Morgunblaðið - 19.09.2015, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 19.09.2015, Blaðsíða 31
við kaffiborð hlaðið kræsingum, í herberginu inn af eldhúsinu, það- an sem við áttum svo góðar minn- ingar. Þetta var notaleg stund, enda eins og áður gott að koma í Svaðastaði. Megi guð blessa Önnu Höllu og launa henni einstaka ljúfmennsku og þolinmæði. Gunnhildur Björnsdóttir. Nú kveð ég allt, sem kærast er við klökkvan strengjaslátt í hinsta sinn þú mætir mér sem morgun lífs míns átt. Þú undurfagra sæla sveit með sólskin frið og ró þar vængi fékk mín vonin heit sú von er lifði og dó. Og hugur minn leitar til þín húmkvöldið svart er haustsins varð að lúta skapadóm. að vetrinum liðnum kemur vorkvöldið bjart og vaxa lætur önnur fegri blóm. Svo undurlítið lauf og ber að lífga jarðarskaut því kveð ég allt sem kærast er og hverf af þinni braut. (Guðrún Gísladóttir) Elskuleg föðursystir okkar hef- ur kvatt okkur, það eru þáttaskil hjá okkur, allt okkar föðurfólk er nú horfið á braut. Anna Halla kenndi okkur og öllum samferða- mönnum mikið á sinni erfiðu lífs- leið, en hún var engu að síður mik- ill húmoristi, hafði gaman af lífinu og kunni að njóta. Hún var fædd hinn 13. apríl og ef hún var spurð um fæðingardag svaraði hún ætíð „ég er fædd 13. apríl eins og Geir- mundur og Rúni Júl.“ en báðir þessir tónlistarmenn voru í miklu uppáhaldi. Hún kunni að njóta augnabliksins og ævinlega kvaddi hún okkur með þeim orðum, þeg- ar við höfðum eytt með henni stund: „Það er góður dagur í dag.“ Við kveðjum frænku okkar með söknuði og biðjum Guð að blessa hana. Að lokum viljum við færa starfsfólkinu á sambýlinu við Fellstún þakkir fyrir öll árin með Önnu Höllu, það er ómetanlegt hversu vel að öllu var staðið og henni sýnd mikil elska og um- hyggja. Ásta, Ásmundur og Friðrik. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Kær vinkona mín, hún Anna Halla Friðriksdóttir, fína frúin í Fellstúninu eins og hún sagði stundum, er farin í sumarlandið til endurfunda við foreldra sína og bræður sem hún saknaði svo mik- ið. Blendnar tilfinningar fljúga um hugann, sorg og söknuður að kveðja kæra vinkonu, gleði yfir að þrautum sem elli kerling færði þér er lokið og þakklæti fyrir að fá að kynnast þér og njóta vinskapar við þig. Hún nafna mín var svo hæfi- leikarík, enda haft svo góðan kennara sem Ásta móðir hennar var, hún kenndi henni að prjóna, hekla og sauma sem hún gerði meðan heilsan leyfði. Anna Halla var líka listamaður, hún gerði margar klippimyndir og hún teiknaði myndir á blöð og efni sem urðu t.d. að flottum púðum, hún var líka leikari og hermdi eftir gömlu körlunum í Blönduhlíðinni þegar vel stóð á og stundum var tekin grettukeppni fyrir framan spegilinn. Anna Halla var full af fróðleik, hún kunni svo marga texta, hver söng og eftir hvern lagið var, hún mundi marga af- mælisdaga, og hver veit ekki að hún, Rúnar Júl. og Geirmundur eiga sama afmælisdag! Kynni okkar nöfnu minnar, eins og hún kallaði mig svo oft, hófust er ég fór að vinna á heimili hennar árið 2004 og er ég svo þakklát fyrir það, því kynni mín af henni hafa gefið mér svo mikið og gert mig að betri manni. Texta- brot úr lagi Rúnars Júl. „Það þarf fólk eins og þig fyrir fólk eins og mig“ passa svo vel við hana. Það voru forréttindi að mæta í vinnu og fá móttökurnar hennar: Hvern- ig hefur þú það, gaman að sjá þig og ég hef saknað þín svo mikið. Minningar um hið daglega líf í Fellstúninu, um allar ferðirnar í sumarbústaði og kaffihúsaferðir sem voru í uppáhaldi hjá henni, Spánarferðina og öll hin ferðalög- in er gott að hugsa um núna. Kæra vinkona, góða ferð í sum- arlandið og takk fyrir allar stund- ir. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Önnu Höllu er sárt saknað af öllum er hana þekktu. Ég votta Hjalta, fjölskyldu hennar og heim- ilisfólkinu í Fellstúni 19 innilega samúð. Blessuð sé minning hennar. Þín vinkona og nafna, Halla G. Þorsteinsdóttir. aftur núna síðustu ár, algjörlega ómetanlegt að geta skroppið í kaffi og spjall og við gerðum mikið af því sl. sumar. Samband okkar var einstakt, eins og systrasamband í sinni bestu mynd. Þú varst svo stolt af börnunum þínum en María Hödd fæddist þegar þú varst aðeins 15 ára og ég 14 og þegar ég kom á fæðingar- deildina að fá að skoða hana man ég hvað mér fannst við rosalega fullorðnar, Kormákur Atli fæddist svo 13 árum síðar og veittist mér sá heiður að vera viðstödd fæð- inguna. „Ormabobbarnir“ þínir tveir, eins og þú kallaðir þá, Hjör- leifur og Oliver, gullmolarnir þínir, sem þú gast knúsað endalaust og þeim þótti alltaf svo gott að koma í ömmufaðm. Þeirra missir er mik- ill. Þú varst alltaf svo góð við mín börn og sagðir oft að þú elskaðir þau eins og þau væru þín eigin, enda fengu þau alltaf knús í hvert skipi sem þið hittust. Það var svo gott að koma til þín, heimilislegt og hlýlegt, fjölskyldu- myndir á veggjum og í hillum og þú áttir mikið af fallegum hlutum, margt af því hafðir þú keypt í út- löndum því þú hafðir ferðast víða, aldrei komumst við þó saman til útlanda en við gerum það bara síð- ar, þá verður stuð. Vini áttir þú um allt, laðaðir að þér fólk enda með eindæmum hress og skemmtileg og hrókur alls fagnaðar hvar sem þú komst en líðanin var ekki alltaf alveg eins og þú lést uppi, áttir auðvelt að setja upp grímuna. Árin hafa verið upp og niður hjá þér, þú varst ósátt að geta ekki unnið, enda vinnuþjarkur mikill. Það var hægt að tala við þig um allt, þú dæmdir aldrei neinn og komst til dyranna eins þú varst klædd í orðsins fyllstu. Þú varst ófeimin að tala um veikindi þín og það er fyrir mann- eskjur eins og þig sem ræða hlut- ina opinskátt að hægt verður að eyða fordómum um geðsjúkdóma. Þegar raunir þjaka mig þróttur andans dvínar þegar ég á aðeins þig einn með sorgir mínar. Gef mér kærleik, gef mér trú, gef mér skilning hér og nú. Ljúfi drottinn lýstu mér, svo lífsins veg ég finni láttu ætíð ljós frá þér ljóma í sálu minni. (Gísli á Uppsölum.) Elsku Kormákur, María, Rún- ar, Hjörleifur Máni, Jón Oliver, Gunna, Jón og systkinin öll og fjöl- skyldur, Guð gefi ykkur styrk á þessum erfiðu tímum. Hvíl í friði, elsku engillinn minn. Takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig, ég elska þig. Þín Iða Brá. MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2015 ✝ Guðrún Árna-dóttir fæddist í Arnarnesi, Keldu- hverfi, 24. júlí 1922. Hún lést 27. ágúst 2015. Foreldrar Guð- rúnar voru Árni Jó- hannsson, f. 3.8. 1893, d. 28.4. 1979, og Þórey Jónsdótt- ir, f. 8.5. 1897, d. 8.9. 1974. Guðrún bjó í Kelduhverfi til 1927 en flutti þá með foreldrum sínum í Þórunnarsel. Árið 1928 flytja þau svo í Meiðavelli í Keldu- hverfi þar sem Guðrún bjó svo alla sína ævi. Guðrún gekk í gagnfræða- skóla Akureyrar 1939-1942 og útskrifaðist með gagnfræðapróf þaðan 1942. Guð- rún tók við búi for- eldra sinna sem bóndi árið 1939. Árið 1944 giftist hún Óskari Ingv- arssyni, f. 5.2. 1918, d. 5.8. 1992. Þau eignuðust saman soninn Árna Ósk- arsson, f. 16.5. 1946, d. 2.6. 2009. Árið 2013 fluttist hún á hjúkrunardeild Heilbrigðisstofnunar Þing- eyinga á Húsavík og dvaldi þar síðustu ár sín. Jarðarförin fer fram frá Garðskirkju í Kelduhverfi í dag, 19. september 2015, kl. 14. Það er komið haust og við systurnar nýbúnar að vera fyrir norðan í heimsókn hjá frænku okkar Guðrúnu frá Meiðavöllum. Við sáum að frá síðustu heimsókn í vor þá hafði henni hrakað þó nokkuð, samt sat hún í stólnum sínum á sjúkrahúsinu á Húsavík og ræddi við okkur um daginn og veginn. Þegar við kvöddum hana þá var hún ekki viss um að hún sæti á sama stað þegar við kæm- um næst í heimsókn. Hún var bú- in að ná háum aldri, varð 93 ára nú í sumar. Skjótt skipast veður í lofti og innan þriggja vikna var hún dáin og við getum ekki leng- ur komið norður í heimsókn, spurt og fengið svör frá gömlum tíma. Hugurinn hjá frænku var ávallt skýr og frá mörgu að segja, mörgu sem við höfðum kannski aldrei heyrt minnst á. Fyrstu minningar okkar úr barnæsku tengdust oft á tíðum Meiðavöllum í Kelduhverfi. Á þessum árum var ekkert vatn að fá í landi Meiðavalla, tvisvar til þrisvar í viku þurfti því Guðrún að koma með hest og kerru og staðnæmdist við bæjarlækinn hjá okkur í Ásbyrgi. Á kerrunni voru tvær vatnstunnur stórar og miklar og jós hún þær fullar af vatni, batt hestinn við staur og kom inn í kaffi, kannski ekki í hvert sinn, en í sama hornið sett- ist hún, í sætið hennar ömmu Sigurveigar og spjallaði við heimilisfólkið. Svo líða árin, við systur að tölta yfir í Meiðavelli. Göngur og réttir, gangnamenn komnir í hús, tertur á borðum og búið að skúra allan bæinn út úr dyrum. Þetta fannst okkur skemmtilegt. Alltaf talað við okkur sem við værum fullorðnar. Gosdrykkir á borðum, gott ef það var ekki Vallas í flösku. Síðar þegar við erum komnar á unglingsár er Farmal- linn kominn í Ásbyrgi. Þá keyrð- um við traktorinn í staðinn fyrir að ganga þennan spöl. Þetta var drossían okkar, enginn bíll á heimilinu og litlar kröfur gerðar. Tíminn líður og við systur er- um farnar suður, við eignumst maka og börn og alltaf var komið í Meiðavelli, já í hverri ferð með allan hópinn. Gestrisni fylgdi alltaf heimilinu, Þórey móðir Guðrúnar var mjög gestrisin og svo tók dóttirin við og Óskar hennar maður. Þessar minningar ásamt svo mörgum öðrum eru geymdar í okkar banka. Lífið var þó ekki alltaf dans á rósum hjá frænku, fullorðin glímdi hún við slit í mjöðmum og varð að styðjast við göngugrind í mörg ár. Einkasoninn Árna missti hún fyrir nokkrum árum og var þá orðin ein eftir á búinu. Guðrún átti góða að sem sinntu henni afbragðs vel. Viljum við sérstaklega nefna Ágústu Ágústsdóttur, sem reyndist vin- ur í raun, og Ingólf Herbertsson og hans fjölskyldu en Ingólfur var viðloðandi Meiðavelli frá því að hann var ungur drengur. Þeim og öðrum aðstandendum vottum við innilega samúð. Hulda og Kristín Erlingsdætur. Guðrún Árnadóttir Harpa Heimisdóttir Útfararstjóri Hrafnhildur Scheving Útfararþjónusta Kirkjulundur 19  210 Garðabær sími 842 0204  www.harpautfor.is Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda MEÐ VIRÐINGU OG KÆRLEIK Í 66 ÁR Útfarar- og lögfræðiþjónusta www.útför.is Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARÍA SIGURÐARDÓTTIR, áður til heimilis að Hlíðarvegi 50, Njarðvík, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 22. september kl. 13. . Haukur Gígja, Jón Rósmann Ólafsson, Magnea María Ívarsdóttir, Bjarney Ásgeirsdóttir, Friðjón Axfjörð, Helga Hauksdóttir, Skúli Magnússon, Hulda Hauksdóttir, Hildur Hauksdóttir, Einar Jón Pálsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÞÓRELFUR JÓNSDÓTTIR leikskólakennari, lést miðvikudaginn 16. september á hjúkrunardeild Hrafnistu í Hafnarfirði. Útför hennar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju 25. september kl. 11. . Reynir Jóhannsson, Lára Björk Magnúsdóttir, Bragi Jóhannsson, Árný S. Steindórsdóttir, Brynjar Jóhannsson, Hjörtur Jóhannsson, Ragnhildur Gunnarsdóttir og barnabörn. ✝ Látin eru í Bandaríkjunum hjónin GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR PACIOREK og JOSEPH MIKAEL PACIOREK. Guðrún fæddist 15. janúar 1919 í Björnskoti undir Eyjafjöllum en hafði búið í Bandaríkjunum í 70 ár þegar hún lést 4. júlí 2014. Joseph fæddist í Bandaríkjunum 29. september árið 1918 og dó 24. apríl 2015. Blessuð sé minning þeirra hjóna. Fjölskylda mín vottar börnum þeirra, ættingjum og vinum samúð. Fjóla Pálsdóttir og synir. Elskuleg frænka okkar, ÞÓRA ARADÓTTIR SICKELS, andaðist þriðjudaginn 1. september á heimili sínu í New Jersey í Bandaríkjunum. Útförin hefur þegar farið fram. Minningarathöfn verður í Fossvogskapellu fimmtudaginn 24. september kl. 15. . Systkinabörnin. Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BIRGIR EYDAL prentari, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð 14. september 2015. Útförin fer fram frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 24. september kl. 13. . Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabarn. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.