Morgunblaðið - 27.08.2015, Qupperneq 50
50 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2015
Árin segja sitt1979-2015
Hjónin Ragnar Guðmundsson, matreiðslu-meistari og kona hans
Bára Sigurðardóttir, stofnendur og eigendur Lauga-ás.
Laugarásvegi 1
104 Reykjavík • laugaas.is
)553 1620
Verið velkominn
Lauga-ás hefur frá 1979
boðið viðskiptavinum
sínum uppá úrval af
réttum þar sem hráefni,
þekking og íslenskar
hefðir hafa verið hafðar
að leiðarljósi.
Líney Sigurðardóttir
Þórshöfn
„Forystufé hefur verið til hér um
aldaraðir og alltaf verið í miklum
metum. Það hefur það í eðli sínu
að fara á undan fjárhópi í rekstri
og aðrar kindur fylgja forystu-
fénu. Stundum er forystuféð
meira að vexti en annað fé og feg-
urra. Forystufé hefur verið órjúf-
anlegur hluti af sauðfjárhaldi Ís-
lendinga allt frá upphafi byggðar
hér á landi. Með harðfylgi sínu,
vitsmunum og einstökum forystu-
eiginleikum hefur það margsann-
að gildi sitt og not. Fullvíst er tal-
ið að fé með hegðunarmynstur
íslenska forystufjárins sé hvergi
þekkt í heiminum nú á dögum
nema á Íslandi. Þessi eiginleiki er
því afar fágætur.“
Þessa lýsingu á íslensku for-
ystufé er að finna á Fræðasetri um
forystufé á Svalbarði í Þistilfirði.
Forystukindin hefur fleiri góða
eiginleika, en ull af forystufé þyk-
ir mörgum mýkri og betri en af
öðru fé. Ullin af forystufénu er
unnin fyrir Fræðasetrið bæði hér
á landi og í Noregi og aðeins er
notuð vistvæn sápa við hreinsun
hennar svo að hún heldur vel bæði
mýkt og meiri ullarfitu.
Úr afurðum forustufjár
Á Fræðasetrinu í Þistilfirði er
lítið gallerí þar sem selt er vandað
handverk; allt er það unnið úr af-
urðum forystufjár, svo sem ull,
beini og hornum. Handverksfólkið
er víða að finna og meðal þess er
Edda Jóhannsdóttir á Þórshöfn,
sem er hrifin af forystufjárullinni.
„Ullin af forystufénu er svo ein-
staklega mjúk og gaman að prjóna
úr henni,“ segir Edda, sem prjón-
ar núna ekkert nema úr þeirri
úrvalsull. Í höndum Eddu verður
ullin að fallegum flíkum af ýmsu
tagi sem seldar eru í galleríi
Fræðasetursins og rjúka þar út
eins og heitar lummur. Edda hef-
ur alltaf haft gaman af að prjóna
en hefur núna fyrst nægan tíma til
þess, þar sem hún er hætt að vinna
úti.
Situr ekki auðum höndum
Edda er Þórshafnarbúum að
góðu kunn, ekki bara fyrir fallegt
handverk, heldur hefur hún átt
töluverðan þátt í uppeldi margra
þeirra, en hún hefur annast leik-
skólabörn í þrjátíu og tvö ár og
lagt mikið af mörkum til sam-
félagsins. Edda kemur sjálf úr
stórum systkinahópi, næstelst af
tólf systkinum, fædd og uppalin í
Gunnólfsvík við Finnafjörð.
Edda varð sjötug fyrir fimm ár-
um og hætti þá að vinna úti og
hefur núna nægan tíma til að
sinna áhugamálinu. Hún situr ekki
auðum höndum heldur ganga
prjónarnir ótt og títt og listilega
fallegar flíkur verða til handa
væntanlegum viðskiptavinum
Fræðasetursins í Þistilfirði.
Morgunblaðið/Líney
Á prjónunum Hestapeysurnar prjónaði Edda úr venjulegum plötulopa en
annað handverk er úr ull af forystufé. Húfurnar með kindamunstrinu eru
vinsælar og stoppa stutt við í galleríinu á Fræðasetrinu á Svalbarði.
Prjónar lopapeysur
úr ull af forystufé
Mörgum þykir þessi ull mýkri og betri en af öðru fé
Hæsta verðið var oftast að finna í
verslun Iceland við Engihjalla í
Kópavogi þegar verðlagseftirlit Al-
þýðusambands Íslands gerði verð-
könnun á matvöru í lágvöruverslun-
um, þjónustuverslunum og
stórmörkuðum víðs vegar um landið
24. ágúst. Var hæsta verðið í verslun
Iceland í 40% tilfella. Lægsta verðið
var hins vegar í Bónus við Kjarna-
götu á Akureyri í helmingi tilfella.
„Mikill munur var á hæsta og
lægsta verði milli verslana, en í um
helmingi tilvika var um 10-30% verð-
mun að ræða. Mestur varð verðmun-
urinn 102%. Minnstur verðmunur
var í vöruflokknum osti, viðbiti og
mjólkurvörum,“ segir í fréttatil-
kynningu frá ASÍ.
102% verðmunur á salati
Þegar borið var saman verð á milli
verslananna á þeim vörutegundum
sem verðlagseftirlitið skoðaði var
Iceland með hæsta verðið á 51 vöru
af 121, Samkaup-Úrval var 25 sinn-
um hæst, Hagkaup 22 sinnum og
Víðir Skeifunni 16 sinnum. Bónus
var með lægsta verðið á 67 vörum af
121, Fjarðarkaup 19 sinnum lægst,
Krónan 16 sinnum og Nettó Mjódd
12 sinnum.
Minnstur verðmunur í mæling-
unni er í vöruflokknum osti, viðbiti
og mjólkurvörum en hann var samt
umtalsverður og náði þegar mest var
ríflega 25%, að sögn ASÍ. Af ein-
stökum vörutegundum var minnstur
verðmunur á spelt flatkökum frá
Ömmubakstri, sem voru dýrastar á
242 krónur hjá Fjarðarkaupum en
ódýrastar á 229 krónur hjá Krón-
unni; verðmunurinn var 6%.
Mestur verðmunur að þessu sinni
var á jöklasalati, þar sem kílóið var
ódýrast á 198 krónur hjá Krónunni
en dýrast á 399 krónur hjá Hagkaup-
um; verðmunurinn var 201 króna eða
102%. Þá munaði m.a. 42% á verði á
ORA sardínum í olíu milli Iceland og
Bónus.
Verðið lægst í
verslunum Bónus
Iceland oftast
með hæsta verðið
Verðkönnun Verð er oftast lægst í
verslunum Bónus í könnun ASÍ.
Karl Á. Sigurgeirsson
karl@forsvar.is
Hvammstangi | Sveitarstjórn Húna-
þings vestra kynnti í vetur áform um
að dreifa heitu vatni sem víðast um
héraðið. Í fyrsta áfanga var lagt um
Miðfjörð og einnig byggðina norðan
Reykja í Hrútafirði. Ráðgjafi hita-
veitunnar um framkvæmdina er
Bragi Þór Haraldsson frá Stoð ehf. á
Sauðárkróki, en mikil reynsla er
komin af slíkum veitum í Skagafirði.
Að sögn Skúla Húns Hilmars-
sonar, rekstrarstjóra hjá Húnaþingi
vestra, var verkið boðið út og samið
við Skagfirðinginn Símon Skarp-
héðinsson vélaverktaka, sem er
þaulvanur slíkum verkum úr Skaga-
firði og víðar.
Ljósleiðari lagður í leiðinni
Lögnin um Miðfjörð kemur frá
borholum ofan Laugarbakka, vatns-
hiti er þar nær 90 °C. Lögnin liggur
inn Austursíðu, allt að Barkar-
stöðum, og er með þremur teng-
ingum til bæja vestan Miðfjarðarár.
Lögn er að Staðarbakka og þaðan að
Króksstöðum og Skarfshóli. Önnur
lögn að liggur að Brekkulæk og
þaðan í Huppahlíð og Búrfell. Þriðja
lögnin liggur að Laxahvammi, veiði-
húsi Miðfjarðarár, og Grundarási. Á
Miðfjarðarveitu verða tengd 26 hús.
Einangruð stálrör eru í lögnum,
þar sem hiti er yfir 70 °C og eru þau
grafin niður. Einangruð plaströrin
verða plægð niður. Mesta hæð yfir
sjó verður um 130 metrar. Jafnhliða
vatnslögninni er lagður ljósleiðari og
á hluta leiðarinnar kemur þriggja
fasa jarðstrengur RARIK, en um
sveitina liggur einfasa loftlína, sums
staðar komin til ára sinna.
Verklok í október
Frá Reykjum í Hrútafirði mun
koma lögn til norðurs, allt að Bessa-
stöðum á Heggstaðanesi og upp á
Miðfjarðarháls, að Tjarnarkoti,
Sveðjustöðum og Brúarholti. Mesta
hæð yfir sjó er um 115 m. Alls eru
um 15 íbúðarhús á þessari leið. Gert
er ráð fyrir að hiti í báðum lagna-
greinum verði frá 50-85 °C eftir fjar-
lægð frá jarðhitasvæðum.
Áætluð verklok og þar með teng-
ingar mannvirkja er í október á
þessu ári. Sveitarstjórnin hyggst
halda átakinu áfram á næstu árum,
með lögn í Víðidal og Fitjárdal, svo
og norðurhluta Miðfjarðarsveitar að
vestan. Innri hluti Hrútafjarðar
mun bíða um sinn, þar sem bora þarf
eftir auknu vatni við Reykjatanga.
Morgunblaðið/Karl Á. Sigurgeirsson
Framkvæmdir Vinnuvélar að störfum í Miðfirði við að leggja hitaveitu og
ljósleiðara á bæi í sveitinni. Áætluð verklok eru í október næstkomandi.
Hitaveita um stór-
an hluta héraðsins
Sveitarstjórn Húnaþings vestra stór-
huga Um 40 bæir fá til sín heitt vatn