Morgunblaðið - 25.09.2015, Side 1
F Ö S T U D A G U R 2 5. S E P T E M B E R 2 0 1 5
Stofnað 1913 225. tölublað 103. árgangur
BJARGAÐI LÍFI
BARNS Á AFMÆLIS-
DEGINUM SÍNUM
HEIMILI OG HÖNNUN
40 SÍÐUR
Á FERÐ UM ÍSLAND 18
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Mikil uppbygging er í gistingu í Mý-
vatnssveit. Reynt er að þjóna þeim
mikla og stórvaxandi fjölda ferða-
fólks sem þangað leggur leið sína.
Stærsta verkefnið framundan er
bygging Íslandshótela á 100 her-
bergja hóteli á Grímsstöðum, við
Kísilveginn. Sveitarfélagið hefur
auglýst breytingar á skipulagi til að
laga byggingarreitinn að þörfum
fyrritækisins. Byggingin verður
tveggja til þriggja hæða, allt að 5.000
fermetrar að stærð. Hótelið mun
blasa við frá veginum en falla inn í
hlíðina þegar þangað er litið lengra
frá. Útsýni frá væntanlegu hóteli
verður einstakt, yfir vatnið og sveit-
ina.
Icelandair Hotels hafa eignast
Hótel Reykjahlíð, gamalt hótel sem
stendur við vatnið og gengur í end-
urnýjun lífdaganna sem hluti af Ice-
landair Hotels. Uppi eru áform um
að stækka hótelið og gera það að hót-
eli í hæsta gæðaflokki. Hótel Gígur á
Skútustöðum hefur sýnt áhuga á að
stækka. Á síðasta ári var tekið í
notkun nýtt 80 herbergja hótel í Mý-
vatnssveit, Hótel Laxá og Sel-Hótel
Mývatn á Skútustöðum var stækkað.
Umræður eru meðal íbúa um áhrif
hins mikla fjölda ferðamanna á dag-
legt líf þeirra. Þá vinnur sveitar-
stjórn að stefnumörkun um upp-
byggingu ferðaþjónustunnar. Yngvi
Ragnar Kristjánsson oddviti segir
umræðuna snúast um hvað rétt sé að
leyfa mikla uppbyggingu hótela og
hvar. Telur hann að fólk vilji ekki sjá
sveitina kafna í hótelum. »22
Vilja ekki sjá sveitina kafna í hótelum
Umræða um áhrif ferðaþjónustu á
daglegt líf íbúa Mývatnssveitar
Morgunblaðið/Baldur Arnarson
Böð Stóraukin aðsókn að Jarðböðunum við Mývatn er til marks um þróunina.
Sólin skein um sunnanvert landið í gær og á förnum vegi sagði fólk að
þetta hefði verið einn besti dagur sumarsins, þótt langt væri liðið á sept-
embermánuð. Allt var í blóma, svo sem við veitingahús við Hverfisgötuna í
Reykjavík. Einhver bið virðist að minnsta kosti á að blómin sölni. En nú eru
veðrabrigði í nánd. Má búast við skýjuðu veðri sunnanlands og á laugardag
fer að rigna, ef að líkum lætur.
Blómin eru í biðstöðu
Morgunblaðið/Eggert
Enn er sólríkt seint í septembermánuði
Skúli Magn-
ússon, héraðs-
dómari og dósent
við lagadeild Há-
skóla Íslands,
sem jafnframt er
formaður Dóm-
arafélags Ís-
lands, telur að
endurupptöku-
nefnd hafi fengið
of mikil völd í hendur. Vafasamt sé
að fyrirkomulag við meðferð á
beiðnum um endurupptöku dóms-
mála standist grundvallarreglur
stjórnarskrárinnar um sjálfstæði
dómsvaldsins og réttláta máls-
meðferð.
Skúli segir að þarna sé stjórn-
valdsnefnd í raun komin með vald
til að fella dóma úr gildi og leggja
fyrir dómstóla að taka mál fyrir að
nýju. »6
Endurupptökunefnd
með of mikil völd
Skúli Magnússon
Efnahags- og viðskiptanefnd mun
fjalla um það hvort sá kröfulýsing-
arfrestur sem Alþingi þrengdi með
bráðabirgðaákvæði fyrr í sumar hafi
verið of stuttur. Kröfulýsingarfrest-
urinn varðar svokallaðar búskröfur
sem hægt var að lýsa í slitabú föllnu
viðskiptabankanna. Heimildir Morg-
unblaðsins herma að í ákveðnum til-
vikum hafi aðilar, sem eiga í réttar-
ágreiningi við slitastjórnirnar, ekki
náð að lýsa kröfum í búin innan
frestsins þar sem hann hafi verið of
skammur.
Í athugasemdum sem komið hefur
verið á framfæri vegna málsins er
þeirri spurningu velt upp hvort
stytting frestsins hafi brotið á eign-
arréttindum og farið í bága við með-
alhófsreglu stjórnsýslulaga. »20
Þingið endurskoðar
kröfulýsingarfrest
Alþingi Málið verður fyrst rætt í nefnd.
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Afkoma sveitarfélaga hefur versnað,
verkefnin aukast, launakostnaður-
inn vex stórlega og starfsmönnum
þeirra fjölgar en tekjurnar hafa ekki
aukist að sama skapi. Fram kom á
fjármálaráðstefnu sveitarfélaga í
gær að brýnt er að auka tekjurnar
og fá meiri hlutdeild í skattstofnum
ríkisins.
Sveitarfélögin vilja taka upp al-
vöru viðræður við ríkið um víðtækar
endurgreiðslur á virðisaukaskatti.
Karl Björnsson, framkvæmdastjóri
Sambands ísl. sveitarfélaga, kynnti
á ráðstefnunni ýmsar fleiri hug-
myndir um tekjuöflun, m.a. að öll
mannvirki verði háð fasteignamati
og núverandi undanþágur afnumd-
ar. Afnumdar verði allar undanþág-
ur frá álagningu fasteignaskatts og
sveitarfélög fái hlutdeild í tekjum af
raforkuframleiðslu, fyrst og fremst
fasteignaskatt af tilheyrandi mann-
virkjum.
Þá telja forsvarsmenn sveitarfé-
laga eðlilegt að þau fái hlutdeild í
tekjum af umferð. Nettóútgjöld
sveitarfélaga til gatna- og vegagerð-
ar eru um 7 milljarðar á ári en þau
bera ábyrgð á 15% vegakerfisins. Ef
þau fengju 15% af heildartekjum
vegna vegamála næmu tekjurnar
um 4,8 milljörðum á ári. Sveitar-
stjórnarmenn hafa einnig áhuga á
að fá stærri hlutdeild í tekjum rík-
isins af ferðaþjónustu til að standa
undir uppbyggingu á ferðamanna-
stöðum en fram kom að heildar-
tekjur hins opinbera af ferðaþjón-
ustunni í fyrra væru metnar á 40 til
54 milljarða. Nefndi Karl einnig
hugmyndir um að sveitarfélög
fengju þriðjungshlutdeild í arð-
greiðslum til hluthafa í fyrirtækjum,
sem svarar til tveggja milljarða kr. á
seinasta ári, og að þau fengju hlut-
deild í veiðigjöldum. 20% hefðu skil-
að þeim 5,5 milljörðum undanfarin
þrjú fiskveiðiár.
MÁstandið kallar á »12
Kalla eftir
meiri tekjum
af sköttum
Sveitarfélög vilja fá meira til baka af
virðisaukaskatti, tekjur af umferð og
afnám undanþága fasteignaskatts
Fangelsismálastofnun hefur neyðst
til þess að loka Barnakoti á Litla-
Hrauni um helgar vegna fjárskorts.
Páll Winkel, fangelsismálastjóri,
segir að niðurstaðan sé afleiðing
niðurskurðar á fjárheimildum. Enn
verður þó opið fimm daga vik-
unnar. Umboðsmaður barna, Mar-
grét María Sigurðardóttir, sendi
Fangelsismálastofnun bréf þar sem
skýringa var leitað. „Þessar hindr-
anir samrýmast illa réttindum
barna og eru líklegar til þess að
draga úr möguleikum þeirra til
þess að heimsækja foreldri á Litla-
Hrauni,“ segir umboðsmaður m.a. í
bréfinu og bætir við að ávallt beri
að leita annarra leiða til hagræð-
ingar en að skerða þjónustu við
börn. »4
Barnakoti á Litla-Hrauni lokað um helgar
vegna niðurskurðar á fjárveitingum