Morgunblaðið - 19.09.2015, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 19.09.2015, Blaðsíða 52
Blóðug er sú staða að þeir styrkir sem afreksíþróttafólkið getur þó fengið fara meira eða minna í ferða- kostnað og gistingu. Þess vegna er spurning hvort fullreynt sé með að gera út þennan þátt starfsemi ÍSÍ héðan frá eyjunni og færa þessa starfsemi á meginland Evrópu, segir Kristján Jónsson í viðhorfsgrein um afreksmál og styrki. »2 Er rétt að flytja afreks- starfið til Evrópu? LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 262. DAGUR ÁRSINS 2015 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í LAUSASÖLU 838 ÁSKRIFT 5295 HELGARÁSKRIFT 3307 PDF Á MBL.IS 4696 I-PAD ÁSKRIFT 4696 VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. „Aldrei aftur íslenskar vörur“ 2. Íslenskar vörur teknar úr hillum 3. Vínbúðum lokað 4. Baltasar og börnin í eftirpartíi  Meðal fjölda viðburða á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, sem hefst í næstu viku, er dagskrá með kvikmyndatónskáldinu Atla Örv- arssyni sem hefur starfað í Holly- wood í 15 ár. Sýnd verða brot úr verk- um Atla og hann situr fyrir svörum. Dagskrá með Atla Örvarssyni á RIFF  Magnús Eiríks- son, tónlistar- maður og laga- höfundur, varð sjötugur á dög- unum. Í tilefni af- mælisins er efnt til tvennra tón- leika í Eldborg- arsal Hörpu í dag, þar sem öll þekktustu lög Magnúsar munu hljóma, flutt af honum og öðr- um valinkunnum tónlistarmönnum, þar á meðal Pálma Gunnarssyni, Ell- en Kristjánsdóttur og KK. Afmæli Magnúsar fagnað á tónleikum  UNICEF á Íslandi og KEXLand standa í dag fyrir viðamiklum tón- leikum til styrktar neyðarsöfnun UNICEF fyrir börn frá Sýrlandi. Tón- leikarnir hefjast kl. 15.30 í portinu við KEX hostel og standa til 22. Listamennirnir gefa allir vinnu sína. Fram koma DJ Flugvél og geimskip, Sin Fang, Júníus Mey- vant, Vagina Boys, Mammút, Agent Fresco og FM Bel- fast. Leika til styrktar börnum frá Sýrlandi FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustanátt, 13-18 m/s, og rigning með köflum. Hægari og þurrt að kalla á Norður- og Austurlandi. Hiti 9 til 17 stig, hlýjast fyrir norðan. Á sunnudag Suðaustan 8-15 m/s og rigning, en þurrt og bjart veður norðaustanlands. Hiti 9 til 17 stig, hlýjast á Norðausturlandi. Á mánudag Minnkandi suðaustanátt og súld eða rigning á sunnanverðu landinu, en úrkomulítið síðdegis. Víða léttskýjað norðantil. Hiti 8 til 13 stig að deginum. „Varðandi langtímamark- mið þá langar mig til að bæta heimsmetið enda hef- ur það staðið allt of lengi,“ segir kringlukastarinn ungi Guðni Valur Guðnason sem hefur tekið stórstígum framförum. „Ég verð að við- urkenna að hann er með gríðarlegan styrk og hraða í mjöðminni úr golfinu og það virkar beint inn í köstin,“ segir þjálfarinn hans. »1,4 Langar til að bæta heimsmetið FH-ingar geta orðið Íslandsmeistarar karla í knattspyrnu í sjöunda sinn á morgun þegar þeir heimsækja Breiðablik í 20. umferð Pepsi- deildarinnar. Róbert Örn Óskarsson markvörður segir að FH-ingar séu ekki farnir að panta veislusalinn ennþá og Höskuldur Gunnlaugsson úr Breiðabliki segir að það komi ekki til greina að FH fagni meistaratitlinum í Kópavogi. » 2-3 Verður FH meistari í sjöunda sigri á morgun? Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Stikla úr mynd um starfsemi vél- sleðaklúbbsins Team 23 – Akureyri hefur verið birt á netinu (vimeo.com- /139028976) og hefur vakið töluverða athygli, að sögn Friðriks Karls- sonar, talsmanns hópsins. „Við vilj- um vekja athygli á starfinu og þetta er brot af því sem koma skal,“ segir hann. Nokkrir ungir vélsleðaeigendur á Akureyri byrjuðu að bera saman bækur sínar á Facebook fyrir rúm- um tveimur árum, hittust og fóru saman í sleðaferðir. „Þetta vatt upp á sig og fljótlega stofnuðum við klúbbinn formlega í þeim tilgangi að sýna fólki hvað við værum að brasa,“ segir Friðrik. Hverrar krónu virði 20 strákar eru í klúbbnum og er Friðrik, 18 ára nemi í Verkmennta- skólanum á Akureyri, næstyngstur. Þeir yngstu eru 17 ára og þeir elstu 29 ára. „Þetta er dýrt sport en hverrar krónu virði, við lifum fyrir þetta og setjum annað aftar á for- gangslistann,“ segir Friðrik. Flestir félagsmenn eru í skóla en þeir nota helgarnar á veturna til þess að spreyta sig saman. „Við get- um flestir keyrt beint úr skúrnum og upp á fjall,“ segir Friðrik. Bætir við að þeir reyni samt að fara sem víðast í nágrenninu og nefnir þriggja daga veislu í Ólafsfirði í apríl síðastliðnum í því sambandi. „Svo fórum við á Snæfellsjökul í júní,“ segir hann. Sleðasport er ekki hættulaust með öllu en Friðrik segir að menn reyni að fara varlega og ekki hafi orðið alvarleg slys í hópnum. Þeir séu vel útbúnir, ávallt í viðeigandi hlífðarfatnaði og með snjóflóðavarn- ir. Einnig séu hafðir með sjúkrapok- ar og sjálfur sé hann í björgunar- sveit. „Þótt við förum stundum geyst látum við skynsemina ráða,“ segir hann. Félagarnir fengu styrki til smíða á sérstökum þriggja metra háum rampi í þeim tilgangi að auka fjöl- breytnina í stökkunum. „Hug- myndin er að smíða annan ramp, en við eigum eftir að leita styrkja til smíða á honum,“ segir Friðrik. Friðrik kemur einnig inn á að gaman væri að endurvekja keppni í snjókrossi, sem lagðist af samfara bankahruninu. Snjókross er keppni á vélsleðum, þar sem eknir eru hringir í braut líkt og í mótorkrossi. Friðrik segir að mikil gróska hafi verið í íþróttinni víða um land og keppt á stöðum fyrir norðan og aust- an eins og á Akureyri, Mývatni og Egilsstöðum. „Svona keppni er mjög vinsæl víða erlendis,“ segir hann. Ungir ofurhugar á Akureyri  Vilja endur- vekja keppni hér- lendis í snjókrossi Ljósmyndir/Axel Darri Þórhallsson Pedromyndir Á ferðinni Friðrik Karlsson kann ýmislegt fyrir sér á vélsleðanum og nýtur lífsins í snjónum á fjöllum. Á sjó Elvar Örn Rafnsson á vélsleða í grennd við Dalvík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.