Morgunblaðið - 27.08.2015, Blaðsíða 64
64 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2015
„Hundurinn minn var búinn að
vera í meðferðum hjá dýralækni
í heilt ár vegna húðvandamála
og kláða, þessu fylgdi mikið
hárlos. Hann var búinn að vera
á sterum án árangus. Reynt
var að skipta um fæði sem bar
heldur ekki árangur. Eina sem
hefur dugað er Polarolje fyrir
hunda. Eftir að hann byrjaði að
taka Polarolje fyrir hunda hefur
heilsa hans tekið stakkaskiptum.
Einkennin eru horfin og hann er
laus við kláðann og feldurinn
orðinn fallegur.“
Sigurlín Birgisdóttir, hundaeigandi
Sími 698 7999 og 699 7887
Náttúruolía sem
hundar elska
Við Hárlosi
Mýkir liðina
Betri næringarupptaka
Fyrirbyggir exem
Betri og sterkari fætur
NIKITA
hundaolía
Selolía fyrir
hunda
Í kynningu á þjóðar-
átaki um eflingu læsis-
kennslu hefur mennta-
og menningarmálaráð-
herra klifað á því að
rannsóknir skorti á
læsismenntun, aðferð-
um við hana og árangri
af henni – helst í formi
skimunarprófa og ann-
arra mælinga. Þetta er
athyglisvert í ljósi þess
að verkefnisstjóri við aðgerðaáætlun
um eflingu læsis fékk ítarlega kynn-
ingu haustið 2014 á viðamikilli rann-
sókn á læsismenntun í íslenskum
grunnskólum sem nú stendur yfir.
Rannsóknin er í samvinnu rannsak-
enda við hug- og félagsvísindasvið
Háskólans á Akureyri og mennta-
vísindasvið Háskóla Íslands. Hér er
ekki leitt getum að því hvers vegna
þessar upplýsingar hafa ekki komið
fram, en hvað sem því líður er þessari
grein ætlað að vekja athygli á rann-
sókninni.
Rannsóknarhópur um Byrjenda-
læsi var stofnaður haustið 2011 til að
rannsaka læsiskennslu á yngsta stigi
grunnskóla. Efnt var til samstarfs við
skóla- og frístundasvið Reykjavíkur
og skóladeild Akureyrar. Fyrstu
áfangar þessarar rannsóknar beind-
ust sérstaklega að Byrjendalæsi en á
síðari stigum hefur gögnum verið
safnað um starfshætti og starfsþróun
læsiskennara og viðhorf foreldra til
læsiskennslu í fyrsta til fjórða bekk í
um 120 skólum.
Niðurstöður þessarar rannsóknar
eru smátt og smátt að líta dagsins
ljós. Hluti þeirra hefur þegar verið
kynntur í íslenskri rit-
rýndri grein og í bók-
arkafla, og fleiri greinar
til birtingar í erlendum
tímaritum eru á loka-
stigi. Niðurstöður hafa
einnig verið birtar í um
það bil 20 ráðstefnuer-
indum innanlands og 10
erindum á alþjólegum
ráðstefnum. Í einu þess-
ara alþjóðlegu ráð-
stefnuerinda kynntu til
dæmis starfsmenn
skóla- og frístundasviðs
Reykjavíkur niðurstöður um árangur
þeirra 11 skóla borgarinnar, sem lok-
ið höfðu innleiðingu Byrjendalæsis
vorið 2011. Árangurinn var metinn
með sex skimunarprófum sem lögð
eru fyrir í öllum skólum þau tvö ár
sem innleiðing aðferðarinnar stend-
ur. Niðurstaðan sýndi í stuttu máli að
enda þótt árangur skólanna væri mis-
jafn var hann mjög góður í mörgum
skólanna og heilt yfir gaf hann ekki
tilefni til efasemda um gagnsemi
Byrjendalæsis.
Í niðurstöðum viðtala við kennara,
stjórnendur, foreldra og nemendur í
Byrjendalæsisskólum hefur komið
fram eindregin ánægja með aðferð-
ina. Kennarar og stjórnendur lýsa
einnig mikilli ánægju með samstarfið
við Miðstöð skólaþróunar og þá um-
fangsmiklu viðbótarmenntun sem
fylgir innleiðingu Byrjendalæsis. Það
er samdóma álit þeirra að þátttaka í
þróunarstarfinu leiði af sér öfluga
starfsþróun sem hafi breytt miklu um
læsiskennslu í skólunum. Breytingar
koma meðal annars fram í aukinni
áherslu á markvissar kennsluáætl-
anir og skýr markmið, nám við hæfi
ólíkra nemenda, notkun innihalds-
ríkra og vandaðra texta í kennslunni,
frjálsan lestur nemenda, ritun og
skapandi málnotkun frá upphafi læs-
isnáms, lesskilning frá upphafi læs-
isnáms, fjölbreytt námsverkefni og
minnkandi notkun merkingarsnauðra
eyðufyllingarverkefna. Vettvangs-
athuganir staðfesta almenna virkni,
vinnugleði og áhuga nemenda. Ítar-
leg spurningakönnun um fram-
kvæmd læsiskennslu á yngsta stigi
nær langt út fyrir raðir Byrjendalæs-
iskóla. Svör kennara við þessum
spurningalista bera með sér að læsis-
kennsla á yngsta stigi grunnskóla
standi almennt styrkum fótum og að
kennarar í Byrjendalæsiskólum hafi
að flestu leyti tileinkað sér þá starfs-
hætti sem aðferðin byggist á.
Læsi er flókið fyrirbæri og við þró-
un læsiskennslu þarf að gaumgæfa
bæði markmið, stefnu, aðgerðir og
mat á árangri. Ekkert af þessu getur
byggst á einföldum lausnum, átaks-
verkefnum og slagorðakenndum frös-
um um aðgerðir og árangursmæling-
ar. Læsi er miklu meira en mælanleg
færni; það er háð áhuga og viðhorfum
og það felur í sér rökhugsun, lausna-
leit, ályktunarhæfni og gagnrýna
hugsun. Umfram allt þurfa börn sem
eru að læra að lesa að vera virk við
fjölbreytt og skapandi viðfangsefni
sem kveikja varanlegan áhuga þeirra
á lestri og ritun. Rannsóknin á læsis-
kennslu á yngsta stigi grunnskóla
tekur mið af þessu og á næstu mán-
uðum verður leitast við að miðla nið-
urstöðum hennar um þennan fjöl-
breytta veruleika bæði á innlendum
og erlendum vettvangi.
Rannsókn á fjölbreyttum
viðfangsefnum Byrjendalæsis
Eftir Rúnar
Sigþórsson »Rannsóknarhópur
um Byrjendalæsi
var stofnaður haustið
2011 til að rannsaka
læsiskennslu á yngsta
stigi grunnskóla.
Rúnar Sigþórsson
Höfundur er prófessor við
kennaradeild HA og verkefnisstjóri
rannsóknar á Byrjendalæsi.
Á undanförnum ár-
um hafa mótmælenda-
kirkjur í N-Evrópu
sótt sér nýjan kraft til
hinnar keltnesku arf-
leifðar, því á sama
tíma og messusókn er
hverfandi er fólk opið
fyrir að tengjast rótum
sínum í dýrð náttúr-
unnar og að upplifa
heilaga staði og guð-
dóminn undir berum
himni og á fornum
helgistöðum.
Á sama tíma hefur
pílagrímahreyfingum
vaxið fiskur um hrygg.
Þær bjóða til göngu
um gamlar þjóðleiðir í
skipulögðum ferðum,
en fólk getur líka valið
að ganga á eigin for-
sendum um vel merkt-
ar og fornar leiðir. Þá
hafa Norðmenn verið
að endurvekja pílagrí-
masjóleiðir meðfram
strönd Noregs þar
sem m.a. er komið við
á eyjunni Selju sem er einn elsti
helgistaður kristninnar á Norð-
urlöndum.
Í pílagrímaferðum er áhersla á
rólega yfirferð, á tengslin við nátt-
úruna og á uppruna- og einfaldleika
í bland við andleg íhugunarefni. Oft
er dvalið í þögn, því hún er dýrmæt
og fágæt auðlind í erli og fjölmenni
flestra samfélaga.
Hér á landi hefur pílagrímahreyf-
ingin verið að skjóta rótum, einkum
á Vesturlandi þar sem boðið hefur
verið upp á pílagrímagöngur á síð-
ustu árum um valdar þjóðleiðir og
milli kirkna. Búið er að merkja píla-
grímaleið frá Bæ í Borgarfirði að
Skálholti, sem er um 120 km löng
ganga. Áhugafélagið Pílagrímar hef-
ur sl. þrjú ár leitt sex daga göngur
um leiðina og nefnt hana til gamans
„íslenska Jakobsveginn“ sem muni
án efa ná fótfestu á
komandi áratugum og
verða hluti af evrópsk-
um menningarvegum
(sjá: Resolution CM/
Res(2007)12 on the
cultural routes of the
CE). Leiðin muni
tengjast annars vegar
um Eyrarbakka, sjó-
og landvegi að Nið-
arósi og hins vegar í
Suðurveg allt til Róm-
ar. Með tímanum gæti
Skálholt orðið mik-
ilvæg miðstöð píla-
gríma sem vilja hvílast
og upplifa helgi og grið
staðarins í kyrrð og
njóta andlegrar að-
hlynningar. Víðar á Ís-
landi gætu slíkir helgi-
og griðastaðir þjónað
pílagrímum nútímans, í
anda vistvænnar ferða-
mennsku (e. Ecotour-
ism).
Keltneskar, eða eng-
ilsaxneskar rætur Ís-
lendinga hafa verið
staðfestar með erfða-
tækni og forn rit segja
frá viðkomu norrænna
sæfarenda víða á Bretlandseyjum á
víkingatíð, þar sem kristni austur-
kirkjunnar hafði blandast írsk/
keltneskri hefð allt frá því á 5. öld.
Sterkur þáttur í þeirri trúarhefð var
einlífi þar sem úthafið var „eyði-
mörkin“ og áskorun í lífi einfarans.
Þannig héldu papar/keltar/
pílagrímar á opnum skinnbátum –
kúðum – á haf út og létu skeika að
sköpuðu um lendinguna. Heimildir
greina frá ferðum þeirra um N-
Atlantshafið og viðkomu hér á landi.
Krossmörk í hellum og örnefni eins
og Papey, Kúðafljót og Seljaland
gefa til kynna hvar þeir dvöldu. Þeir
voru friðsamir hafsins pílagrímar í
árdaga Íslandsbyggðar, áður eða
meðfram því að hinir norrænu,
menningarblönduðu sæfarendur
fóru að brjóta hér land til búsetu.
Til að fjalla um pílagríma fyrr og
nú og þá hugmyndafræði sem að
baki býr, verður opin ráðstefna
þann 4. september nk. í sal Þjóð-
minjasafnsins. Þar munu ýmsir
flytja erindi, m.a. Norðmaðurinn
Harald Olsen sem hann nefnir „De
söfarende keltiske pilgrimme“, en
Harald er einn helsti fræðimaður á
Norðurlöndum um pílagrímsferðir
og keltnesk áhrif. Hann hefur skrif-
að bækur um efnið, leitt göngur og
ferðir til Iona, eyjarinnar helgu við
stönd Skotlands og um aðrar slóðir
pílagríma í Vesturvegi. Hann mun
einnig halda erindi í Skálholti dag-
inn áður um „Hellige steder“. Nán-
ari upplýsingar má finna á vefslóð-
inni www.pilagrimar.is
Pílagrímahreyfingin
er líka hér
Eftir K. Huldu
Guðmundsdóttur
» Pílagríma-
hreyfingar
endurvekja
fornar leiðir á
landi og sjó,
með áherslu á:
tengsl við nátt-
úruna, uppruna-
og einfaldleika,
íhugunarefni,
kyrrð og ró.
Karólína Hulda
Guðmundsdóttir
Höfundur er í áhugafélaginu
Pílagrímar.
Góðmennt hjá eldri borgurum
í Reykjavík
Mánudaginn 24. ágúst var spilað-
ur tvímenningur á 12 borðum hjá
bridsdeild Félags eldri borgara í
Reykjavík.
Efstu pör í N/S
Örn Ingólfsson – Oliver Kristóferss. 280
Sigurður Tómasson – Guðjón Eyjólfss. 256
Siguróli Jóhanns. – Bergur Ingimundar. 251
Helgi Hallgrss. – Ægir Ferdinandss. 249
A/V
Guðm. K. Steinbach – Bjarni Guðnas. 257
Albert Þorsteinss. – Bragi Björnsson 254
Jón H. Jónsson – Bergljót Gunnarsd. 248
Hrólfur Guðmss. – Axel Lárusson 243
Spilað er í Síðumúla 37.
Spilamennska í Gullsmára
hafin eftir sumarfrí
Mánudaginn 24.ágúst var spilað á
9 borðum í Gullsmáranum og urðu
úrslit þessi í N/S:
Pétur Antonss. – Guðlaugur Nielsen 226
Guðrún Hinriksd. – Haukur Hanness. 200
Ragnh. Gunnarsd. – Sveinn Sigurjónss. 195
A/V
Magnús Marteinss. – Ragnar Ásmundss. 202
Ágúst Vilhelmss. – Kári Jónsson 183
Lúðvík Ólafsson – Óskar Ólason 178
Spilað er alla mánu- og fimmtu-
daga. Allt spilaáhugafólk velkomið.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| brids@mbl.is