Morgunblaðið - 27.08.2015, Page 76

Morgunblaðið - 27.08.2015, Page 76
76 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2015 HAUSTferðir 2015 Guðrún Guðlaugsdóttir gudrunsg@gmail.com Þeir eru orðnir æði margir sem hafa ferðast víða um heim með Bændaferðum. „Það er löngu liðin tíð að það séu einungis bændur sem ferðast með Bændaferðum,“ segir Hugrún Hannesdóttir, sölu- stjóri Bændaferða. „Fyrsta ferðin var skipulögð 1953, hún var til Norðurlanda,“ segir Hugrún Hannesdóttir, sölu- stjóri Bændaferða. „Í kjölfarið voru farnar nokkrar ferðir sem einungis bændur fengu að fara í. Aðsóknin var svo mikil að þótt einhver bóndi færi í ferð var ekki sjálfgefið að hann kæmist að í næstu ferð. Fyrstu árin voru ferð- irnar á vegum Búnaðarfélags Ís- lands. Agnar Guðnason stofnaði síðan Bændaferðir í kjölfar þess- ara fyrstu ferða. Þá var fátt um ferðaskrifstofur á Íslandi. Ég veit ekki betur en Bændaferðir séu elsta ferðaskrifstofa Íslands sem starfað hefur samfellt. En þó að bændur hafi í upphafi farið í ferð- irnar þá eru Bændaferðir löngu orðnar ferðaskrifstofa fyrir alla.“ En hvað er á döfinni hjá ykkur um þessar mundir? „Við höfum þurft að bæta tölu- verðu við af haustferðum því að haustið er svo vel bókað hjá okk- ur. Mest er bókað að Gardavatni á Ítalíu og til Portoroz í Slóveníu svo dæmi séu tekin. Vegna þessa verður í byrjun október boðið upp á ferðir þar sem hægt er að upp- lifa eyjaperlur Króatíu og hinn margrómaða Svartaskóg í Þýska- landi, í síðarnefndu ferðinni verður vínslóðin í Frakklandi ekin.“ Hafið þið ekki farið á þessar slóðir fyrr? „Við höfum boðið upp á ferðir á þessar slóðir áður, en eyjaperl- urnar í Króatíu eru í nýjum og spennandi búningi.“ Jólamarkaðir og Hawaii En hvað með vetrarferðir? „Við hjá Bændaferðum vorum fyrst á íslenskum markaði til að bjóða upp á jóla- og aðventuferðir til Þýskalands. Þetta hafa verið af- skaplega vinsælar ferðir og við höfum bætt við fleiri slíkum vegna mikillar aðsóknar og einnig verða farnar jólaferðir á nýjar slóðir. Til dæmis verður ferð til Birmingham á Englandi á jólamarkað, svo og til Regensburg í Þýskalandi. Þjóð- verjar eru í sérflokki með jóla- markaði og hafa verið það lengi.“ En er eitthvað nýtt og skemmti- legt á döfinni hjá ykkur eftir ára- mót? „Já, þá verðum við með stóra og mikla ferð til Hawaii með einum vinsælasta fararstjóranum okkar, Ingu Ragnarsdóttur. Við ætlum að fara til Honolulu og Maui og heim- sækjum frægustu áfangastaði eyjanna ásamt því að kynnast menningu og sögu heimamanna.“ Hvernig gengur að fá farar- stjóra þegar bæta þarf við ferð- um? „Við erum nú svo heppin að vinna með mörgum færum far- arstjórum. Aðsókn í fararstjóra- starf er mikil og því er helsta áskorunin hjá okkur að finna rétta einstaklinga til að vinna með.“ Gerist ekki sitthvað í svona ferðum? „Jú, ég get nefnt tvö dæmi. Hið fyrra var þegar við vorum með ferð til Englands í vor. Þar var einn viðkomustaðurinn Fleetwood, en þangað sigldu íslenskir togarar með fisk í seinni heimstyrjöldinni. Í ferðinni var kona sem átti sér- stakt erindi til Fleetwood. Faðir hennar var þar á togara sem lenti í árekstri í ytri höfninni og fórst hann þar ásamt fleiri íslenskum sjómönnum. Hún var sex ára þeg- ar slysið varð. Hún kvaddi pabba sinn í hvert sinn sem hann fór á sjóinn; kannski með orðunum: „Bless pabbi minn.“ En hann kom ekki aftur úr ferðinni til Fleetwo- od. Alla ævi dreymdi hana um að fá tækifæri til að komast að hinni votu gröf til að kveðja pabba sinn. Í þessari ferð um sjötíu árum síð- ar gafst henni loks tækifæri til að kveðja pabba sinn. Fararstjórinn í ferðinni fann stað í höfninni og þaðan gekk konan niður að sjó með blóm sem hún hafði meðferðis sem hún fleygði í sjóinn til að kveðja. Allur hópurinn fylgdist með þessari athöfn og margir komust við. Fyndið atvik Seinna atvikið átti sér stað fyrir nokkru í ferð til Ítalíu. Eldri kona íslensk sat á kaffihúsi og varð starsýnt á mann sem hún kann- aðist við og sat við annað borð. Maðurinn horfði einnig á hana. Það endaði með því að konan stóð upp og gekk til mannsins og sagði við hann á ensku: „Þekkir þú mig?“ Maðurinn varð nokkuð hissa og sagði ekki svo vera. Í framhaldi af þessu fór fólkið að spjalla sam- an og var í hrókasamræðum þegar fararstjórinn kom til að sækja konuna. Fararstjórinn rak upp stór augu, því að maðurinn sem konan var að spjalla við allan þennan tíma var enginn annar en stórleikarinn Bruce Willis.“ Víðtæk starfsemi Hver er markhópurinn ykkar hjá Bændaferðum? „Ætli megi ekki segja að mark- hópurinn okkar sé fyrst og fremst fólk frá fertugu og upp úr. En auðvitað fer margt af yngra fólki með okkur, svo sem í hjóla- og gönguferðir. Satt að segja leynum við Bændaferðum talsvert á okkur. Starfsemi okkar er mjög víðtæk og mælist vel fyrir. Ég get ekki stillt mig um að nefna hrós sem við fengum og mér þykir vænt um. Maður sem þekkir vel til ferða- mála á Norðurlöndum skrifaði mér póst og sagði þar að fjölbreytni og úrval hjá Bændaferðum væri á við það sem best gerðist hjá stóru ferðaskrifstofunum á Norð- urlöndum.“ Ævintýri Bændaferða Morgunblaðið/Árni Sæberg Jólin „Við hjá Bændaferðum vorum fyrst á íslenskum markaði til að bjóða upp á jóla- og aðventuferðir til Þýska- lands. Þetta hafa verið afskaplega vinsælar ferðir og við höfum bætt við fleiri slíkum vegna mikillar aðsóknar.“ Gaman Hópmynd af ferðafólki á vegum Bændaferða við Gardavatn á Ítalíu. Draumaveröld Hawaii er yndislegur staður að heimsækja.  Í þessari ferð um sjötíu árum síðar gafst henni loks tækifæri til að kveðja pabba sinn  Fararstjórinn í ferðinni fann stað í höfninni og þaðan gekk konan niður að sjó með blóm sem hún hafði meðferðis sem hún fleygði í sjóinn til að kveðja  Allur hópurinn fylgdist með þessari athöfn og margir komust við.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.