Morgunblaðið - 25.09.2015, Síða 12

Morgunblaðið - 25.09.2015, Síða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2015 F A S T U S _ H _ 3 2 .0 5 .1 5 Fastus ehf., - Velkomin í verslun okkar. Opið mán - fös 8.30 - 17.00 Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 Resorb Sport Þegar þú stundar úthaldsíþróttir eins og hjólreiðar, fjallgöngur, hlaup o.fl. • Bætir upp vökvatap • Minnkar líkur á vöðvakrömpum • Flýtir endurheimt (recovery) • Bragðgóður og handhægur • Inniheldur m.a. magnesium Fæst í fjölmörgum apótekum Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Það blasir dökk mynd við stjórn- endum sveitarfélaga vegna nýrra og þungra klyfja sem þeim eru bundn- ar með kjarasamningum ársins. Gera má ráð fyrir því að bregðast þurfi við með fækkun starfsfólks sveitarfélaga. Þetta kom fram í setningarávarpi Halldórs Halldórs- sonar, formanns Sambands ís- lenskra sveitarfélaga, á fjármálaráð- stefnu sveitarfélaga í gær. „Við stefnum fram af brúninni, vitum öll að við þurfum að bremsa en enginn er tilbúinn að stíga á bremsurnar,“ sagði hann. Verkefni sveitarfélaga aukast jafnt og þétt, stöðugildum fjölgar um 2% á milli ára, launakostnaður fer stöðugt vaxandi og rekstaraf- koman hefur breyst til hins verra. Nauðsynlegt er að styrkja og breikka tekjustofna sveitarfélaga og eru uppi ýmsar hugmyndir á vett- vangi þeirra um aukna hlutdeild í tekjum ríkisins. Ástandið kallar á auknar tekjur að sögn Karls Björns- sonar, framkvæmdastjóra Sam- bands íslenskra sveitarfélaga, sem rakti nokkra möguleika skv. stefnu- mörkun sveitarfélaga og sóknarfær- in. Endurgreiðslur vsk. og niðurfelling undanþága Rætt er um að reglum um endur- greiðslu virðisaukaskatts verði breytt og að starfsemi sveitarfélaga myndi ekki skattstofn fyrir ríkið. Felldar verði niður allar undanþág- ur frá álagningu fasteignaskatts og öll mannvirki verði metin til fast- eignamats. Þá fái sveitarfélög aukna hlutdeild í skattstofnum ríkisins. Karl sagði að sveitarfélögin borg- uðu 8-10 milljarða í virðisaukaskatt til ríkisins á ári. Taka þurfi upp al- vöru viðræður við ríkið um þetta lið fyrir lið og endurvekja ígildi endur- greiðslu á virðisaukaskatti vegna fráveituframkvæmda og taka upp viðræður um víðtæka endurgreiðslu á virðisaukaskatti til sveitarfélaga. Karl benti líka á að fjöldi mann- virkja væri undanþeginn fasteigna- skatti í dag, t.d. flugvellir, vegir og götur, svæði í almannaþágu, rafveit- ur, vatns- og skólpveitur, lönd fyrir greftrunarstaði manna, fjarskipta- virki fyrir utan hús, vitar o.fl. Hann nefndi líka dæmi þar sem fella mætti niður allar undanþágur frá álagningu fasteignaskatts, s.s. kirkjur, bænahús og samkomuhús annarra trú- og lífsskoðunarfélaga, safnahús o.fl. og skoða þurfi endur- gjaldslausar lóðir undir framhalds- skóla, sjúkrastofnanir, kirkjur og bænahús í þessu samhengi. Þá sjá sveitarfélögin mikil sóknarfæri á hlutdeild í tekjum af raforkuframleiðslu að sögn Karls, t.d. með því að fella niður undanþág- ur frá fasteignamati vegna raf- veitna, en þ. á m. eru línur til flutn- ings raforku ásamt burðarstólpum og spennistöðvum. Bæta þarf inn mati á stíflum, jarðgöngum, vatns- réttindum og lagnavirkjum jarðhita- mannvirkja og einnig mati á vind- myllum. Þá telja forsvarsmenn sveitarfé- laga eðlilegt að þau fái hlutdeild í tekjum af umferð. Nettóútgjöld sveitarfélaga til gatna- og vegagerð- ar eru um 7 milljarðar á ári en þau bera ábyrgð á 15% vegakerfisins. Ef þau fengju 15% af heildartekjum vegna vegamála næmu tekjurnar um 4,8 milljörðum á ári. Fjármun- unum mætti svo skipta milli sveitar- félaganna miðað við lengd gatna og vega að mati Karls, sem einnig benti á að ríkið fengi um 2 milljarða á ári í bensínskatt af bílaleigubílum. Þá vilja sveitarfélögin að skoðuð verði hlutdeild þeirra í skattlagn- ingu fyrirtækja. Karl sagði að ríkið hefði fengið 59 milljarða í fyrra frá lögaðilum. 10% hlutur sveitarfélaga myndi t.d. skila þeim 5,9 milljörðum. Ef farið yrði að hugmyndum sveit- arfélaga um endurgreiðslur trygg- ingagjalds fengju þau 2,3 milljarða kr. Fram kom í umræðum á ráðstefn- unni að sveitarfélög fengju of litlar tekjur af ferðamönnum en bæru mikinn kostnað á móti vegna fjölg- unar þeirra. Karl rakti hugmyndir um aukna hlutdeild sveitarfélaga í tekjum af ferðaþjónustunni og benti á að heildartekjur hins opinbera af ferðaþjónustunni í fyrra væru metn- ar á 40 til 54 milljarða og ríkið fengi langstærsta hluta þess. Sveitar- félögin þurfi að fá beina fjárstyrki til uppbyggingar á ferðamannastöð- um án krafna um mótframlag. Karl birti einnig tölur frá ríkis- skattstjóra um arðgreiðslur til eig- enda fyrirtækja. Þær námu 29,5 milljörðum í fyrra og hækkuðu um 53,6% frá fyrra ári. Ríkið fær 20% fjármagnstekjuskatt af þessum arði en Karl sagði að ef sveitarfélögin fengju t.d. þriðjung af því hefðu tekjurnar numið 2 milljörðum í fyrra. Miða mætti dreifingu þessara tekna við lögheimili viðtakanda arðsins. Auk þessa nefndi Karl möguleika á að sveitarfélög fengju hlutdeild í tekjum af fiskeldi, t.d. miðað við eldisrúmmál í sjó eða gjald á fram- leitt kíló. Loks nefndi hann veiði- gjöld og sagði að ef sveitarfélögin hefðu átt 20% hlutdeild í veiðigjöld- um hefðu tekjur þeirra á seinustu 3 fiskveiðiárum numið 5,5 milljörðum. Launapakkinn hækkaði um 17 milljarða á milli ára Fram kom í máli Gunnlaugs Júl- íussonar, sviðsstjóra hag- og upplýs- ingasviðs sambandsins, að nýjustu kjarasamningar væru sveitarfélög- um dýrir og ekki væru öll kurl kom- in til grafar í þeim efnum. Benti hann á að laun hækkuðu líka aft- urvirkt um 4% frá 1. maí 2014 vegna endurskoðunar starfsmats og launa- kostnaðurinn á árinu 2014 væri því í raun umfram það sem fram kemur í ársreikningum þess árs. Þegar síðastliðið ár er borið sam- an við árið á undan kemur í ljós að tekjur sveitarfélaga jukust um lið- lega 5% frá ári til árs en útgjöldin um nær 12%. „Launapakkinn hækk- aði úr tæplega 113 milljörðum í 130, eða um 15,1%,“ sagði hann. Gunnlaugur fór yfir íbúaþróun í sveitarfélögum og þær breytingar sem eru að eiga sér stað á aldurs- samsetningu íbúanna en víða væri sú breyting veruleg þar sem þjóðin væri að eldast. Spáð væri að að íbú- um yfir 67 ára aldri muni fjölga um helming á næstu 15 árum eða svo. Það hefur fækkað í yfir helmingi sveitarfélaga að sögn hans. Af 74 sveitarfélögum hefur íbúum fækkað í 42 sveitarfélögum frá 1998. Í nokkrum er fækkunin yfir 20% og yfir 30% í einu. ,,Ég þekki það frá umræðunni um búsetuþróun í öðr- um norrænum ríkjum, að svo mikil íbúafækkun er talin vera veruleg íbúafækkun.“ Ástandið kallar á meiri tekjur  Margar hugmyndir kynntar um aukna hlutdeild sveitarfélaga í skatttekjum á fjármálaráðstefnu  „Stefnum fram af brúninni“  Af 74 sveitarfélögum hefur íbúum fækkað í 42 sveitarfélögum frá 1998 Hlutfallsleg breyting á íbúafjölda á árunum 1998-2015 eftir sveitarf. Heimild: Samband íslenskra sveitafélaga Fjölgun >20% Fjölgun 0-20% Fækkun 0-20% Fækkun >20% Mikið var fjallað um húsvandann á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga í gær, m.a. um nauðsyn breytinga á byggingarreglugerð til að draga úr byggingarkostnaði. Eygló Harðar- dóttir velferðarráðherra sagði í svari við fyrirspurn að kynnt yrði á næstu dögum hvað til stæði. ,,Ég, iðnaðar- ráðherra og umhverfis- og auðlinda- ráðherra ætlum að taka höndum saman, ásamt okkar undirstofnunum og fara af stað með verkefnið, þar sem markmiðið er að lækka bygg- ingarkostnað. Við erum búin að tala um það við nokkur sveitarfélög og við sambandið að við erum að bjóða ykkur til samstarfs í þetta verkefni,“ sagði hún. Núna þurfi allir að setjast að sama borði og lýsa því hvað hver og einn getur gert til þess að ná fram þess- um markmiðum. Ég er ekki bara að tala um þetta eingöngu á grundvelli félagslegs húsnæðis eða þess sem snýr beint að mínum málaflokkum, heldur að við þurfum að ná niður kostnaði við húsnæði almennt,“ sagði hún. Sagðist hún vilja bjóða sem flestum til þessa samtals og safna saman hugmyndum. Ætlum að taka höndum saman  Ráðherra boðar víðtækt samstarf Morgunblaðið/Eggert Sveitarstjórnarmál Tveggja daga fjármálaráðstefnu lýkur á hádegi í dag.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.