Morgunblaðið - 18.09.2015, Side 29

Morgunblaðið - 18.09.2015, Side 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2015 ✝ Sólveig Geirs-dóttir fæddist 4. september 1924 í Hallanda. Hún lést á Landspítalanum Fossvogi 10. sept- ember 2015. Foreldrar Sól- veigar voru Geir Vigfússon, bóndi í Hallanda, f. 3.7. 1900, d. 29.7. 1975, og Margrét Þor- steinsdóttir frá Langholti, f. 20.8. 1896, d. 5.3. 1987. Systkini Sólveigar eru sex, þau Helga, Karitas, lést tveggja ára, Karit- as, Óskar, Sigurbjörg og Mar- grét. Hálfbróðir þeirra var Reynir Geirsson og uppeld- isbróðir Hörður Hansson. Sólveig giftist 2. júní 1950 Ingimar Ingimarssyni flugum- sjónarmanni, f. 28.5. 1925, d. 16.12. 1998. Hann var sonur hjónanna Ingimars Brynjólfs- sonar stórkaupmanns, f. 19.8. 1892, d. 25.12. 1976, og Her- borgar Guðmundsdóttur, f. 6.2. 1900, d. 5.12. 1996. Börn þeirra Sólveigar og Ingimars eru: 1) Ingimar Örn, f. 13.8. 1950, kvæntur Ellu Kristínu Karls- dóttur, f. 1952. Börn þeirra eru a) Birgir, f. 1972, maki Arna Guðrún Tryggvadóttir, börn Sólveig ólst upp í Hallanda í Hraungerðishreppi í stórum systkinahópi. Hún hlaut hefð- bundna skólagöngu þeirra tíma. Um tvítugt flutti hún til Reykja- víkur og vann þar ýmis störf. Þar kynntist hún tilvonandi eig- inmanni sínum, Ingimar Ingi- marssyni, og giftu þau sig 2. júní 1950. Þau hófu búskap sinn á Suðurnesjum þar sem Ingimar starfaði alla tíð. 1959 fluttu þau í Garðahrepp, þar sem þau bjuggu upp frá því. Sólveig var virk í kórstarfi í Garðabæ. Fyrst með kirkjukór Garða- kirkju, þar sem hún var einn af stofnendum, og síðar með Garðakórnum, kór eldri borg- ara í Garðabæ. Söng hún með Garðakórnum frá stofnun og á meðan heilsa leyfði. Sólveig var virkur félagi í Kvenfélagi Garðabæjar frá 1963 og kom að endurreisn Garðakirkju 1966. Sólveig var í leshring Bókasafns Garðabæjar frá stofnun. Sólveig og Ingimar höfðu gaman af að ferðast og gerðu mikið af því, bæði innanlands og utan. Þau áttu góðar stundir í sumar- húsum sínum, bæði við Þing- vallavatn og á arfleifð Sólveigar í Flóanum. Á þeim stöðum naut Sólveig sín í garðrækt, sem var mikið áhugamál hjá henni alla tíð. Útför Sólveigar fer fram frá Vídalínskirkju í dag, 18. sept- ember 2015, kl. 13. þeirra Arnaldur Máni, f. 2005, og Birgitta Líf, f. 2013. b) Ingimar Þór, f. 1977, maki Xiaohang Liu, son- ur þeirra Ingimar Hang, f. 2012. c) Anna Sigrún, f. 1986, maki Birgir Örn Björgvinsson. d) Sólveig Björk, f. 1988, maki Erik Tryggvi Stritz Bjarnason. 2) Geir, f. 29.10. 1951, kvæntur Unu Hannesdóttur, f. 1954. Börn þeirra eru a) Hannes Ingi, f. 1978, maki Karen Dröfn Kjartansdóttir, börn þeirra Askur Hrafn, f. 2003, Una Krist- jana, f. 2009, og Kjartan Geir, f. 2011. b) Hilmar, f. 1981, maki María Vilborg Jónsdóttir, börn þeirra Pétur Geir, f. 2009, og Orri, f. 2012. c) Sólveig Guðrún, f. 1990. 3) Auður, f. 10.9. 1959, gift Ómari Hafsteinssyni, f. 1958. Börn þeirra eru a) Herdís, f. 1989, maki Margeir Ásgeirs- son, börn þeirra Valdís Eva, f. 2012, og Ásgeir, f. 2014. b) Pét- ur Geir, f. 1990, maki Jamie Elizabeth Schelvis, dóttir hans Emilía Auður, f. 2011. Móðir hennar er Jónína Íris Valgeirs- dóttir. c) Ingimar Daði, f. 1997. Elsku mamma. Ég kveð þig mamma, en sé um svið að sólskin bjart þar er, sem opnar hlið að fögrum frið, og farsæld handa þér. Því lífs er stríði lokið nú, en leiðina þú gekkst í trú á allt sem gott og göfugt er og glæðir sálarhag. Það ljós sem ávallt lýsti þér, það lýsir mér í dag. Ég kveð þig, mamma, en mildur blær um minninganna lönd, um túnin nær og tinda fjær, mig tengir mjúkri hönd, sem litla stúlku leiddi um veg, sú litla stúlka – það var ég, og höndin – það var höndin þín, svo hlý og ljúf og blíð. Ég kveð þig, elsku mamma mín, en man þig alla tíð. (Rúnar Kristjánsson) Þín dóttir, Auður. Í dag kveðjum við kæra tengdamóður mína, Sólveigu Geirsdóttur. Minningarnar hell- ast yfir því svo margs er að minn- ast eftir meira en fjörutíu ára samferð sem aldrei bar skugga á. Sólveig og Ingimar voru ham- ingjusöm og einstaklega sam- hent hjón. Við Geir sonur þeirra vorum svo heppin að fá að hefja búskap okkar á neðri hæðinni í Tjaldanesinu þar sem þau höfðu byggt sér glæsilegt hús. Við fluttum reyndar inn á undan þeim og fengum ótrúlega frjálsar hendur með að koma okkur fyrir. Sambúðin var einstaklega ljúf og samgangur milli hæða einkar frjálslegur. Strákarnir okkar komust upp á lag með að kynna sér matseðil hvorrar hæðar og veigruðu sér ekki við að tilkynna ömmu og afa að lítið fengju þeir niðri og ömmumatur miklu betri. Lífið lék við Sólveigu og Ingi- mar og þau áttu miklu barnaláni að fagna. En þau voru ekki nema liðlega sjötug þegar tengdapabbi veiktist og þau börðust saman af æðruleysi þar sem tengda- mamma hjúkraði Ingimar sínum heima þar til yfir lauk. Eftir lát tengdapabba breytt- ist margt. Þá kom glöggt í ljós staðfesta og styrkur tengda- mömmu. Hún flutti í yndislega íbúð sem þau hjónin höfðu fest kaup á. Þá tók hún upp þráðinn þar sem hún hafði sungið með kirkjukórnum og naut þess að syngja með eldri meðlimum hans. Hún hafði yndi af góðum bókum og var einn af stofnend- um lesklúbbsins í bókasafninu þar sem hún var virk meðan heilsan leyfði. Þá var hún í Kven- félagi Garðabæjar. Tengda- mamma var mikil félagsvera og skemmtileg. Hún ferðaðist með okkur fjölskyldunni út um allt, innanlands og utan, hvort sem svefnstaðurinn var í tjaldi á Sprengisandi, heimagisting í Evrópu eða lúxushótel í Banda- ríkjunum og Kanada. Alltaf gam- an. Það var ekki fyrr en fyrir örfá- um mánuðum sem heilsu hennar hrakaði hratt. Nú er sú stund runnin upp að elsku Sólveig hef- ur öðlast frið ásamt elskuðum eiginmanni sínum honum Ingi- mar. Við hin finnum sára sorg og söknuð en líka gleði og þakklæti fyrir allar góðu minningarnar. Blessuð sé minning Sólveigar Geirsdóttur. Una. Vorboðinn ljúfi, fuglinn trúr, sem fer með fjaðrabliki háa vegaleysu í sumardal að kveða kvæðin þín! Heilsaðu einkum, ef að fyrir ber engil með húfu og rauðan skúf, í peysu. Þröstur minn góður, það er stúlkan mín. (Jónas Hallgrímsson) Mig langar að hefja minning- arorðin um ömmu með lokaer- indinu úr ljóði Jónasar Hall- grímssonar. Amma sagði mér þegar ég var lítil að þetta væri hennar uppáhalds. Skemmst er frá því að segja að amma var söngfugl af guðsnáð. Hún vissi fátt skemmtilegra en að syngja. Ég hef verið svo heppin að erfa söngelskuna frá ömmu og við sungum alla tíð mikið saman. Við áttum það meira að segja til að syngja saman þegar við töluðum í símann. Rödd ömmu hafði und- ursamlega fallegan sópranhljóm sem hélt sér vel alla hennar ævi. Færri vita það að rödd hennar var það góð að hún hefði hæglega getað orðið stórt nafn. Ein af mínum uppáhaldsminn- ingum um ömmu var þegar við fórum í árlega ferð okkar í Fló- ann. Þá reyndum við alltaf að gera okkur glaðan dag ömmg- urnar. Eitt árið verður okkur rætt um yndislegu jólalögin. Við ræddum hversu mikil synd hin óskrifaða regla væri að þau heyrðust bara einu sinni á ári. Ákvörðun var því tekin að brjóta þessa reglu. Næsta sem gerðist var að amma renndi upp bílrúð- unum til að tryggja að ekki nokk- ur maður gæti heyrt í okkur. Ég man eftir því hvernig við líkt og glæpamenn keyrðum áleiðis í Flóann með bændurna við hey- skap í kringum okkur, syngjandi Bjart er yfir Betlehem og fleiri gullmola. Annað minnisstætt atvik úr árlegri ferð okkar ömmu átti sér stað þegar við vorum í heimsókn í hinum bústöðunum, hjá systr- um hennar. Amma hafði oft áhyggjur af að mér leiddust þessar heimsóknir. Sá misskiln- ingur var nú skjótt leiðréttur. Ég varð þess nefnilega áskynja að við konur erum allar eins. Um- ræðurnar snerust yfirleitt um gömul skot. Amma var líka einu sinni ung og gerði vafalaust margt sem fékk hjörtun í foreldrum hennar til að slá hraðar. Hún lýsti því fyrir mér þegar hún var ungling- ur, hvernig móðir hennar hefði eitt sinn komið askvaðandi að þegar hún og systir hennar voru að kíkja á unga herramenn. Þá höfðu þær verið í slagtogi með aðkomupiltum. Ég á endalaust af dásamlegum minningum um ömmu. Það er sárt að kveðjast núna. Sérstak- lega þar sem amma náði ekki að hitta strákinn minn. Amma talaði oft um hvað hún hlakkaði til að sjá hann og vildi að ég kæmi með hann til hennar í Garðabæinn. Þegar ég hitti hana síðast talaði hún um hvað hún hlakkaði til að koma í skírn til mín. Hún ætlaði að vera svo fín. Minning ömmu mun lifa í söngnum, í fallegu íslensku lög- unum sem hún kunni svo vel. Ömmu vil ég því hér með gefa það loforð að alla mína ævi muni ég ekki hætta að syngja. Ég er handviss að hún sé nú komin í englakórinn hinum megin og syngi þar fyrsta sópraninn með gullröddinni sinni. Það er skrítið að ég muni aldrei aftur geta tekið í höndina á henni. Ég er þakklát fyrir tímann með ömmu og mun minnast hans alla ævi. Anna Sigrún Ingimarsdóttir. Elsku amma mín. Mikið er erfitt að kveðja þig. Ég er svo lánsöm með hvað við vorum mikið saman. Alla tíð hef- ur þú verið stór hluti af mínu lífi og minningarnar hrannast upp þegar ég lít til baka. Það hefur bæði vakið bros og tár að renna í gegnum gömul myndaalbúm og rifja upp allar þær stundir sem við áttum saman. Þú varst ekki bara amma mín, heldur líka vin- kona mín. Okkur fannst t.d. svo gaman að fara saman í bíltúr og spjalla um daginn og veginn. Ég er svo þakklát fyrir það að hafa heimsótt þig á spítalann daginn áður en þú kvaddir okkur, þó ekki hafi ég talið það vera kveðjustundina. Það er mér afar dýrmætt að hafa eytt tíma með þér, bara við tvær. Mig langar að enda á fallegu bæninni sem þú kenndir mér þegar ég var barn og við fórum svo oft með saman. Ég mun kenna börnunum mínum hana og segja þeim hvaðan ég lærði hana. Leiddu mína litlu hendi, ljúfi Jesús, þér ég sendi bæn frá mínu brjósti, sjáðu, blíði Jesús að mér gáðu. (Ásmundur Eiríksson) Ég elska þig, amma, og mun halda fast í allar minningarnar okkar. Með söknuði, Herdís. Mig langar að minnast ömmu minnar með nokkrum orðum. Amma sauð bestu linsoðnu egg- in. Amma hrærði skyr úr pappa- umbúðum. Amma var söngfugl. Amma kunni að meta góðan fé- lagsskap. Amma var dýravinur. Amma prjónaði allar stærðir og gerðir af ullarsokkum. Amma elskaði sveitina. Amma var vinur. Amma var fyrirmyndin mín. Amma var Sólveig. Er völlur grær og vetur flýr og vermir sólin grund. Kem ég heim og hitti þig, verð hjá þér alla stund. Við byggjum saman bæ í sveit sem brosir móti sól. Þar ungu lífi landið mitt mun ljá og veita skjól. Sól slær silfri á voga, sjáðu jökulinn loga. Allt er bjart fyrir okkur tveim, því ég er kominn heim. Að ferðalokum finn ég þig sem mér fagnar höndum tveim. Ég er kominn heim, já, ég er kominn heim. (Jón Sigurðsson) Sólveig Björk Ingimarsdóttir. Sólveigu Geirsdóttur frá Hall- anda fylgdi reisn og skörungs- skapur og alltaf voru umræður líflegar, væri hún með í hópnum. Frásagnargáfa hennar var ein- stök og hafði hún frá mörgu að segja og kryddaði oft umræðu- efnið með hnyttnum lýsingum og orðatiltækjum. Í kringum hana var hlátur og lífsgleði og aldrei skorti umræðu- efni. Sólveig fæddist á Hallanda í Hraungerðishreppi en það sama ár hófu foreldrar hennar búskap þar og þótti jörðin þá kostarýr en með dugnaði og mikilli elju breyttu þau Hallandanum í góða bújörð en bæði voru þau Margrét og Geir miklir dugnaðarforkar. Af bæjarhólnum í Hallanda er mikið útsýni og fjallafegurð, þar er bæði morgun- og kvöldfagurt. Hvítá skilur að Flóann og Gríms- nesið og það er dýrðlegt að sitja í Fossholtinu upp við Hvítá og horfa á jökulvatnið steypa sér í fossum í gljúfrin og hlusta á þungan niðinn frá Hallskeri sem spáir fyrir veðráttu, hækkar róminn þegar norðanátt og þerr- ir er í vændum. Eða að sjá laxinn stökkva í strauminn á leið sinni til hrygn- ingarstöðvanna. Þessum stað var Sólveig bundin ævarandi bönd- um, allt frá æskudögum. Það var líka oft mikil glaðværð í Lang- holtshverfinu, mikið af ungu fólki að alast upp á hverjum bæ og fé- lagslífið í Ungmennafélaginu líf- legt á þessum tíma, íþróttir stundaðar, mikið dansað og sungið þótt vinnudagurinn væri langur. Sem barn og unglingur vann hún öll sveitastörf og sagði oft sögur af vinnugleðinni í kringum heyskapinn, ekki síst á engjunum, þegar útheyið var bundið í bagga og reitt á hestum heim. Hallandasystkinin þóttu handtakagóð og þær systur voru fimm að tölu allar glæsilegar og var þeim gefið hýrt auga af ungu mönnunum í héraðinu. Drauma- prinsinn hennar Sólveigar, Ingi- mar Ingimarsson, kom á „hvítri drossíu“ inn í líf hennar. Þeim hjónum gekk allt í haginn í lífinu, þau bjuggu í Garðabæ og kunnu vel að verja sínum tíma bæði heima og að heiman. Þau áttu sér lítið kot á Hallandaengjunum og þar dvöldu þau oft með börnum sínum og barnabörnum, og með- al systkina og frændfólks. Þau Ingimar voru dugleg að ferðast bæði innanlands og til útlanda og voru í raun heimsborgarar sem víða höfðu ratað. Við Margrét eigum margar einstakar minningar frá sam- verustundunum með fjölskyld- unni en Margrét dvaldi hjá þeim hjónum meðan hún gekk í skóla í Reykjavík. Heimili þeirra var eitt af þessum rausnarheimilum þar sem formfesta og myndar- skapur var í fyrirrúmi. Oft var líka gaman og ógleym- anlegt á sumrin þegar Ingimar stundaði veiðina í Hvítá fyrir Hauk og Sigurbjörgu, foreldra Margrétar, hann vigtaði laxana á bæjarhólnum þegar vel veiddist í von um að nágrannarnir fylgdust með og brá þá sama laxinum oft á reisluna. Það er vissulega skarð fyrir skildi þegar Sólveig kveður jarð- lífið, en hún hverfur á braut sátt við guð og menn og var farin að þrá hvíldina og hlakka til endur- fundanna á strönd eilífðarinnar. Við sjáum fyrir okkur fagnaðar- fundi ástvinanna, þar sem Ingi- mar grípur hönd hennar og í faðmlagi ganga þau svo saman hlæjandi inn í hið eilífa sumar- land. „Þannig týnist tíminn.“ Við söknum þín, Sólveig mín, en blessuð sé minningin um þig og hann Ingimar þinn. Margrét og Guðni Ágústsson. Sólveig Geirsdóttir Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, GUÐNA FRÍMANNS GUÐJÓNSSONAR byggingatæknifræðings. Sérstakar þakkir til Friðriks S. Kristinssonar kórstjóra og eldri félaga úr Karlakór Reykjavíkur fyrir að gera fallega athöfn einstaka. . Alda Guðrún Friðriksdóttir, Friðrik Guðjón Guðnason, Anna Soffía Gunnlaugsdóttir, Guðni Viðar og Gunnlaugur Dan. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru SIGURBJARGAR SIGFINNSDÓTTUR, Hrafnistu, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir frábæra umönnun. . Grétar Geirsson, Lára Kristjánsdóttir, Vilborg Elma Geirsdóttir, Gylfi Adolfsson, Sigrún Geirsdóttir, Guðmundur Haraldsson, Kristín Geirsdóttir, Ómar Kristinsson og fjölskyldur. Ástkær maður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓHANN KARL BJARNASON, Svarthömrum 68, Reykjavík, varð bráðkvaddur á heimili sínu 14. september. Útför hans fer fram frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 23. september kl. 15. . Þórunn K. Jónsdóttir, Álfhildur S. Jóhannsdóttir, Þórarinn Gunnarsson, Gunnar Þór Jóhannsson, Þóra Egilsdóttir, Guðmundur I. Jóhannsson, Kristín Jóhannsdóttir, Sumarliði Kristmundsson, Bjarni J. Jóhannsson, Jóna Gr. Ragnarsdóttir, Ísak Jóhann Ólafsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN ÁRNADÓTTIR frá Hólkoti á Reykjaströnd, síðast búsett í Gävle í Svíþjóð, lést mánudaginn 14. september. Útförin fer fram í Svíþjóð 16. október 2015. . Sigurbjörg Kristínardóttir, Guðlaug Kristinsdóttir, Sigurður Ólafsson, Finndís A. Kristinsdóttir, Mikael Appelgren, barnabörn og barnabarnabarn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.