Morgunblaðið - 25.09.2015, Side 9

Morgunblaðið - 25.09.2015, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2015 Guttormur V. Þormar, skógarbóndi í Geita- gerði í Fljótsdal, lést á Landspítalanum í gær- morgun, 92 ára að aldri. Hann var íþrótta- maður á yngri árum og tók virkan þátt í fé- lagsmálum sveitar sinnar og héraðs. Guttormur var fædd- ur í Geitagerði 19. febr- úar 1923, ólst þar upp og bjó alla sína ævi. Foreldrar hans voru Vigfús Guttormsson Þormar, bóndi og hreppstjóri þar, og kona hans, Helga Þorvaldsdóttir Þormar hjúkrunar- kona. Guttormur var gagnfræðingur frá Akureyri, sat þar í framhaldsdeild og bætti við sig námi með ýmsum námskeiðum, svo sem kennara- og íþróttanámskeiðum. Hann var í nokkur ár kennari í Fljótsdalsskóla- hverfi. Bóndi og hreppstjóri í Geita- gerði frá 1954, fyrst með fjárbúskap en síðan lengi skógarbóndi. Guttormur var mik- ill frjálsíþróttamaður. Keppti meðal annars á fimm landsmótum ungmennafélaganna og var stigahæsti íþróttamaðurinn á sínu fyrsta landsmóti, á Hvanneyri 1943. Hann starfaði í ungmenna- félagi, Ungmenna- og íþróttasambandi Austurlands, félagi ungra sjálfstæðis- manna og vann mikið að fræðslumálum. Hann var í stjórnum búnaðarfélags og skógræktarfélags og var fulltrúi á Búnaðarþingi um árabil. Þá var hann afar lengi hrepp- stjóri og jafnframt í sveitarstjórn Fljótsdalshrepps. Guttormur var fréttaritari Morg- unblaðsins í áratugi. Eiginkona hans, Þuríður Dagný Skeggjadóttir, lést fyrir tuttugu ár- um. Börn þeirra eru Ragnheiður, Vigfús, Jóhanna, Skeggi og Stefán, öll Þormar. Andlát Guttormur V. Þormar Röng mynd með viðtali Röng mynd fylgdi með viðtali við Þórunni Rafn- ar Þorsteins- dóttur, verk- efnastjóra sýklalyfjanæmis á Keldum, í Morgunblaðinu í fyrradag. Fylgir hér með rétt mynd. Myndin sem fylgdi með viðtalinu var af Þórunni Rafnar Bjarnadóttur, frænku Þórunnar Rafnar. Beðist er velvirðingar á mistökunum. Jónína er Leósdóttir Í blaðinu í gær var rangt farið með nafn íslensks rithöfundar sem fram kom í vinsælum sænskum útvarps- þætti. Um er að ræða Jónínu Leós- dóttur. Beðist er velvirðingar á mis- tökunum. LEIÐRÉTT Þórunn Rafnar Þorsteinsdóttir Síðumúla 13 | 108 Reykjavík | Sími 571-3566 Opið: Þri. - föst. 10-18 laugardaga 11-16 Aðeins það besta fyrir barnið! yndislegur, mjúkur, lífrænn, fatnaður og fylgihlutir frá by Heritage facebook.com/biumbiumstore Instagram: @biumbiumstore SLIK -SLÉTTUJÁRN SLIK -KEILUJÁRN slik -hárblásari SLIK -KRULLUJÁRN lúxushártækjalína fyrirþásemviljaaðeinsþaðbesta Fæst í öllum helstu raftækjaverslunum á ÍslandiBæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook Flottir toppar Verð 7.900 kr. str. M-XXXL fleiri litir Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur sendi frá sér tilkynningu í gær þar sem tilgreint er að hænsnahald í Reykjavík sé háð leyfi. Vísað er í samþykkt frá því í fyrra þar sem til- greint er að við leyfisveitingu þurfi að sækja um hana hjá Heilbrigðis- eftirlitinu og að samþykki eigenda aðliggjandi lóða þurfi að fylgja um- sókninni. Þá segir að ef hænsna- hald sé hafið án leyfis beri að snúa sér tafarlaust til Heilbrigðiseftir- litsins og sækja um leyfi. Ef um er að ræða fjöleignarhús skal að auki liggja fyrir samþykki sameigenda. Í lögum segir að leyfilegt sé að halda fjórar hænur með unga en engan hana innan borgarmarkanna. Han- ar eru bannaðir sökum þess að þeir geta raskað ró íbúa í morgunsárið með gali sínu. Hænsnahald er ýms- um takmörkunum háð. Húsnæði þarf t.a.m að vera í lagi og lóð af ákveðinni stærð. vidar@mbl.is Hænsnahald háð leyfi borgaryfirvalda mbl.is Ágreiningur er á milli innanríkis- ráðuneytisins annars vegar og Hæstaréttar, Lögmannafélags Ís- lands og dómstólaráðs hins vegar um hvort jafnréttislög eigi við um dómnefnd sem metur hæfni um- sækjenda um störf hæstaréttardóm- ara. Eingöngu karlar eiga nú sæti í dómnefndinni. Regla um skipun dómara kom ný inn í lög á árinu 2010 sem felur það í sér að stjórnskipuð nefnd skuli ráða þessu, þó þannig að ráðherrann getur borið afstöðu sína undir Alþingi ef hann vill ekki lúta vilja nefndarinnar. Skipan dóm- nefndarinnar hefur verið gagnrýnd í kjölfar þess að hún mat Karl Ax- elsson hæfari en þau Ingveldi Ein- arsdóttur og Davíð Þór Björgvins- son til að gegna starfi hæstaréttar- dómara. Fimm karlmenn skipa nefndina en engin kona. Í svari inn- anríkisráðuneytisins við fyrirspurn mbl.is um hvers vegna dómnefndin var aðeins skipuð körlum þrátt fyrir þetta ákvæði jafnréttislaga segir að ráðuneytið telji að lög um jafna stöðu og jafnan rétt karla og kvenna nr. 10/2008 eigi við um skipun í þessa nefnd eins og aðrar nefndir. Ráðu- neytið bendi ávallt á þetta í bréfum sínum til tilnefningaraðila þegar til- nefninga sé óskað. Hins vegar hafi ekki allir tilnefningaraðilar verið sammála þessari túlkun ráðuneyt- isins, þ.e. Hæstiréttur, Lögmanna- félag Íslands og dómstólaráð. „Mér finnst ekki gott að í svona nefnd velj- ist einungis karlmenn. Dómstólar í landinu þurfa líka að endurspegla þjóðfélagið. Mér finnst þessi skipun mála ekki styðja við þá skoðun mína. Ég held að það sé nauðsynlegt að skoða það hvernig þessar tilnefn- ingar fara fram og ég hygg að þessi sjónarmið þeirra séu ekki í anda jafnréttislaga,“ segir Ólöf Nordal innanríkisráðherra. Telja jafnréttislög ekki gilda um dómnefnd  Ráðherra vill endurskoða lög um skipan hæstaréttardómara  Eingöngu karlar í dómnefndinni Morgunblaðið/Brynjar Gauti Nefnd Fimm karlar eru í dómnefnd.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.