Morgunblaðið - 19.09.2015, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 19.09.2015, Blaðsíða 44
44 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2015 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Að læra er ekki að læra utan að, heldur að taka þátt í lífinu. Láttu einföld vandamál ekki verða að fjallháum hindrunum heldur leystu þau bara með bros á vör. 20. apríl - 20. maí  Naut Þær hindranir sem hafa staðið í vegi fyrir ferðaáætlunum þínum að undanförnu eru loks úr vegi. Af þeim sökum ættir þú að reyna að taka þátt í skapandi athæfi. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Spurðu sjálfan þig af hverju þú þarft alltaf að vera að afreka eitthvað. Svo er bara að spila rétt úr og gera sitt besta. Not- aðu nú tækifærið og talaðu hreint út um hlutina. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það er ýmislegt að gerast hjá þér núna og þú átt fullt í fangi með að komast yfir það allra nauðsynlegasta. Erfitt samtal sem þú kvíðir mun reynast þér auðvelt. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú getur flogið án mótors – sem er reyndar að svífa. Farðu yfir stöðu mála og athugaðu hvað þú getur gert til þess að létta á spennunni. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það losnar mikil orka þegar þú losar um dagskrána hjá þér. Ekki hafa áhyggjur af því að vera ekki eins og hinir – í staðinn skaltu nýta þína einstöku hæfileika. 23. sept. - 22. okt.  Vog Mundu að þú hefur sjálfur mikið um það að segja hvernig mynd aðrir fá af þér. Gættu þess að skuldbinda þig ekki á nokk- urn hátt. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú stendur á tímamótum og þarft að gera upp hug þinn til nýrra verk- efna. Vonir þínar aukast og þú bætir sjálfan þig smám saman. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Gefðu gaum að orðum þínum, því þau hafa mikla þýðingu og geta skorið úr um það hvort þú nærð árangri eða ekki. Markmiðin verða að vera raunhæf. 22. des. - 19. janúar Steingeit Sýndu samstarfsfólki þínu meiri sanngirni og umburðarlyndi. Leggðu allt kapp á að finna farsæla lausn og létta undir með félaga þínum. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Draumar eru kraftmiklir en þeir sem skilja ekki takmarkanir raunveruleikans munu vinna tvöfalt verk. Einföld áætlun með fáu fólki. Taktu þig á. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það er farsælla að segja hug sinn en byrgja allt inni. Fáðu góðan vin til að slást í för með þér. Síðasta gáta var sem endranæreftir Guðmund Arnfinnsson: Prýða þykir prestinn sá. Pils og bolur konum á. Stertimenni hæfir hann. Hafs á öldum bruna kann. Helgi Seljan segist hafa verið hikandi en gátuvísan hafi ekki vaf- ist fyrir konu hans og dóttur: Hollt er að fara í heilabað þar hitt og annað leynist. En gott er að eiga góða að á gati ef ég reynist. Í kjólgopa kátlegur prestur, kjóllinn er frúnum albeztur. Í kjólfötum karlar sig stæra en kjóllinn mun öldurnar bæra. Árni Blöndal svarar: Prestar fengu kall og kjól. Konur fóru í danskan kjól. Fara menn í kjól og hvítt. Kjóll var skip, á höfum títt. Guðrún Bjarnadóttir á þessa lausn: Presturinn sinnir kalli í kjól. Í kjól fer gaur með hlátur. Kjólfötin örva allskyns hól. Orðabók: Kjóll er bátur. Sigurður Jónsson svarar: Prestur heldur kjóli og kalli. Kjóllinn vífin prýða má. Í kjólfötum má klifra af stalli. Kjóllinn rann um víðan sjá. Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una þannig: Allvel kjóll á klerki fer. Kjóll er flík á svönnum. Kjóll á herra sómir sér. Siglir kjóll á hrönnum. Og limra fylgir: Klæddur Jón í kjólinn er og vestið, kjagar út og hestasteininn sest við, orðinn mesta hró, að heiman ætlar þó, hann er nú að fara að berja nestið. Síðan sendir Guðmundur nýja gátu: Við bakstur mælieining er. Oss hann fyrir gjósti ver. Nefnist klerkur norðanlands. Notalegt er tárið hans. Örn Arnarson orti: Prédikaði presturinn píslir vítiglóða. „Amen,“ sagði andskotinn. Aðra setti hljóða. Vinsemd brást og bróðurást, breyttist ást hjá konum. Matarást var skömminni skást. Skjaldnast brást hún vonum. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Ekki er sama kjóll og kjóll Í klípu „ÉG GET EKKI HJÁLPAÐ ÞÉR EF ÞÚ VILT EKKI TALA, SENDA SMS, TVÍTA, BLOGGA EÐA SETJA INN PÓST Á FACEBOOK UM VANDAMÁLIÐ.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „EF ÞÚ HELDUR ÁFRAM AÐ NAGGA Í MÉR UM ÞAÐ AÐ GIFTA OKKUR, MUN ÉG SLÍTA TRÚLOFUNINNI.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... þegar hann setur ástarbréf í „INN“- kassann þinn. KETTIR STUNDA VÍÐ- TÆKAR RANNSÓKNIR LEMJ! ÞETTA VAR VONT! ÁHUGAVERT... HVERNIG LÍTUR MORGUNNINN ÚT? ÉG VEIT ÞAÐ EKKI ENN... VILTU HJÁLPA MÉR AÐ KAUPA Á MIG NÝJAN KJÓL? ÉG ER NOKKUÐ VISS UM AÐ HANN LÍTUR EKKI ÞANNIG ÚT Sundlaugar landsins eru algjörarperlur. Víkverji heldur að Ís- lendingar geri sér oft ekki almenni- lega grein fyrir því hvað við Íslend- ingar búum vel að eiga allar þessar flottu laugar í öllum byggðum lands- ins. x x x Í sumar rakst Víkverji á erlendaferðamenn. Þetta voru hjón frá Þýskalandi. Maðurinn hafði komið hingað í kringum árið 1970, þá ungur og einhleypur. Þá ferðaðist hann um á puttanum, fór hringinn og skoðaði allt landið. Nú rúmum 40 árum síðar kom hann hingað ásamt konu sinni. Þau ferðuðust víða. x x x Þjóðverjinn sagði að það sem þauhefðu í raun gert var að þræða allar sundlaugar sem þau mögulega gátu komist ofan í. Þau áttu ekki til orð yfir því hversu margar þær voru, í öllum byggðarlögum landsins. Og hversu flottar þær væru, svo ekki væri talað um verðið ofan í herleg- heitin. Það var ótrúlega lágt, að þeirra mati. x x x Víkverji getur tekið undir allt semþessi hjón sögðu, fyrir utan verð- lagið. Honum finnst það temmilegt og það ætti ekki að hækka. Að greiða yfir þúsund krónur fyrir góða stund með fjölskyldunni sem saman stend- ur af svamli og hreyfingu er vel gert. x x x Víkverji er vanafastur á sundlaug-ar en reynir að prófa nýjar laug- ar við hvert tækifæri. Hann brá sér um daginn í sundlaugina á Selfossi en það skal tekið fram að hann hefur farið í hana ótal sinnum. Endurbætur á lauginni sem hafa tekist ákaflega vel, ný innisundlaug ásamt flottum nýjum búningasklefum. Þetta er allt ákaflega snyrtilegt. Kaldir pottar er nýjasta æðið hér á landi og má finna þá í nánast öllum laugum landsins, eftir því sem Vík- verji kemst næst. Víkverji hefur þó eitt út á þá að setja og það er hversu erfitt það er að komast ofan í þá og upp úr. Þeir eru ekki nógu vel hann- aðir að mati Víkverja. Hann lætur það þó ekki stoppa sig að kæla sig niður. víkverji@mbl.is Víkverji Sá sem ástundar réttlæti og kærleika, öðlast líf, réttlæti og heiður. (Orðskv. 21:21)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.