Morgunblaðið - 27.08.2015, Side 66
2015
HAUSTferðir
Jón Agnar Ólason
jonagnar@mbl.is
„Ferðaskrifstofan Nazar var stofnuð
í Svíþjóð árið 2004 og var fyrst til að
bjóða svokallaðar „all inclusive“
ferðir hér í Skandinavíu,“ segir
Kristín Lind Andrésdóttir sem
starfar á skrifstofu Nazar í Malmö
og sér um markaðsmál fyrir öll
Norðurlöndin. „Í kjölfarið opnuðu
skrifstofur í fleiri Norðurlöndum og
loks var svo komið að það vantaði
bara Ísland.“ Úr því hefur nú verið
bætt og Íslendingar eru komnir í
hóp viðskiptavina Nazar.
Allt innifalið – alltaf
Að sögn Kristínar hefur á það
verið lögð áhersla frá því ferðaskrif-
stofan hóf starfsemi að bjóða upp á
ferðir þar sem allt sé innifalið, og í
því felist sérstaða þeirra á markaði.
„Við leggjum líka áherslu á að þjón-
usta fjölskyldur og leggjum upp með
að ferðirnar okkar séu lúxusferðir að
því leytinu til að fólk geti verið ró-
legt í þeirri vissu að allt sé innifalið.
Þá er ekki bara átt við matinn með-
an á fríinu stendur heldur hvers
konar dægradvöl eins og skemmti-
klúbba fyrir börnin á þeirra tungu-
máli, ásamt alls konar annarri af-
þreyingu sem er þá innifalin líka.
Gestir eiga því að geta bara haft það
gott í fríinu án þess að vera að borga
aukalega. Það sjáum við sem ákveð-
inn lúxus. Vilji börnin fara í sund-
skóla, dans eða annað þá er það inni-
falið. Það er allt í boði þegar þú
kemur í fríið.“
Nazar bjóða upp á ferðir til
fjögurra áfangastaða á tyrknesku ri-
víerunni. Flogið er til Antalya en
einnig má fá hótel í Belek, Side og
Alanya, sem allar eru í stuttri akst-
ursfjarlægð, að sögn Kristínar.
„Þarna er stutt í sjálfa Kleópötru-
ströndina sem er ein fallegasta
strönd Tyrklands og sannarlega
yndislegt ferðamannaumhverfi.“
Hótel við allra hæfi
Tyrkland hefur vaxið talsvert
að vinsældum hin seinni ár sem
áfangastaður fyrir Íslendinga og það
getur Kristín Lind tekið undir.
„Fólk sem við heyrum í að loknu fríi
er afar ánægt og oft hreinlega frá
sér numið yfir gæðum dvalarinnar.
Fólk er oft með fyrirfram mótaðar
hugmyndir og væntingar um dvölina
en Tyrkland hefur lag á að fara fram
úr væntingum. Þetta á ekki síst við
um þá sem skella sér í skoðunarferð
og sjá svolítið af stórbrotinni nátt-
úru landsins.“
Aðspurð segir Kristín hótelin
sem Nazar býður upp á skiptast í
þrjá flokka. „Við reynum að koma til
móts við þarfir og óskir sem flestra
en erum ekki með nein tveggja
stjörnu hótel,“ útskýrir hún.
„Premium Collection er úrvalsfokk-
urinn okkar og þar eru okkar allra
flottustu hótel. Þar er maturinn al-
gerlega framúrskarandi, herbergin
eru hvert með sinni einkasundlaug,
þjónar svífa milli gesta á sundlaug-
arbakkanum með klúta, raka af
köldu vatni til að fríska upp á mann-
skapinn í hitanum og ávallt er ný-
áfyllt ávaxtakarfa inni á her-
bergjum. Nazar Collection
inniheldur svo sérstaklega fjöl-
skylduvæn hótel með alls konar af-
þreyingu og dægradvöl fyrir börnin
á borð við fjölbreytt námskeið, fjár-
sjóðsleit með sjóræningjum og
margt fleira, og þau eru vinsælust
hjá okkur. Meira en helmingur okk-
ar bókana er á hótelin í Nazar Col-
lection, ekki síst þau sem tilheyra
Pegasos-keðjunni. Loks erum við
með Holiday Collection, sem inni-
heldur oft sérstaklega hagstæða val-
kosti í hótelgistingum.“
Flogið beint frá Keflavík
Nazar flýgur beint frá Keflavík
til Antalaya og verður svo til 23.
september. Þá kveður við nýjan tón
er beint flug verður frá Akureyri.
„Við verðum aðeins að dekra við
fólkið fyrir norðan líka,“ segir Krist-
ín Lind og kímir við. Það eiga greini-
lega allir skilið tækifæri til að kom-
ast í sólina til Tyrklands.
www.nazar.is
Draumaferðir til Tyrklands
Ferðir í sól og sælu í Tyrklandi hafa notið aukinna vinsælda hjá Íslendingum hin seinni ár Þar er ferðaskrif-
stofan Nazar á heimavelli með ferðir til fjögurra áfangastaða Sérstaðan er sú að allt er innifalið í verðmiðanum
Vatnaveröld Flatarmál sundlaugarinnar í Pegasos World er með ólíkindum og sama er að
segja um veðursældina á tyrknesku rivíerunni. Bláhiminn og bláar laugar heilla landann.
Ævintýri Það er næsta ógerningur að láta sér leiðast í Pegasos Resort þar sem ævintýralegt
úrval skemmtunar er í boði fyrir alla aldurshópa, ekki síst hress börn á öllum aldri.
Heildarpakki „Við leggjum líka áherslu á að þjónusta fjölskyldur og leggj-
um upp með að ferðirnar okkar séu lúxusferðir að því leytinu til að fólk geti
verið rólegt í þeirri vissu að allt sé innifalið,“ segir Kristín Lind hjá Nazar.
Smiðjuvegi 68-72, Rvk Hjallahrauni 4, Hfj Fitjabraut 12, Njarðvík Eyrarvegi 33, Selfossi Barðinn, Skútuvogi 2
Við tökum að okkur: Peruskipti, rafgeymaþjónustu,
bremsuviðgerðir, stýrisenda, spindilkúlur, kerti,
kertaþræði, hjólalegur, fjöðrunarbúnað, viftureimar,
hjólastillingar og margt fleira.
LAGFÆRUM
BÍLINN
VIÐ
www.solning.is