Morgunblaðið - 27.08.2015, Page 96
96 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2015
Hvern ætlar þú að
gleðja í dag?
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Ég kolféll fyrir þessu verki Gunn-
steins um leið og ég kynntist því fyr-
ir um tveimur árum,“ segir Sveinn
Einarsson, sem leikstýrir ævintýra-
óperunni Baldursbrá eftir Gunnstein
Ólafsson og Böðv-
ar Guðmundsson
sem frumsýnd
verður í Norður-
ljósasal Hörpu
laugardaginn 29.
ágúst kl. 14.
„Textinn hans
Böðvars er
óheyrilega spenn-
andi og býr yfir
skemmtilegum
skírskotunum í
bæði hefðir og söguna á sama tíma
og hann er algjörlega nútímalegur.
Tónlistin er mjög áheyrileg, lagræn
og á köflum mjög fyndin,“ segir
Sveinn og tekur fram að eitt af því
sem höfði til hans við Baldursbrá sé
hversu alþýðlegt verkið sé, en tón-
listin byggir að hluta á íslenskum
þjóðlögum, hvort tveggja rímnalög-
um og þulum, en einnig bregði fyrir
rappi og fjörlegum dönsum.
„Þetta er ævintýraópera sem
höfða ætti til allrar fjölskyldunnar,“
segir Sveinn, en verkið, sem er í
þremur þáttum, tekur um tvær
klukkustundir í flutningi með hléi.
„Þetta er dæmisaga sem túlka má á
marga vegu, en leiðarþráður verks-
ins er náttúruvernd. Fyrir mér er
Baldursbrá Ísland. Óperan segir frá
Baldursbrá sem kynnist sposkum
Spóa sem hvetur hana til að fara með
sér upp á fjallstind til að njóta útsýn-
isins. Þegar hún er komin upp á hæð-
ina kemst hún að því að þar er ekk-
ert skjól. Niðurstaðan verður sú að
það á ekki að róta við náttúrunni
heldur leyfa henni að hafa sinn
gang.“
Frumsköpun í bland við víðsýni
Söngvarar eru Fjóla Nikulásdóttir
í hlutverki Baldursbrár, Eyjólfur
Eyjólfsson í hlutverki Spóa, Jón
Svavar Jósefsson er Rebbi, Davíð
Ólafsson syngur Hrútinn og ellefu
börn eru í hlutverki yrðlinga. Sextán
manna kammersveit leikur undir
stjórn Gunnsteins. „Ég er mjög
ánægður með mína áhöfn, bæði inn-
an og utan sviðs. Það eru margir
reynsluboltar í kringum mig í þess-
ari sýningu. Þannig gerir Sigurjón
Jóhannsson leikmyndina, en hann
var yfirleikmyndateiknari Þjóðleik-
hússins í mörg herrans ár. Ljósa-
meistari Þjóðleikhússins til margra
ára, Páll Ragnarsson, sér um lýs-
ingu. Höfundur dansa er Ingibjörg
Björnsdóttir, sem stýrði Listdans-
skólanum til margra ára. Messíana
Tómasdóttir, sem á langan feril að
baki, gerir grímur. Meira að segja
sminkurnar, þær Elsa Þórisdóttir og
Kristín Thors, eru miklir reynslu-
boltar. Það eru bara tvær ungar
manneskjur í listræna teyminu, en
það eru Kristína R. Berman sem
hannar búninga og Árni Kristjáns-
son sem er aðstoðarleikstjóri. Hann
var það reyndar líka árið 2008, en er
nú kominn í frábært leikstjórnar-
nám, valinn úr hundruðum umsækj-
enda.“
Að sögn Sveins er ekki hlaupið að
því að koma nýjum íslenskum óp-
erum á svið hérlendis. Baldursbrá
var flutt á tvennum tónleikum
sumarið 2014 og var tilnefnd til Ís-
lensku tónlistarverðlaunanna, fyrst
íslenskra barnasöngleikja. Uppsetn-
ingin nú er samstarfsverkefni Litla
óperukompanísins, Íslensku óper-
unnar og Hörpu. „Það er gríðarlegur
barningur að koma fram nýrri ís-
lenskri óperu en Gunnsteinn hefur
sýnt óþrjótandi elju og úthald í að
koma verkinu á svið,“ segir Sveinn
og rifjar upp að Baldursbrá hafi ver-
ið neitað um styrk úr bæði leiklistar-
og tónlistarráði. „Óperur lenda
þarna mitt á milli listgreina.“
Svo skemmtilega vill til að 26.
október nk. verða liðin fimmtíu ár
síðan Sveinn leikstýrði fyrstu leik-
sýningu sinni, en það var Sjóleiðin til
Bagdad eftir Jökul Jakobsson sem
Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi
1965. „Ég veit ekki nokkur dæmi
þess hérlendis að leikstjóri sem enn
er í fullu fjöri hafi fagnað 50 ára
starfsafmæli sínu. Leikstjórnarferill
minn hefur verið samfelldur öll þessi
ár, þó að ég sé á síðustu árum farinn
að veigra mér við stórum sýningum.
Það hentar betur að stýra minni sýn-
ingum þegar maður er kominn á
þennan aldur,“ segir Sveinn, sem
fagnar 81 árs afmæli sínu í næsta
mánuði, en síðasta stóra uppfærsla
hans var Cavalleria Rusticana hjá Ís-
lensku óperunni haustið 2008.
Í ljósi þess að Baldursbrá telst
seint lítil sýning í sniðum liggur
beint við að spyrja hvers vegna
Sveinn hafi tekið leikstjórn verksins
að sér. „Þegar hringt er í mig og ég
spurður hvort ég vilji leikstýra óperu
endar samtalið venjulega á því að ég
segi „já“, því að ég hef elskað óperur
frá því að ég man eftir mér og hluti
af námi mínu var við Stokkhólms-
óperuna. Á mínum yngri árum
fannst mér freistandi að einblína al-
farið á óperuleikstjórn á heimsvísu,
því að Walter Felsenstein, sem á sín-
um tíma var talinn fremsti óperu-
leikstjóri í veröldinni, bauð mér að
gerast hjá sér aðstoðarleikstjóri. Það
var auðvitað frábært tækifæri, en
flestir hans aðstoðarleikstjórar urðu
síðar heimsfrægir. En ég var þá orð-
inn bundinn Leikfélagi Reykjavíkur
og fannst að ég myndi bregðast mál-
staðnum ef ég færi út, því að á þeim
tíma var verið að ræða hvort reisa
ætti Borgarleikhúsið eða ekki. Mér
fannst ég því ekki geta yfirgefið fé-
laga mína á þeim tíma og hafnaði til-
boðinu,“ segir Sveinn, sem á löngum
ferli sínum hefur leikstýrt fjölda óp-
erusýninga samhliða leiksýningum.
„Ég hef voða gaman af því að
vinna óperusýningar, því að maður
kemst í svo gott skap við að vinna
þær,“ segir Sveinn og bendir á að
mikilvægt sé að leyfa músíkinni að
ráða, þar sem allar tilfinningar og
framvinda liggi í tónlistinni. Að-
spurður segir Sveinn spennandi að
vera fyrsti leikstjórinn til að vinna
nýtt verk. „Það er gaman að fást við
frumsköpun. En þegar maður setur
upp þekkt klassík verk reynir maður
eðlilega að útiloka aðrar upp-
færslur,“ segir Sveinn og tekur fram
að hann hafi alltaf verið mjög stoltur
af því að taka þátt í frumsköpun. „Ég
lít þannig á að heilbrigt og fram-
sækið leikhús, á hvaða sviði sem er,
þurfi að byggjast upp á tveimur
þráðum. Annars vegar á frumsköpun
og hins vegar víðsýni gagnvart því
sem verið er að gera annars staðar.
Þetta er grundvallarviðhorf sem ég
hef haft á öllum ferli mínum í leik-
húsinu.“
Aðeins eru fyrirhugaðar fjórar
sýningar á Baldursbrá í Norður-
ljósum. Þær verða helgina 29. og 30.
ágúst kl. 14 báða daga og síðan 31.
ágúst og 1. september kl. 20 hvort
kvöld. Miðasala er á harpa.is.
„Maður kemst í svo gott skap“
Sveinn Einarsson leikstýrir ævintýraóperunni Baldursbrá Hann fagnar 50 ára starfsafmæli sínu
í október Segir mjög mikilvægt að hlúa að frumsköpun og styðja betur við nýjar íslenskar óperur
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Skrafað Baldursbrá (Fjóla Nikulásdóttir) spjallar við Rebba (Jón Svavar Jósefsson) og Spóa (Eyjólf Eyjólfsson).
Sveinn
Einarsson
Michel Houellebecq er einn þekkt-
asti rithöfundur samtímans, um-
deildur og ögrandi, og hefur mynd-
list komið fyrir í nokkrum verka
hans. Ekki síst í skáldsögunni Kort-
ið og landið, síðustu bók höfundarins
sem kom út á íslensku og fékk frá-
bæra dóma hér sem víðar, en þar er
aðalpersónan virtur samtímalista-
maður. Nú hefur það vakið mikla at-
hygli og forvitni í Frakklandi,
heimalandi Houellebecq, að í hinu
virta samtímalistasafni í París, Pala-
is de Tokyo, verður á næsta ári sett
upp sýning á myndlistarverkum eft-
ir Houellebecq. Samkvæmt The Art
Newspaper hefur ekkert lekið út um
það hvers konar verk rithöfundurinn
hefur verið að skapa og mun sýna.
Hann hélt í fyrra sýningu á ljós-
myndum en þær hafa ekki vakið við-
líka athygli og ritverk hans.
„Sýningin verður opnuð í júní nk.
og sýningarstjórinn er Jean de
Loisy, forstöðumaður Palais de To-
kyo,“ segir talsmaður sýningar-
miðstöðvarinnar og bætir við að
þetta verði fyrsta raunverulega
einkasýning Houellebecq.
Nýjasta skáldsaga hans, Soumiss-
ion, hefur vakið mikla athygli, rétt
eins og þær fyrri. Sögusviðið er
Frakkland árið 2022 og er forseti
landsins múslimi.
Myndlistarmaður Michel Houellebecq við opnun á sýningu á ljósmyndum
sínum í París í fyrra. Ekki er vitað hvað hann sýnir í Palais de Tokyo.
Stór sýning á mynd-
verkum Houellebecq