Morgunblaðið - 19.09.2015, Side 1

Morgunblaðið - 19.09.2015, Side 1
L A U G A R D A G U R 1 9. S E P T E M B E R 2 0 1 5 Stofnað 1913  220. tölublað  103. árgangur  ÞARF AÐ KUNNA AÐ LESA VIÐINN TILFINNINGARÍKIR TÓNAR LEIKA VERK HUGA OG MESSIAENS 46JÓN FIÐLUSMIÐUR 10 Þorsteinn Ásgrímsson Baldur Arnarson Verð á vissum innfluttum matvörum gæti lækkað um tugi prósenta á næstu fjórum árum ef nýr samning- ur Íslands og ESB um viðskipti með landbúnaðarvörur tekur gildi. Þá eykst innflutningskvóti Íslands á lambakjöti til ESB úr 1.850 tonnum í 3.350 tonn og kvótinn á íslensku skyri til ESB fer úr 380 tonnum í 4.000 tonn á ári. Finnur Árnason, forstjóri Haga, segir verð á innfluttum matvörum geta lækkað um tugi prósenta. Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtakanna, segir jákvætt að fá aukinn aðgang að markaði ESB. Þetta sé þó tvíeggja sverð. Samtökin hafi talað mikið fyrir því að fella ekki niður tolla einhliða og að tvíhliða samkomulag sem þetta sé því til fyr- irmyndar. Hitt sé ljóst að staðan verði erfið fyrir sumar búgreinar, t.d. alifugla- og svínarækt. Ingimundur Bergmann, formaður Félags kjúklingabænda, gagnrýnir „baktjaldamakk“ stjórnvalda. Þá býst Landssamband kúabænda við að breytingarnar hafi veruleg áhrif. Mun lækka matarverð  Bændasamtökin telja tollabreytingar geta reynst innlendri framleiðslu erfiðar  Verð innfluttra matvara gæti lækkað mikið  Kjúklingabændur afar ósáttir MVerð á innfluttum … »4 Afnema toll á villibráð » Dæmi um breytingarnar er að magntollur á villta rjúpu fer úr 446 kr. á kílóið niður í 0 kr. » Einn tollflokkur á rjómaís fer úr 30% í 18% og tollur á franskar fer úr 76% í 46%. „Nú er óhætt að tala um endan- lega niðurstöðu og fullnaðarsigur. Þó að málinu hafi í raun að mestu verið lokið með dómi EFTA- dómstólsins var því haldið áfram,“ segir Sigmundur Davíð Gunn- laugsson forsætisráðherra um lyktir Icesave-málsins. Tryggingasjóður innistæðueig- enda og fjárfesta (TIF) hefur samið við hollenska seðlabankann og breska innistæðusjóðinn um loka- uppgjör krafna sem stafa af inni- stæðum sem gamli Landsbankinn safnaði í útibúum sínum fyrir hrun. TIF greiðir samtals 20 milljarða ís- lenskra króna, að mestu með fjár- munum sem voru til í sjóðnum fyrir fall bankanna. Auk þess hafa þeir fengið sinn hlut í eignum slitabúsins. „Það er ánægjulegt að þetta skuli hafa klárast með þessum hætti. Rétt er að rifja það upp að auðvitað björguðu neyðarlögin heilmiklu fyrir breska og hollenska innistæðu- eigendur. Innistæður voru færðar ofar í röð krafna, fengu forgang. Í rauninni hefðu þeir átt að gleðjast yfir því að stjórnvöld tryggðu þeim að tjónið varð ekki meira en raun bar vitni,“ segir ráðherra. »20 Icesave- málinu er lokið  „Fullnaðarsigur“ segir forsætisráðherra Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Blóðrautt sólarlag og litfögur norðurljós á himni hafa heillað landsmenn og gesti undanfarin kvöld. Milt veður hefur gert fólki kleift að njóta útsýnisins í listasal náttúrunnar. Myndin var tek- in frá Seltjarnarnesi. Útlit er fyrir áframhald- andi milt veður. Veðurstofan spáir þó vaxandi suðaustanátt í dag og á morgun með rigningu eða súld með köflum en hægara og þurrara veðri norðanlands og austan. Blóðrautt sólarlag í listasal náttúrunnar Morgunblaðið/Eggert „Fyrir utan að við finnum fyrir aukningu í sölu á utanlandsferðum höfum við orðið vör við að fólk velur dýrari gist- ingu,“ segir Tómas J. Gestsson, framkvæmdastjóri Heimsferða. Bæði hefur ásókn í golfferðir aukist og fólk er þá farið að fara aftur í dýrari exótískar ferðir á fjarlæga staði. Guðrún Sigurgeirsdóttir, fram- leiðslustjóri hjá ferðaskrifstofunni Vita, tekur í sama streng og Tómas og bendir á að meiri ásókn sé í Saga Class-sætin. „Það er slegist um Saga Class-sætin okkar.“ Einkaneysla hefur ekki vaxið jafnhratt í níu ár og má sjá það í ýmsum neysluhornum samfélags- ins. Í Sunnudagsblaði Morgunblaðs- ins er fjallað um aukna sölu utan- landsferða, dýrari bíla og reiðhjóla og húsgagna. Slegist um flugsæti á Saga Class „Reykjavíkurborg ætti í fyrsta lagi að viðurkenna að þeir hafi ekki að- stöðu til og sé ekki heimilt að beita viðskiptaþvingunum gegn öðrum ríkjum.“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra um hver næstu skref Reykjavíkurborg- ar ættu að vera eftir að hún ákvað að sniðganga ísraelskar vörur. Hann segir að málið verði tekið fyr- ir á ríkisstjórnarfundi í dag. Í tilkynningu sem utanríkisráðu- neytið sendi frá sér segir að sam- þykki Reykjavíkurborg að breyta innkaupastefnu sinni með bindandi hætti, þannig að ísraelskir birgjar skuli sniðgengnir, samræmist það hvorki íslenskum lögum ná ákvæð- um í alþjóðlegum skuldbindingum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar. Í Morgunblaðinu í gær var fjallað um að evrópska gyðingaþingið íhugi að sækja rétt sinn gagnvart Reykja- víkurborg. „Þetta er greinilega hugsað til þess að afla sér vinsælda, illa und- irbúið og afleiðingarnar algerlega vanmetnar,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra í sam- tali við mbl.is Guðlaugur Þór Þórðarson, þing- maður Sjálfstæðisflokksins, segir að tölvupóstum rigni nú inn til hans vegna ákvörðunarinnar og hún sé harðlega gagnrýnd. Í mörgum þeirra segist fólk ætla að sniðganga Ísland og vörur sem koma héðan. Taka íslenskar vörur úr sölu Milljarðamæringurinn Ronald S. Lauder, forseti Heimsþings gyð- inga, hefur gagnrýnt ríkisstjórn Ís- lands harðlega fyrir að beita sér ekki gegn ákvörðun meirihluta borgarstjórnar Reykjavíkur. Þá hefur stór matvörukeðja á austur- strönd Bandaríkjanna tekið bjór frá ölgerðinni Einstök úr sölu vegna ákvörðunarinnar. Ragnheið- ur Elín Árnadóttir, iðnaðar- og við- skiptaráðherra, hyggst láta meta hversu umfangsmiklar afleiðing- arnar eru. Dagur B. Eggertsson borgar- stjóri hefur sagt að viðbrögðin komi sér á óvart og að útfæra hefði mátt tillöguna áður en hún var samþykkt. Það verði þó að hafa í huga að ákvörðunin nái aðeins til varnings sem framleiddur væri af fyrirtækjum á hernumdu svæðun- um í Palestínu. isak@mbl.is MViðskiptabann vekur … »24 Afleiðingarnar vanmetnar  Sniðganga borgarinnar á ísraelskum vörum tekin fyrir á ríkisstjórnarfundi í dag

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.