Morgunblaðið - 27.08.2015, Síða 60

Morgunblaðið - 27.08.2015, Síða 60
60 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2015 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Mikið hefurmætt áMerkel Þýskalandskansl- ara að undanförnu. Forysta hennar í Evrópusam- bandinu hefur verið umdeild. Er Merkel á víxl sökuð um að sýna of mikla hörku eða vera allt of eftirgefanleg. Svo misvísandi af- staða þeirra sem óánægðastir eru með kanslarann gæti bent til þess að Merkel hafi náð að rata meðalveginn í afstöðu sinni. Málin sem hún fæst við eru snúin mjög. Grikklandsmálið dúkkar reglulega upp og því er ekki lokið. Sambandið við stóra nágrannann í austri er við- kvæmt. Rússland er ekki aðeins sveiflukenndur vinur eða óvinur í nútíma sögu Þýskalands og Merkel þekkir á eigin skinni hvernig það var að alast upp undir járnhæl kommúnismans á sínum tíma. Eftir fall múrsins og hrun Sovét-Rússlands og sameiningu Þýskalands í eitt ríki á ný gjör- breyttist allt. Rússland varð fljótlega mikilvægur og um skeið náinn viðskiptavinur. Úkraínudeilan og afstaða Rússa þar og afskipti þeirra af innri málum þess lands reynir nú á samband landanna með nýjum hætti. Viðskiptabann, sem Bandaríkin knúðu á um að Rúss- land yrði beitt, er Evrópusam- bandinu og ekki síst Þýskalandi mun erfiðara en Bandaríkjun- um. Allir aðilar gæta þess þó mjög vel að viðkvæmum þáttum sé haldið utan við allar refsiaðgerð- ir. Bandaríkin eiga þannig áfram náin samskipti við Rússland um fóðrun alþjóðlegu Geimstöðvar- innar, því án atbeina Rússa væri sú einstæða starfsemi í upp- námi. Gas streymir áfram til Þýskalands frá Rússlandi og Þjóðverjar selja Rússum áfram lúxusbifreiðar sínar eins og ekk- ert hafi í skorist. Eina ríkið, sem á einhverja minnstu aðild að þessum refsiað- gerðum sem ekki hefur gætt hið minnsta að eigin hagsmunum virðist vera Ísland, eyja í Norð- ur-Atlantshafi sem fræg hefur verið fyrir fiskmeti af betra tag- inu. Nú síðast stendur Merkel kanslari frammi fyrir því að bylgja „flóttamanna“ er brostin á Evrópu. Evrópa með sameig- inleg landamæri í suðri í vörslu Ítalíu og Grikklands og opin landamæri þaðan í frá, auk Schengen-samstarfsins, stendur frammi fyrir miklum vanda. Ekki ríkir full samstaða í löndum Evrópu hvernig við skuli brugðist. Það er ekki hægt að neita því að öll framangreind stórmál eru að nokkru eða veru- legu leyti sök ESB-ríkjanna sjálfra. Grikkjum var hleypt inn í evruna þótt að allir væru vit- andi um að Grikkland var víðs- fjarri því að uppfylla lágmarks- skilyrði um veru í sameiginlegri mynt. Nú er sagt að Grikkland hafi svindlað sér inn í evruna. En það er hafið yfir allan vafa að leiðtogar ESB og helstu ríkja þess tóku beint og óbeint þátt í því svindli. Þegar deilur mögnuðust um það í Úkraínu á milli forsetans og meirihluta þingsins, hvort að tengsl landsins við ESB yrðu aukin hraðar en áður hafði verið stefnt að, sátu leiðtogar ESB ekki hjá. Þeir blönduðu sér opin- berlega og með áberandi hætti í þessar innanríkisdeilur. Úkra- ína er í stjórnmálalegum efnum í grófum dráttum skipt á milli vestur hluta og eystri hluta og um afstöðu til tengsla við Rúss- land. Forsetinn, sem hrökklaðist frá völdum í byltingunni sem gerð var, sótti drýgstan stuðn- ing til íbúa í eystri hlutanum. Þótt forsetinn hafi vissulega verið rétt kjörinn til síns emb- ættis, er lítill vafi á að meirihluti þjóðarinnar var á bandi meiri- hluta þingsins og vildi auka tengsl í vestur á kostnað tengsl- anna við Rússland. En jafnljóst er að byltingarmenn hafi talið að ESB og Bandaríkin gætu og myndu eftir stjórnarskipti veita þeim meiri styrk í fyrirsjáan- legum slag við Pútín en raunin varð. Upplausnin sem var eftir að leiðtogar Evrópu og að nokkru Bandaríkin fóru í „vorhrein- gerningar“ sínar í Norður- Afríku er ein af ástæðum hins ólöglega og stjórnlausa straums fólks til Evrópu. Leiðtogar ESB-ríkja og Bandaríkjanna veigruðu sér við að taka eig- inlega afstöðu til uppreisnar- innar gegn einræðisherra Sýr- lands. Ekki einu sinni hefur verið komið á flugbanni yfir landinu, sem skipt hefði sköpum. Þar hefur því staðið ógnvænleg borgarastyrjöld með hræðileg- um fórnum og óviðráðanlegum flóttamannastraumi. Tyrkland veit ekki í hvorn fót- inn landið á að stíga. Jórdanía er að kikna undir álagi. Bandaríkin hafa komið sér út úr húsi í Egyptalandi vegna meintra svika þeirra við Mubarak fyrr- verandi forseta og egypska her- inn, sem ætíð hefur verið aðal- leikarinn í stjórnmálum þess lands, hvort sem mönnum líkar betur eða verr. Sisi forseti gerir sér því mjög dælt við Pútín starfsbróður sinn um þessar mundir. Flóttamannavandamálið er tekið að valda verulegri spennu í Þýskalandi. Flokkur Merkel kanslara hefur enn mikla yfir- burði í skoðanakönnunum á meðan sósíaldemókratar, sem eru með í ríkisstjórninni, eru að- eins hálfdrættingar. Merkel þarf eins og áður að halda vel á sínum spilum. Fyrri málin hafa verið vandmeðfarin en þetta síð- asta gæti orðið erfiðast. Óviðráðanleg bylgja að skella á?}Merkel kanslari í eldlínu V ið höfum í langan tíma fengið fréttir af því að læsi barna hér á landi sé verulega ábótavant og staðan verri en víðast hvar ann- ars staðar í samanburðarlöndum. Ég á erfitt með að skilja hvernig það hefur getað gerst að börnin hafa verið í skólakerfinu í allt að 10 ár án þess að kunna almennilega að lesa. Mér finnst eins og ekki hafi komið fram nægilegar skýringar á því hvað veldur. Sofn- uðu kannski foreldrar og skólastjórnendur á verðinum? Nú virðist sem töluverður ágrein- ingur sé um hvaða aðferðir þykja bestar við lestrarkennslu. Af hverju eru ekki bestu að- ferðirnar notaðar fyrir börnin okkar? Ef lest- ur barna hefur versnað með árunum ætti kannski að horfa til þeirra kennsluaðferða sem áður voru notaðar ef þær hafa gefið betri raun, jafnvel þó að þær gætu þótt gamaldags. Nú hefur menntamálaráðherra hrundið af stað her- ferð undir yfirskriftinni Þjóðarsáttmáli um læsi, með það að markmiði að börn geti við lok grunnskóla lesið sér til gagns. Líklega dugir ekkert minna en slíkur sáttmáli til að koma ástandinu í betra horf og má kannski ekki seinna vera. Bókmenntaþjóðin verður að geta staðið undir nafni og viðhaldið lestraráhuga nýrra kynslóða. 79% grunnskólanema eru að ná lágmarksviðmiðum í lestri. Það er auðvitað óviðunandi að 30% drengja og 12% stúlkna geti ekki lesið sér til gagns. Markmið átaks- ins er að 90% grunnskólanema nái lágmarksviðmiðum í lestri. En af hverju er ekki stefnt á 100%? Við hljótum að vilja að allar stelpur og allir strák- ar kunni almennilega að lesa, en svo virðist sem strákar hafi orðið eftirbátar í lestri, sem líklega hefur haft þau áhrif að færri strákar skila sér í háskólanám. Læsi telst vera einn mikilvægasti þáttur þess að vera sjálfstæður. Það getur skipt sköpum fyrir frelsi einstaklingsins að vera ekki upp á aðra kominn með helstu upplýs- ingar. Það er hverjum manni nauðsynlegt að geta lesið sér til, lagt mat á menn og málefni og tekið afstöðu einn og óstuddur. Það er því til mikils að vinna að öll börn kunni að lesa en ekki einungis 90%. Í leikskóla og grunnskóla eru mikilvæg mótunarár sem geta lagt línurnar fyrir allt sem á eftir kemur. Líklega verður ekki lögð nægilega mikil áhersla á hversu mikilvægt er að lestr- arkunnáttan sé í lagi strax á þessum upphafsárum skóla- göngunnar. Menntamálaráðherra hefur sýnt að hann hefur skilning á mikilvæginu með því að hleypa þessu átaki af stokkunum. Það er vonandi að sem flestir taki vel við sér, enda hlýtur það að vera sameiginleg ábyrgð foreldra og skóla að öll börn læri almennilega að lesa. Nú þarf að hætta að kýta um aðferðirnar, bretta upp ermar og kenna börnunum lestur. Ef mömmur, pabbar, afar og ömmur leggjast á eitt með fagfólki skólanna ætti að vera hægt að snúa þessari þróun við með það að markmiði að öll börn lesi. margret@mbl.is Margrét Kr. Sigurðardóttir Pistill Af hverju er ekki stefnt á 100%? STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Bjarni Steinar Ottósson bso@mbl.is Tólf framhaldsskólar álandsbyggðinni hafa síð-ustu ár haft formlegt sam-starf sín á milli um fjar- nám. Samstarfsverkefnið fer fram undir merkjum Fjarmenntaskólans sem býður upp á bæði verknám og bóknámsáfanga. Eyjólfur Guðmundsson, skóla- meistari Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu, er for- maður stjórnar Fjarmenntaskólans. Hann segir verkefnið útvíkkun á því samstarfi sem hafi verið milli skóla á Austurlandi síðan um 1990. Með tímanum hafi orðið ljóst að Austur- land væri of lítill markaður til að geta haldið úti náminu eins reglu- lega og vilji hafi staðið til og því verið ákveðið að færa það út á landsvísu. „Þetta er samstarf sem hefur verið að vaxa á síðustu tveimur til þremur árum,“ segir Eyjólfur. „Meginmarkmiðið er að auka náms- framboð fyrir fólk sem býr á lands- byggðinni, þó að það einskorðist ekki við það. Í því felst einnig að minni hópar eru sameinaðir í ein- stökum skólum í stærri heild. Þann- ig er hægt að halda úti fámennari áföngum og veita fólki þann undir- búning sem það kýs.“ Eyjólfur segir skólana vinna áfram að því að finna hvernig best sé að þjónusta nemendur í fjarnámi, en þar er fjölbreyttur hópur með mjög margvíslegar þarfir. Í fjar- náminu er til dæmis lögð áhersla á lotubundið nám. Þá er verklegum hluta námsins raðað á eina helgi eða viku, en ekki á klukkustund hér og þar í vikulegri stundaskrá. Fátt um tækifæri fyrir marga Í verknáminu hefur það verið nokkuð algengt, að sögn Eyjólfs, að fólk setjist á eiginlegan skólabekk og klári fyrir fram setta námskrá. Í almenna bóknáminu segir hann hins vegar mikið um að þar sé fólk sem hafi áður horfið frá námi og sé að koma aftur, oft með vinnu. Stór hluti stundi jafnframt nám á fleiri en einum stað á hverjum tíma og allur gangur sé á því hvort fólk sé að hluta eða í heild í fjarnámi. „Þannig er þetta að sumu leyti eins og kjörbúð þar sem þú getur valið það nám sem þú þarft, þegar þú vilt það.“ Eyjólfur segir dæmigerðan nemanda í fjarnáminu vera kven- kyns, á bilinu 30 til 50 ára, og að sá hópur hafi fá önnur tækifæri til náms. „Fólk skynjar það að valið er um þetta eða að rífa sig upp og flytja til Reykjavíkur í tvö til þrjú ár, sem fólk yfirleitt gerir ekki.“ Eyjólfur nefnir einnig að fjarnám verði oft sundurslitið og brottfall úr fjarnámi sé hátt, í samræmi við al- mennt mikið brottfall úr framhalds- skólum. Þó að fólk sem áður hafi horfið frá framhaldsskólanámi sé statt á höfuðborgarsvæðinu kemur það ekki að opnum dyrum í framhalds- skólum þar. Á síðasta ári var sú breyting gerð að framhaldsskólar fá ekki greitt með nemendum sem eru 25 ára eða eldri. Fyrir þá breytingu var þegar illfært, ef ekki ómögu- legt, að komast inn í dagskóla á bóknámsbrautum eftir 18 ára aldur og þá aðeins í fáum skólum. Að- gengið batnaði skiljanlega ekki við þessa breytingu. Kvöldskólar og fjarnám eru í boði í nokkrum fram- haldsskólum en fyrir þá sem hyggja á fullt nám til jafngildis stúdents- prófs og setja takmarkið á há- skólanám er eini raunhæfi kost- urinn nám í líkingu við Háskólabrú á Keili, Háskólagátt á Bifröst eða Frumgreinadeild Háskólans í Reykjavík. Efla námsframboð með fjarnámi Morgunblaðið/Jim Smart Fjarnám Fyrstu fjarnemar Tæniháskóla Íslands mæta í skólann, árið 2004. Tæknin og framboðið hafa tekið nokkrum framförum síðan þá. Sigurlaug Kristmannsdóttir hef- ur haft umsjón með fjarnámi Verzlunarskóla Íslands frá upp- hafi þess fyrir tíu árum. Hún segir námsárangur hafa farið batnandi með árunum, samhliða aukinni reynslu af fyrirkomulaginu. Að hluta felst það í því að tölvukunnátta og tölvubúnaður hefur almennt far- ið batnandi með tímanum og betri kennslukerfi verið innleidd. Hlutur kennara er ekki síðri, en þó að nám fari fram úr fjarska skiptir kennarinn áfram höfuðmáli og það hvernig hann setur efnið fram og kynnir fyrir nemendum. Tæknileg útfærsla skiptir ekki öllu í því samhengi og hún segir suma t.d. nýta mikla samskiptahæfileika við nemendur til þess að koma efni til skila. FJARNÁMIÐ Nýstúdentar útskrifaðir í Háskólabíói. Bætt og að batna
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.