Morgunblaðið - 27.08.2015, Page 68
68
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2015
HAUSTferðir 2015
Einstök safari ferð til Tanzaniu á slóðir villtra dýra,
ósnortinna náttúru og fornrar menningar.
Tanzania
22. janúar – 4. febrúar
Við sjáum óviðjafnanlegt dýralíf í sínu náttúrulega umhverfi og
kynnumst menningu heimamanna m.a. Masai þjóðflokknum.
Ferðin er eitt ævintýri, einstök upplifun sem lætur engan ósnortin.
*Verð per mann í 2ja manna herbergi
675.900.-*
Innifalið:
Allt flug með sköttum og gjöldum. Allur flutningur milli staðameð
5–7manna safaríbílum. Innlendur og íslenskur fararstjóri.
Gisting ogmatur á upptöldum (eða sambæri-legum)
gististöðum eins og er í ferðalýsingu.
Öll gjöld vegna aðgangs í þjóðgarða eins og lýst er.
Fararstjóri er Dr. Anna Elísabet Ólafsdóttir, eigandi TanzaNice Farm í Tansaníu.
588 8900 – transatlantic.is
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Að sögn Svanhvítar Friðriksdóttur
er haustið og veturinn ekki síst tími
skemmtilegra stuttra borgarferða
til Evrópu. Taka landsmenn þá
stefnuna á „klassíska“ áfangastaði
eins og Kaupmannahöfn, Berlín eða
Amsterdam en WOW air flýgur til
þessara borga árið um kring.
„Í júní hófum við áætlunarflug til
Dyflinnar og er það í fyrsta skipti
sem flogið er milli Keflavíkur og
höfuðborgar Írlands í áætlunar-
flugi. Þangað fljúgum við alla jafna
þrisvar sinnum í viku og margir
sem skjótast þangað í borgarferð
enda flugið stutt og á hagstæðu
verði, og mjög skemmtilegur staður
heim að sækja.“
Svanhvít segir að líka megi að
hluta til skýra vinsældir Dyflinnar
með því að þar er evran notuð, og
gengið með hagstæðara móti um
þessar mundir. „Næturlífið þykir
líka mjög skemmtilegt og margir
sem halda rakleiðis á pöbbahverfið
Temple Bar. Þeir sem áhugasamir
eru um gæðabjór og viskí ættu líka
að heimsækja Guinness-verksmiðj-
una sem laðar til sín fjölda gesta,
og írska viskí-safnið sem var opnað
fyrir skemmstu,“ segir hún. „Du-
blin er auðveld yfirferðar, ekki of
stór, og tilvalið að fara þaðan í
dagsferð á svæði eins og hinn fagra
Glendalough-dal.“
Vel nýttar vélar á vesturleið
Ferðalangar kættust þegar
WOW air tók að bjóða upp á ferðir
til Boston og Washington DC.
„Upphaflega stóð til að fljúga til
Washington yfir sumarmánuðina og
út október en viðtökurnar voru svo
góðar að ákveðið var að fljúga
þangað allt árið. Það sem af er hef-
ur sætanýtingin á flugleiðunum til
Boston og Washington verið í
kringum 90% sem er mjög góður
árangur,“ útskýrir Svanhvít.
Ætti ferðafólk að hafa það hug-
fast að WOW er lággjaldaflugfélag
og ekkert afþreyingarkerfi er um
borð í vélunum. Er gott að hafa
meðferðis bók, tímarit eða fartölvu
til að stytta sér stundir, sér í lagi ef
flugið er langt. Sjálf segist Svanhvít
nota tímann um borð til að slappa
af og kafa ofan í eitthvert skemmti-
legt bókmenntaverkið. „Margir eru
með eigin fartölvur um borð með
sitt safn af kvikmyndum, þáttum og
tölvuleikjum en um borð í vélunum
okkar má líka leigja iPad-spjald-
tölvur sneisafullar af afþreyingu
þegar flogið er til Norður-Ameríku
og Tenerife.“
Ferðalög sjálfsögð lífsgæði
Gaman er að skoða hvernig
ferðalög Íslendinga hafa breyst.
Samkeppni á flugmarkaði hefur ýtt
verði niður og landsmenn eru farnir
að líta á það sem sjálfsögð lífsgæði
að fljúga út í heim einu sinni, tvisv-
ar, eða jafnel oftar ár hvert. Í stað
þess að ferðast sjaldnar og lengri
tíma í senn eru ferðalögin orðin tíð-
ari og styttri, og hafa þau líka færst
yfir á aðra árstíma.
Þannig bendir Svanhvít á að
margir bíði með sólarstrandarferð-
irnar fram að haustinu. „Fólk vill
þá verja sumardögunum á Íslandi
þegar mestar líkur eru á góðu
veðri, en fara svo á haustmánuðum
og nær jólum til áfangastaða eins
og Tenerife til að drekka í sig sól-
ina.“
WOW air flýgur bæði til Tenerife
og Alicante árið um kring, nema að
gert er stutt hlé á Alicante-ferðun-
um í febrúar. Segir Svanhvít að all-
stór hópur fólks eigi sumarhús á
svæðinu í kringum Alicante og
margir sem geta ekki hugsað sér að
láta haustið líða án þess að upplifa
spænska sældarlífið og milda lofts-
lagið og taka kannski nokkra hringi
á fallegum golfvelli. „Sætanýtingin
á þessum leiðum er mjög góð og
margir kannast eflaust við það að
skima yfir Facebook-vegginn hjá
sér og finnast eins og annar hver
maður sé að njóta lífsins á sólar-
strönd í Tenerife.“
Aldrei verið auðveldara
að skipuleggja ferðalagið
Svanhvít segir Íslendinga líka
orðna sjálfstæðari á ferðalögum
sínum og þeir hafi lært að nota net-
ið til að skipuleggja ferðalög upp á
eigin spýtur. Tæknin gerir und-
irbúninginn auðveldan og ekkert
mál að skjótast út í heim þegar
útþráin gerir vart við sig. „Ég man
hvað þetta gat verið erfitt þegar ég
var lítil stelpa. Mamma var oft heil-
an vetur að skipuleggja sumarfrí
fjölskyldunnar og notaði til þess
stóra handbók frá Michelin með
lista af hótelum og engum myndum.
Hún sendi þeim bréf í pósti til að
spyrjast fyrir um hvort herbergi
væri laust, og mikil eftirvænting
sem ríkti á meðan beðið var eftir
svari frá hótelunum. Í dag getur
maður með nokkrum músars-
mellum leitað að gistingu eftir stað-
setningu og verði, og skoðað ljós-
myndir af hverjum krók og kima
áður en herbergið er bókað.“
Stefna á sólarstrandir með haustinu
Margir vilja njóta sumarsins á Íslandi en halda svo til Tenerife og Alicante á haustin Dublin hefur slegið í
gegn með sína góðu verslanaflóru og næturlíf Mjög góð sætanýting í fluginu til Washington D.C. og Boston
Morgunblaðið/Kristinn
Rætur Svanhvít Friðriksdóttir segir næturlífið, verslanirnar og stuttan flugtímann meðal þess sem fær Íslendinga
til að heimsækja Dublin. Þar er gaman að kíkja í Guiness verksmiðjuna og viskí-safnið sem var að opna.
Ljósmynd / WOW air - Getty
Sandar Þegar kuldinn og rokið tekur yfir á Íslandi er gott að skjótast suður
í hlýjuna og sólina á Tenerife, taka smá lit og drekka nokkra kokkteila.
Rómantík Dublin er hlýleg borg sem auðvelt er að ferðast um.