðjudag skrifaði
Kjartan Már Kjartansson bæj-
arstjóri undir samninga við þrjá
stærstu styrktaraðilana, Lands-
bankann, sem er helsti styrkt-
araðili Ljósanætur, Nettó, sem
styrkir vel dagskrá föstudags-
ins og barnadagskrána, og HS
Orku, sem lýsir upp Ljósanótt
með því að fjármagna flugelda-
sýninguna. Bæjarstjóri þakkaði
fulltrúum þessara þriggja fyr-
irtækja sitt framlag og hvatti
jafnframt önnur fyrirtæki til
dáða.
Fyrirtæki til
stuðnings
LJÓSANÓTT