Hagskýrslur um húsnæðismál - 01.01.1957, Síða 25
Húsnæðisskýrslur 1950
23
töluna er þarna minna að marka, því að hún er að verulegu leyti óraunhæf
eins og áður er sagt.
í 9. yfirliti eru líka tilsvarandi tölur fyrir 1940. Þó er sá munur á, að þar
eru íbúðirnar teknar í einu lagi með öllum sínum íbúum, en enginn greinar-
munur gerður á fjölskyldum og einstaklingum. Tölurnar eru því ekki fylli-
lega sambærilegar við 1950. Næst liggur að bera íbúðirnar 1940 saman við
fjölskylduhíbýlin 1950, enda þótt sá samanburður sé töluvert óhagstæðari
fyrir síðara árið, þar sem þá hafa verið undantekin öll einstaklingshíbýlin,
sem eru mikla rýmra setin. Samanburðurinn leiðir þó í ljós, að fjölskyldu-
híbýlin ein 1950 hafa verið miklu rýmra setin heldur en íbúðimar í heild
1940, hvort sem miðað er við tölu heimila og íbúða eða við íbúatölu. Hlut-
deild rúmt setnu híbýlanna hefur hækkað verulega á áratugnum og hinna full-
setnu lækkað, en mest hefur lækkað hlutdeild ofsetnu híbýlanna eða meir en
um helming.
Ofsetnar íbúðir töldust 1940 rúml. 9% af íbúðunum með 14% af íbúatöl-
unni, en 1950 voru ofsetin fjölskylduhíbýli aðeins tæpl. 4% með 6% af íbúa-
tölunni. Að vísu hefur auk þess 1% af íbúum einstaklingsheimilanna verið
taldir búa í ofsetnum híbýlum, en ef slegið er saman fjölskyldum og ein-
staklingum, þá lækkar við það hlutdeild þeirra, sem búa í ofsetnum híbýlum,
niður í rétta 6%. Ef litið er til erlendra skýrslna um ofsetnar íbúðir, virðast
tölurnar hér fyrir 1950 um ofsetin fjölskylduhíbýli ekki geta kallazt mjög
háar. Hlutdeild ofsetinna híbýla í Danmörku, Noregi og Svíþjóð er talin þessi
(í hundraðshlutum):
Af híbýlum Af íbúafjölda
Bæir Sveit Bæir Sveit
Danmörk (1950) ................. 4,3 ... 8,1
Noregur (1946) ................. 2,7 6,1 4,8 10,0
Svíþjóö (1945) ............... 4,1 6,1 .........
Island (1950) .................. 3,3 5,4 5,4 8,5
í Noregi eiga tölurnar eins og hér við heimili, en í Danmörku og Svíþjóð
við íbúðir.