Morgunblaðið - 19.09.2015, Page 10

Morgunblaðið - 19.09.2015, Page 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2015 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Ævintýraþrá var kveikj-an að því hjá mér aðfara út í það að lærafiðlusmíði. Mig lang- aði að færa mig inn á nýjar brautir, en ég er lærður húsasmíðameistari og var til margra ára með mitt eigið verktakafyrirtæki. En Erlingur Jónsson kynnti mig fyrir tréskurði þegar ég var í gaggó og ég hef allar götur síðan verið heillaður af út- skurði og fíngerðri smíðavinnu. En á þeim árum sem ég var að læra húsa- smíðina, í kringum 1980, þá þótti nú ekki efnilegt að fara í hljóðfæra- smíði, það þótti dund sem fólk gerði í hjáverkum,“ segir Jón Marinó Jóns- son fiðlusmiður sem undanfarin fimmtán ár hefur smíðað og gert við strengjahljóðfæri. Flutti til Englands til að læra „Árið 1997 ákváðum við hjónin að breyta til og við fluttum til Eng- lands þar sem ég fór að læra fiðlu- smíði. Ég lagði áherslu á strok- hljóðfæri í mínu námi og kom heim um aldamótin 2000 og fór að vinna við þetta á fullu, bæði við smíðar og viðgerðir. Ég var fyrst með verk- stæði í Kópavogi og þetta hefur und- ið upp á sig síðan. Reyndar fór ég aðeins inn í húsasmíðina aftur um tíma, en hugurinn leitaði alltaf aftur í hljóðfærin og eftir að við Gunnar Örn rafgítarsmiður ákváðum að leigja saman aðstöðu hér í Braut- arholtinu, þá varð ekki aftur snúið,“ segir Jón sem unir hag sínum vel með kollegum sínum á verkstæðinu, þeim Gunnari Erni Sigurðssyni sem smíðar og gerir við rafmagnsgítara og Ylju Linnet sem sér um hljóð- færaviðgerðir. Tvö hundruð klukkutímar liggja að baki einni víólu Jón Marinó er að gera við selló þegar blaðamann ber að garði, enda tekur hann að sér að gera við allar tegundir strengjahljóðfæra. Tveir kontrabassar halla sér upp að borði hans en þá segist hann ekki hafa smíðað, hann hafi ekki enn lagt í það, enda taki það þrjá til fjóra mánuði. „Hljóðfærasmíði er skemmti- legt handverk, en gríðarleg ná- kvæmnisvinna liggur þar að baki. Það liggja til dæmis rúmir tvö hundruð klukkutímar að baki smíði á einni víólu. Ferlið er fimm vikur, fjórar vikur fara í grófsmíðina, að koma hljóðfærinu saman og gera það klárt undir lökkun, en síðan er mikil vinna í lökkuninni enda eru tíu til tólf lög af lakki á einni víólu. Fyrst þarf að grunna til að loka viðnum, en lakkið má ekki fara inn í viðinn því það stífar viðinn og skemmir tóninn. Síðan koma þrjár til fimm umferðir af lit og þrjár til fjórar umferðir af glæru lakki í lok- in.“ Jón Marinó segir að sér finnist gaman að smíða víólur, þær séu í sérstöku uppáhaldi hjá honum. „Víólan er aðeins stærri en fiðl- an, hún er strengd upp eins og selló- ið og hún er í annarri tóntegund en fiðlan. Ég er sérlega ánægður með að einleikur á víólu er orðinn miklu Að kunna að lesa viðinn skiptir máli Hann smíðar og gerir við strengjahljóðfæri og skiptir líka um hár í bogum. Hann hefur verið heillaður af tréskurði alveg frá því hann var unglingur. Hann skipti fyrir fimmtán árum úr húsasmíði í hljóðfærasmíði og sér ekki eftir því. Hann kann vel við nákvæmnisvinnuna sem liggur að baki hljóðfærasmíði. Á verkstæðinu Jón vinnur hér í baki víólu sem spilað verður á í framtíðinni. Í vinnslu Fiðlur og víólur sem eftir er að klára hanga á vegg og bíða eigenda. Í ár eru hundrað ár liðin frá því kon- ur fengu kosningarétt til Alþingis og af því tilefni stóð RIKK – Rannsóknastofnun í jafnrétt- isfræðum við Háskóla Íslands – fyrir hádegisfyrirlestraröð sem helguð var íslenskum ömmum. Markmiðið var að segja sögur kvenna sem lifðu þann tíma þegar nútíminn hóf inn- reið sína á Íslandi í lok 19. aldar og á fyrri hluta 20. aldar, og varpa ljósi á framlag þeirra, stöðu og aðstæður. Fyrirlesararnir voru gríðarvinsælir og nú er komið að því að flytja þá út fyrir höfuðborgina og halda málþing um sama efni á nokkrum stöðum um landið. Eitt slíkt verður haldið í Edinborgarhúsi á Ísafirði í dag kl. 13. Þar mun Ármann Jakobsson, prófessor í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands, m.a. flytja fyr- irlestur sinn „Tvær afasystur: Katrín Thoroddsen og Hulda Jakobsdóttir“. Einnig munu Jóna Símonína Bjarna- dóttir, Valdimar J. Halldórsson og Þóra Þórðardóttir halda erindi um ömmur sínar. Á Skagaströnd verða einnig ömmufyrirlestrar í dag kl. 13:30 í Bókasafni Halldórs Bjarna- sonar, Gamla kaupfélagshúsinu, Ein- búastíg. Þar mun Súsanna Margrét Gests- dóttir vera fulltrúi ömmufyrirlestra- raðarinnar og flytja fyrirlestur sinn um ömmu sína og nöfnu: „Það var sól þann dag – um Súsönnu Mar- gréti Gunnarsdóttur frá Ströndum (1926-2002)“. Einnig mun Nanna Þorbjörg Lárusdóttir sagnfræðingur segja frá Góðtemplarastúkum og fleiri fyrirlestrar verða í boði. Nánar um dagskrána á: rikk.hi.is Allir velkomnir, aðgangur ókeypis. Vefsíðan www.rikk.hi.is Morgunblaðið/Arnaldur Ömmur framtíðarinnar Snótir á Árbæjarsafni voru vaskar með prjónana. Sögur af allskonar ömmum á Ísafirði og Skagaströnd í dag Heilmikið spilafjör verður um helgina í höfuðborginni þegar Spilavinir fara á kreik með allskonar spil til að kynna fyrir fólki og spila við fólk. Spilagleðin verður í bókasafni Kringl- unnar í dag kl. 14-16 en á morgun sunnudag verður spilafjörið á sama tíma, kl. 14-16, í bókasafninu í Ár- bænum. Allir eru velkomnir að koma á opið hús í Árbænum og spila saman. Spilavinir mæta með kassa fulla af skemmtilegum spilum fyrir alla ald- urshópa og leiða fólk inn í ævintýra- heima spilanna. Sannarlega skemmtileg samvera með vinum og fjölskyldunni. Takið endilega ömmu og afa líka með! Spilafjör í dag og á morgun Spilavinir mæta með fullt af spilum og spila við alla Morgunblaðið/Eggert Spilavinir Allskonar spil gleðja. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.