Morgunblaðið - 27.08.2015, Blaðsíða 74
74
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2015
HAUSTferðir 2015
ferðalanga á Íslandi hafi líka jákvæð
áhrif, þannig opnist nýir möguleikar,
og Heimsferðir bjóði upp á ferðir til
11 borga haustið 2015 og vorið 2016.
„Sem dæmi má nefna Valencia á
Spáni, Bratislava í Slóvakíu og
Lissabon í Portúgal. Þar fljúga vél-
arnar aðra leiðina, út, með íslenska
farþega og koma til baka með er-
lenda gesti, í samvinnu við systur-
fyrirtæki Heimsferða, Terra Nova.
Þessar nýju borgir eru spennandi
á allan hátt. Lissabon er mjög
áhugaverð og falleg og samkvæmt
öllum könnunum ódýr áfangastaður;
Bergljót Friðriksdóttir
beggo@mbl.is
„Áherslurnar í ferðalögum á haustin
eru í takt við þær breytingar sem
verða á lífi landans á þessum árs-
tíma,“ segir Tómas J. Gestsson,
framkvæmdastjóri Heimsferða.
„Sumarið er tími fjölskylduferða og í
ár höfum við boðið upp á flug til 17
sólarlandastaða, en nú fækkar fjöl-
skyldum í hópi farþega enda skól-
arnir að byrja. Á haustin eru það að-
allega pör, einstaklingar og minni
hópar sem fljúga á sólarstrandir, svo
sem til Spánar, Ítalíu og Marokkó,
að ógleymdum hinum fjölmörgu,
spennandi borgarferðum.“
Tómas segir marga kjósa að
lengja sumarið með haustferð á suð-
ræna strönd. „Alicante hefur selst
mjög vel og við erum með tvö morg-
unflug þangað í viku hverri í sept-
ember og út október. Gríska eyjan
Krít, Bodrum í Tyrklandi og Costa
del Sol á Spáni eru vinsælir áfanga-
staðir í september. Einnig bjóðum
við upp á beint flug til Sikileyjar á
Ítalíu í byrjun október. Í lok október
hefjast svo ferðir til Kanaríeyja og
þangað verður flogið í allan vetur;
Tenerife verður æ vinsælli áfanga-
staður og er sá eini sem við fljúgum
til allan ársins hring.“
Brugge og Bratislava
Aðspurður segir Tómas söluna hjá
Heimsferðum hafa aukist um um
það bil 20% á ári hverju frá 2009 og
fjöldi seldra ferða sé nú farinn að
nálgast það sem var árið 2006. „Fjöl-
skylduferðum hefur sérstaklega
fjölgað, fólk er orðið ferðaþyrst og
kaupmáttur er greinilega meiri.
Aukin eftirspurn þýðir að hægt er
að bjóða upp á fleiri áfangastaði og
nú förum við til dæmis í fyrsta sinn
til Brugge í Belgíu, sem er mjög
heillandi borg.“
Hann bendir á að áhugi erlendra
flogið er þangað í nóvember, apríl og
maí, eða á þeim tíma árs þegar
reikna má með mjög þægilegu hita-
stigi. Farin verður ferð til Bratislava
í byrjun september og svo aftur
næsta vor; borgin er stundum kölluð
litla Prag, með sinn rómantíska,
gamla miðbæ og kastala. Örstutt er
þaðan með lest yfir til Vínarborgar.
Flogið er til Valencia í byrjun
október en borgin þykir ein sú feg-
ursta á Spáni, hún er þekkt fyrir
matarmenningu, vegleg listasöfn og
iðandi mannlíf. Þá erum við með ferð
í byrjun nóvember til Sevilla, höf-
uðborgar Andalúsíuhéraðs á Spáni,
en hún er einstaklega fögur og rík af
sögu og stórfenglegum byggingum.
Loks bjóðum við beint flug til Barce-
lona, Búdapest, Prag, Ljúblijana,
Róm og Verona.“
Töfrandi Cinque Terre
Heimsferðir bjóða í haust upp á
þriðju ferðina til Agadir í Marokkó,
að sögn Tómasar. „Íslendingar eru
smátt og smátt að uppgötva þetta
merkilega og töfrandi land á NV-
horni Afríku. Agadir er stærsti sól-
strandarstaður Marokkó og þaðan
er stutt að fara með nýrri hraðbraut
austur til Marrakech, með sinn
fræga útimarkað, notaleg kaffihús
og fjölskrúðugt mannlíf.
Sérferðir Heimsferða njóta sífellt
meiri vinsælda og má þar helst
nefna gönguferðir til ítölsku bæj-
anna Cinque Terre; svæðið er ákaf-
lega fallegt og töfrandi og við höfum
boðið um fjórar til fimm ferðir þang-
að að hausti sem alltaf seljast upp.
Við bjóðum upp á tvær aðrar sér-
ferðir til Ítalíu í október; 10 daga
gönguferð til Vindeyja, skammt frá
Sikiley, og ferð til Sorrento við
Napólíflóann.“
Spurður út í skipulagðar golf-
ferðir segir Tómas slíkar ferðir allt-
af mælast vel fyrir á haustin. „Við
höfum selt mikið af ferðum í golf til
Suður-Spánar. Flogið er til Jerez og
þaðan er ekið til Costa Ballena,
Novo Sancti Petri, Montecastillo og
Alcaidesa. Einnig hafa golfferðirnar
til La Sella, norður af Alicante, verið
afar vinsælar enda er aðstaðan þar
til golfiðkunar glæsileg.“
Fljótandi spilavíti
Tómas bætir við að æ fleiri láti
það eftir sér að ferðast með
skemmtiferðaskipum heimshorna á
milli; árlega sigli um 300 manns á
vegum Heimsferða vítt og breitt um
heiminn. „Íslenskir ferðalangar hafa
áttað sig á því að slíkar ferðir eru
ódýrari en margur heldur. Í vor
bjóðum við upp á siglingu til Dubai
og í þeirri ferð er meðal annars kom-
ið við á Indlandi, Sri Lanka og
Maldíveyjum. Einnig eru siglingar
um Miðjarðarhafið mjög vinsælar.
Þá seljum við heimsreisuferð árið
2016, þar sem siglt verður umhverfis
jörðina á 109 dögum. Lagt er upp frá
Ítalíu, þaðan siglt til Spánar, suður
til Brasilíu og áfram til Argentínu,
Chile, Pólynesíu, Ástralíu og Nýja-
Sjálands.
Stóru skemmtiferðaskipin eru
sum hver nánast eins og fljótandi
borgir, með þrjú til fjögur þúsund
manns um borð, og þar er allt til alls.
Hægt er að ganga út frá því sem vísu
að þar séu góðir veitingastaðir, lík-
amsræktarstöðvar og spa. Í skipun-
um eru kvikmyndasalir og leikhús
og á hverju kvöldi er boðið upp á
tónlist og skemmtidagskrá með
völdum listamönnum.
Andinn um borð getur verið
breytilegur eftir skipum; sumar
ferðirnar eru miklar galsa- og gleði-
ferðir en aðrar rólegar og róman-
tískar. Sigling með skemmtiferða-
skipi er sannkölluð upplifun og þar
finna allir eitthvað við sitt hæfi,
hvort sem það er að slaka á úti á sól-
bekk, taka sprett í sundlauginni,
dansa við lifandi tónlist eða freista
gæfunnar í spilavíti.“
Valencia The City of Arts and Sciences-hverfið. Flogið er til Valencia í byrjun október en borgin þykir ein sú fegursta á Spáni, þekkt fyrir matarmenningu, vegleg listasöfn og iðandi mannlíf.
Umhverfis jörðina á 109 dögum
Tenerife Dream Gran Tacande-hótelið. Landinn sækir í sól og svo vinsæl er Tenerife að þangað er flogið allt árið.
Morgunblaðið/Golli
Ferðalög Tómas J. Gestsson, fram-
kvæmdastjóri Heimsferða.
Heimsferðir kynna í haust fjölmarga nýja áfangastaði og
bjóða upp á flug til 11 borga, ásamt sólarlandaferðum til
Spánar, Ítalíu, Grikklands, Tyrklands og Marokkó, og æv-
intýrasiglingum á skemmtiferðaskipum um heimsins höf.
Laugavegi 34, 101 Reykjavík
Sími: 551 4301 | gudsteinn.is Guðsteins Eyjólfssonar sf
V E R S L U N
Buxur frá