Morgunblaðið - 18.09.2015, Síða 10

Morgunblaðið - 18.09.2015, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2015 Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Þeir sem aka þjóðveginnframhjá gamla Botnsskál-anum í Hvalfirði hafa fráþví í sumar séð glitta í Helenu Margréti Jónsdóttur. Að vísu ekki í eigin persónu nema ein- staka sinnum þegar hún hefur staldrað við og kannað ástand sjálfs- myndar sinnar á gafli fyrrnefnds skála. Þótt hún hafi dregið upp ein- falda mynd; svartar útlínur á hvít- um vegg, leynir svipur listakon- unnar sér ekki. Ef beygt er afleggjarann Leggjabrjót sést glögglega að hún er ekki aðeins í margfaldri stærð heldur líka tvö- föld. Á veggnum kyssir Helena Margrét Helenu Margréti. Komum að því síðar. Ljósmynd, sem hún tók af verki sínu í Hvalfirði, verður hluti af svo- kallaðri portfólíó-möppu, eða kynn- ingarmöppu, sem hún hyggst senda með umsóknum sínum í nokkra listaháskóla áður en hún lýkur stúd- entsprófi frá sjónlistadeild Mynd- listaskólans í Reykjavík í vor. Í leit að eyðibýli „Hugmyndin var að mála stóra mynd á vegg á eyðibýli eða yfir- gefnu húsi, en þau reyndust ekki á hverju strái. Ég eyddi mörgum vik- um í að keyra um, leita að eyðibýli á hentugum stað og hafa síðan uppi á eigendum, sem oft voru sveitarfélög eða bankar. Loksins þegar ég var komin með leyfi fyrir verki á býli sem mér leist vel á nálægt Strand- arkirkju og ætlaði að hefjast handa var hringt í mig og leyfið afturkallað því í ljós kom að eigandinn, sem var banki, hafði selt lóðina.“ Þrátt fyrir nokkur vonbrigði hélt Helena Margrét leitinni áfram þar til hún fann þennan fína vegg á gamla Botnsskálanum, sem auk þess var í mjög myndrænu umhverfi að hennar mati. „Eigandinn tók vel í beiðni mína, var reyndar rosalega almennilegur og sagði að ég mætti bara gera það sem mér sýndist. Ég var meðvituð um að verkið væri bara tímabundið, ekki að ég tæki það endilega niður heldur að líklega stæði það hvorki af sér veður né vinda eða ágang graffara. Síðast þegar ég vissi voru þeir enda búnir að krota eitthvað á það eins og við var að búast. En verkið er komið á ljósmynd fyrir möppuna og það nægir mér alveg.“ Með augastað á Berlín Hún segir mestu vinnuna hafa verið að grunna þennan stóra vegg, en hún hafi fengið vinkonu sína til að hjálpa sér, og síðan ekki verið nema fimm tíma að mála myndina. Þótt umsóknarfrestur í listahá- skóla sem Helena Margrét hefur augastað á, renni ekki út fyrr en í janúar, stendur hún í ströngu við að útbúa verk fyrir möppuna sína. Til mikils er að vinna. „Þeir skólar sem ég er helst að hugsa um núna eru í Berlín, Amsterdam og Kaupmanna- höfn og svo auðvitað Listaháskóli Íslands. Ég og skólasystir mín för- um til Berlínar í næsta mánuði til að kanna hvernig okkur líst á skólann og borgina sjálfa.“ Að sögn Helenu Margrétar gefa listaháskólar yfirleitt ekki sér- stök fyrirmæli um hvernig kynning- armöppur umsækjenda eiga að líta út eða hvað þær eiga að geyma, en Myndlistaskólinn í Reykjavík að- stoði nemendur og drjúgur tími lokaársnema fari í þá vinnu. Persónuleiki í möppu „Í grunninn snýst umsóknin ásamt möppunni um að koma per- sónuleikanum sem best á framfæri,“ útskýrir hún. „Ég verð örugglega að vinna í minni möppu fram á síðasta skiladag.“ Sjálfsmyndir eins og hafa verið henni hugleiknar um langt skeið virðast vel til þess fallnar að varpa ljósi á persónuleikann. Eða hvað? Hvers vegna er hún sjálf oftast fyr- irmyndin? „Að hluta til eru sjálfsmyndir mínar áhrif frá tíðarandanum. Slík- ar myndir eru þó alls ekki nýkomn- ar til sögunnar með samskiptatækni samtímans, heldur hafa þær alltaf átt sinn sess í listasögunni. Með sjálfsmyndunum er ég aðallega að velta fyrir mér sambandinu milli listamanns og andagiftar, bæði hvað mig sjálfa varðar og í gegnum lista- söguna. Verkin kalla vonandi á ýms- ar hugleiðingar,“ útskýrir Helena Með tvöfalda sjálfs- mynd í Hvalfirði Helena Margrét Jónsdóttir, myndlistarnemi, segir sjálfsmyndir sínar vera meðal annars skírskotun til sjálfsmynda í listasögunni. Sjálf málaði hún eina tvöfalda á gafl gamla Botnsskálans í Hvalfirði og ætlar að senda ljósmyndir af verkinu með umsóknum sínum í listaháskóla. Hlutverkin Með sjálfsmyndum sínum er Helena að kanna þau mismun- andi samskipti sem hún á við sjálfa sig og þau hlutverk sem hún gegnir. Listamaðurinn Pablo Picasso sagði að öll börn væru listamenn, vandinn væri að halda því áfram eftir að fólk yrði fullorðið. Nú er lag fyrir þá for- eldra sem vilja viðhalda sköpun barna sinna, því Litla hugmynda- smiðjan býður upp á sex vikna nám- skeið í skapandi hugsun, skrifum og hugmyndasmíð fyrir stelpur og stráka á aldrinum 10-13 ára. Námskeiðið byggist fyrst og fremst á verklegri kennslu og sam- vinnu og hentar þeim sem hafa gam- an af myndlist, bókum, tónlist, tölvu- leikjum, grafík, bíómyndum, vísindum eða eru grúskarar á öðrum sviðum. Námskeiðin hefjast 28. september og fara fram á Lindargötu 50 í Reykjavík og skráning og frekari upplýsingar á: litlahugmyndasmidjan@gmail.com eða í síma 696-5399. Kennslu annast Guðlaugur Aðalsteinsson hugmynda- smiður, en hann er þriggja barna fað- ir með brennandi áhuga á tónlist, stundar brim-, hjóla- og snjóbretti sem og skíði. Eftir honum er haft: „Ég stofnaði Litlu hugmyndasmiðjuna því þetta er eitthvað sem ég hefði viljað að væri til þegar ég var ungur og full- ur af hugmyndum en óviss um hvert það gæti leitt mig í lífinu.“ Vefsíðan www.Facebook/Litla hugmyndasmiðjan AFP Sköpun Gott er að svamla um í kúlusjó og láta hugmyndirnar streyma fram. Öll börn eru listamenn Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Þessum apaskinnum var heldur heitt á dögunum og fengu þeir frosna ávexti í ískúlu til að gæða sér á og kæla sig. Þeir búa í dýragarði Cali í Kólumbíu og hafa það nokkuð gott. Apar fá ís til að kæla sig í hita AFP Kvikmyndahátíðin RIFF verður haldin að hluta til í Kópavogi og er dag- skráin fjölbreytt og spennandi. M.a. verður sundbíó fyrir fjölskylduna í Sundlaug Kópavogs þar sem sýnd verður myndin Múmínálfarnir og halastjarnan. Einnig verður sýning á alþjóðlegum stuttmyndum fyrir börn og fullorðna í Bókasafni Kópavogs og viðburðir tengdir pólskri kvikmynda- og myndlist verða í Gerðarsafni. Fjörutíu ungmenni í 6. og 9. bekk úr skólum í Kópavogi sitja í vikunni stuttmyndanámskeið í tengslum við kvikmyndahátíðina. Krakkarnir fá kennslu í ýmsum hliðum kvikmynda- gerðar á námskeiði undir stjórn Bark- ar Gunnarssonar leikstjóra. Krakk- arnir vinna svo að eigin stuttmynd og verða myndirnar sýndar á RIFF. AFP Krakkar á kvikmyndanámskeiði Nóg járn ámeðgöngu Efþúþjáist af járnskorti ámeðgöngu þá þarftu að borðamikið af járnríkummat til að leiðrétta það. Mörgumófrískum konum finnst erfitt að borða þaðmagn semþarf til að hækka og viðhalda járnbirgðum líkamans. Þá þurfa þær önnur ráð, Floradix hágæða járnbætandi blanda getur hjálpað til að ná upp járnbirgðum líkamans hratt. Floradix inniheldur járn sem frásogast auðveldlega í líkamanumásamt C-vítamíni, ávaxta- og jurtaþykkni til að bæta enná upptökuna. Þessar sérstöku blöndur innihaldamýkjandi jurtir sem hjálpa til að haldameltingunni góðri og koma í veg fyrir harðlífi sem járntöflur geta valdið. Mikilvægt er að nýbakaðarmæður haldi áfram að taka Floradix eftir fæðingu til að viðhalda góðum járnbúskap og byggja upp orku og kraft. Því litla barnið þarfnast þess að eigamömmu semer full af orku og áhuga. Fæst í apótekum og heilsuvöruverslunum. Hvernig er best að viðhalda járnþörf líkamans eðlilegri? Nánari upplýsingar á www.heilsa.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.