Morgunblaðið - 19.09.2015, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 19.09.2015, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2015 Fleiri möguleikar í hraðbönkunum okkar Í hraðbönkum í útibúum okkar geta viðskiptavinir lagt inn seðla og tekið út allt að 300.000 kr. Arion hraðþjónusta – hafðu það eins og þú vilt H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA – 1 5 -1 9 9 2 Flúor í grasi í Reyðarfirði minnkaði í sumar þriðja árið í röð. Hann var 36 prósentum minni nú heldur en sumarið 2014, en það sumar dró einnig úr flúor miðað við sumarið 2013, eða um 19 prósent. Þetta kemur fram í frétt frá Al- coa Fjarðaáli. Magnús Þór Ásmundsson, for- stjóri Alcoa Fjarðaáls, segir mjög ánægjulegt að sjá staðfestingu þess hve vel hafi gengið. Fjarðaál sé meðal þeirra álvera sem standa sig best á heimsvísu hvað varðar magn mengandi efna í útblæstri og af öll- um álverum Alcoa sé magnið minnst hjá Fjarðaáli. Gildin fyrir flúor í grasi voru mun lægri í sumar en viðmið fyrir grasbíta segja til um. Síðar í haust verður safnað sýnum úr heyi sem aflað var í Reyðarfirði í sumar og verður þá hægt að sjá hvert flúor- innihaldið er í þeirri fæðu sem dýr- in neyta á ársgrundvelli. Flúor í grasi minnkar  Fjarðaál er í fremstu röð Íslandsmeistarakeppnin í ökuleikni verður haldin dagana 19. og 20. sept- ember á svæði Ökuskóla 3 á Kirkju- sandi við Borgartún í Reykjavík. Rútu- og trukkakeppnin fer fram laugardaginn 19. september, rútu- keppnin hefst kl. 11.00 og trukka- keppnin kl. 14. Meirapróf þarf til að taka þátt. Í rútu- og trukkakeppn- inni verður sama plan fyrir stórar rútur og flutningabíla annars vegar og sama plan fyrir smárútur og sendibíla hins vegar. Boðið er einnig upp á liðakeppni. Ökuleikni á fólksbílum verður sunnudaginn 20. september kl. 12. á sama stað. Hægt verður að keppa sem einstaklingur eða sem lið og verða veitt verðlaun í báðum flokk- um og í karla- og kvennariðli. Skrán- ing fer fram á heimasíðu Braut- arinnar, www.brautin.is. Form keppninnar verður með ör- lítið öðru sniði en undanfarin ár. Áhorfendur eru velkomnir. Íslandsmeist- arakeppni í ökuleikni Reykjavíkurborg tekur áskorun Rauða krossins um að vera virkur þátttakandi í átakinu „Vertu næs“. Þetta var samþykkt í borgarráði á fimmtudaginn. Í áskoruninni er hvatt til samskipta við fólk af erlendum uppruna og áhersla lögð á að við komum fram hvert við annað af virðingu. Uppruni, litaraft og trúarbrögð eigi ekki að skipta máli. Með samtakamætti er hægt að hafa mikil áhrif, segir í frétt frá borginni. Þar kemur fram að með átakinu ætli borgin sérstaklega að huga að starfsmönnum sínum en yfir fjögur hundruð erlendir starfsmenn vinna hjá Reykjavíkurborg og þá eru ekki taldir með einstaklingar sem fengið hafa íslenskan ríkisborgararétt. Starfsmennirnir koma frá á sjötta tug landa, þar á meðal Kína, Litháen, Perú, Rúanda, Sviss, Úganda og Þýskalandi auk einstaklinga sem eiga ekkert ríkisfang. Talið er að starfs- menn borgarinnar tali á annað hundrað tungumála. „Reykjavík- urborg ætlar að hvetja starfsfólk til að fagna fjölmenningu á sínum vinnu- stöðum og vera næs,“ segir í tilkynn- ingunni. Jafnframt skorar borgin á borgar- búa og önnur sveitarfélög að taka þátt í átaki Rauða krossins. Reykjavík- urborg hvetur borgarbúa til að taka mynd af fólki sem myndar hjarta með höndunum og setja inn á instagram merkt #vertunæs og #reykjavikernæs og dreifa með því boðskapnum. Ljósmynd/Reykjavíkurborg Fjölmenning S. Björn Blöndal borgarfulltrúi myndar hjarta, en í áskor- uninni er hvatt til samskipta við fólk af erlendum uppruna. Reykjavíkurborg tekur áskorun Rauða krossins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.