Morgunblaðið - 18.09.2015, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 18.09.2015, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2015 „Verkfall þýðir lokun vínbúða og dreifingarmiðstöðvar,“ segir Sig- rún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðar- forstjóri ÁTVR, um hugsanlegt verkfall SFR. Trúnaðarmannaráð SFR kom saman í fyrradag til að taka ákvörðun um allsherjaratkvæða- greiðslu um verkfall. Lagt er til að fram fari allsherj- aratkvæðagreiðsla um boðun verk- falls og að henni skuli vera lokið 27. september 2015. Lítið hefur þokast í viðræðum SFR við samninganefnd ríkisins og engir fundir boðaðir í deilunni. Flestir starfsmanna Vín- búðanna eru félagsmenn í SFR og því myndi verkfall þýða lokun. Neftóbaksframleiðsla leggst af Alls eru 49 vínbúðir um allt land en tekjur af sölu áfengis voru um 20 milljarðar króna í fyrra. Alls voru seldar 19,2 milljónir lítra af áfeng- um drykkjum á síðasta ári. ÁTVR framleiðir einnig íslenska neftóbakið en 32 tonn voru seld á síðasta ári fyrir um 700 milljónir. Neysla á neftóbaki hefur farið vax- andi undanfarin ár. Þeir sem fram- leiða neftóbakið eru í SFR og færu því í verkfall. benedikt@mbl.is Vínbúðum lokað og neftób- aksframleiðsla leggst af  Víðtæk áhrif hjá vínbúðunum komi til verkfalls SFR Morgunblaðið/RAX Vinsælt Framleiðsla á neftóbaki leggst af komi til verkfalls SFR. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Gistieiningum hjá íbúðahótelinu Reykjavík Residence Hotel fjölgar næsta sumar þegar nýtt húsnæði verður tekið í notkun á Lindargötu 11. Félagið RR hótel ehf. á rekst- ur íbúðahótelsins. Kaupin á Lind- argötu 11 eru nýfrágengin og er kaupverðið trúnaðarmál. Samkvæmt fast- eignaskrá er hús- ið 312 fermetrar og hljóðar fast- eignamat upp á tæpar 88 milljónir. Heimildir blaðsins herma að kaup- verðið sé talsvert hærra. Þórður Birgir Bogason, fram- kvæmdastjóri RR hótel, segir áformað að taka Lindargötuhúsið í notkun í byrjun júní næsta sumar. Þar verða 11 gistieiningar. Reykjavík Residence Hotel hóf starfsemi 1. mars 2011 á Hverfis- götu 45 með 10 gistieiningum. Reksturinn hefur síðan gengið vel og eru nú 30 gistieiningar leigðar út í fjórum húsum. Eitt þeirra er Hverfisgata 21, gamla prentara- húsið við hlið Þjóðleikhússins. Með nýja Lindargötuhúsinu verða gisti- einingarnar orðnar 41 í fimm húsum. Nýtingin yfir árið er um 98% Þórður Birgir segir að nýtingin á hótelíbúðunum sé nú 98% yfir allt árið. Hann segir það ekki markmið að reksturinn verði sem umsvifa- mestur, en upplýsir þó að félagið sé að leita að fleiri húsum í næsta ná- grenni undir gistieiningar. Mikið sé lagt í endurgerð húsanna. „Svona hótel má ekki vera of stórt. Þjónustan byggist á smæðinni og persónulegum tengslum fyrir þá viðskiptavini sem það kjósa. Það er sótt í svona hótel af þeim sem vilja rólegheit og vilja láta dekra við sig. Við bjóðum mjög hátt þjónustustig og erum með tvær móttökur og þjónustu allan sólarhringinn … Við förum inn í íbúðirnar daglega, vösk- um upp og búum um, alveg eins og á hóteli. Síðan förum við með morgun- verðarbakka inn í íbúðirnar á kvöld- in. Klukkan sjö um morguninn kem- ur heitt brauð úr bakarínu á hurðarhúninn hjá viðkomandi.“ Þórður Birgir segir að Lindar- götuhúsinu verði lyft og að komið verði fyrir gistieiningum á öllum hæðum. „Við ætlum að reyna að ná fram gömlu götumyndinni. Þegar húsið var byggt var gatan lægri. Götur í Reykjavík voru hækkaðar á sínum tíma. Við munum lyfta húsinu um u.þ.b. metra. Það verður sett lyfta í húsið til að tryggja aðgengi fyrir alla. Við þurfum að standast mun strangari brunakröfur en venjuleg heimili. Það þarf að bruna- verja hverja gistieiningu og hljóð- einangra. Burðarvirki hússins held- ur sér. Þetta er timburhús á hlöðnum sökkli. Við styrkjum sökk- ulinn og grindina en höldum upp- runalegum gluggum, lagfærum þá. Jafnframt munum við óska eftir leyfi fyrir smávægilegri stækkun hússins til norðurs,“ segir Þórður Birgir. 112 ára gamalt hús gert upp fyrir hótelrekstur  Hraður vöxtur Reykjavík Residence Hotel heldur áfram Morgunblaðið/Júlíus Lindargata 11 Samkvæmt fasteignaskrá var húsið byggt árið 1903. Drög Hér má sjá hugmyndir arkitekta að breyttu útliti hússins. Því verður lyft um einn metra og m.a. komið fyrir svölum á suðurhlið og lyftu. Teikning/ARK Studio/Birt með leyfi Þórður Birgir Bogason Svanhvít Jakobsdóttir, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæð- isins, segir að komi til verkfalls muni það hafa víðtækar afleiðingar. „Verkfall myndi hafa veruleg áhrif á þjónustu okkar. Þetta nær til svo margra hjá okkur. Á undan- þágulistanum er aðeins einn starfs- maður í móttöku á hverri heilsu- gæslustöð þannig að þetta mun hafa mikil áhrif í kringum klíníska starfsemi.“ Hún segir einnig að verkfall sjúkraliða myndi hafa gríð- arleg áhrif á heimahjúkrun. „Það verður þungt að missa þá starfs- menn út,“ segir Svanhvít. Veruleg áhrif á heilsugæslu VERKFALL MYNDI HAFA VÍÐTÆKAR AFLEIÐINGAR Guðni Einarsson gudni@mbl.is Vatnsborð Hálslóns hefur hækkað jafnt og þétt undanfarið en er þó talsvert langt frá því að ná hæð yfir- fallsins. Í gær stóð vatnsborðið í 617,927 metrum yfir sjávarmáli (m.y.s.), samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Landsvirkjunar um vatnshæð lónsins. Enn vantaði því rúma sjö metra upp á að vatnsborðið næði upp í yfirfallið. Venjulega hefur farið að flæða út úr yfirfallinu fyrstu dagana í september. Á síðasta vatnsári stóð yfirborðið hinn 17. sepbember í 625,71 m.y.s. og áætlað meðaltal fyrir vatnshæð þessa dags er 625,434 m.y.s. Blá- skyggði flöturinn sýnir meðal- og út- gildi áranna 2008 til 2014. Talsvert vantaði einnig á að Blöndulón fylltist. Í gær var yfirborð þess 475,847 m.y.s. en yfirfallið þar er 478 m.y.s. Í fyrra var vatnsborðið 478,07 m.y.s. hinn 17. september. Vatnsborðið í gær var undir því lægsta sem það hafði verið á þessum degi frá 1997. Yfirborð Þórisvatns var komið í 576,52 m.y.s. í fyrradag. Það var heldur hærra en vatnsborð vatnsins var sama dag í fyrra þegar það var einungis 576,209 m.y.s. Vatnsborðið var að meðaltali 577,76 m.y.s. þenn- an dag á árabilinu 2002 til 2014. Yfir- fall Þórisvatns er í 579,45 m.y.s. Landsvirkjun tilkynnti stórnot- endum raforku nú í byrjun sept- ember að mögulega þyrfti að draga úr afhendingu á raforku ef ástandið í vatnsbúskapnum batnaði ekki. Kuldanum á hálendinu er einkum kennt um að hægt hefur safnast í lónin. Mikill snjór safnaðist fyrir á hálendinu sunnan heiða síðasta vet- ur en miklu minna fyrir norðan og austan. Staðan 17. september 2015 Vatnsborð Hálslóns 2008–2014 640 620 600 580 560 Va tn sh æ ð (m y. s. ) 1.nóv 1.jan 1.mar 1.maí 1.júl 1.sep Lægsta og hæsta gildi Áætlaðmeðaltal YfirfallSíðasta vatnsár Þetta vatnsár Enn hækkar í virkjanalónum  Hálslón hefur tekið nokkurn kipp Morgunblaðið/RAX Hálslón Mikið vatn vantar enn til að fylla 57 km2 stórt lónið. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is PÖNTUN AUGLÝSINGA: til kl. 16 mánudaginn 21. september 25. september gefurMorgunblaðið út sérblaðið HEIMILI & HÖNNUN

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.