Morgunblaðið - 18.09.2015, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 18.09.2015, Blaðsíða 25
UMRÆÐAN 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2015 SANYL ÞAKRENNUR • RYÐGA EKKI • PASSA Í GÖMLU RENNUJÁRNIN • STANDAST ÍSLENSKT VEÐURFAR • AUÐVELDAR Í UPPSETNINGU • ÓDÝR OG GÓÐUR KOSTUR Á fundi borgarráðs 3. september síðastlið- inn lýsti meirihluti borgarstjórnar því yfir með tilvísun í áhættu- mat ISAVIA að mik- ilvægt væri að loka neyðarbraut Reykja- víkurflugvallar, enda væri nothæfisstuðull flugvallarins án neyðarbrautarinnar 97%, sem er yfir 95% lágmarki al- þjóða flugmálastofnunarinnar, og „nothæfistími“ yrði yfir 98% án neyðarbrautarinnar. Of mikil líkindaframsetning á áhættu verður stundum til þess að menn gleyma sér og átta sig ekki á um hvað málin raunverulega snúast. Í umræðunni um Reykjavíkurflug- völl hafa margir horft til þess að draga eigi línuna við 95% lágmarks- viðmið Alþjóðaflugmálastofnunar. Fyrir sjúkraflutninga mundi þetta þýða að fella þyrfti niður eða fresta um 30 af 600 sjúkraflugum á ári. Þar sem um helmingur þessara flugferða eru svokölluð bráðatilfelli er í raun fyrirséð að lífi og heilsu fjölda sjúklinga yrði stefnt í voða. Það er því umhugsunarefni að lág- marksviðmið fyrir áætlanaflug séu talin ásættanlegt viðmið fyrir sjúkraflutninga. Einnig er undar- legt að sjúkraflutningar hafi verið undanskildir í áhættumati sem meta átti áhrif af lokun neyðarbrautar Reykjavíkurflugvallar. Í ljósi alvarleika þessa máls, þá verður tilvísun borgarstjórnarmeiri- hluta um 97% nothæfisstuðul að einnig teljast mjög villandi, því í sömu skýrslu kemur fram að not- hæfisstuðullinn sé 95,2% að teknu tilliti til skyggnis og skýjahæðar. Við þetta bætist síðan að útreikningarnir fylgdu ekki leið- beiningum Alþjóðaflugmála- stofnunarinnar nema að hluta þar sem þeir miðuðust við of stóra gerð flugvéla og tóku ekki tillit til heml- unarskilyrða, vindhviða eða lang- tímaveðursveifla. Allt eru þetta þættir sem geta lækk- að nothæfisstuðulinn verulega. Ónothæfur nothæfistími Hvað varðar tilvísun borgarstjórnar í 98% nothæfistíma þá fylgdu þeir útreikningar ekki stöðluðum aðferðum og fyrir vikið er sú skýrsla jafnvel með enn stærri ágalla en nothæfisstuðuls- skýrslan. Í umfjöllun sinni, þá neit- aði t.d. Samgöngustofa bæði að rýna skýrsluna eða taka afstöðu til hennar, enda var hugtakið „nothæf- istími“ sem skýrsluhöfundar notuðu hvorki skilgreint í íslenskum reglu- gerðum né hjá Alþjóðaflug- málastofnuninni. Erfitt er að átta sig á tilgangi nothæfistímagreiningarinnar. Eftir að hafa sleppt að taka tillit til flugvélastærða og brautarskilyrða, samkvæmt aðferðum alþjóða- flugmálastofnunarinnar, þá er eins menn sjái að sér og ætli allt í einu að fara að finna upp hjólið með því að þróa nýtt líkan sem byggir alfar- ið á eigin kenningum. Ef markmið þessarar könnunar hefði verið að fá óháð mat á því hversu oft flug- öryggi muni skerðast ef neyðar- brautin yrði fjarlægð, þá er slík greining algjör óþarfi því núgild- andi lendingatakmarkanir gera það að verkum að fyrir flug eins og sjúkraflug er brautin varla notuð nema flugmenn telji slíkt æskilegra af öryggisástæðum. Skráningar yfir lendingar sjúkraflugs á brautinni gefa þannig mun réttari mynd af nýtingu hennar en nokkuð líkan getur gert. Það er síðan athyglisvert að þótt að líkanið byggist á mörgum gróf- um nálgunum um mælitæknilega, veðurfarslega og flugtæknilega þætti, þá er óvissuútreikningum sleppt. Engan veginn er tekið nægt tillit til allra þeirra flóknu áhrifa- þátta sem ráða ákvarðanatöku flug- manns við lendingu og gleymst hef- ur að taka tillit til lang- tímaveðursveifla, þrátt fyrir að tímabilið sem valið var að nota til grundvallar hafi verið bæði eitt still- asta og hlýjasta tímabil sem hægt var að velja. Þegar niðurstaða líkansins er síð- an borin saman við skráðar lending- artölur þá stenst það heldur engan veginn. Meðan líkanið spáir því að 0,44% lendinga sjúkraflugs þurfi að fara fram á neyðarbrautinni, þá voru skráðar lendingar sjúkraflugs á neyðarbrautinni 1,4% á árunum 2012-2014, og fyrstu fimm mánuði þessa árs fór meira en 6,5% af öll- um lendingum sjúkraflugs fram á neyðarbrautinni, sem er meira en 15 falt hærri tíðni en líkanið spáði. Líkanið er því einfaldlega rangt, og nothæfistíminn því ónothæfur. Forsendur áhættumats brostnar Efnistök sérfræðinga ISAVIA og Eflu, sem komu að þessu áhættu- mati, bera þess öll merki þess að það eru ekki sérfræðingarnir sjálfir sem koma til með að halda um stýri sjúkraflugvélarinnar sem oft þarf að dansa á hættumörkum til að hægt sé að koma fársjúku fólki í öruggar hendur. Þar sem báðar skýrslurnar sem ISAVIA byggði niðurstöðu áhættumatsins á eru stórgallaðar, þá eru forsendur áhættumatsins brostnar. Vinna þarf nýtt áhættumat sem tekur tillit til sjúkraflugs og byggist á réttu mati á nothæfisstuðli samkvæmt þeim aðferðum sem alþjóðaflug- málastofnunin leggur til. Rakalaust áhættumat Reykjavíkurflugvallar Eftir Jóhannes Loftsson » Þar sem báðar skýrslurnar sem ISAVIA byggði niður- stöðu áhættumatsins á eru stórgallaðar, þá eru forsendur áhættumats- ins brostnar. Jóhannes Loftsson Höfundur er verkfræðingur og frumkvöðull. Okkur Rótarkonum þykir ástæða til að þakka fyrir tvær at- hyglisverðar greinar sem Styrmir Gunn- arsson skrifar í Morg- unblaðið laugardagana 5. og 12. september. Fyrri greinin nefnist „Ábending sem kallar á byltingu velferðarkerf- isins“ og hin síðari „Leggjum til at- lögu við „skrímslin“ í lífi okkar“. Við tökum undir með Styrmi að byltingar sé þörf í velferðarkerfi og heilbrigðisþjónustu í ljósi sam- félagsáhrifa sálrænna áfalla sem fólk verður fyrir í æsku. Styrmir vísar til rannsókna Sigrúnar Sigurð- ardóttur lektors við Háskólann á Akureyri en einnig má benda á rannsóknina sem fyrst varð til að opinbera fylgni erfiðra upplifana í æsku og verra heilsufars og auk- innar áhættu á fíknivanda síðar á ævinni eða svokallaða ACE- rannsókn (www.acestudy.org) sem er ein stærsta lýðheilsurannsókn sem gerð hefur verið. Einnig má benda á viðtal við Berglindi Guð- mundsdóttur í Morgunblaðinu 27. ágúst sl. undir yfirskriftinni „Aldrei of seint að vinna með áföll“ en hún er dósent í sálfræði við læknadeild HÍ, yfirsálfræðingur Landspítala – Háskólasjúkrahúss og hefur starfað sem klínískur sálfræðingur hér á landi í tæp tíu ár. Yfirskrift viðtals- ins og heiti seinni greinar Styrmis eru mjög lýsandi. Berglind og Sigrún héldu báðar erindi á ráðstefnunni Konur, fíkn, áföll og meðferð sem haldin var 1. og 2. september sl. á vegum Rótar- innar, RIKK – Rannsóknarstofn- unar í jafnréttisfræðum – og fleiri aðila. Við í Rótinni hvetjum til þess að þau sem ráða ríkjum í velferðar- og heilbrigðiskerfinu hefjist handa við að innleiða áfallameðvituð vinnu- brögð (e. trauma-informed) í sínum kerfum og þjónustu. Við hvetjum einnig til þess að Stephanie Coving- ton verði fengin til að taka út með- ferðarkerfið og koma með tillögur að nauðsynlegum breytingum í anda nýjustu rannsókna um áhrif áfalla á einstaklinginn og samfélag og kynjamiðaðrar þjónustu. Áður en kerfinu verður bylt þarf hugarfarsbreytingu, það er sann- færing okkar að hún sé þegar hafin, eins og við urðum varar við á ráð- stefnunni okkar, þar sem 240 manna hópur fagfólks og leikmanna kom saman, og greinar Styrmis bera einnig vitni um. Ósk okkar er að öll opinber þjónusta verði áfallameð- vituð og kynjamiðuð og höfum þeg- ar haft spurnir af því að þrjár sjúkra- og meðferðarstofnanir séu að breyta vinnulagi til samræmis við það sem kom fram á ráðstefnunni. Hugarfarsbreyting og bylting Eftir Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur, Guðrúnu Kristjáns- dóttur, Katrínu Guðnýju Alfreðs- dóttur, Kristínu I. Pálsdóttur og Þór- laugu Sveinsdóttur Katrín Guðný Alfreðsdóttir, Kristín I. Pálsdóttir, Guðrún Ebba Ólafsdóttir og Þórlaug Sveinsdóttir. Á myndina vantar Guðrúnu Kristjánsdóttur. »Rótin tekur undir það að byltingar sé þörf í velferðar- og heil- brigðisþjónustu í ljósi samfélagsáhrifa sál- rænna áfalla sem fólk verður fyrir í æsku. Höfundar eru í ráði Rótarinnar – félags um málefni kvenna með áfengis- og fíknivanda. Stjórnmálamenn líta á ellilífeyrisþega og öryrkja sem þriðja flokks fólk. Það er lágmark að fólk á Íslandi geti lif- að af sinni fram- færslu, en það er ekki hægt í dag. Það er líka til skammar fyrir stjórn- málamenn hvernig þeir lítilsvirða þetta fólk, fólkið sem tók þátt í að byggja upp landið. Það er ekki skrýtið að fólk hafi misst trú og traust á stjórnmálamönnum, það sýnir sig í öllum skoðanakönn- unum. Það ætti að vera forgangsverkefni að sýna ellilífeyrisþegum og öryrkj- um þann sóma að þeir geti lifað af sinni framfærslu. Það ætti að vera metnaður sitjandi stjórnar, sem núna er Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn, að hlúa meira að þessum málum en nú er gert. Það virðist vera, miðað við það sem ég les og heyri í fréttum, að fjármálaráðherra hafi engan áhuga á þessu fólki og virðist stíga á allar hugmyndir um að lagfæra kjör þeirra sem minnst mega sín. Framsóknarflokkurinn hefur haft meiri áhuga á að bæta kjör þessa hóps. Ráðherra flokksins, sem hefur komið með tillögur um að bæta kjör- in, hefur verið niðurlægður af fjár- málaráðherra og hans fólki. Það er óskiljanlegt hvað forsætis- ráðherra segir lítið um þessi mál. Margir spyrja við hvað hann sé hræddur, kannski við Sjálfstæð- isflokkinn. Það líður ört að kosningum og elli- lífeyrisþegum og öryrkjum er nóg boðið. Kosningabærir ellífeyris- þegar eru um 40 þúsund, kosninga- bærir öryrkjar eru um 20 þúsund. Ellilífeyrisþegar og öryrkjar eru flóttafólk í eigin landi. Undirritaður er ekki á móti flótta- fólki. Guðmundur Vignir Sigurbjarnarson, ellilífeyrisþegi. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Erum við þriðja flokks fólk? Blankur „Það er lágmark að fólk á Íslandi geti lifað af sinni framfærslu.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.