Morgunblaðið - 18.09.2015, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 18.09.2015, Qupperneq 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2015 ✝ Sigurbjörg Sig-björnsdóttir fæddist 30. apríl 1924 í Rauðholti í Hjaltastaðaþinghá. Hún andaðist á Sjúkrahúsinu á Eg- ilsstöðum 22. ágúst 2015. Foreldrar henn- ar voru Jórunn Anna Guttorms- dóttir, f. 16.12. 1888, d. 23.2. 1969, og Sigbjörn Sigurðsson, f. 14.5. 1892, d. 27.12. 1972. Systkini Sigurbjargar eru: 1. Helga, f. 22.5. 1919, d. 18.4. 2009 , 2. Páll, f. 25.6. 1920, d. 6.7. 1993, 3. Einar, f. 1.5. 1922, d. 12.12. 2014, 4. Auður, f. 31.5. 1926, d. 20.3. 2009, 5. Guttormur, f. 23.6. 1928, 6. Ásgerður, f. 6.12. 1929, og 7. Sævar, f. 27.2. 1932. Sigurbjörg giftist Snæþóri Sigurbjörnssyni, f. 15.3. 1922, d. 3.10. 1980, þann 4. nóvember 1946. Foreldrar hans voru Sig- urbjörn Snjólfsson, f. 22.9. 1893, d. 13.7. 1980, og Gunnþóra Gutt- ormsdóttir, f. 14.10. 1895, d. 4.7. 1988. Börn Sigurbjargar og Snæ- þórs eru: 1. Þórhalla, f. 24.11. 1946, eiginmaður Ragnar Frið- fór átján ára gömul í húsmæðra- skóla, fyrst á Hallormsstað en síðan á Blönduósi þaðan sem hún útskrifaðist 1944. Sigurbjörg ætlaði ásamt systrum sínum, þeim Helgu og Auði, að flytjast til Reykjavíkur en vegna illrar færðar á Fagradal skilaði Sigur- björg sér ekki í skip á Reyð- arfirði þar sem hún sat föst í óveðri á dalnum. Bílstjórinn í þeirri ferð var Snæþór, stuttu síðar taka þau Sigurbjörg og Snæþór saman og hefja búskap haustið 1946 í Gilsárteigi. 1969 veikist Snæþór og 1975 bregða þau búi og flytja til Egilsstaða. Eftir andlát Snæþórs býr Sig- urbjörg á Egilsstöðum eða þar til hún kynnist Jóhanni Klausen, fv. bæjarstjóra á Eskifirði, f. 5.2. 1917, d. 8.7. 1998. Foreldrar Jó- hanns voru Herdís Jónatans- dóttir Klausen, f. 25.5. 1892, d. 31.7. 1969, og Ingolf Ragnvald Klausen, f. 18.6. 1888, d. 1.7. 1968. Sigurbjörg flyst til Jó- hanns á Eskifjörð og giftust þau 27.10. 1990. 1998 andast Jóhann eftir langa baráttu við park- inson-sjúkdóminn og flytur Sigurbjörg í kjölfarið aftur á Eg- ilsstaði í íbúð sína við Útgarð. 2008 flytur Sigurbjörg inn á Sambýli aldraðra á Egilsstöðum og síðar á Sjúkrahúsið á Egils- stöðum þar sem hún andaðist. Útför Sigurbjargar verður gerð frá Egilsstaðakirkju í dag, 18. september 2015, og hefst at- höfnin kl. 14. riksson. Börn Þór- höllu með fv. eig- inmanni Halldóri Jóni Júlíussyni eru Guðbjörg Fjóla og Snæþór Sigurbjörn. Þórhalla á fimm barnabörn. 2. Anna Birna, f. 9.10. 1948, barn hennar með Þorsteini Jökli Vil- hjálmssyni er Bergrún Arna, börn hennar með fv. eiginmanni, Vernharði Vilhjálmssyni, eru Snæþór, Vilhjálmur og Jón Björgvin. Anna Birna á átta barnabörn. 3. Gunnþóra, f. 31.3. 1952, eiginmaður hennar er Jón Almar Kristjánsson. Börn þeirra eru Svandís, Snæbrá Krista, Þorgerður Birta og Sigurbjörg. 4. Sigurbjörn S., f. 11.5. 1955, eiginkona hans er Helga Guð- mundsdóttir. Börn hans með fv. eiginkonu, Salóme Guðmunds- dóttur, eru Sigurbjörg og Kol- beinn. 5. Kristín Björg, f. 28.5. 1965, eiginmaður hennar er Knútur Pálmason. Börn þeirra eru Jóhann Kolur, Þóra Karen og Adam Björn. Sigurbjörg ólst upp í Rauð- holti í Hjaltastaðaþinghá. Hún Elsku mamma mín er nú farin til nýrra tilverustöðva. Við áttum samleið hér á jörð í 68 ár. Ég naut tilsagnar hennar við að þekkja blóm og jurtir og sinna búskaparstörfum. Eins kenndi hún mér að beita nál við hann- yrðir og sauma. Mamma var kröfuharður kennari sem ekki leið annað en vönduð vinnubrögð svo betra var að vanda sig því að rekja upp var nú ekki efst á vin- sældalistanum. Móðir mín var fjórða af átta systkina hópi. Fædd í torfbæ og lifði því tíma tvenna eða þrenna. Öll verk léku í höndunum á henni og hún var mjög afkasta- mikil. Enda kom það sér vel því heimili foreldra minna var mann- margt og mörgu að sinna. Þau hófu búskap í tveimur herbergj- um uppi á lofti í húsi afa og ömmu. Þangað upp var engin vatnslögn svo bera varð allt vatn upp snarbratta stiga og skólp niður. Þetta var á eftistríðsárun- um og lítið um vörur og þægindi. Oft sagði hún mér að vaggan mín hefði verið kassi undan sykri fenginn í kaupfélaginu á Egils- stöðum. Á fyrstu jólunum röðuðu foreldrar mínir kertum á kassa- brúnirnar og horfðu á frumburð- inn meðan jólamessan hljómaði í útvarpinu. Þessi minning var henni afar kær. Móðir mín var mjög listhneigð svo öll sköpun lék í höndunum á henni. Helst fékk hún útrás við sauma- og prjónavélina. Ef hún hefði verið ung í dag er ekki gott að segja hvaða starf hún hefði kosið sér. Kannski hönnuður, kannski hjúkrun eða umönnun, það er ekki gott að segja. Þegar hún leit til baka yfir farinn veg var gamla fólkið hennar, sem hún kallaði svo, alltaf ofarlega í huga henn- ar. Það voru þrír einstæðingar sem fengu skjól á heimili for- eldra minna og veittu okkur ung- viðinu skjól og tilsögn á upphafi lífsgöngunnar. Mamma var rúm- lega tvítug þegar hún hóf sinn búskap og bjó í sveit í 30 ár. Þá varð faðir minn veikur og hjúkr- aði hún honum af mikilli natni í hans erfiðu veikindum. Nokkrum árum eftir fráfall föður míns kynntist mamma seinni manni sínum, Jóhanni Klausen, bæjarstjóra á Eskifirði. Þá hófst nýr kafli í lífi hennar, aldeilis ólíkur þeim fyrri, en í því hlutverki stóð hún sig engu verr. Ég held að árin á Eskifirði hafi verið besti kafli lífs hennar. Þar eignaðist hún fallegt hús, falleg- an garð og naut virðingarstöðu í samfélaginu, en til þess hafði hún fullan metnað. Sagan end- urtók sig og aftur mátti mamma hjúkra sjúkum eiginmanni. Eftir fráfall Jóhanns flutti hún aftur á Egilsstaði, fyrst í íbúðina sína en seinna á sambýli aldraðra og þaðan á sjúkrahúsið þar sem hún andaðist hinn 22. ágúst sl. Það er svo margs að minnast og margt að þakka frá liðnum ár- um. Helst vil ég þakka fyrir elsku þína og alúð við börnin mín. Það að eiga þig að í næsta nágrenni. Að geta alltaf treyst því að þau hefðu öruggt skjól hjá þér var mér ómetanlegt. Ég veit ekki hvernig ég hefði farið að án þín. Síðustu árin þín, eftir að sjúk- dómurinn lokaði þig meira og meira inni, gastu helst tjáð þig í söng. Oft var það að einhver af- komandinn settist við rúmið þitt og þá byrjaðir þú að syngja og við tókum undir. Elsku mamma mín, þakka þér fyrir allt. Þórhalla Snæþórsdóttir. Mig langar að leiðarlokum að kveðja tengdamóður mína með fáeinum minningarorðum. Sigur- björg Sigbjörnsdóttir, sem er kvödd af ættingjum og vinum í dag, var um margt einstök kona, hlý, einstaklega úrræðagóð og mikil handverkskona. Hún lifði, eins og þeir aðrir sem fæddir voru á fyrri hluta tuttugustu ald- ar, tímana tvenna og tók breyt- ingum af æðruleysi og oft óskipt- um áhuga. Hún hafði einlægan áhuga á fólkinu sínu og því sem það tók sér fyrir hendur hvar sem það var. Hún ólst upp við að mannmargt væri á heimilinu og henni var einkar lagið að láta þeim sem hjá henni dvöldu finn- ast þeir velkomnir. Árin sem hún bjó í íbúðinni sinni á Egilsstöð- um dvöldu allmargir mennta- skólanemar úr fjölskyldunni hjá henni um styttra eða lengra skeið, og umburðarlyndi hennar gagnvart kynslóðunum kom þá oft vel í ljós. Ég kom seint inn í fjölskyldu Sigurbjargar, ég var kynnt fyrir henni á 75 ára afmælinu hennar en eins og við mátti búast af henni tók hún mér opnum örm- um. Ég leit allt of sjaldan inn hjá henni í önn dagsins, en þegar ég gerði það mættu mér opnir arm- ar og hlýtt bros og gjarnan sagði hún þá „ég vissi alltaf að þú myndir líta inn“. Í stað þess að æðrast yfir að ég liti sjaldan inn hafði hún lag á að gera stund- irnar sem við áttum saman já- kvæðar og eftirminnilegar. Við áttum sameiginlegt áhugamál í ýmiss konar handverki og hún hafði gaman af að sýna mér og segja frá því sem hún var að fást við hverju sinni. Eftir hana ligg- ur fjöldi verka af ólíkum toga, margt prýðir heimili afkomend- anna en hvergi sjást allar þær flíkur sem hún saumaði og prjón- aði á prjónavélina á fjölskylduna sína á árum áður en þær gegndu þó vafalítið mikilvægasta hlut- verkinu sem skjólföt barna og fullorðinna. Þegar ég horfi til baka nú eru eftirminnilegastir árvissir fundir okkar þegar hún kallaði mig til til að gera skattskýrsluna með sér. Hún hafði alltaf sérstakt lag á að finna öllum hlutverk og mér fann hún það hlutverk að vinna með sér í skattskilum og tengd- um málum. Árlegu stundirnar þegar við fórum yfir gögnin hennar og gengum frá skatt- skýrslunni voru miklu skemmti- legri en nokkurn grunaði sem vissi hvert viðfangsefni okkar var. Kaffi og nýbakaðar vöfflur eða pönnukökur voru að mati tengdamóður minnar nauðsyn- legur hluti vinnunnar við skatt- skýrslugerðina og margt og mik- ið var skrafað sem ef til vill var ekki nauðsynlegur þáttur í skatt- skýrslugerðinni. Um leið og farið var yfir gögn ársins gafst oft tækifæri til að rifja upp og spjalla um ýmislegt í þjóðlífi og mannlífi frá árinu og oftar en ekki gat Sigurbjörg tengt við fyrri ár og notað tækifærið til að segja mér frá mannlífinu, ýmist í Rauðholti þegar hún var að alast upp eða frá búskaparárunum í Gilsárteigi. Fyrir þessar stundir og einstakt viðmót sitt vil ég þakka tengdamóður minni. Blessuð sé minning mætrar konu. Helga Guðmundsdóttir. Amma er farin frá okkur. Hún lifði í 91 ár og ég þekkti hana síð- ustu 35 árin hennar. Við amma vorum nöfnur og hún kallaði mig aldrei annað annað en nöfnu lengi vel. Ég fór á hverju sumri sem barn til ömmu á Eskifirði. Ég hef ekki hugmund um hvað ég var lengi þar í hvert sinn, en ég á bara dásamlegar minningar frá þeim tíma. Hún keypti dísætt morg- unkorn áður en ég kom og leyfði mér að velja mér einhvern smá- hlut ef ég fór með henni í búð. Það var alltaf allt tandurhreint hjá ömmu og matur og kaffi eftir klukkunni. Hún setti lýsi út á fiskinn sinn og borðaði kartöflu- skræling eintóman, því hún sagði að það væri svo hollt. Áður en ég varð sjálf læs las amma fyrir mig biblíusögur fyrir svefninn og alltaf var farið með faðirvorið. Mér fannst rúmfötin heima hjá ömmu alltaf vera miklu hreinni og sléttari en nokkur önnur rúm- föt. Amma skammaði mig aldrei og hafði alltaf nægan tíma fyrir mig sem barn. Þegar ég var orðin eldri og hætt að fara til ömmu, þá hringdi hún alltaf í mig reglulega. Sím- tölin frá ömmu voru alltaf létt og skemmtileg og mikið hlegið. Hún hafði almennt mjög gaman af öllu sprelli og fjöri og sérstak- lega gaman af því ef maður var að skjóta á hana í einhverju gríni. Hún tók öllu þannig vel og espaðist öll upp í vitleysunni. Ég hef heyrt margar sögur af ömmu tækla hinar ýmsu aðstæð- ur þegar hún var bóndakona í Gilsárteigi. Hún var úrræðagóð, kjörkuð og einstaklega vinnusöm og nýtin. Ég man að hún var allt- af að brasa eitthvað. Og hún gat gert allan fjandann. Hún leysti af í fjósinu, ræktaði blóm og kartöflur, bakaði og eldaði, prjónaði flíkur á methraða í prjónavél, heklaði, málaði mynd- ir og smíðaði hluti. Hún saumaði heilu þjóðbúningana og smíðaði m.a.s. silfrið í einhverja þeirra sjálf. Kannski fannst mér það ekki mjög merkilegt þá, þannig lagað, því svona var bara amma eins og ég þekkti hana. Takk fyrir allar góðu minning- arnar, elsku amma, þær lifa áfram hjá mér. Sigurbjörg Sigur- björnsdóttir (Sibba). Elsku amma kvaddi okkur laugardaginn 22. ágúst og flaug á vit ævintýranna. Gegnum árin höfum við amma brallað margt saman, ferðirnar okkar til Noregs urðu ansi marg- ar og við vorum svo heppnar að geta haldið þar í tvígang jól og áramót með Kiddu og fjölskyldu. Við vorum aldrei tvær í þessum ferðum okkar. Í fyrstu ferðina fór Gutti með okkur en eftir það voru það langömmubörnin þín sem fóru með og það var ekkert smá gaman að vera með ömmu á flugvellinum og ekki skemmdi það fyrir eftir að þú fékkst hjóla- stól á vellinum að fá að sitja í stólnum með ömmu. Ekki má gleyma öllum ferð- unum upp í Möðrudal í misgóðu veðri og færð. Að eiga þennan tíma með þér var ómetanlegt. Fyrstu minningar mínar eru frá Gilsárteigi þegar við mamma bjuggum hjá ykkur afa. Það var ekki létt heimili sem þú hafðir þar en allir áttu sín störf í kring- um þig og allt gamla fólkið sem þú bjóst heimili og varst svo nat- in við. Síðan að koma til þín í blokk- ina var hreint ævintýri. Það var allt svo fínt þar og hrein upplifun að vera í kaupstað. Eftir að afi kvaddi okkur svo alltof snemma bjóstu í blokkinni í nokkur ár. Eftir að þú fluttir niður á Eskifjörð var heldur lengra að heimsækja þig en ég bjó hjá ykk- ur Jóhanni eitt haust þegar ég vann í síldinni. Garðurinn þinn á Eskifirði var stór og fullur af blómum sem þú þekktir öll og varst svo natin við. Þú kenndir mér að vinna í moldinni, sá og yrkja frá blautu barnsbeini og það var svo gaman þegar við fór- um keyrandi suður í Hveragerði, þú að fylgja mér og heimsækja systur þínar en ég að mæta í undirbúning fyrir Garðyrkju- skólann. Þú þurftir að bíða ansi lengi eftir langömmubörnunum þínum en þegar þau komu loksins fékkstu fimm á einu ári. Æ, amma, hvar ertu? Æ, ansaðu mér. Því ég er að gráta og kalla eftir þér. Fórstu út úr bænum eða fórstu út á haf? Eða fórstu til Jesú í sælunnar stað? (Höf. ók.) Elsku amma mín, takk fyrir árin okkar saman. Þín ömmu- stelpa, Bergrún Arna. Elsku amma. Þú varst alltaf til staðar, þú vissir alltaf hvenær þörf var á þér, þú varst fasti í líf- inu okkar og deildir með okkur þinni einstöku hlýju. Við eigum svo margar minningar, svo margar hugsanir og tilfinningar sem tengjast þér og öllum stund- unum sem við áttum með þér. Þú varst með okkur í Snjóholti og á Hallormsstað. Við leituðum til þín upp brekkuna á Egilsstöð- um. Við áttum með þér ljúfar stundir á Eskifirði og í ferðalög- um um landið. Þú sagðir okkur sögur, þú kenndir okkur á lífið með því að deila með okkur reynslu þinni. Án þín, elsku amma, værum við ekki þau sem við erum í dag. Þú trúðir heitt á þinn Guð. Kannski tókst þér ekki að kveikja í okkur systkinunum sama guðsóttann og bjó í þér en við vonum, elsku amma, að þú sért núna komin þangað sem þú getur notið lífsins á ný. Setið við sauma, sungið gömlu góðu þjóð- lögin sem þú elskaðir svo mikið, dansað og spilað á spil við Snæ- þór afa, Jóhann og systkini þín, já það er eflaust fjör á skútunni. Nú ertu farin elsku amma. Okkur langar að þakka þér fyrir öll árin sem við fengum að njóta með þér og segja þér að þú munt ávallt búa innra með okkur, við elskum þig og minningin um þig mun ylja okkur um ókomna tíð. Þín barnabörn, Fjóla og Snæþór. Ég ólst upp við þá vissu og ör- yggi að tilheyra stórum hópi af frænkum og frændum frá Rauð- holti. Úr þessum hópi hefur Sig- urbjörg frænka, ein af fjórum föðursystrum mínum, lengst af staðið mér næst. Nú hefur hún kvatt okkur 91 árs gömul, eftir að hafa átt fjölbreytt og krefj- andi lífshlaup. Það var frænka í Gilsárteigi sem var hluti af bernskunni, hún bjó myndarbúi og rak stórt heimili í Gilsárteigi með manni sínum Snæþóri. Hún var sú af systkinum pabba sem næst bjó og heimsóknir tilheyrðu stórvið- burðum í fjölskyldunum og stórhátíðum. Það var alltaf gott að koma í Gilsárteig og líf og fjör, mikil hlýja og höfðinglegar móttökur sem mættu okkur þar. Á þessum árum var vinnudag- urinn eflaust oft langur þar, bú- störf, heimavinnsla á mat og heimaunnin föt. Samt var tími fyrir saumaskap og handverk fyrir ættingjana og úr jólapökk- unum komu oft föt sem frænka hafði prjónað í prjónavélinni, peysur, gammósíur eða húfur. Eftir að Snæþór dó varð hún frænka í Útgarði og hjá mér varð hún órjúfanlegur hluti af menntaskólaárunum því ég var svo heppin að fá að búa hjá henni þá tvo vetur sem ég var í ME. Það varð virkilega skemmtilegt heimilislíf hjá okkur fjórum, Sig- urbjörgu um sextugt, mennta- skólanemunum mér og Kiddu, dóttur hennar, og dótturdóttur- inni Beggu, sem var í grunn- skóla. Hún miðlaði ýmsu til okk- ar, s.s. skipulagi og hagsýni við heimilishaldið, mikilvægi hreyf- ingar og útivistar, reyndi að fá okkur til að spila brids, hvatti okkur í saumaskap og öðru handverki, hló með okkur og reyndi að koma okkur til manns með ýmsum ráðum. Hún hafði fullan skilning á töluverðri skemmtanaþörf og vinirnir voru alltaf velkomnir. Um það leyti sem sambúð okkar í Útgarði lauk hafði Sig- urbjörg eignast vin sem varð seinni maður hennar, það var Jó- hann Klausen á Eskifirði. Sig- urbjörg átti góð ár með Jóhanni þar sem þau voru virk í sam- félaginu á Eskifirði, ferðuðust og ræktuðu garðinn á Hólsveginum. Þau lögðu líka mikið til skóg- arreits stórfjölskyldunnar, Jór- unnarlundar í landi Rauðholts. Þessi ár varð hún frænka á Eski- firði sem kenndi mér að meta firðina. Eftir að Jóhann lést 1998 flutti Sigurbjörg aftur í Egils- staði, fyrst í íbúðina í Útgarði en síðar á dvalar- og hjúkrunar- heimilið á Egilsstöðum. Sigur- björg hélt lengi góðri heilsu, þótt síðustu árin hafi orðið erfið og hún hafi að nokkru verið horfin frá okkur. Sigurbjörg var mjög skapandi og sinnti ýmiss konar handverki meðan hún hafði heilsu til. Hún naut þess að læra nýjar aðferðir og á ný hráefni á námskeiðum sem hún sótti á efri árum, t.d. heillaðist hún af silfursmíði og gerði skemmtilegar klippimynd- ir. Meðan hún hafði heilsu til lagði hún metnað í handgerðar jólagjafir til allra barna- barnanna. Hún hafði gaman af ljósmyndum og safnaði m.a. myndum tengdum Jórunnar- lundi í albúm sem þar eru geymd. Hún var náttúruunnandi sem hafði gaman af allri ræktun hvort sem það voru nytjajurtir, stofublómin, tré eða að rækta upp rofabörð. Ég þakka samfylgdina, frænka, og allt það sem þú kenndir mér að meta. Blessuð sé minning þín. Líneik Anna Sævarsdóttir. Sigurbjörg Sigbjörnsdóttir Elsku Rósa okk- ar Við byrjum á að kveðja þig með kvöldbæninni sem mamma kenndi okkur sem börn- um. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Við sitjum saman systur til að minnast og kveðja elsku Rósu okkar. Hún var gleðigjafi og fag- Sigurrós Kristjánsdóttir ✝ Sigurrós Krist-jánsdóttir fæddist 2. júlí 1942. Hún lést 2. ágúst 2015. Útför Sig- urrósar fór fram 13. ágúst 2015. urkeri í lífi okkar systkina sem við gleymum aldrei. Rósa og Stebbi eiga saman fimm börn, 14 barnabörn og fjögur lang- ömmubörn sem öll eiga um sárt að binda. Við biðjum Guð að vera með þeim og styrkja í sorginni. Við kveðjum þig með söknuði og þakklæti fyrir samfylgdina í lífinu, elsku systir. Vertu, Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. (Hallgrímur Pétursson) Þínar systur, Ragna, Jóhanna og Fjóla.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.