Morgunblaðið - 25.09.2015, Page 14

Morgunblaðið - 25.09.2015, Page 14
Mörg hótel í pípunum » Á næstu misserum verða opnuð ný hótel við Laugaveg 34a og 36, á Vegamótastíg, sunnan við hús Máls og menn- ingar, í Hafnarstræti, við Laugaveg 120, í Lækjargötu og í Brautarholti, svo aðeins nokkur dæmi séu nefnd. » Allar helstu hótelkeðjurnar í miðborg Reykjavíkur eru að fjölga hjá sér gistirýmum. » Gististaðir veltu 22,3 millj- örðum á fyrri hluta ársins. BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Hjálmar Sveinsson, formaður um- hverfis- og skipulagsráðs Reykjavík- ur, reiknar með að tillaga, sem felur í sér að leitað verði leiða til að tak- marka gistirými í miðborginni, verði samþykkt í næstu viku. Svæðið sem horft er til er fyrst og fremst svæði M1a á kortinu hér til hliðar en jafnframt eru hugmyndir um takmarkanir á svæðinu M1c. Eins og sjá má eru svæðin stór. Tilefnið er mik- il fjölgun gisti- rýma í íbúðar- húsnæði og samsvarandi fækkun íbúa í miðborginni. Til- lagan var borin upp í síðustu viku og er svohljóðandi: „Umhverfis- og skipulagssviði er falið að leita leiða til að takmarka breytingar á land- notkunarheimildum í miðborg Reykjavíkur til að koma í veg fyrir að íbúðir víki fyrir gistirýmum. Er það rökrétt framhald af kvótasetn- ingu á hlutfall gistirýma af heildar- fermetrafjölda bygginga í deiliskipu- lagi Kvosarinnar. Umhverfis- og skipulagssvið skili tillögum þar að lútandi til umhverfis- og skipulags- ráðs.“ Getur að hámarki verið 23% Hjálmar rifjar upp að í ársbyrjun hafi umhverfis- og skipulagsráð sam- þykkt tillögu um að setja hámark á starfsemi hótela í gömlu Kvosinni. Eftir þá samþykkt getur hótel- rekstur að hámarki verið á 23% byggðra fermetra á svæðinu. Hann segir hlutfall hótela í Kvos- inni nú um 15% og að hámarkinu verði náð þegar fyrirhuguð hótel hafa risið í Hafnarstræti 17-19, á horni Vonarstrætis og Lækjargötu og í Landsímahúsinu svonefnda. Hjálmar vísar til kortsins úr Aðal- skipulagi Reykjavíkur, 2010 til 2030, sem hér er endurgert. „Í stuttu máli er svæðið M1a skil- greint sem miðborgarkjarni. Þar eru heimildir fyrir fjölþætta og blandaða atvinnustarfsemi ríkjandi. Aftur á móti er kveðið á um íbúðir og fasta búsetu í M1c og að lágmarki 40% [fermetrafjöldans] þar skuli vera undir íbúðarhúsnæði. Þetta svæði nær meðal annars til efsta hluta Skólavörðustígs. Á þessu svæði nýt- ur íbúðarbyggð ákveðinnar verndar. Við höfum verið að endurskoða M1a- svæðið og sáum meðal annars ástæðu til að skerpa á ákveðnum hlutum í Kvosinni,“ segir Hjálmar og vísar til hótelkvótans. „Það má segja að tillagan sem nú á eftir að samþykkja feli í sér athugun á því hvort það sé skynsamlegt að vera með samsvarandi takmarkanir á M1a, svæðinu sem teygir sig upp frá Laugavegi og að Snorrabraut. Áhyggjur af rúmum heimildum Tillagan kom fram vegna þess að menn hafa áhyggjur af því að þessar rúmu heimildir á atvinnustarfsemi á svæðinu geti orðið til þess að allt íbúðarhúsnæði fari undir gistirými. Það samræmist ekki mikilvægu markmiði í aðalskipulagi um að hafa byggð eins blandaða og hægt er.“ Hann segir þetta bæði eiga við um svæðin M1a og M1c. Spurður hvort til greina komi að tiltekið hlutfall húsnæðis á svæðinu M1a verði að vera íbúðir í lang- tímaleigu, eða fastri notkun, segir Hjálmar ekki búið að útfæra það. Hann bendir svo á að svæðið M1a sé nýtt á mismunandi hátt. T.d. séu fáar íbúðir í Kvosinni. „Ég reikna með að þessi tillaga verði samþykkt í næstu viku. Þá er embættismönnum sviðs- ins falið að koma fram með tillögur um hvort það sé gerlegt og hvernig best væri að koma á slíkum takmörk- unum. Þá erum við að tala um tak- markanir á hótelvæðingu og um leið verndun á annars konar starfsemi og nýtingu á svæðinu.“ Hjálmar reiknar aðspurður ekki með að til samskonar aðgerða verði gripið á svæðinu M1b, sem meðal annars Borgartúnið heyrir undir. Hann viðurkennir að það geti ver- ið vandkvæðum bundið að takmarka útleigu á íbúðum til ferðamanna í skammtímaleigu. Eignarrétturinn og réttur til að ráðstafa eign sé ríkur. Til skoðunar að setja skorður „Það er hins vegar verið að skoða hvort hægt sé að gera eins og í sum- um borgum og setja skorður á leigu íbúða í gegnum vefi eins og Airbnb. Það er eitt ef fjölskylda leigir út íbúðina sína í einn sumarmánuð en annað þegar einstaklingar eiga orðið 70-80 íbúðir í miðborginni og leigja þær á þennan hátt. Það er svolítið mikilvægur munur á því.“ Hjálmar segir framlagningu til- lögunnar hafa frestast vegna mikils fjölda mála á dagskrá. „Við teljum óhætt að setja spurn- ingarmerki þegar heilum íbúðar- húsum er breytt í hótel. Með því er verið að breyta því í atvinnuhúsnæði. Það er mikilvægur þáttur í aðal- skipulaginu að þétta byggðina og fjölga íbúðum miðlægt í borginni. Þetta tvennt rímar því ekki alveg saman. Auðvitað þarf að íhuga vand- lega hvernig best sé að standa að slíkum takmörkunum. Embættis- mönnum sviðsins er falið að gera það. Það má benda á að það er nokk- uð löng og farsæl hefð fyrir kvóta- setningu til að vernda verslun við Laugaveg og Skólavörðustíg,“ segir Hjálmar Sveinsson. Vilja takmarka „hótelvæðingu“  Formaður skipulagsráðs býst við að tillaga um breytta landnotkun í miðborginni verði samþykkt Landnotkunarsvæði í miðborginni Heimild: Aðalskipulag Reykjavíkur 2010 - 2030 Miðborgarkjarni (M1a) Blönduð miðborgarbyggð – þjónusta og skrifstofur (M1b) Blönduð miðborgarbyggð – íbúðabyggð (M1c) (M1a) (M1a) (M1a) (M1b) (M1b) (M1b) (M1c) (M1c) (M1c) Grunnkort/Loftmyndir ehf. Hjálmar Sveinsson 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2015 Í dag, föstudaginn 25. september, verður útitaflið fyrir framan Fisc- her-setur, Gamla-bankann á Sel- fossi, vígt. Tefldar verða tvær skák- ir á útitaflinu og hefst taflmennskan kl. 15.30. Liðsstjórar verða Guðni Ágústsson, fyrrver- andi ráðherra, og Kjartan Björns- son, formaður bæjarráðs Árborgar. Gunnar Finnlaugsson verður að- stoðarmaður Guðna. „Samkvæmt upplýsingum Gunn- ars munu þeir Guðni starfa í anda samvinnu og vaða áfram á miðj- unni, en Kjartan og hans menn sennilega á hægri kantinum,“ segir í frétt á skak.is. Á meðan á vígslunni stendur verður Fischer-setur opið almenn- ingi og frítt verður inn. Allir eru velkomnir á viðburðinn. Útitafl Fjör verður við Fischer-setrið á Selfossi í dag og búist er við fjölmenni. Útitaflið verður vígt á Selfossi í dag Hjartadags- hlaupið og Hjartagangan, sem haldin eru í tilefni alþjóðlega hjartadagsins 29. september, verða sunnudaginn 27. september. Boðið er upp á 5 og 10 km vegalengdir í hlaupinu og er þátttaka ókeypis eins og áður. Hlaupið hefst klukkan 10 og er ræst frá bílaplaninu við Smáraskóla í Kópavogi. Hjartagangan hefst klukkan 10 og eiga þátttakendur að mæta á hlaupabrautina á Kópa- vogsvelli, gengið inn í gegnum stúkuna. Gert er ráð fyrir að göng- ur taki eina klukkustund og er þátt- taka ókeypis. Hjartadagshlaup og ganga í Kópavogi Íslenska bjórhátíðin verður haldin í fyrsta sinn í Gamla bíói laugardag- inn 26. september. Dagskráin hefst kl. 15 og stendur til kl. 02 en húsið verður opnað kl. 14. Lúðrasveit Hafnarfjarðar leikur lög, íslensk og erlend, í anda bjórhátíðarinnar sem haldin er í München á hverju ári. Einnig koma fram harmoníkuleikarinn Gréta rokk og jóðlarinn Hrefna Björg. DJ Atli endar svo kvöldið. Íslenska bjórhátíðin haldin í Gamla bíói STUTT

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.