Morgunblaðið - 25.09.2015, Side 10

Morgunblaðið - 25.09.2015, Side 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2015 Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is Okkar þekking nýtist þér Frystikistur á tilboðsverði 20% afsláttur Tilboð gildir meðan birgðir endast. FR205 190L B74xD70xH95 1 karfa, læsing á loki hjól undir kistu FR305 278L B98xD70xH95 2 körfur, læsing á loki hjól undir kistu FR405 385L B128xD70xH95 2 körfur, læsing á loki hjól undir kistu FR505 463L B150xD70xH95 3 körfur, læsing á loki hjól undir kistu FR605 567L B180xD70xH95 3 körfur, læsing á loki hjól undir kistu Verð áður kr. 94.359 Verð nú kr. 75.488 m. vsk. Verð áður kr. 108.534 Verð nú kr. 86.827 m. vsk. Verð áður kr. 117.173 Verð nú kr. 93.738 m. vsk. Verð áður kr. 131.820 Verð nú kr. 105.456 m. vsk. Verð áður kr. 161.518 Verð nú kr. 129.214 m. vsk. Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Þegar fram líða stundir og al-vara lífsins tekur viðstanda pör af ólíku þjóðernioft frammi fyrir þeim vanda að ákveða í hvoru landinu stofna skuli framtíðarheimili. Henn- ar landi eða hans? Fyrst hennar svo hans? Eða öfugt? Flakka á milli landa? Embla Þórsdóttir og Klaus Wallberg Andreasson voru ekkert – frekar en trúlega margt ungt fólk í svipuðum sporum – að pæla á þess- um nótum þegar þau kynntust á Havaí árið 1999. Hún var í sálfræði með sagnfræði sem aukafag í Hawaii Pacific-háskólanum í Honolulu og Daninn var bara „ligeglad“ á bak- pokaferðalagi. Ástfangin upp yfir haus, áhyggjulaus og barnlaus fannst þeim liggja beinast við að Embla flyttist til Kaupmannahafnar þar sem Klaus bjó og starfaði sem lögreglumaður í vegabréfaeftirlitinu á Kastrup- flugvelli. „Við tókum á leigu litla íbúð í Sydhavnen, skammt frá Kaup- mannahöfn. Fljótlega fór ég að upp- lifa mig svolítið utanveltu, mér fannst Danir lokaðir og var einfaldlega ekk- ert ofboðslega hrifin af að búa þarna. Þegar ég varð ófrísk 2006 ákváðum við því að prófa að búa á Íslandi, enda sá ég ekki fyrir mér að búa til fram- búðar í Danmörku,“ segir Embla og viðurkennir að óyndi sitt kunni að hafa stafað af því að framan af talaði hún ekki nógu góða dönsku. Svo saknaði hún fjölskyldunnar. Á ferð og flugi Vaktafyrirkomulagið í starfi Klaus; vinna í sex eða sjö daga og frí í jafnmarga, hentaði vel og gerði hon- um kleift að fljúga á milli og búa með sinni heittelskuðu á Íslandi í vaktafríum. „Við fengum hluta ferða- kostnaðarins endurgreiddan frá danska skattinum, sem var mikill plús,“ upplýsir Embla. Ungu hjónin voru alsæl í kjall- araíbúð sem þau leigðu af ömmu Emblu. Og ekki minnkaði sælan þeg- ar Askur, fyrsta barn þeirra af þrem- ur, leit dagsins ljós. Tæpu ári síðar landaði Embla starfi sem verkefna- stjóri í lagadeild Háskóla Íslands. Þeim fannst gott að búa á Íslandi. „Öfugt við marga stóðum við ágæt- lega að vígi fjárhagslega eftir hrun, enda bæði í fastri vinnu og skuldlaus. Þótt við værum ríkisstarfsmenn og sem slíkir ekkert ofalin á laununum munaði mikið um að Klaus var með tekjur í erlendri mynt.“ Þau hjónin höfðu raunar aldrei verið jafn vel stæð. Þegar von var á öðru barni fóru þau fremur létt með að kaupa sér parhús í Vesturbæ Reykjavíkur. Þar hreiðraði fjöl- skyldan um sig þegar Ísabella Ýr var aðeins tveggja vikna. „Klaus ætlaði ekki að trúa mér þegar ég sagði hon- um hvernig lánafyrirkomulagið væri á Íslandi. Í Danmörku er hægt að fá óverðtryggð lán til 30 ára með 3% vöxtum, þannig að maður greiðir þau raunverulega niður og eignast þar af leiðandi hraðar miklu meiri hlut í húsnæðinu en ef maður tæki jafn hátt lán á Íslandi.“ Ströggl að ná endum saman Verðbólgan var lítil sem engin og þau voru búin að reikna út greiðslubyrðina af láni sem þau tóku fyrir húsinu. Enda voru það ekki ein- göngu afborganirnar sem fóru smám saman að íþyngja þeim, heldur dýr- tíðin alræmda. Árið 2013 fóru þau að hugsa sér aftur til hreyfings. „Með þokkalegar tekjur var orðið ströggl að ná endum saman. Við gátum ekki almennilega fest fingur á hvers vegna saxaðist æ meira á launin og að við vorum yfirleitt í mínus um mánaðamót. Okkur fannst allt hækka í verði og mjög dýrt að eiga barn, hvað þá tvö. Flest sem viðkemur börnum er dýrt á Íslandi, til dæmis leikskóli og frístundaheimili. Líka bíll og bensín, en með börn á fram- færi er ómögulegt annað en að eiga bíl á Íslandi.“ Dýrtíðin og hversu erfitt reynd- ist að ná endum saman var aðal- ástæða þess að Embla og Klaus tóku ákvörðun um að freista gæfunnar í Kaupmannahöfn á nýjan leik. Einnig spilaði inn í að þau langaði að leyfa börnunum að upplifa að búa í Dan- mörku. Síðast en ekki síst langaði þau að eignast þriðja barnið og Embla sá ekki fram á að geta verið í fullri vinnu og jafnframt að hugsa ein um þrjú börn aðra hvora viku í fjar- veru Klaus. Það þriðja var á leiðinni í júní 2014 þegar fjölskyldan flaug ut- an. Þau vildu þó ekki brenna allar brýr að baki sér, leigðu húsið og Embla fékk tveggja ára launalaust leyfi. Þá var meiningin að endurmeta stöðuna, hvernig börnin þrifust í skólanum og þvíumlíkt. Stefnan var tekin á Søborg, þar sem þeim hafði boðist húsnæði til leigu. Embla er nýbúin að láta fyrrverandi vinnuveit- endur sína vita að hún komi ekki aft- ur til starfa, þau eru að leita að hent- ugu húsnæði til kaups og henni finnst ekki lengur leiðinlegt að búa í Dan- mörku. „Allt önnur upplifun en áð- ur,“ segir hún. Tvítyngd á íslensku og dönsku „Börnin eru himinlifandi og hafa aðlagast vel í skólanum. Þau voru fljót að ná dönskunni, enda hefur Klaus alltaf talað við þau á dönsku. Þótt ég tali við þau á íslensku eru þau strax farin að tala dönsku sín á milli. Okkur finnst mikilvægt að þau séu tvítyngd. Annars hef ég engar áhyggjur af að þau glati íslenskunni því þau eru í nánum tengslum við ömmu sína og afa, sem til dæmis hafa boðið þeim að vera hjá sér í tvær vik- ur í sumarbústað næsta sumar.“ Sjálf bjó Embla í fjögur ár á Bretlandi sem barn þegar foreldrar hennar voru þar í námi og átti ekki í neinum vandræðum með að fara úr ensku yfir í íslensku og öfugt. Þar sem hún var hálfnuð með meðgönguna þegar fjölskyldan sett- ist að í Søborg fékk hún hvorki ís- lenskan fæðingarstyrk né þann danska. Hún lenti „á milli kerfa“, eins og hún segir, því til að fá slíkan styrk í Danmörku þarf verðandi for- eldri að hafa unnið í landinu í sex mánuði. „Klaus fékk því 14 vikna fæðingarorlof á fullum launum, en annars hefði okkur verið í sjálfsvald sett hvernig við skiptum þessum vik- um á milli okkar. Og þá hefði ég líka getað tekið launað leyfi í tvær vikur fyrir settan fæðingardag og við skipt með okkur 26 vikna fæðingarorlofi Er grasið grænna í Danmörku? Hátt í eitt þúsund manns fluttust búferlum frá Íslandi til Danmerkur árið 2014, þar af 829 íslenskir ríkisborgarar. Hjónin Embla Þórsdóttir og Klaus Wallberg Andreasson og börn voru í þeim hópi. Fjölskyldunni líður vel í Søborg og er ekkert á leiðinni „heim“ – ekki í bráð að minnsta kosti. Fjölskylduvænt umhverfi Embla og Baldur við leikskóla Ísabellu Ýrar. Buslað Klaus, Askur og Baldur. Í lestinni Askur og Ísabella Ýr. „Fjölskyldan getur lif- að góðu lífi af launum eiginmannsins, en við rétt skrimtum af laun- um okkar beggja á Ís- landi.“ Vistbyggðarráð, sem 32 fyrirtæki, að- allega arkitekta- og verkfræðistofur og stofnanir í byggingariðnaði, tóku sig saman um að stofna 2010, hefur þann tilgang að vera leiðandi vett- vangur á sviði sjálfbærrar þróunar við skipulag, hönnun, byggingu og rekstur og viðhald mannvirkja á Ís- landi. Markmiðið er að hvetja til stöðugra umbóta í anda sjálfbærrar þróunar í mannvirkjagerð og skipulagi og stuðla þannig að því að þjóðin geti til framtíðar búið við heilbrigð og góð lífsskilyrði í vistvænni byggð. „Ef litið er á þróun í byggingariðn- aði á Íslandi á síðustu hundrað árum eða svo má glögglega sjá að gæði mannvirkja hafa aukist svo um mun- ar. Á sama tíma hefur þróun í átt að vistvænni aðferðum við hönnun, byggingu og skipulag byggðar ekki verið fyrirferðarmikil,“ segir m.a. á vefsíðu Vistbyggðarráðs, en þar er ýmis fróðleikur fyrir lærða og leika. Vefsíðan www.vbr.is Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Mannvirki Mikilvægt að viðhafa vistvænar vinnuaðferðir í byggingariðnaði. Þróun manngerðs umhverfis Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.