Morgunblaðið - 19.09.2015, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 19.09.2015, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2015 KAMBÓDÍA OG VÍETNAM 16.–29. JANÚAR Tveggja vikna ferð til þessara stórbrotnu landa sem státa af mikilli náttúrufegurð, iðandi borgum og vingjarnlegu fólki. Fararstjóri er Halla Himintungl sem þekkir svæðið vel. Úrval Útsýn | Hlíðasmára 19 | 201 Kópavogi | 585 4000 | uu.is VERÐ FRÁ 589.900 KR. Mikið innifalið. Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Útförum í kyrrþey í Reykjavík hef- ur fjölgað á undanförnum árum. Fyrir fimm árum, árið 2011, voru þær 37, en voru orðnar 99 í fyrra. Árið 2013 voru þær 78 og 55 árið þar á undan. Á þessu ári eru þær þegar orðnar 98 þannig að fjölg- unin heldur áfram. „Það er stígandi í þessu,“ segir Þórsteinn Ragnarsson, forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófasts- dæma. Tölur um fjölda útfara í kyrrþey eru ekki til fyrir landið í heild. Að jafnaði eru útfarir fólks vel auglýstar til að gefa sem flestum færi á að votta hinum látna hinstu virðingu. En þegar útför fer fram í kyrrþey er andlátið ekki auglýst fyrr en að lokinni útför og einungis nánustu skyldmenni og vinir eru viðstödd athöfnina. Ekki bara lítil efni Ýmsar ástæður geta verið fyrir því að fólk kýs útför í kyrrþey. Sú skýring að þetta sé gert til að kom- ast hjá miklum útgjöldum er ekki einhlít segir í fræðsluriti kirkju- garðanna. Orsakir geta verið marg- víslegar. Hinn látni kann að hafa óskað eftir því í lifanda lífi að at- höfnin yrði látlaus og persónuleg kveðja og að einungis nánasta fjöl- skylda og vinir yrðu viðstödd hana. Andlát getur hafa borið að höndum með voveiflegum og/eða sviplegum hætti og það veldur því að aðstand- endur kjósa að hafa útförina í kyrr- þey, m.a. í því skyni að draga úr tilfinningalegu álagi. Stundum vak- ir það fyrir aðstandendum að hafa stjórn á þeim mannfjölda sem sæk- ir útförina og eiga þannig hægara um vik við val á hentugri kirkju eða kapellu og, ef svo ber undir, húsnæði undir erfisdrykkju. Þá kemur fyrir að lítil efni eru fyrir hendi í dánarbúinu og aðstand- endur velja að hafa útförina lát- lausa og í kyrrþey til að forðast kostnaðarsama liði sem tíðum fylgja auglýstum útförum, t.d. í tengslum við fjölmenna erf- isdrykkju. Erfisdrykkja með þátt- töku nánustu ástvina er þó oft haldin þótt útför sé gerð í kyrrþey. Loks veldur óeining meðal aðstand- enda því í hreinum undantekning- artilvikum að ekki næst samstaða um hvernig standa skuli að aug- lýstri útför og þess vegna er útför í kyrrþey valin. Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Leiðarlok Ýmsar aðrar ástæður en fjárhagslegar geta ráðið því að útför fer fram í kyrrþey, m.a. ósk hins látna. Útförum í kyrrþey fjölgar í Reykjavík  Voru 37 árið 2011 en eru þegar orðnar um 100 á þessu ári Útfarir í kyrrþey í Reykjavík » Voru 37 árið 2011, en fjölg- aði í 99 í fyrra » Fjölgar enn í ár og eru orðn- ar 98. » Heildarfjöldi útfara í borg- inni var 2130 árið 2014 og eru orðnar 1.628 á þessu ári. Útfarir í kyrrþey í Reykjavík 2011–2015 * Það sem af er árinu. Heimlid: Kirkjugarðar Reykjavíkurprófastsdæma 2011 2012 2013 2014 2015* 2.500 2.000 1.500 1.000 500 0 2,6% 2,8% 3,6% 4,6% 6% Heildarfjöldi útfara Útfarir sem fara fram í kyrrþey Björn Jóhann Björnsson bjbmbl.is Stjórn Faxaflóahafna samþykkti á fundi sínum í vikunni að frá næstu áramótum skuli öll skip, sem liggja við hafnarbakka og geta tekið við rafmagni úr landi, tengjast landraf- magni. Þeim skipum sem unnt er að þjóna með þessum hætti verður þá óheimilt að keyra ljósavélar sínar, nema að viðvera þeirra í höfn sé inn- an við sex tímar. Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxa- flóahafna, segir þessa samþykkt ná til allra togara og minni skipa, sem geta notast við svonefnda lágspennu í landi. Stærri fley eins og skemmti- ferðaskip og flutningaskip fá áfram að keyra sínar ljósavélar, enda er það gríðarlega umfangsmikil fram- kvæmd að koma upp spennistöðvum og leggja háspennustrengi að höfn- um landsins. Bætt loftgæði og minni mengun Í fundargerð Faxaflóahafnar er vísað til reglugerðar um brenni- steinsinnihald í fljótandi eldsneyti. Þar sé m.a. kveðið á um að til að stuðla að bættum loftgæðum, og til að draga úr mengun, skuli skip sem liggja við bryggju nota rafmagn úr landi í stað skipaeldsneytis eins og kostur er. Sé ekki möguleiki á að nota rafmagn úr landi skuli skip sem liggja við bryggju ekki nota skipa- eldsneyti með meira brennisteins- innihaldi en 0,1%(m/m). Gísli segir að Faxaflóahafnir hafi til þessa verið að selja rafmagn til skipa í töluverðum mæli. Til að gera fleiri skipum þetta kleift verði ráðist í kaup og uppsetningu á fleiri tengl- um á hafnarsvæðunum í Reykjavík og á Akranesi. Gísli segir að í náinni framtíð geti í einhverjum tilvikum verið komin að- staða til að þjónusta stærri skip með þessum hætti, eins og skemmti- ferðaskipin. Sumstaðar erlendis séu hafnir að feta sig áfram með há- spennutengingar í landi. Það sé hins vegar kostnaðarsamt og hafi t.d. ekki verið gert í Kanada og Noregi nema með verulegum stuðningi hins opinbera. „Lágspennan er viðráðanlegt verkefni og hafnirnar munu áreið- anlega stíga frekari skref í þá átt að skipin þurfi ekki að keyra ljósavélar sínar. Þetta ætti til dæmis að nýtast öllum togaraflotanum, það dregur úr mengun á hafnarsvæðunum og er já- kvætt mál,“ segir Gísli. Hann segir sölu á rafmagni ekki skila Faxaflóahöfnum miklum tekjum, stofnkostnaður sé það mik- ill, en þrátt fyrir verðlækkun á olíu séu kaup á rafmagni bæði hagkvæm- ari og umhverfisvænni kostur fyrir útgerðir skipa og báta. Skip taki rafmagn úr landi í höfnum  Faxaflóahafnir ákveða breytt fyrirkomulag frá næstu áramótum Morgunblaðið/Kristinn Skip Frá 1. janúar þarf að taka raf- magn úr landi í Faxaflóahöfnum. Að sögn Gísla Gíslasonar hafnarstjóra bíða næg verk- efni Faxaflóahafna á næsta ári, en á sama fundi og fjallað var um sölu rafmagns til skipa þá afgreiddi stjórn fyrirtækisins fjárhagsáætlun ársins 2016. Gert er ráð fyrir að tekjur Faxaflóahafna verði um 3,3 millj- arðar króna og rekstrargjöld 2,8 milljarðar. Nái þessi áform fram að ganga verður rekstrarhagnaður upp á hálfan milljarð. Til framkvæmda er áætlað að verja um 2,1 milljarði króna, sem er nokkru hærri fjárhæð en mörg undanfarin ár. Stærstu framkvæmdir næsta árs verða vegna byggingar nýs hafnarbakka utan Klepps og gatnagerðar á Grundartanga í tengslum við sólarkísilverksmiðju Silicor Materials. Að auki verða framkvæmdir við lengingu og endurnýjun Norðurgarðs. Tveir milljarðar í framkvæmdir FJÁRHAGSÁÆTLUN FAXAFLÓAHAFNA AFGREIDD Á SAMA FUNDI Gísli Gíslason Jóna Gróa Sigurðar- dóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi, lést fimmtudaginn 17. sept- ember á Landspítal- anum eftir skamma sjúkrahúslegu. Jóna Gróa var fædd 18. mars 1935, dóttir hjónanna Ingunnar Sigríðar El- ísabetar Ólafar Jóns- dóttur og Sigurðar Guðmundssonar. Jóna Gróa var gift Guð- mundi Jónssyni, vél- fræðingi sem lifir eiginkonu sína. Jóna Gróa starfaði vel og lengi að ýmsum félagsmálum og tók virkan þátt í stjórnmálum. Hún var í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðis- flokksins frá árinu 1982 til 2002. Jóna Gróa var for- maður og fram- kvæmdastjóri fanga- hjálparinnar Verndar 1982-1989 og stóð m.a. að breyttum úrræðum í fangelsismálum með kaupum á húsi í Reykja- vík, þar sem fangar hafa átt kost á að ljúka af- plánun. Börn Jónu Gróu og Guðmundar eru Ingunn Guðlaug flugrekstr- arfræðingur, Sigurður, lögmaður og bóndi, Helga, viðskipta- fræðingur og flugfreyja, og Auður, viðskiptafræðingur og fram- kvæmdastjóri markaðsdeildar VÍS. Guðmundur á einnig soninn Ívar, jarðfræðing og bókaútgefanda. Andlát Jóna Gróa Sigurðardóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi Framkvæmdir við lagningu nýrrar Suðurnesjalínu hefjast á næstu mánuðum. Landsnet auglýsir um helgina eftir tilboðum í gerð veg- slóðar, jarðvinnu og undirstöður vegna línunnar. Línan liggur frá Hafnarfirði að Rauðamel norðan Svartsengis, 32 kílómetra leið. Alls verða reist 100 háspennumöstur. Suðurnesjalína 2 verður hluti af almennu raforkuflutningskerfi Landsnets. Sveitarfélögin hafa veitt framkvæmdaleyfi. Áætlaður kostnaður við lagningu línunnar er tæpir 3 milljarðar króna. Fram- kvæmdin mun taka um tvö ár, sam- kvæmt upplýsingum Landsnets. Ný Suðurnesjalína mun að miklu leyti fylgja núverandi Suðurnesja- línu, nálægt Reykjanesbrautinni, nema austast á svæðinu þar sem gert er ráð fyrir að hún liggi í nýju línubelti, töluvert fjær núverandi byggð í Hafnarfirði. Undirstöður Suður- nesjalínu boðnar út

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.