Morgunblaðið - 27.08.2015, Blaðsíða 90
90 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2015
Guðlaugur Eyjólfsson fyrrum landsliðsmaður í körfubolta er 35ára í dag. Guðlaugur sem spilaði körfubolta fyrir Grindavík umárabil, vann bæði deildar- og bikarmeistaratitla með liðinu. Í
dag er hann forstöðumaður á sölu- og einstaklingsmörkuðum hjá Sím-
anum.
Hann er þó ekki hættur að hreyfa sig en um síðustu helgi hljóp hann
hálfmaraþon í Reykjavíkurmaraþoninu en auk þess ferðaðist hann til
Rotterdam þar sem hann hljóp maraþon á þremur klukkutímum og sjö
mínútum, sem verður jú að teljast býsna gott.
Guðlaugur hefur verið töluvert á faraldsfæti í sumar en auk
Hollandsferðarinnar þar sem hann hljóp maraþonið ferðaðist hann með
fjölskyldunni til Bandaríkjanna. Stórborgin New York var sótt heim en
auk þess fór fjölskyldan einnig um New Jersey-fylki. Guðlaugur segir
að það hafi verið mikil upplifun fyrir börnin að koma til New York-
borgar þar sem mannlífið iðar.
„Ætli ég hafi það ekki bara notalegt með fjölskyldunni og læt dekra
aðeins við mig,“ segir Guðlaugur aðspurður um hvernig verja eigi af-
mælisdeginum. Hann segist þó almennt ekki vera mikið afmælisbarn.
Að afmælið falli í skuggann af ellefu ára afmæli dóttur hans í fyrradag.
Eiginkona Guðlaugs er Hugrún Ósk Óskarsdóttir, viðskiptastjóri Já.
Saman eiga þau þrjú börn, Sögu, 11 ára, Brynju, 6 ára og Eddu, sem er
eins árs gömul.
Á ferðalagi Guðlaugur ásamt fjölskyldu sinni í New York í sumar.
Lætur dekra við sig
á afmælisdaginn
Guðlaugur Eyjólfsson er 35 ára í dag
H
lín fæddist á Selfossi
27.8. 1965 en ólst upp
í Þorlákshöfn: „For-
eldrar mínir voru
meðal frumbyggja
bæjarins og það var gaman að alast
upp í Þorlákshöfn þegar bærinn
stækkaði sem mest. Þar ríkti mikil
bjartsýni og samstaða einkenndi
bæjarbraginn.“
Hlín var í Grunnskóla Þorláks-
hafnar og fór síðan í Menntaskólann
við Sund. Að loknu stúdentsprófi ár-
ið 1985 hélt Hlín með tilvonandi eig-
inmanni til St. Paul, Minnesota, og
hóf BA-nám við Macalester College.
Þar næst fór hún í mastersnám í
Cornell University, Ithaca, New
York, og útskrifaðist þaðan með
mastersgráðu í skipulagsfræði og
landslagsarkitektúr.
„Við bjuggum í tvö ár í Stokk-
hólmi í Svíþjóð eftir námsárin í Am-
eríku en ákváðum að halda heim til
Íslands árið 1995 eftir níu ára búsetu
erlendis. Þá hóf ég störf á Skipulags-
sviði Reykjavíkurborgar, sem þá hét
Borgarskipulag. Ég var þar verk-
efnisstjóri og starfaði hjá Reykjavík-
urborg til ársins 2001. Nokkru síðar
stofnaði ég eigið ráðgjafafyrirtæki
sem heitir Skipulag og hönnun ehf.
Hlín Sverrisdóttir landslagsarkitekt og skipulagsfræðingur – 50 ára
Hress Golf- og skíðafjölskylda Hlín og Hreggviður með börnunum sínum, þeim Leifi, Sverri og Ölmu Rún.
Gott umhverfi krefst
skynsamlegs skipulags
Kátar konur Hlín með vinkonum sem allar eru hressar og uppátækjasamar.
Systkinin Eyrún Lára Sigurjónsdóttir og Björn Kári Sigurjónsson héldu tombólu
hjá Sundlaug Kópavogs. Þau söfnuðu 3.190 kr. og gáfu Rauða krossinum.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Sigurður Ara-
son Fossdal, f.
27. ágúst 1935,
er 80 ára í dag.
Afmælisbarnið
mun fagna
deginum í
faðmi fjöl-
skyldu.
Árnað heilla
80 ára Hægt er að
sendamynd og texta
af nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is