Morgunblaðið - 27.08.2015, Side 101
AF LISTUM
Vernharður Linnet
linnet@simnet.is
Fyrir fimm árum sagði JónPáll í viðtali við Einar FalIngólfsson hér í blaðinu, að
spilagleðin væri alltaf jafn mikil,
„það er lífið“. Þá var hann 72ja ára.
Nú, fimm árum síðar, er hann horf-
inn yfir móðuna miklu. Hann spilaði
framundir það síðasta; hann og
Gibsoninn eitt.
Jón Páll var enginn venjulegur
djassspilari. Hann og Gunnar
Ormslev voru boðberar nýrra tíma
í íslenskum djassi, þó Jón væri tíu
árum yngri. Gunnar var fulltrúi
hins svala djass, en Jón Páll
bíboppsins.
Þegar Jón Páll var spurður um
uppáhaldsgítarista sinn, svaraði
hann jafnan: „Charlie Parker“, enda
hlustaði hann meira á altóleikarann
en aðra djassmúsíkanta, þó gítarist-
arnir Tal Farlow, Barney Kessell og
Jimmy Raney væru í miklu uppá-
haldi. Ópusar Parkers voru Jóni Páli
tamir, enda gjarnan byggðir á
hljómagangi klassískra söngdansa,
en Jóni Páli fannst ekki þörf á því að
vera sífellt að semja nýja ópusa með-
an óteljandi möguleikar væru í hin-
um gömlu. Lee Konitz var líka á
þessari skoðun og meira að segja
Gunni Sveins, tónskáldið Gunnar
Reynir Sveinsson, en í tríói hans á
Röðli lék Jón Páll með bassaleik-
aranum Hödda Björns, en þeir voru
lengi samtíða í Svíþjóð.
Enginn norrænn gítaristi lék
jafn leikandi bopplínur og Jón Páll,
sífellt nýjar og nýjar hugmyndir í
hverjum sólókór, en þó hann væri
boppari fram í fingurgóma, var
ekki hinn innbyrgði tryllingur í
spuna hans eins og hjá Parker, Bud
Powell og öðrum svörtum bopp-
meisturum, er bjuggu við ógnir
kynþáttahatursins allt sitt líf. Lín-
urnar liðu jafnari fram.
„Ljóðasöngvari“ djassins
Jón Páll var atvinnumaður í
tónlist í 60 ár. Byrjaði með Svavari
Gests 17 ára, lék með fjölmörgum
öðrum dans- og djasssveitum hér
heima, frá KK-sextettnum til hljóm-
sveitar Ragga Bjarna. Hann var
hljóðfæraleikari í fjögur ár í Dan-
mörku, tíu í Svíþjóð og sautján í Los
Angeles, þar sem hann lék með
óteljandi hljómsveitum af öllum
sortum – en líka með snillingum á
borð við Tal Farlow, Joe Pass og
Buddy Rich.
Það var alltaf hátíð í bæ þegar
Jón Páll heimsótti okkur og það eru
fimmtíu ár síðan ég heyrði hann
fyrst. Í upphafi hreifst maður mest
af hinum hröðu bopplínum, en þeg-
ar frá leið voru það ballöðutúlkanir
hans sem heilluðu fyrst og fremst.
Ég man enn glöggt kvöldstund í
Stúdentakjallaranum fyrir margt
löngu þar sem hann spilaði með
stráklingum eins og Gunna Hrafns
bassaleikara. Eitt laganna var
„Darn That Dream“ og túlkunin
þrungin slíkri fegurð að Ben
Webster í Jazzhus Montmartre kom
upp í hugann.
Við eigum flest okkar uppá-
halds „Jóns Páls standarda“: „Lov-
er Man“, „Have You Met Miss Jon-
es“ og „Stella By Starlight“, svo
örfáir séu nefndir. Það eru ein-
kenni mikilla listamanna hversu
aukinn þroski og lífsreynsla kemur
fram í ballöðutúlkun þeirra. Jón
Pál má kalla „ljóðasöngvara“ djass-
ins á Íslandi, og svo var hann flest-
um mönnum ljúfari í viðmóti. Ólaf-
ur Stephensen sagði um Gunnar
Ormslev: „Tónn Gunnars var eins-
og maðurinn, blíður og hæversk-
ur.“ Það sama má segja um Jón Pál
og tónlist hans.
Hvar hefur þessi maður verið?
Það var ævintýri að hitta Jón
Pál, hvort sem það var í fiskbúðinni
eða tónleikasalnum. Hans verður
sárt saknað, en sem betur fer er
nokkuð til á hljómdiskum með list
hans, má nefna hljóðritanirnar með
Gunnari Ormslev frá fyrri árum og
diskana tvo með Útlendingaher-
sveitinni, er hann hafði náð fullum
þroska sem listamaður. Svo var
hann meira að segja farinn að
skrifa ópusa sjálfur og er „Ice“
þeirra þekktastur. Það var líka
nafnið á einu skífunni er hann gaf
út með bandrískri hljómsveit. Einn
þekktasti djassgagnrýnandi djass-
heimsins, Leonard Feather, skrif-
aði þá: „Hvar hefur þessi maður
verið? Af hverju er nafn hans ekki
löngu komið á lista þeirra lista-
manna sem gagnrýnendur Down
Beat telja að eigi skilið meiri við-
urkenningu?“ Jón Páll hefur trú-
lega brosað í kampinn þegar hann
las þetta og haldið áfram að leika
sitt bíbopp í klúbbunum í Los Ang-
eles.
Spilagleðin er lífið sjálft
Morgunblaðið/Golli
Gítarleikarinn Bíboppmeistarinn Jón Páll Bjarnason með Gibsoninn. Útför hans fer fram á morgun.
»Enginn norrænngítaristi lék jafn
leikandi bopplínur og
Jón Páll, sífellt nýjar
og nýjar hugmyndir í
hverjum sólókór …
Reynsluboltar Jón Páll ásamt félögum í blúsdjasssveitinni Bláum skuggum,
þeim Pétri Östlund, Sigurði Flosasyni og Þóri Baldurssyni.
MENNING 101
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2015
Svavar Örn Svavarsson og Sigvaldi
Kaldalóns, kallaður Svali, verða
kynnar íslenskrar útgáfu sjón-
varpsþáttanna The Voice, The
Voice Ísland, sem sýningar hefjast
á í haust á SkjáEinum. Svali segir
þá félaga hafa sóst eftir því að fá að
stýra þáttunum og Svavar segir
geysilega margt gerast á bak við
tjöldin. „Það er svo mikil orka á
svona stað þar sem fólk kemur til
að sanna sig, fær uppbyggilega
gagnrýni og getur bætt sig,“ segir
hann. Ísland verður 61. landið sem
gerir eigin útgáfu af þáttunum.
Kynnar í The Voice
Kynnar Tvíeykið Svali og Svavar.
Hipphopp-dúettinn Rae
Sremmurd, skipaður
bræðrunum Swae Lee og
Slim Jimmy, heldur tón-
leika í Laugardalshöll í
kvöld. Lee og Jimmy ól-
ust upp í fátækrahverfi í
Tupelo í Missisippi,
bjuggu árum saman á
götunni, unnu af kappi að
tónlist og héldu teiti til að
vekja á sér athygli. Árið
2013 fóru þeir að setja
lög sín á YouTube og tók
framleiðandinn Mike
WiLL Made-It þá í kjöl-
farið upp á arma sína.
Vinsældir bræðranna á
netinu eru gríðarmiklar
og hafa þeir verið á tón-
leikaferðalagi um heiminn með bandarísku tónlistarkonunni Nicki Minaj.
Höllin verður opnuð í kvöld kl. 19 og stígur Hermigervill fyrstur á svið
hálftíma síðar og þeytir skífur. Kl. 20 troða upp Hr. Hnetusmjör og Frikki
Dór, kl. 20.20 hefur hljómsveitin Retro Stefson leika og Gísli Pálmi kl.
20.40. Kl. 21 er komið að Pell og ráðgert er að Rae Sremmurd mæti á svið
kl. 21.30 og skemmti gestum í klukkustund eða þar um bil.
Rae Sremmurd í Höllinni í kvöld
Bræður Swae Lee og Slim Jimmy hafa skotist upp á
stjörnuhimin hipphoppsins í heimalandi sínu.
STRAIGHTOUTTACOMPTON 7, 10
ABSOLUTELY ANYTHING 6, 8, 10
THE GIFT 8, 10:20
MINIONS - ENS TAL 2D 6
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
Ítarlegar upplýsingar á www.kofaroghus.is • s. 553 1550
sumarTILBOÐA
KOFAR OG HÚS
Brekka 34 - 9,0 m²
25% afsláttur
Verð áður 399.000
Verð nú 299.250
Brú - 5,0 m²
25% afsláttur
Verð áður 265.000
Verð nú 198.750
Naust - 14,5 m²
25% afsláttur
Verð áður 459.000
Verð nú 344.250
Síðustu dagar
25%
afsláttu
r
Gildir á
meðan
birgðir e
ndast