Morgunblaðið - 18.09.2015, Side 20

Morgunblaðið - 18.09.2015, Side 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2015 STUTTAR FRÉTTIR ● Móttaka flóttamanna í stórum stíl til landsins væri stórt og ærið verkefni sem er kostnaðarsamt og krefst sam- vinnu margra en til lengri tíma væru áhrifin jákvæð fyrir efnahagslífið. Þetta kemur fram í Markaðspunktum Arion banka. Þar segir að ef gert væri ráð fyrir að hingað kæmu flóttamenn sem nú þegar eru í Evrópu megi reikna með að sá hópur væri að jafnaði meira menntaður og efnaðri en meirihluti Sýrlendinga þar sem ferðalagið til Evr- ópu sé mjög dýrt og því ekki á allra færi að komast þangað. Bent er á að eins og nú horfir í íslensku efnahagslífi sé lík- legt að erlent vinnuafl þurfi á næstunni. Efnahagsleg áhrif flóttamanna jákvæð Bankasýsla ríkisins hefur upplýst fjármála- og efnahagsráðherra að þegar sé hafin nauðsynleg undirbún- ingsvinna vegna sölu á allt að 30% eignarhlut í Landsbankanum líkt og áform eru um og kemur fram í fjár- lagafrumvarpi fyrir næsta ár. Bankasýslan áætlar að skila form- legri tillögu til ráðherra fyrir 31. jan- úar á næsta ári. Í bréfi til ráðherra segir að fram að þeim tíma muni Bankasýslan ræða mögulega útfærslu á sölu við Landsbankann, við stærstu stofn- anafjárfesta innanlands, eins og líf- eyrissjóði og fjárfestingarsjóði, og alþjóðlega fjárfestingarbanka. Stefnt er að birtingu opinberrar skýrslu síðar á þessu ári um bráða- birgðaniðurstöður en styðjast á við svipað fyrirkomulag og var við und- irbúning sölu á eignarhlut í hol- lenska bankanum ABN AMRO. Þá er gert ráð fyrir að þegar form- leg ákvörðun ráðherra liggi fyrir verði umsjónaraðilar með sölunni ráðnir, framkvæmdar verði áreiðan- leikakannanir og útbúnar fjárfesta- kynningar. Fyrstu sölu á eignarhlut ríkisins í bankanum á að vera lokið á síðari hluta næsta árs að því gefnu að stöð- ugleiki muni ríkja á fjármálamörk- uðum og rekstrarafkoma Lands- bankans verði í takt við áætlanir, líkt og kemur fram í bréfinu til ráðherra. Bankasýslan ætlar að leggja ríka áherslu á að upplýsa fjármála- og efnahagsráðuneytið með reglu- bundnum hætti um framvindu máls- ins. Undir bréfið rita Lárus L. Blön- dal, stjórnarformaður, og Jón G. Jónsson, forstjóri Bankasýslunnar. Morgunblaðið/Kristinn Sala Bankasýsla ríkisins hefur þegar hafið undirbúning að sölu á allt að 30% hlut í Landsbankanum. Formlegri tillögu á að skila fyrir janúarlok. Undirbúningur þegar hafinn  Bankasýslan skilar tillögu um 30% sölu í Landsbankanum fyrir janúarlok BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is „Verði þetta niðurstaða Hæstaréttar einnig þá mun Landssamband sum- arhúsaeigenda kanna hvað það getur gert til að leiðrétta stöðu sinna fé- lagsmanna. Það er ljóst að miklir hagsmunir eru þarna undir og marg- ir sem staðið hafa í þeirri trú að veiði- réttur fylgdi þeirri eign sem þeir festu kaup á,“ segir Sveinn Guð- mundsson, lögmaður og fram- kvæmdastjóri Landssambands sum- arhúsaeigenda, þegar hann er inntur eftir viðbrögðum við niðurstöðu dóms Héraðsdóms Suðurlands þar sem deilt var um yfirráð yfir veiðiréttind- um í Eystri-Rangá og fjallað var um í ViðskiptaMogga í gær. Sveinn segir landssambandið hafa frétt af niðurstöðu dómsins í Morg- unblaðinu og því hafi ekki gefist ráð- rúm til að fara nákvæmlega ofan í forsendur hans eða meta hvaða áhrif hann muni hafa ef Hæstiréttur stað- festi niðurstöðu hans. „Í fljótu bragði sýnist mér sem for- sendur dómsins séu þær að ekki hafi verið hægt að undanskilja veiðirétt frá lögbýli á árunum 1923-2006 og að sú regla sé fortakslaus. Þetta gæti haft það í för með sér að fólk sem hef- ur lóðir, sem teknar voru út úr lög- býlum á fyrrnefndu árabili, á leigu eða hefur keypt þær þurfi nú að semja við veiðiréttarhafa um heimild til veiða. Það er einkennileg staða fyrir fólk sem fram til þessa tíma hef- ur talið sig eiga réttinn eða hafa af- notarétt á grundvelli leigusamnings.“ Landssamband sumarhúsaeig- enda hefur ekki yfirsýn yfir það hversu margir félagsmenn þess gætu orðið fyrir áhrifum af niðurstöðu dómsins. Í samtökunum eru um 5.000 félagsmenn. „Það á eftir að koma í ljós hversu víða þetta hefur áhrif en við gerum ráð fyrir því að félagsmenn okkar muni kanna stöðu sína ef niðurstaðan verður hin sama í Hæstarétti og hún reyndist í héraði. Í landinu eru um 14.000 sumarhús og ef tillit er tekið til orlofsfélaga á borð við þau sem stétt- arfélögin halda úti má gera ráð fyrir því að helmingur orlofshúsaeigenda sé innan okkar vébanda,“ segir Sveinn. Guðjón Ármannsson, lögmaður eiganda lögbýlisins sem fyrrnefndur dómur tekur til, segir að dómurinn staðfesti það sem lengi hafi verið vit- að, það er að lög hafi einfaldlega girt fyrir þann möguleika að hægt væri að skilja veiðirétt frá lögbýlum. „Í umræddum dómi Héraðsdóms Suðurlands felast engin ný tíðindi. Þvert á móti er niðurstaðan í sam- ræmi við eldri dóma og þá viðteknu lögskýringu að allt frá gildistöku vatnalaga 1923 hafi verið óheimilt að skilja veiðirétt frá bújörðum og leggja undir frístundalóðir,“ segir Guðjón og bendir á að Fiskistofa hafi einnig fellt úrskurð í málinu sem taki af allan vafa um eignarréttindi um- bjóðenda hans. „Fyrir liggur sú ákvörðun Fiski- stofu frá 28. janúar að Veiðifélagi Eystri-Rangár hafi verið óheimilt að hlunnfara umbjóðendur mína um veiðiarð á grundvelli þess að spildan við Langanesmela ætti veiðirétt. Nið- urstaðan var því að eigendur jarðanna Lambhaga og Hjarðar- brekku ættu að fá arðinn óskiptan í samræmi við gildandi arðskrá.“ Sumarhúsaeigendur missa rétt sem þeir töldu sig hafa  Lögmaður veiðiréttarhafa segir héraðsdóm staðfesta það sem legið hafi fyrir lengi Dómsmál Mikil hlunnindi fylgja veiðirétti í ám og vötnum víða um landið. Morgunblaðið/Ómar                                      !"#  $ !" "! $$ %  ! ""%# &'()* (+(     ,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5 !!  !"     ! $$! $%! %"! #! "$# !   % !  ! !%# $# $% %" !  " "$!#  ""! Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Vilt þú vita hvers virði eignin þín er í dag? Pantaðu frítt söluverðmat án skuldbindinga! HRINGDU NÚNA 820 8080 Sylvía Löggiltur fasteignasali sylvia@fr.is Brynjólfur brynjolfur@fr.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.