Morgunblaðið - 27.08.2015, Síða 91
og hef síðan tekið að mér ýmis verk-
efni á mínu starfsviði.“
Hlín sat í stjórn FÍLA, Félags ís-
lenskra landslagsarkitekta, var for-
maður félagsins 2008-2011, situr í
samkeppnisnefnd félagsins og hefur
setið í stjórn SFFÍ, Skipulagsfræð-
ingafélags Íslands.
Verður ekki landslagsarkitektúr
sífellt veigameiri fræðigrein með
hverju árinu?
„Jú. Við getum orðað það svo að
starfsvettvangur greinarinnar hafi
eflst mikið frá því ég lauk námi og
sama er að segja um skilning á mik-
ilvægi skipulagningar almennt. Það
hefur ekki gengið átakalaust fyrir
sig en ég held að það sé almennt
mjög til bóta.“
Margir vinkvennahópar
Áhugamál Hlínar snúast flest um
útiveru: „Ég hef gaman af göngu-
ferðum og fer yfirleitt í nokkrar
lengri gönguferðir á ári um Ísland.
Einnig er ég búin að stunda golfið í
nokkur ár en karlleggur fjölskyld-
unnar er áhugasamur í golfinu.
Í sumar náðist sá áfangi að ég
varð minnst í fjölskyldunni. En á
sama tíma var forgjöfin mín orðin
hæst. Synirnir hafa báðir lækkað í
forgjöf í sumar um rúman tug á
meðan mín forgjöf silast hægar en
þó sígandi niður á við.
Við höfum einnig gaman af skíða-
mennsku og ferðalögum ýmisskonar
og við fjölskyldan höfum farið reglu-
lega í ævintýraferðir á framandi
slóðir, nú síðast í magnaða jólaferð
til Sri Lanka.
Garðyrkja er eitt af áhugamál-
unum og má segja að mín hugleiðsla
sé fólgin í því að róta í moldinni þeg-
ar ég dunda mér ein með sjálfri mér
í garðinum mínum.
Síðan er eiginlega stærsta áhuga-
málið að vera með fjölskyldu og í
góðra vina hópi. Ég er svo heppin að
ég er umvafin góðum vinum og til-
heyri nokkrum vinkvennahópum.
Það eru margar gleðistundirnar sem
ég hef átt með æskuvinkonunum,
göngu-, veiði- eða golfhópnum og
ekki má gleyma stelpunum í
„Bostonians“ sem ég bralla mikið
með. Ég er sífellt að skipulegga eitt-
hvað skemmtilegt með vinkonum
eða fjölskyldu þannig að í mínu lífi er
alltaf eitthvað til að hlakka til.“
Fjölskylda
Eiginmaður Hlínar er Hreggviður
Jónsson, f. 18.6.1963, stjórnarfor-
maður Veritas-samstæðunnar og
Festi og formaður Viðskiptaráðs Ís-
lands. Þau gengu í hjónaband árið
1992.
Foreldrar Hreggviðs: Guðný
María Jóhannsdóttir, f. 29.6. 1936,
verkakona á Þórshöfn, og Jón Kr.
Jóhannsson, f. 4.8. 1923, d. 6.3. 1993,
verslunarmaður á Þórshöfn.
Börn Hlínar og Hreggviðs eru
Leifur Hreggviðsson, f. 18.6. 1993,
viðskiptafræðinemi í Háskólanum í
Reykjavík; Alma Rún Hreggviðs-
dóttir, f. 2.1. 1997, nemi í Verslun-
arskóla Íslands, og Sverrir Hregg-
viðsson, f. 12.6. 2001, nemi í
Réttarholtsskóla.
Systkini Hlínar: Hrönn Sverris-
dóttir, f. 17.1. 1962, kennari í Þor-
lákshöfn, og Hlynur Sverrisson, f.
2.3. 1969, d. 5.1. 1974.
Foreldrar Hlínar voru Álfhildur
Steinbjörnsdóttir, f. 11.4. 1933, d.
17.4. 2014, húsfreyja í Þorlákshöfn
og Sverrir Sigurjónsson, f. 28.2.
1934, d. 1.7. 2015, húsasmíðameistari
í Þorlákshöfn.
Úr frændgarði Hlínar Sverrisdóttur
Hlín
Sverrisdóttir
Anna Kristófersdóttir
húsfr. á Reykjum
Jónas Jónsson
b. á Reykjum í V.Hún
Elínborg Jónasdóttir
húsfr. Syðri Völlum
Steinbjörn Jónsson
söðlasm. og b. á Syðri -Völlum í V.Hún
Álfhildur Steinbjörnsdóttir
húsfr. í Þorlákshöfn
Ingveldur Pétursdóttir
vinnuk. í Haukagili á Mýrum
Jón Jónsson
b. í Gröf í Lundarreykjadal
Guðrún Gísladóttir
húsfr. í Eyjum og Rvík
Auðunn Jónsson
trésm. í Vestm.eyjum og í Rvík
Ingileif Auðunsdóttir
húsfr. á Grímsstöðum
Sigurjón Guðmundsson
b. á Grímsstöðum í Rangárvallasýslu
Sverrir Sigurjónsson
húsasmíðam. í Þorlákshöfn
Sigríður Sigurðardóttir
vinnuk. í Rangárvallasýslu
Guðmundur Magnússon
vinnum. í Rangárvallasýslu
Katrín Sigurjónsdóttir
skrifstofum. í Rvík
Guðrún Alda
Gísladóttir
fornleifafr. í Rvík
Anna
Steinbjörnsdóttir
bankastarfsm.
í Rvík
Afmælisbarnið Hlín Sverrisdóttir.
ÍSLENDINGAR 91
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2015
Gunnlaugur Blöndal fæddist áSævarlandi í Þistilfirði 27.8.1893. Foreldrar hans voru
Björn Gunnlaugsson Blöndal, héraðs-
læknir á Blönduósi, Hvammstanga
og á Siglufirði, og k.h., Sigríður Möll-
er húsfreyja. Björn var sonur Gunn-
laugs Blöndal sýslumanns, og k.h.
Sigríðar, systur Benedikts Gröndal
og dóttur Sveinbjarnar Egilssonar,
skálds og rektors, en Sigríður Möller
var dóttir Hans Carstens Möller, lög-
fræðings í Kaupmannahöfn, og Ingi-
bjargar Einarsdóttur húsfreyju.
Gunnlaugur flutti ungur með for-
eldrum sínum til Hvammstanga og
ólst þar upp. Hann lærði tréskurð hjá
Stefáni Eiríkssyni í Reykjavík, stund-
aði nám í teikningu við Teknisk Sel-
skab Skole í Kaupmannahöfn frá
1913 og síðar nám við Listaakadem-
íuna í Osló hjá einum virtasta málara
Norðmanna, Christian Krogh. Um
það leyti kynntist hann verkum
franskra málara á borð við Renoir og
Matisse. Að loknu tveggja ára námi
ferðaðist Gunnlaugur um Evrópu,
kom heim 1922 og hélt sína fyrstu
einkasýningu. Hann dvaldi síðan í
París á árunum 1924-29, varð þar fyr-
ir áhrifum af expressjónisma og kú-
bisma, stundaði nám í Akademíu
Andrés Lhote og við „Hina frjálsu
vinnustofu“ þar sem hann lærði hjá
Fernand Léger. Hann var síðan bú-
settur í Kaupmannahöfn, sýndi víða
um Evrópu og varð þekktur listmál-
ari í París og Kaupmannahöfn. Hann
flutti heim á stríðsárunum og starfaði
hér síðan.
Tómas Guðmundsson skrifaði bók
um Gunnlaug sem kom út hjá Helga-
felli á sjöunda áratugnum, enda báðir
rómantískir með afbrigðum. Um list
Gunnlaugs segir Björn Th. Björnsson
m.a. í Listasögu sinni: Fyrir [honum]
vakir alls ekki að túlka lífið, veru-
leikann. Hann notfærir sér aðeins
svipmyndir hans sem rómantískt
yrkisefni, smíðisefni fegurðar, sem á
sér í raun og veru hljómgrunn á allt
öðru sviði mannlífsins. … Þar á ég
ekki sízt við konumyndir hans, en
margar þeirra eru óumdeilanleg
snilldarverk, þrungnar rósemd og
djúpu ljóðrænu yndi.“
Gunnlaugur lést 28.7. 1962.
Merkir Íslendingar
Gunnlaugur
Blöndal
90 ára
María Jónína Sigurðardóttir
85 ára
Einar Ólafsson
Kristín Þorleifsdóttir
Ulla Bertelsen
80 ára
Auður Hermannsdóttir
Guðrún Hjaltadóttir
Martha K.
Sveinbjörnsdóttir
Óli Þ. Guðbjartsson
Sigurður Arason Fossdal
75 ára
Amalía Sverrisdóttir
Anna J. Þorsteinsdóttir
Árni Þór Kristjánsson
Guðrún Ásmundsdóttir
Ingjaldur Ásvaldsson
Kristbjörg Elma Elíasdóttir
70 ára
Bjarni Sigurjónsson
Björn Eiríksson
Hallgrímur Guðmundsson
Ingibjörg Árnadóttir
Ingimundur Árnason
Kolbrún Úlfarsdóttir
Snjólaug Þóroddsdóttir
Steingrímur Steingrímsson
Viðar Þormóðsson
60 ára
Birgir Árdal Steingrímsson
Bjarni Ástvaldsson
Björk Tryggvadóttir
Elísabet Kristín Einarsdóttir
Grímur Andrésson
Gunnar Helgason
Halldór Ólafsson
Hlynur Ómar Svavarsson
Jón Guðni Guðmundsson
Sigríður Lovísa
Sigurðardóttir
Sigríður O.Þ. Sigurðardóttir
Trausti Axels Haraldsson
50 ára
Álfhildur Anna
Stefánsdóttir
Birkir Hreinsson
Guðrún Hermannsdóttir
Inga María Hansen
Ásgeirsdóttir
Kolbeinn Ingi Birgisson
Kristín S. Kristinsdóttir
Sigrún Björk Pétursdóttir
Sigrún Erlendsdóttir
Soffía Hauksdóttir
40 ára
Guðbjörg Guðlaugsdóttir
Guðrún Lára
Skarphéðinsdóttir
Guðrún Svanhvít
Magnúsdóttir
Huld Óskarsdóttir
Jóhann Möller
Jón Bjarni Bjarnason
Kristín Ásta Ólafsdóttir
Rafal Rusak
Sigrún Edda Erlendsdóttir
30 ára
Anusha S. Perera
Kulathilakage
Dagur Hákon Rafnsson
Daria Agata Kolodziejczyk
Erling Páll Karlsson
Guðmundur Hauksson
Gylfi Þór Jónasson
Hjördís Erna Þorgeirsdóttir
Ingunn Hreinberg
Indriðadóttir
Leif Stefan Anderson
Nimnual Khakhlong
Robert Gaj
Sólveig Lind Helgadóttir
Tomás Hub
Yoav Tirosh
Til hamingju með daginn
30 ára Matthías ólst upp
á Guðnastöðum í Austur-
Landeyjum, býr þar og er
vélaverktaki.
Systkini: Dagný, f. 1972;
Bryndís, f. 1974; Guðni, f.
1977, og Magnús, f. 1982.
Foreldrar: Ragnar Guð-
laugsson, f. 1934, fyrrv.
bóndi á Guðnastöðum, nú
búsettur á Selfossi, og
k.h., Margrét Strubler, f.
1948, fyrrv. húsfreyja á
Guðnastöðum, nú á Sel-
fossi.
Matthías
Ragnarsson
30 ára Helgi ólst upp á
Akureyri, er nú búsettur í
Mosfellsbæ, lauk stúd-
entsprófi frá VMA og prófi
í fjölmiðlatækni frá Borg-
arholtsskóla og stundar
nú nám í tölvunarfræði
við HÍ.
Systur: Margrét Elva
Ragnarsdóttir, f. 1977, og
Álfheiður Rut Ragn-
arsdóttir, f. 1979.
Foreldrar: Ragnar Þór El-
ísson Olsen, f. 1955, og
Erla Helgadóttir, f. 1959.
Helgi Snær
Ragnarsson
30 ára Kristjana ólst upp
í Orlando í Flórída í
Bandaríkjunum, býr í
Reykjavík, lauk BS-prófi í
fjármálafræði og BA-prófi
í stjórnmálafræði frá Uni-
versity of Florida og MSc-
prófi í fjármálahagfræði
frá HÍ og er að hefja nám í
verðbréfamiðlun.
Foreldrar: Marta Krist-
jánsson, f. 1957, skrif-
stofustjóri, og Guðleifur
Kristjánsson, f. 1955,
dreifingarstjóri.
Kristjana G.
Kristjánsson
3.855KR
SALTFISKUR
með möndlu og graslauks-
smjöri, fíkjumogkartöflum
g e y s i r b i s t r o . i s
Aðalstræti 2
517 4300