Morgunblaðið - 25.09.2015, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 25.09.2015, Qupperneq 11
Dansk/íslenska fjölskyldan Embla og Klaus með börnunum sínum, Aski níu ára, Ísabellu Ýri sex ára og Baldri níu mánaða. eins og allir geta tekið á launum sem eru sambærileg við atvinnuleys- isbætur.“ Skilvirkni til fyrirmyndar Hún þurfti þó hvorki að borga fyrir sónarmyndatökur né reglulega mæðraskoðun frekar en Dani væri. „Þjónustan var til fyrirmyndar, bæði fyrir og eftir fæðingu Baldurs í des- ember 2014. Ósköp svipuð og á Ís- landi, nema kannski meiri lúxus því ungbarnaskoðanir eru gerðar í heimahúsum. Og svo eru allar nýbak- aðar mæður sendar heim með fullan poka af bleium og ýmsum þarfaþing- um fyrir barnið,“ segir hún. Aftur á móti fannst henni ólíku saman að jafna þegar kom að því að fá heimilislækni. „Afar einfalt. Klaus fór á bæjarskrifstofuna, skráði nafn og aldur allra í fjölskyldunni og innan tíðar vorum við komin með heimilis- lækni, skóla fyrir Ask, leikskóla fyrir Ísabellu Ýri og ungbarnavist fyrir Baldur þegar hann verður eins árs. Engin bið í leikskólann eins og á Ís- landi þar sem börn sem fædd eru í óheppilegum mánuði þurfa að bíða í hálft ár eftir plássi,“ segir Embla og rómar skilvirknina á flestum sviðum. Bæjarfélagið, eða kommune eins og það kallast á dönsku og saman- stendur af Søborg og fjórum ná- grannabæjum, tók fjölskyldunni með kostum og kynjum. „Við fengum pakka sem innihélt meðal annars fimm bíómiða, fimm miða í bátsferð á vatni í grenndinni og frímiða í sund- laugina. Með þessu var bréf með ýmsum gagnlegum upplýsingum fyr- ir barnafjölskyldur, en bærinn kapp- kostar einmitt að vera mjög barn- vænn.“ Lifa góðu lífi af launum eiginmannsins Eins og í Reykjavík er dýrt að leigja húsnæði í Kaupmannahöfn og nágrenni. Með rafmagni og hita borga þau hjónin sem samsvarar um 210 þúsund íslenskum krónum fyrir parhúsið. Að öðru leyti virðist Emblu flest ódýrara en á Íslandi. „Fjöl- skyldan getur núna lifað góðu lífi af launum eiginmannsins, en við rétt skrimtum af launum okkar beggja á Íslandi. Hér munar líka um að við þurfum ekki að eiga og reka bíl því samgöngur með lestum og strætis- vögnum eru sérstaklega góðar.“ Hún er þó farin að leita að vinnu og langar að vera komin út á vinnu- markaðinn fljótlega eftir að Baldur fær inni á ungbarnavistinni. Hún saknar svolítið gamla starfsins síns í HÍ og gæti vel hugsað sér að fá svip- aða stöðu í háskóla. Mest saknar hún þó fjölskyldunnar, en Klaus heitu pottanna í sundlaugunum. Embla útilokar ekki að einhvern tímann flytjist fjölskyldan búferlum til Ís- lands, en væntanlega þá ekki fyrr en börnin eru komin vel á legg. Spurð hvort grasið sé grænna í Danmörku svarar hún játandi og lætur þess get- ið að hitinn sé 17 gráður. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2015 Íslendingar elska Skoda enda eru vandfundnari bílar sem henta íslenskum fjölskyldum betur. Þeir eru einstaklega rúmgóðir, sparneytnir, endingargóðir og frábærir í endursölu. Komdu við hjá okkur í Heklu og prófaðu skemmtilega Skoda. HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði www.skoda.is SKEMMTILEGUR ÁALLAVEGU Nýr SKODAOctavia frá 3.420.000 kr. Það er alveg ótrúlegt hvað pör, sem voru kannski búin að vera saman í langan tíma, læra um hvort annað þegar þau byrja að búa saman. Ég hef núna búið með manni í tæplega þrjú ár og reglulega kemur eitt- hvað undarlegt í ljós. En það sem ég lærði hratt og örugglega á fyrstu vikum okkar sambúðar var það að maðurinn var algjört viðrini þegar kom að ákveðnum hlutum. Í fyrsta lagi má aldrei neitt vera ofan í vaskinum. Uppvaskið skal klárast strax og þá meinum við strax. Ég veit ekki hversu oft hinir meðlimir fjölskyldunnar eru byrj- aðir að borða kvöldmat á meðan maðurinn stendur yfir vaskinum fussandi og sveiandi. „Það verður að gera þetta strax, annars festist þetta í pönnunni,“ heyrist hann muldra við sína bestu vini, upp- þvottalöginn og burstann. Síðan er þvottahúsið hans heilagi staður, þar finnur hann hugarró. Hugarróin breytist þó fljótt í vonbrigði þegar að sambýliskonan reynir að hjálpa til við að ganga frá þvottinum. Hún nefnilega kann ekki að brjóta rétt saman, eins og hann segir. Sambýlismaðurinn sér þó líklega eftir þeirri móðgun því að hér eftir hef ég ekki brotið sam- an eina flík af mann- inum. Ég nefnilega kann það sko ekki. Það þarf líka alveg rosalega mikið allt að vera á sín- um stað í 40 fermetra íbúðinni okkar. Það er auðvitað alveg ótrúlega erfitt fyrir konu á besta aldri sem á alveg rosa- lega mikið af dóti í litlu plássi. Það hljóta nú allar konur og menn sem nota sokkabuxur að kannast við tilfinn- inguna að fara úr þeim eftir langan vinnudag. Fátt meira fullnægjandi. En svo verða þær eftir í sófanum. Eða inn á baðherbergi. Eða kannski bara undir eldhúsborðinu. Hvað heldur hann að ég sé, einhver ofurkona sem muni bara alltaf hvar hún fer úr sokkabuxum? Nei, ég er bara venjuleg subba. Skulum ekk- ert vera að fara út í muninn á fata- skápunum okkar. Það liggur við að bolirnir hans séu í stafrófsröð á meðan minn helmingur lítur út eins og fataskápur konu á flótta undan morðingja. Mamma signdi sig þegar hún sá þetta um daginn. En nú höfum við búið saman í næstum því þrjú ár og hann hefur voða lítið náð að kenna mér með almennt hrein- læti. Ég hlýt að þjást af mótþróastreituröskun. Ég meina vel samt. Ég bara man ekki að vera snyrti- leg. Eitt hefur þó komist inn í hausinn á mér og það er uppvaskið. Í dag þoli ég ekki fulla vaska af leirtaui og fæ hroll við til- hugsunina. Stærsti sigur sambýlismannsins, það er ljóst. »Hvað heldur hann aðég sé, einhver of- urkona sem muni bara allt- af hvar hún fer úr sokkabux- um? HeimurAuðar Auður Albertsdóttir audura@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.