Morgunblaðið - 25.09.2015, Side 6

Morgunblaðið - 25.09.2015, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2015 VIÐTAL Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Vafasamt er að fyrirkomulag við meðferð á beiðnum um endurupp- töku dómsmála standist grundvall- arreglur stjórnarskrárinnar um sjálfstæði dómsvaldsins og réttláta málsmeðferð. Þetta er mat Skúla Magnús- sonar héraðs- dómara, sem jafnframt er for- maður Dómara- félags Íslands og dósent við laga- deild HÍ. Hann telur að með lög- um frá 2013 hafi ný endurupp- tökunefnd fengið of mikið vald í hendur. Þarna sé stjórnvaldsnefnd í raun komin með vald til að fella dóma úr gildi og leggja fyrir dóm- stóla að taka mál fyrir að nýju. Mæl- ir Skúli með að taka frekar upp fyr- irkomulag Dana, þar sem starfandi er sérstakur endurupptökudómstóll. Þrjár beiðnir samþykktar Nýverið var sagt frá því í Morgunblaðinu að endurupptöku- nefnd hefði í þremur af síðustu fjór- um úrskurðum sínum samþykkt óskir um að taka upp mál sem Hæstiréttur hafði dæmt í. Þar áður hafði nefndin hafnað öllum slíkum beiðnum sem borist höfðu á þessu ári. Endurupptökunefnd tók til starfa á árinu 2013, samkvæmt lögum sem þá töku gildi. Áður hafði Hæstirétt- ur fjallað um endurupptökubeiðnir. Tilkomu nefndarinnar má að nokkru leyti rekja til Geirfinnsmálsins. Áhyggjur höfðu verið uppi um að dómarar Hæstaréttar, sem fjölluðu um endurupptökubeiðnir, væru of tengdir viðkomandi máli og hætta var talin á að dómþolar fengju ekki hlutlausa umfjöllun. Skúli segir að ekki sé komin mikil reynsla á störf nefndarinnar en engu að síður hafi vaknað spurn- ingar í sínum huga um starfs- og lagagrundvöll nefndarinnnar. Hann segist hafa skilning á því að reynt hafi verið að bregðast við áhyggjum af fyrra fyrirkomulagi og hlutleysi Hæstaréttar. Það hafi þó verið hægt að gera með öðrum hætti en þeim að taka málin algjörlega úr höndum dómstólanna. Verulegt inngrip „Það vekur athygli við fyrirkomu- lagið með lögunum að stjórnsýslu- nefnd, þ.e. nefnd sem ekki er dóm- stóll eða starfar á vegum dóms- valdsins, er ætlað það hlutverk í reynd að fella úr gildi dóma og leggja fyrir dómstóla að taka mál til nýrrar meðferðar. Þetta er mikið vald og felur í sér verulegt inngrip í störf dómstóla. Sú spurning hlýtur að vakna hvort þetta fyrirkomulag, og þetta mikla vald, sé æskilegt og hvort það sé yfirhöfuð samrýman- legt grundvallarreglum um sjálf- stæði dómsvaldsins,“ segir Skúli og vísar þar einkum til 2. og 70 greinar stjórnarskrárinnar um réttaláta málsmeðferð fyrir dómi. „Það sem vekur sérstaka athygli er að synjun nefndar um beiðni um endurupptöku er ætlað að vera fullnaðarúrskurður sem ekki verður borinn undir dómstóla. Ég leyfi mér að segja að það ákvæði stenst örugglega ekki stjórnarskrána, eins og 60. greinina um úrskurðarvald dómstóla gagnvart stjórnýslu,“ seg- ir Skúli. Hvað eiga dómstólar að gera? Í síðustu viku var endurupptaka samþykkt þar sem meðferð líkams- árásarmáls fyrir Hæstarétti þótti verulega ábótavant. Komst endur- upptökunefnd m.a. að því að dómur héraðsdóms hefði aldrei verið birtur sakborningnum, sem ekki var við- staddur uppkvaðningu héraðsdóms. Fór málið til Hæstaréttar og frétti sakborningur af dómnum þar frá þriðja manni, auk þess sem í úr- skurði endurupptökunefndar er bent á að lögmaður sakbornings hafði ekki réttindi sem hæstaréttar- lögmaður og því ekki með heimild til að áfrýja málinu til Hæstaréttar. Um þessa niðurstöðu nefndarinn- ar segir Skúli að hún sé endilega ekki röng, en hins vegar ekki heldur hafna yfir gagnrýni. „Þeirri spurningu hefur hins veg- ar ekki verið svarað hvaða tökum dómstólar eiga að taka svona niður- stöðu, hvort það sé þannig að ný meðferð málsins fari sjálfkrafa fram eða hvort dómstólar muni endur- skoða niðurstöðu nefndarinnar, ef til vill þannig að ekki er talin ástæða til endurupptöku málsins.“ Engin fordæmi erlendis Skúli segir Dómarafélagið ekki hafa fjallað sjálfstætt um breytt fyrirkomulag við endurupptöku dómsmála en líklegt sé að það verði gert. „Þetta er vissulega atriði sem lýt- ur að sjálfstæði dómsvaldsins, sem félagið lætur sig mjög varða,“ segir Skúli og bendir á að þetta fyrir- komulag eigi sér engin fordæmi er- lendis, helst megi líkja þessu við Noreg þar sem starfandi er endur- upptökunefnd sakamála en án fulln- aðar-úrskurðarvalds. Hann telur að frekar eigi að hafa endurupptökunefnd sem hluta af dómstólaskipan, sem líkt og kom fram hér að framan er við lýði í Danmörku. Efast um endurupptökunefnd  Formaður Dómarafélagsins telur fyrirkomulag kringum endurupptökunefnd ekki standast ákvæði stjórnarskrár  Nefndin með of mikil völd  Mælir frekar með sérstökum endurupptökudómstól Skúli Magnússon Morgunblaðið/Ernir Hæstiréttur Áður en sérstök endurupptökunefnd tók til starfa 2013 fjölluðu dómarar Hæstaréttar um beiðnir um endurupptöku dómsmála. Innanríkisráðherra skipar í end- urupptökunefnd, samkvæmt gildandi lögum um nefndina (nr. 15/2013) og lögum um dóm- stóla (nr. 15/1998). Hlutverk nefndarinnar er að taka ákvörð- un um hvort heimila skuli end- urupptöku dómsmáls sem dæmt hefur verið í héraði eða Hæstarétti. Þrír aðalmenn sitja í nefndinni. Alþingi kýs einn að- almann og varamann hans og dómstólaráð og Hæstiréttur Ís- lands tilnefna hvort um sig einn aðalmann og varamann. Í nefndinni sitja nú Björn L. Bergsson hrl., formaður, til- nefndur af Hæstarétti, Elín Blöndal lögfræðingur, kosin af Alþingi, og Þórdís Ingadóttir dósent, tilefnd af dómstólaráði. Skipuð af ráðherra ENDURUPPTÖKUNEFND Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Ef sveitarfélögin vilja til dæmis kaupa af okkur fasteignir og ráð- stafa til flóttafólks erum við tilbúin til viðræðna. Það er lögum sam- kvæmt ekki hlut- verk okkar að starfa á leigu- markaði til lengri tíma. En þessi hugmynd verður skoðuð. Að finna eignum hlutverk með þessu móti hljómar nokkuð skynsamlega,“ segir Hermann Jónasson, forstjóri Íbúðalánasjóðs. Grynnkað hefur á safninu Á fjármálaráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga í gær sagði Halldór Halldórsson, formaður sambandsins, að sum þeirra fjöl- mörgu sveitarfélaga sem hefðu boð- ið fram aðstoð sína væru í þeirri stöðu að eiga ekki lausar íbúðir fyr- ir flóttafólkið. Víða væru hins vegar eignir sem Íbúðalánasjóður hefði leyst til sín og að nýta þær í nefnd- um tilgangi væri möguleiki í stöð- unni. Halldór nefndi Ölfus og Ár- borg í þessu samhengi og sagði þetta einnig eiga við um sveitar- félög á Vestfjörðum og víðar. Hermann Jónasson sagði að hug- myndir um þessa nýtingu á eignum Íbúðalánasjóðsins hefðu ekki áður komið inn á sitt borð. Hins vegar væri sjálfsagt að ræða málið. „Við eigum fjölda eigna sem eru annað- hvort í útleigu eða á söluskrá. Við erum að selja hús á hverjum degi og það hefur grynnkað talsvert á safninu að undanförnu,“ segir for- stjórinn. Sjóðurinn ráðstafar Eygló Harðardóttir félagsmála- ráðherra sagði á mbl.is í gær að í flóttamannamálinu hefðu ýmsir val- kostir í húsnæðismálum verið ræddir. Hins vegar væri það Íbúða- lánasjóður sem ráðstafaði sínum eignum, en ekki velferðarráðu- neytið. Sagt vera skynsamlegt að flóttamenn fái auðar íbúðir  Fasteignir Íbúðalánasjóðs verði nýttar  Valkostir ræddir Fasteignir Íbúðalánasjóður á fjölda eigna sem eru í leigu eða á söluskrá. Hermann Jónasson Konungsbók Eddukvæða og Eldrit séra Jóns Steingrímssonar voru meðal þeirra handrita sem þýski kvikmyndaleikstjórinn Werner Herzog og samstarfsmenn hans skoðuðu þegar þeir heimsóttu Árnastofnun og Landsbókasafn í gær. Herzog, sem er einn af þekkt- ustu kvikmyndaframleiðendum samtímans, er að að vinna að mynd sem nefnist Into the Inferno og fjallar um áhrif eldgosa á líf og ör- lög fólks um heim allan í sögulegu ljósi. Í föruneyti Herzogs voru Clive Oppenheimer, eldfjallafræðingur frá Cambridge, og Andy Orchard, prófessor í Cambridge, en hann er sérfróður um fornnorræna menn- ingu. Í Árnastofnun ræddu þeir við Gísla Sigurðsson rannsóknarpró- fessor og fengu að mynda handrit Konungsbókar þar sem Völuspá er varðveitt. Þetta forna kvæði virðist fræðimönnum innblásið af reynslu af eldgosum, sbr. „Fyllist fjörvi…“ og „Sól tér sortna“. Í Landsbókasafni hitti Herzog Ingibjörgu Steinunni Sverrisdóttur landsbókavörð sem sýndi honum handrit Jóns Steingrímssonar þar sem greint er frá Skaftáreldunum 1783 og eftirmálum þeirra. Eldarnir höfðu gífurleg áhrif hér á landi og raunar víða um heim. Herzog, sem er rúmlega sjötug- ur, hefur unnið til margvíslegra verðlauna á kvikmyndaferli sínum. Hafa margar mynda hans verið sýndar hér á landi. Oppenheimer hefur ritað víðlesna bók um eldgos og áhrif þeirra á mannkynssöguna. Myndaði Völuspá í Árnastofnun  Herzog gerir mynd um áhrif eldgosa Ljósmynd/Jóhanna Ólafsdóttir. Kvikmynd Werner Herzog ræðir við Gísla Sigurðsson prófessor.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.