Morgunblaðið - 18.09.2015, Síða 1
Stofnað 1913 219. tölublað 103. árgangur
F Ö S T U D A G U R 1 8. S E P T E M B E R 2 0 1 5
64 SÍÐNA
BLAÐAUKI UM
SJÁVARÚTVEG
FJÖLBREYTT OG FRAMSÆKIN ATVINNUGREIN
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Borgarstjórn Sniðganga við ísraelskar
vörur hefur vakið hörð viðbrögð.
Ákvörðun borgarstjórnar Reykja-
víkur að sniðganga ísraelskar vörur
hefur víða vakið hörð viðbrögð. M.a.
íhugar evrópska gyðingaþingið nú
að sækja rétt sinn fyrir Alþjóða-
viðskiptastofnuninni á grundvelli
sáttmála stofnunarinnar sem Ísland
og Ísrael eru aðilar að.
Skúli Helgason, borgarfulltrúi
Samfylkingarinnar, segir að ákvörð-
uninni hafi verið ætlað að vekja at-
hygli á mannréttindabrotum Ísr-
aelsmanna á Palestínumönnum.
Halldór Halldórsson, oddviti Sjálf-
stæðisflokksins í borgarstjórn, segir
að hörð viðbrögð hafi verið fyrirséð.
Tillagan hafi verið vanhugsuð og
mögulegar afleiðingar ekki skoð-
aðar nægjanlega vel.
Kjartan Magnússon, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, tekur í
sama streng og Halldór en bætir við
að hann hafi heyrt af því að íslensk
fyrirtæki hafi fengið fyrirspurnir
frá viðskiptavinum sínum, banda-
rískum stórfyrirtækjum sem stýrt er
af gyðingum, um málið. »4
Gyðingar íhuga að
sækja rétt sinn
gegn Reykjavík
Verkfallsréttur
» Um 550 félagsmenn eru í
Félagi háskólamenntaðra
starfsmanna Stjórnarráðsins.
» Örlítið brot félagsmanna
FHSS hefur verkfallsrétt, eða
starfsmenn Fjársýslu ríkisins.
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Félag háskólamenntaðra starfs-
manna Stjórnarráðsins hélt auka-
aðalfund í fyrrakvöld vegna bágrar
fjárhagsstöðu félagsins. Félagið
skuldar verkfallssjóði Bandalags há-
skólamanna 54 milljónir króna, sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins,
vegna launagreiðslna til félags-
manna sem starfa hjá Fjársýslu rík-
isins og voru í verkfalli í vor.
Félagsmenn sem starfa í ráðu-
neytum hafa ekki verkfallsrétt.
Á aukaaðalfundinum var sam-
þykkt tillaga stjórnar FHSS um að
hækka félagsgjöld frá næstu mán-
aðamótum til þess að félagið geti
greitt niður skuldir sínar við verk-
fallssjóð BHM á næstu tveimur ár-
um.
„Með samþykkt tillögunnar bind-
ur félagið vonir við að kostnaður
vegna aðgerðanna verði að fullu
greiddur á tveimur árum,“ segir m.a.
í tilkynningu frá Ragnheiði Bóas-
dóttur, formanni stjórnar FHSS,
sem Morgunblaðið fékk senda í kjöl-
far fyrirspurnar um skuldastöðu fé-
lagsins.
Stórskuldugt við sjóð BHM
Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins skuldar verkfallssjóði
BHM 54 milljónir eftir verkfallsþátttöku örlítils brots félagsmanna sl. vor
MSkuldar 54 milljónir »4
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Yfirdráttarlán heimila eru að lækka
og hafði staða þeirra í júlí ekki verið
jafnlág í mánuðinum síðan 2009.
Þegar yfirdráttarlán í janúar og
júlí árin 2005 til 2015 eru færð á
verðlag í júlí sl. kemur í ljós að þau
voru t.d. 23 milljörðum króna lægri í
júlí sl. en í júlí 2012.
Alls námu yfirdráttarlán í júlí sl.
81,2 milljörðum en þau voru til sam-
anburðar að meðaltali 100,7 milljarð-
ar í janúar og júlí árin 2005 til 2015.
Skal tekið fram að í desember
2009 hækkuðu yfirdráttarlánin
vegna nýrra uppgjörsreglna milli
kortafyrirtækja og innlánsstofnana.
Þá hækkuðu þau við sameiningu Ís-
landsbanka og Byrs í árslok 2011.
30 milljörðum hærri en 2014
Samhliða þessari þróun eru innlán
heimila að aukast. Samanlögð verð-
tryggð og óverðtryggð innlán heim-
ila voru þannig tæpir 640 milljarðar í
júlí sl., eða um 31 milljarði meiri en í
júlí 2014. Af því voru óverðtryggð
innlán 425 milljarðar króna og verð-
tryggð innlán 215 milljarðar.
Innlán heimila í þessum flokkum
voru rúmir 942 milljarðar í júlí 2009
og lækkuðu þau svo niður í 598 millj-
arða í júlí 2013. Hér eru fjárhæðir
framreiknaðar á verðlag í júlí 2015
miðað við vísitölu neysluverðs.
Stefán Guðjónsson, sérfræðingur
hjá greiningardeild Arion banka,
segir jákvætt að yfirdráttarlán séu
að lækka. „Þau eru afskaplega óhag-
stæð tegund langtímafjármögnunar.
Það er því gott að fólk sé að greiða
niður yfirdráttinn. Þá sérstaklega í
ljósi þess að skammtímavextir hafa
hækkað, enda hefur Seðlabankinn
hækkað vexti,“ segir Stefán. Yfir-
dráttarvextir eru nú um 13,2%.
Yfirdráttarlánin eru að lækka
Heimilin greiða niður yfirdrátt Samhliða aukast innlán
20
05
20
13
20
15
20
09
20
07
20
11
20
06
20
10
20
08
20
12
20
14
120
100
80
60
40
20
0
10
0.
22
7
10
9.
23
9
88
.6
53
96
.9
98
77
.0
72
11
0.
94
5
11
1.
52
7
10
4.
28
1
91
.2
72
81
.2
29
97
.1
83
*Framreiknað á verðlag í júlí sl.
Heimild: Seðlabankinn
Í milljónum - júlí 2005 til 2015*
Yfirdráttarlán heimila
Baltasar Kormákur og kona hans, Lilja Pálma-
dóttir, tóku brosandi á móti forsetahjónunum,
Ólafi Ragnari Grímssyni og Dorrit Moussaieff,
sem mættu á frumsýningu kvikmyndar Baltas-
ars, Everest, í gær. Almennar sýningar hófust í
gær. Myndin segir frá einu mannskæðasta slysi
sem orðið hefur á hæsta fjalli jarðar, þegar átta
fjallgöngumenn fórust á Everest í aftakaveðri
fyrir tuttugu árum. »38-39
Tekið á móti forsetahjónunum á frumsýningu Everest
Morgunblaðið/Eggert
Vatnsborð
Hálslóns hefur
hækkað jafnt og
þétt undanfarið.
Í gær vantaði
rúma sjö metra
upp á að það
næði upp í yfir-
fallið.
Þá stóð vatns-
borðið í 617,927
metrum yfir sjáv-
armáli (m.y.s.). Venjulega hefur
farið að flæða úr yfirfallinu fyrstu
dagana í september. »9
Sjö metra vantar
upp á Hálslón
Hálslón Kuldi hef-
ur seinkað fyllingu.
Bankasýsla ríkisins áformar að
skila formlegri tillögu til fjármála-
og efnahagsráðherra fyrir lok jan-
úar á næsta ári um sölu á allt að
30% eignarhlut í Landsbankanum.
Þegar er hafin undirbúningsvinna
vegna sölunnar.
Í bréfi til ráðherra segir að fram
að þeim tíma muni Bankasýslan
ræða mögulega útfærslu á sölu við
Landsbankann, við stærstu stofn-
anafjárfesta innanlands og alþjóð-
lega fjárfestingarbanka. Þessari
fyrstu sölu á eignarhlut ríkisins í
bankanum á að vera lokið á síðari
hluta næsta árs að því gefnu að
stöðugleiki muni ríkja á fjármála-
mörkuðum og rekstrarafkoma
Landsbankans verði í takt við áætl-
anir, eins og segir í bréfinu. »20
Tillaga til ráðherra
fyrir janúarlok