Morgunblaðið - 18.09.2015, Page 44
FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 261. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 488 ÁSKRIFT 5295 HELGARÁSKRIFT 3307 PDF Á MBL.IS 4696 I-PAD ÁSKRIFT 4696
1. Fundu fyrst síma og bol
2. Leituðu að vopni, fundu lík
3. Vilhjálmur og Anna Lilja í …
4. Alvarlegt slys við Ögurhvarf
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Óperan Njáls saga, eftir Atla Ing-
ólfsson, verður frumflutt á sunnu-
daginn í leikhúsinu Cinnober í Gauta-
borg. Óperuna samdi Atli fyrir fjóra
karlleikara, hljóðnema og rafhljóð og
textann gerði sænska leikskáldið
Ludvig Uhlbors og byggði á öllum
bardagalýsingum Njáls sögu. „Rétt
eins og í öðrum óperum byggist verk-
ið á skipulagðri raddbeitingu frá upp-
hafi til enda þótt hér sé aðeins hluti
verksins beinlínis sunginn. Hreyf-
ingar, raddbeiting og rafhljóð eru lát-
in renna saman í einn samfelldan
þráð,“ segir Atli um óperuna. Á
myndinni sést Englendingurinn
James Hogg, einn þeirra sem flytja
óperuna. Óperan er þriðja samstarfs-
verkefni Atla og Cinnober sem stýrt
er af Svante Aulis Löwenborg sem
leikstýrir einnig óperunni.
Óperan Njáls saga
frumflutt í Gautaborg
Tökur á fyrstu kvikmynd leikstjór-
ans Ísoldar Uggadóttur í fullri lengd,
Andið eðlilega, hefjast eftir áramót og
segist hún farin að leita leikara. Mynd-
in mun fjalla um konu frá Úganda sem
er hælisleitandi á leið til Kanada en
verður strandaglópur í Keflavík þegar
starfskona við vegabréfaeftirlit stöðv-
ar hana vegna ófullnægjandi ferða-
skilríkja. Ísold er á leiðinni á stutt- og
heimildamyndahátíðina Nordisk
Panorama þar sem allar
stuttmyndir hennar verða
sýndar. Þá mun hún
ræða við danska leik-
stjórann Kristofer Boe
um norræna kvik-
myndagerð á við-
burði sem nefnist
„My dinner with ...
Ísold Uggadóttir“ á
sunnudaginn.
Í tökur eftir áramót
Á laugardag Gengur í suðaustan 10-18 m/s með rigningu,
hvassast suðvestanlands, en hægara og þurrt að mestu á Norð-
ur- og Austurlandi. Hiti 9 til 17 stig, hlýjast norðaustanlands.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vestlæg átt víða á landinu og stöku skúrir,
en bjartviðri suðaustantil. Suðaustan 5-10 m/s og fer að rigna
suðvestantil í kvöld. Hiti 6 til 15 stig, hlýjast sunnanlands.
VEÐUR
ÍR-ingar fara vel af stað í
Olís-deild karla í handknatt-
leik. Þeir hafa fullt hús stiga
eftir þrjá leiki eftir að hafa
lagt FH, 37:33, í miklum
markaleik í Kaplakrika í
gær. Víkingar unnu sinn
fyrsta leik í efstu deild í
rúm sex ár þegar þeir lögðu
Gróttu í slag nýliðanna.
Eyjamenn töpuðu öðrum
heimaleik sínum í röð og
meistarar Hauka skelltu Val
á Hlíðarenda. »2
ÍR-ingar með
fullt hús stiga
Sandra María Jessen kom íslenska
landsliðinu á bragðið snemma leiks í
4:1 sigri á Slóvökum í síðasta vin-
áttulandsleik landsliðs-
ins áður en undan-
keppni Evrópu-
meistaramótsins
hefst á þriðju-
dagskvöldið.
Hólmfríður
Magnúsdóttir
skoraði tvö
mörk og Mar-
grét Lára Við-
arsdóttir skor-
aði í sínum 99.
landsleik. »4
Sandra María kom
landsliðinu á bragðið
Spánverjar tryggðu sér í gærkvöldi
sæti í úrslitum Evrópumeist-
aramótsins í körfuknattleik karla
þegar þeir unnu Frakka, 80:75, í
framlengdum undanúrslitaleik í Lille
í Frakklandi. Pau Gasol fór hamför-
um í leiknum. Hann skoraði helming
stiga spænska liðsins sem mætir
annað hvort Litháen eða Serbíu í
úrslitaleik á sunnudaginn. »1
Gasol skaut Spánverj-
um í úrslitaleikinn á EM
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Þegar Ísland tryggði sér rétt til þess
að leika til úrslita í Evrópukeppni
landsliða í körfubolta stóð Margrét
Elíasdóttir, ritari Knattspyrnu-
sambands Íslands, frammi fyrir
vandamáli. Hún komst að nið-
urstöðu, velti vöngum yfir henni á
síðustu stundu, en lét slag standa.
Þegar Margrét var í skóla vann
hún á sumrin á Laugardalsvelli, en
réðst síðan til KSÍ og hefur verið rit-
ari á skrifstofu sambandsins síðan
1997. Hún hefur ekki misst úr lands-
leik í Laugardalnum síðan hún hóf
þar störf en þegar körfuboltalands-
liðið vann sér rétt til þess að leika í
úrslitakeppninni í Berlín stóð hún
frammi fyrir tveimur kostum: að fara
til Berlínar eftir Evrópuleik Íslands
og Kasakstans í fótbolta á Laugar-
dalsvelli og missa af fyrstu tveimur
leikjum Íslands í EuroBasket eða
fara með eiginmanninum til Þýska-
lands og sjá son þeirra í tímamóta-
leikjum með íslenska körfubolta-
landsliðinu. Hún valdi síðari kostinn
og sér ekki eftir því. „Þegar allt kem-
ur til alls hefur fjölskyldan forgang,“
segir hún.
Snerist í hringi
Margrét og Hermann Hauksson,
fyrrverandi landsliðsmaður í körfu-
bolta og besti leikmaður úrvals-
deildar karla 1997, eiga þrjú börn,
sem öll eru í körfubolta. Martin er
þeirra elstur, varð 21 árs í fyrradag.
Hann er með bestu körfuboltamönn-
um landsins og var til dæmis kjörinn
besti leikmaður Dominos-deild-
arinnar í fyrra. „Í vor hugsaði ég um
það hvort ég ætti að sjá leikinn á
móti Kasakstan sunnudaginn 6. sept-
ember og fljúga til Berlínar daginn
eftir en þá hefði ég misst af tveimur
fyrstu leikjunum í körfunni,“ rifjar
Margrét upp. „Fljótlega sá ég að það
gengi ekki upp – ég yrði að sjá strák-
inn spila þessa landsleiki – auk þess
sem ég taldi þá að ef ég þyrfti að
missa af einhverjum leik væri það
helst leikurinn á móti Kasakstan.
Sennilega yrði rólegasta vinnan í
kringum hann og hann réði ekki úr-
slitum um að komast í úrslitakeppn-
ina.“
Þau gengu því frá farmiðakaupum,
en þegar hún horfði á Evrópuleik
Hollands og Íslands í sjónvarpinu
fimmtudaginn 3. september efaðist
Margrét um ákvörðunina. „Þá var
ljóst að leikurinn á móti Kasakstan
var allt í einu orðinn mikilvægasti
leikurinn í sögunni og ég snerist í
hringi,“ segir Margrét. „Það hvarfl-
aði að mér að breyta flugmiðanum en
sem betur fer gerði ég það ekki, því
það var ótrúlega gaman að vera á
fyrsta leik Íslands í Mercedes-Benz-
höllinni og reyndar á öllum leikjum
liðsins. Ég hefði ekki viljað missa af
þessari gleði og stemningu. Það var
lúxusvandamál að þurfa að velja á
milli tveggja svona stórra viðburða
og það var sem rjómi á kökuna að
búa við Hermannstorg í Berlín.“
Lúxusvandamál Margrétar
Missti af fyrsta
landsleiknum í fót-
bolta vegna körfu
Morgunblaðið/Eggert
Á vellinum Margrét Elíasdóttir kann vel við sig á Laugardalsvelli og missir helst ekki af landsleik á vellinum.
Fjölskyldan Parið Anna María Bjarnadóttir og Martin Hermannsson og
hjónin Margrét Elíasdóttir og Hermann Hauksson í Mercedes-Benz-höllinni.