Morgunblaðið - 19.09.2015, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 19.09.2015, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2015 Kúba Beint flugmeð Icelandair 23.–30. nóv. Verð frá *á mann í tvíbýli með öllu inniföldu á Melia Varadero hótelinu. Verð án Vildarpunkta 279.900 kr. 269.900 kr.* Örfá sæti laus! og 12.500 Vildarpunktar Flogið með Icelandair Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Útlit er fyrir að boðið verði upp á allt að 400 viðburði í Hreyfiviku UMFÍ sem hefst á mánudag. Sífellt fleiri sveitarfélög taka þátt í vik- unni og þau sem fyrir voru gera það með myndarlegri hætti en áð- ur. Í ár er í fyrsta skipti efnt til sundkeppni á milli sveitarfélag- anna, í anda hliðstæðrar keppni sem fram fór samhliða Norrænu sundkeppninni á sínum tíma. Hugmyndin að sundkeppni hreyfivikunnar kom frá Fjalla- byggð og Norðurþingi sem ákváðu að efna til sundkeppni sín í milli. Ákveðið var að bjóða öllum sveitar- félögum landsins þátttöku og í gær höfðu 25 skráð sig. Keppnin fer þannig fram að sundgestum er gef- inn kostur á að skrá það í af- greiðslu sundlauganna hvað þeir synda langt þann daginn. Upplýs- ingar um stöðuna verða birtar reglulega. Það sveitarfélag vinnur sem er með flesta synta metra, á hvern íbúa. Hreyfivika UMFÍ er hluti af stóru lýðheilsuverkefni sem fer fram um alla Evrópu dagana 21. til 27. september. Markmiðið er að fá hundrað milljónir Evrópubúa í við- bót til að hreyfa sig reglulega fyrir árið 2020. Ekki er vanþörf á, eins og Sabína Steinunn Halldórsdóttir, landsfulltrúi UMFÍ, bendir á. Rann- sóknir sýna að fjórir af hverjum fimm Evrópubúum hreyfa sig ekki nóg. Sabína er ánægð með undir- tektir sveitarfélaga og íbúa. Í fyrra náðist 50% aukning. „Við vonumst eftir aukningu núna en lítum á þetta sem langhlaup,“ segir hún. Viðburðirnir eru mjög fjölbreyttir. Sabína nefnir gönguferðir til og frá kirkju, jóga og hlaup en segist geta talið endalaust upp. Íbúarnir séu duglegir að finna upp á nýjum og skemmtilegum viðburðum til að fá fólk af stað. Hægt er að nálgast upplýsingar um viðburði á vef UMFÍ, umfi.is. Hún segir mikilvægt að hver og einn íbúi finni sína leið til að huga að heilsunni. Mælt er með því að hjartadælan fái að slá kröftug- lega í að minnsta kosti 30 mínútur á dag til að lengja líf sitt. Þeim tíma má skipta niður í lotur, til dæmis þrisvar sinnum tíu mínútur í senn. Allir geta tekið þátt í sundkeppni sveitarfélaga Hátt í 400 viðburðir skráðir í Hreyfiviku UMFÍ sem hefst á mánudag Morgunblaðið/Golli Upphitun 66 nemendur úr 5. bekk Langholtsskóla mættu í gær að þjónustumiðstöð UMFÍ til að hita upp fyrir hreyfivikuna. Greiðslumark í mjólk mun lækka um 3 milljónir lítra á næsta ári, ef farið verður að tillögum fulltrúa bænda og afurðastöðva. Áfram er gert ráð fyrir aukningu í sölu en greiðslumarkið lækkar vegna þess að útlit er fyrir að í ár takist að safna nægum birgðum. Stuðningur ríkisins við mjólkur- framleiðsluna, beingreiðslur, skipt- ist á milli bænda eftir greiðslumarki lögbýla. Það var aukið mikið í ár, eða úr 125 milljónum í 140 milljónir lítra. Var það gert vegna söluaukn- ingar en einnig til að auka við birgð- ir sem voru orðnar of litlar, út frá hagsmunum afurðastöðva. Ætlunin var að auka birgðirnar um fjórar milljónir. Nú er útlit fyrir að salan verði 134 milljónir lítra í ár þannig að birgðirnar aukast um 6 milljónir lítra. Í tillögu bænda og afurðastöðva er gert ráð fyrir að birgðir haldist óbreyttar og sal- an verði 137 milljón lítrar á næsta ári, miðað við fituinnihald. Þýðir það að greiðslumarkið verður 137 milljón lítrar og leggja þeir það til við land- búnaðarráðherra. Það þýðir að greiðslumarkið verður 3 milljónum lítra minna en í ár. Sigurður Loftsson, formaður Landssambands kúabænda, segir að breytingar á greiðslumarki hafi ekki teljandi áhrif á hag kúabænda. Yfir- lýsing afurðastöðva um að greiða fullt verð fyrir alla framleidda mjólk út næsta ár standi. Það skipti mestu máli fyrir hag þeirra. Auðveldara að ná kvótanum Heildarstuðningur ríkisins breyt- ist ekki við hækkun eða lækkun greiðslumarks. Sigurður segir að þeir bændur sem átt hafi erfitt með að framleiða að fullu uppi í kvótann vegna mikillar aukningar undanfar- in ár, muni komast nær greiðslu- marki sínu eða ná því alveg. Það muni draga úr skerðingu bein- greiðslna þeirra. Á sama hátt muni stuðningsgreiðslur til þeirra sem framleitt hafa umfram kvóta minnka. helgi@mbl.is Sigurður Loftsson  Tillaga til landbúnaðarráðherra  Breytir litlu fyrir bændur Greiðslumark í mjólk minnkar um 3 millj. lítra „Okkar hugur er hjá starfsfólkinu sem er að missa vinnuna en nær- þjónustan fer einnig úr byggð- arlaginu,“ segir Elías Jóna- tansson, bæjar- stjóri í Bolungar- vík, þegar við- bragða hans er leitað við ákvörðun Landsbankans að loka útibúum og afgreiðslum á þremur stöðum á norðanverðum Vestfjörðum og sameina í eitt á Ísa- firði. Landsbankinn innlimaði nýlega starfsemi Sparisjóðs Norðurlands. Ákvörðun um sameiningu útibúanna er tekin í kjölfar þess, í hagræðing- arskyni. Þannig verður útibúunum í Bolungarvík og á Suðureyri og af- greiðslu bankans á Þingeyri lokað í næstu viku. Útibúið í Bolungarvík er langstærsta starfsstöðin sem lokað er. Það er byggt á grunni Sparisjóðs Bolungarvíkur. Hluti starfsfólksins þar færist í útibúið á Ísafirði sem á að efla. Alls hætta 11 starfsmenn vegna breytinganna, flestir í Bol- ungarvík. Vilja önnur störf í staðinn Ákvörðun Landsbankans er harð- lega mótmælt í bókun bæjarráðs Bolungarvíkur frá því í gærkvöldi. Vakin er athygli á því að með til- færslu starfa við sameiningu sýslu- mannsembætta og nú lokun útibús Landsbankans sé á annan tug starfa fluttur úr bæjarfélaginu á nokkrum mánuðum. Þessi störf séu öll á veg- um ríkisins eða fyrirtækis í eigu rík- isins og gerir bæjarráðið kröfu um að önnur starfsemi á vegum ríkisins verði fundinn staður í Bolungarvík. „Okkur þykir þetta miður. Það er verið að minnka þjónustu við íbúana. Störfin eru einnig mikilvæg því svona störf liggja ekki á lausu,“ seg- ir Arna Lára Jónsdóttir, formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar. Hún segir að vissulega hafi banka- viðskipti á netinu aukist. Hins vegar sé meðalaldur fólks á þessu svæði frekar hár. „Við höfum mestar áhyggjur af eldra fólkinu sem notar útibúin meira.“ Hún tekur fram að það mildi aðeins áfallið að bankinn ætli að veita þjónustu á Þingeyri einu sinni í viku. helgi@mbl.is Áhyggjur af starfs- fólkinu Bolungarvík Störfum fækkar.  Landsbankinn lok- ar útibúum vestra Landsvirkjun hefur ákveðið að fresta mögulegri takmörkun á af- hendingu rafmagns til viðskiptavina um einn mánuð í ljósi bættrar miðl- unarstöðu eftir aukið innrennsli í miðlunarlón á síðustu vikum. Þrátt fyrir aukið innrennsli á síðustu dög- um telst vatnsárið enn mjög þurrt og ríkir áfram óvissa um fyllingu miðl- unarlóna fyrir veturinn, segir í frétt frá Landsvirkjun. Staða í miðlunum í lok ágúst var slæm, sérstaklega í Hálslóni. Í ljósi stöðunnar tilkynnti Landsvirkjun í byrjun september að líklega þyrfti að nýta ákvæði í samningum og draga úr raforkuframboði í vetur. Í kjölfar hlýinda síðan í byrjun september tók innrennsli mikið við sér, einkum á Austurlandi, en þar fór hæsta dagsmeðaltal innrennslis til Hálslóns í 580 m3/s hinn 13. sept- ember, en það er mesta innrennsli í september frá því miðlunin var tekin í notkun. Í september hefur heild- arfylling miðlana fyrirtækisins batn- að verulega og stendur fyllingin nú í 85,5% en var 69,0% í lok ágúst. Fresta takmörkun á orkuafhendingu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.