Morgunblaðið - 27.08.2015, Blaðsíða 55
Í Borgarbyggð og Eyja- og Miklaholtshreppi búa rúm-
lega 3.800 manns, en samanlögð stærð sveitarfélag-
anna er um 5.309 ferkílómetrar. Atvinnuvegir þar eru
einkum landbúnaður, ýmiskonar þjónusta og iðnaður.
Stærsti þéttbýliskjarni svæðisins er Borgarnes.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2015
Guðrún Vala Elísdóttir
vala@simenntun.is
Ljómalind er matar- og handverks-
markaður staðsettur við Brúartorg
4 í Borgarnesi, þar sem áhersla er
lögð á matvöru beint frá býli og að
skapa vettvang fyrir matvörur og
handverk frá Vesturlandi. Upp-
haflega voru það 12 konur af Vest-
urlandi sem byrjuðu með jólamark-
að árið 2012 og ákváðu síðan að
halda áfram með sölumarkað rek-
inn með samvinnuhugsjóninni. Eva
Hlín Alfreðsdóttir viðskiptafræð-
ingur var ráðin framkvæmdastjóri
Ljómalindar sl. vor og segir rekst-
urinn vera spennandi áskorun.
„Þetta eru svokölluð „non-
profit“ samtök sem standa að
Ljómalind með alls 15 rekstrarað-
ilum, auk þess sem við höfum
vörur margra söluaðila í umboðs-
sölu. Skilyrði er að vörurnar séu
framleiddar á Vesturlandi. Allir
rekstraraðilarnir vinna sjálfboða-
framlag á markaðnum en mitt hlut-
verk er að sjá um daglegan rekst-
ur, halda utan um sjálfboðafram-
lögin og önnur starfsmannamál,
sinna markaðssetningu og fram-
fylgja ákvörðunum stjórnar,“ segir
Eva Hlín og bætir við að þar sem
hún sé jafnframt einn af þessum 15
aðilum skili hún líka sjálfboða-
framlagi. „Eftir að við fluttum
hingað á Brúartorg í maí sl. hefur
allt umfang aukist svo um munar.
Fleiri gestir líta inn, heimamenn
koma oftar og fjöldi söluaðila hefur
aukist mjög,“ segir hún
Verkfallið hægði mjög á
Vörurnar sem eru á boðstólum
eru handverk af ýmsu tagi og mat-
vara úr héraði sem Eva Hlín segir
vinsælast.
„Við getum nefnt nautakjötið
frá Mýrarnauti, vörurnar frá
rjómabúinu Erpsstöðum, lax, bæði
ferskan og reyktan frá Eðalfiski,
kálfakjöt auk sultu frá Hunda-
stapa, kiðakjöt frá Brennistöðum,
kryddbrauð, grænmetismarkað og
fleira, en úrvalið er bæði staðbund-
ið og árstíðabundið. Auðvitað er
ekki allt til alltaf því við leggjum
upp með lítið upplag í einu,“ segir
hún.
Eva Hlín segir verkfall dýra-
lækna hafa komið niður á rekstri
Ljómalindar í sumar. „Í sex vikur
áttum við ekkert nautakjöt og
þetta var þegar fólk langaði að
byrja að grilla en við prófuðum þá
að taka inn ferskan fisk frá Há-
tindi, sem er fiskvinnslufyrirtæki
hér í Borgarnesi, og buðum upp á
kola, löngu, þorsk og ýsu eftir því
hvað var til. Þetta gafst vel og
verður áfram,“ segir hún.
Eva Hlín segir Ljómalind
rekna án skuldsetningar en fyrr-
greint verkfall hafi reynst þeim
erfitt. „Það skaðaði fyrst og fremst
uppbyggingu okkar, en við fengum
því miður ekki styrk frá Uppbygg-
ingasjóði Vesturlands. Það þýðir að
það hægist á öllu rekstrar- og
markaðslega séð, en við erum
skynsamar og ætlum að spjara
okkur. Ef fólk er duglegt að koma
og versla hjá okkur þá höldum við
sjó og markmiðið er að halda úti
heilsársopnun alla daga sem er
gríðarlega metnaðarfullt.“
Gæði vörunnar tryggð
Heimamenn, sumarbústaða-
eigendur og ferðafólk sem leggur
leið sína í Ljómalind, geta verið
vissir um gæði vörunnar sem þar
fæst. Óháð matsnefnd fer yfir allar
vörur og ekkert fer í sölu eða
framleiðslu sem nefndin hefur ekki
samþykkt, en skv. hugmyndafræði
Ljómalindar eru vörurnar vand-
aðar og vel fram settar úr nátt-
úrulegum efnum. Engin matvara er
seld sem ekki er framleidd í lög-
giltu húsnæði.
„Það er líka gæðaöryggi að
vita að vörurnar eru beint frá
bónda eða framleiðanda og í öllum
tilfellum er það framleiðandinn
sem fær meirihlutann af verðinu í
sinn vasa. Ennfremur er það
ánægjulegt að litlir framleiðendur
hafi stað til að selja vöruna sína og
aðgengi að neytendum á meðan
þeir eru að þróa hana. Fólki finnst
gaman að koma til okkar, það er
alltaf heitt á könnunni og sultu-
smakk í boði.“
Eva Hlín leggur áherslu á
mikilvægi þess að verið sé að veita
góða þjónustu. „Ég lít jafnframt
svo á að þetta sé samfélagsverk-
efni, hér eru konur á öllum aldri að
öðlast trú á eigin getu með því
koma handverki sínu í sölu. Ein
okkar, Stella Dögg Blöndal, var að-
eins 15 ára þegar hún byrjaði í
Ljómalind, en hún ræktar græn-
meti og blóm og hér er grundvöllur
fyrir hana að selja vörurnar sínar.
Hér eru líka margar óvenjulegar
vörur og sérstakar, t.d. hálsmen
gerð úr Rauðu ástarsögunum,
kryddaðar berjasultur, þæfðir
skúlptúrar o.fl. Við erum að vekja
athygli á því skapandi starfi sem á
sér stað á Vesturlandi og sam-
félagið allt hagnast í stærra sam-
hengi.“
Framundan er opið hús fyrir
áhugsama söluaðila, en Eva Hlín
segir jafnframt að þær langi til að
koma á fót löggiltu eldhúsi í hús-
næði Ljómalindar.
„Svo tökum við á móti hópum,
félagasamtökum eða saumaklúbb-
um sem vilja koma í smakk og fá
að heyra söguna okkar, þetta hefur
vakið mikla ánægju. Við eigum t.d.
von á 300 norskum prjónakonum í
október. En aðallega ætlum við
okkur að halda áfram að veita góða
þjónustu, umfram allt. Og jú, svo
verða jólatengdar vörur hérna fyrir
jólin,“ segir hún.
Markaðurinn Ljómalind slær í gegn
Handverk og matvara koma beint frá framleiðanda
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Sveitamarkaður Eva Hlín Alfreðsdóttir aðstoðar danskan ferðalang.
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Ferskt Það má finna margt girnilegt á markaðnum sem gleður augað.
limtrevirnet.is
Aðalskrifstofa - Borgarbraut 74 - 310 Borgarnes
Söluskrifstofa - Vesturvör 29 - 200 Kópavogur
Netfang - sala@limtrevirnet.is
Aðalnúmer: 412 5300 | Söludeild: 412 5350
- stuttur afgreiðslutími
- lagerlitur hvítur, boðið upp á málun
- gluggar, bæði íkomnir og í lausu
Bílskúrshurðir frá Límtré Vírnet fást
í verslunum Húsasmiðjunnar um land allt
- hurðaopnarar
- boðið upp á uppsetningu
Andlit hússins
-fallegar og sterkar bílskúrshurðir frá Límtré Vírnet