Hagskýrslur um húsnæðismál - 01.01.1957, Qupperneq 23

Hagskýrslur um húsnæðismál - 01.01.1957, Qupperneq 23
Húsnæöisskýrslur 1950 21 leigt hafa herbergi úr íbúðinni, með herbergjum sínum, og auk þess búa á nokkrum stöðum fleiri en ein f jölskylda í sömu íbúðinni. Þegar athugaður er mannfjöldinn, sem kemur á hvert herbergi, sést, að rýmra er um einstaklinga, sem taka á leigu einstök herbergi, heldur en um fjölskyldurnar, allra helzt þó þá, sem hafa heilar íbúðir til umráða. Þó er meðalþéttseta híbýlanna ekki meiri hjá fjölskyldum, sem hafa eldhús út af fyrir sig, en það er allur þorri fjöldskyldnanna (%o hlutar), heldur en í íbúð- unum yfirleitt, þegar öllum íbúum þeirra er slegið saman, en það er 1,03 manns á herbergi. Hins vegar standa þær fjölskyldur, sem hafa eldhús með öðrum, og einkum þó þær, sem ekkert eldhús hafa, töluvert verr að vígi í þessu efni. í töflu VI sést tala heimila, bæði fjölskyldu- og einstaklingsheimila, í hverjum kaupstað og hverju kauptúni með yfir 300 íbúa, og í hverri sýslu utan þeirra, svo og herbergjatala og tala heimilismanna, og má þar af finna, hve mörg herbergi koma að meðaltali á heimili, og hve margir menn á heimili eða herbergi á hverjum stað. I töflu Vm er fjölskyldu- og einstaklingsheimilum í bæjum og sveitum skipt eftir herbergjafjölda þeirra og tölu heimilismanna. Sést þar, að á land- inu í heild eru 3ja og 4ra manna f jölskylduheimili langtíðust, samanlagt hátt upp í helming allra fjölskylduheimila (44%), svipuð tala af hvoru fyrir sig, þó heldur fleiri 3ja manna heimili. Tæpl. % af tölu tjölskylduheimila er 2ja manna heimili, litlu fleiri 5 manna og álíka mörg 6 og 7 manna samanlögð. Af einstaklingsheimilum er megnið 1 manns heimili, 75%, 2ja manna 16% og 3ja manna 5%. 3. Þéttseta híbýlanna. Density of hábitation. Meðalþéttseta híbýla kemur fram við samanburð á herbergjatölu og íbúa- tölu þeirra, annað hvort í heild eða ýmsum deildum þeirra. Þetta hefur verið gert hér að framan að nokkru leyti og má gera enn meir eftir töflunum hér á eftir. En meðaltölin sýna aðeins, hvort þéttseta híbýlanna er mikil eða lítil yfirleitt, en breiða hins vegar yfir mismuninn á einingum þeim, sem meðal- talið er myndað af. Hópur, þar sem allar einingarnar eru mjög nálægt meðal- talinu, getur haft sama meðaltal sem annar hópur, þar sem sumar eining- arnar eru langt fyrir neðan meðaltalið, en aðrar langt fyrir ofan það. Meðal- tölin eru því ekki nægileg, þótt þau veiti töluverðar upplýsingar. Það er líka mikilsvert að vita, hvort jöfnuður ríkir í þessu efni eða ekki. Einkum er mikilsvert að fá vitneskju um það, hvort íbúðir séu ofsetnar (of þétt setnar), en það er venja, að minnsta kosti í Evrópu, að telja þær íbúðir ofsetnar, er fleiri en 2 menn koma á hvert herbergi. Þó að þéttseta híbýla sé á einhverjum stað að meðaltali langt fyrir neðan það, sem venja er að telja lágmark of- setu, þá er ekki þar með sagt, að ekki finnist íbúðir af slíku tagi, þótt búast megi við, að minna sé um slíkt, þar sem meðaltölin eru lág heldur en þar, sem þau eru há. í 7. yfirliti, um meðalmannfjölda á herbergi eftir stærð íbúða, eru öll meðaltölin undir ofsetulágmarkinu og eins 1940, nema 1 herbergis íbúðir án eldhúss. Og sama er að segja um meðalmannfjölda á herbergi heim- ilanna í 8. yfirliti. Til þess að finna, hve mikið er um ofsetnar íbúðir, verður að taka úr allar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Hagskýrslur um húsnæðismál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um húsnæðismál
https://timarit.is/publication/1176

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.