Morgunblaðið - 25.09.2015, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2015
• Konica Minolta fjölnotatækin (MFP) eru
margverðlaunuð fyrir hönnun, myndgæði, notagildi,
umhverfisvernd og áreiðanleika.
• Bjóðum þjónustusamninga, rekstrarleigusamninga og
alhliða prentumsjón.
• Viðskiptavinir Kjaran eru lítil og stór fyrirtæki,
stofnanir og prentsmiðjur sem eiga það sameiginlegt
að gera kröfur um gæði og góða þjónustu.
• Kjaran er viðurkenndur söluaðili á
prentlausnum af Ríkiskaupum.
Síðumúla 12 - 510 5520 - kjaran.is
BLI A3 MFP Line of the Year:
2011, 2012, 2013, 2014
bizhub margverðlaunuð fjölnotatæki
BLI Pro Award:
2013, 2014
mbl.is/askriftarleikur
Áætlað er að búnaður til gjaldtöku á
bílastæðum við þjóðgarðinn á Þing-
völlum verði kominn í notkun um
næstu áramót. Félagið Bergrisi ehf.
og Þingvallanefnd hafa gert með sér
samning um búnað og uppsetningu
á stöðumælastaurum. Búnaðurinn á
að falla vel inn í landslagið þar sem
hönnunin mun líkjast stuðlabergi og
þola þau veðurskilyrði sem eru við
Þingvelli allan ársins hring.
Fyrirtækið Bergrisi hefur síðustu
þrjú ár þróað og hannað vélbúnað
og hugbúnað fyrir gjaldtöku ferða-
manna. Á Þingvöllum verður mögu-
legt að greiða með kredit- og debet-
kortum, sem og við QR-kóða lestur
á forseldum bílastæðamiðum og
bílastæðakortum.
Hægt að sérsníða þjónustuna
Guðlaugur Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Bergrisa, segir að á
síðustu árum hafi slíkur búnaður
verið þróaður og víða verið komið
upp. Tenging geti verið á milli fyrir-
tækja í ferðajónustu og hugbúnað-
urinn haldi utan um hver seldi þjón-
ustuna og hvar hún síðan er nýtt.
Hann nefnir sem dæmi tengingu
milli fyrirtækja sem selja hvala-
skoðunarferðir við t.d. Hvalasafnið
á Grandagarði. Fyrirtækið sé með
fjölbreytta þjónustu í þessum efn-
um.
Í fréttatilkynningum um nýju
mælana á Þingvöllum er haft eftir
Guðlaugi, að með nýjum aðferðum í
gjaldtöku verði hægt að sérsníða
þjónustu að þörfum hvers við-
skiptavinar sem skili sér í betri
þjónustu og auknum tekjum fyrir
alla.
Þjónustugjald á Þingvöllum
Frá því var greint á heimasíðu
þjóðgarðsins í júlí í sumar að
Þingvallanefnd hefði ákveðið að
hefja innheimtu bílastæðagjalds á
afmörkuðum bílastæðum á Þingvöll-
um. Í fyrsta lagi á Hakinu við efri
enda Almannagjár en þar er gesta-
stofa þjóðgarðsins; í öðru lagi á svo-
kölluðu Þingplani þaðan sem gengið
er upp í Almannagjá af Efrivöllum
og í þriðja lagi skv. nánari ákvörðun
á Valhallarplani þar sem hótelið
stóð áður.
Um þjónustugjald er að ræða
sem ætlað er að standa undir kostn-
aði þjóðgarðsins við rekstur bíla-
stæðanna, segir á heimasíðunni.
aij@mbl.is
Bergrisi setur
upp stöðumæla
á Þingvöllum
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Á Hakinu Ferðafólk skoðar útsýnið.
Hæstiréttur staðfesti í dag dóm
Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem
dómurinn sýknaði Útlendinga-
stofnun og íslenska ríkið af kröf-
um Tony Omos þess efnis að fella
úr gildi ákvörðun Útlendingastofn-
unar og úrskurð innanríkisráðu-
neytisins um að taka hælisumsókn
hans ekki til efnismeðferðar.
Ákvörðun Útlendingastofnunar og
úrskurður ráðuneytisins standa
því óhögguð eftir dóminn. Fram
kom í dómi héraðsdóms, sem
Hæstiréttur staðfesti að Omos sé
ekki talinn hafa sýnt fram á að
stjórnvaldsákvarðanir Útlend-
ingastofnunar og innanríkisráðu-
neytisins hafi verið haldnar þeim
annmörkum að leitt geti til ógild-
ingar þeirra. Voru stefndu því
sýknaðir af kröfu Omos í málinu.
Omos óskaði eftir hæli sem
flóttamaður á Íslandi í október
2011. Við athugun á málefnum
hans í kjölfarið bárust Útlend-
ingastofnun þær upplýsingar frá
Interpol að hann hefði óskað eftir
hæli í Sviss árið 2008. Var beiðni
um viðtöku stefnanda og umsókn-
ar hans um hæli beint til yfirvalda
í Sviss hinn 22. nóvember 2011,
með vísan til Dyflinnarreglugerð-
arinnar, að því er fram kemur í
dómi héraðsdóms.
Ríkið sýknað af
kröfu Tony Omos
Hæstiréttur staðfesti dóm úr héraði
Morgunblaðið/Golli
Innanríkisráðuneytið Hæstiréttur
staðfesti sýknudóm héraðsdóms.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Staðreyndirnar liggja ljósar fyrir
og við krefjumst úrbóta,“ segir
Freyr Hermannsson. Hann opnaði í
vikunni umræðuþráð á Facebook
sem ber yfirskriftina Nýjan völl án
tafar – Öll dekkjakurl til grafar. Þar
skorar fólk á Reykjavíkurborg að
skipta út án tafar þeim gervigras-
völlum þar sem notað hefur verið
kurl úr úrgangsdekkjum, sem inni-
halda ýmis hættuleg efni sem geta
valdið krabbameini og ófrjósemi.
Vellir eru leiksvæði
„Hættulegum efnum má ekki
hleypa út í umhverfið. Því á ekki að
nota dekkjakurl á gervigrasvelli sem
eru leiksvæði ungmenna sem eru
næm fyrir hættulegum efnum. Börn-
in eiga að njóta vafans þegar kemur
að sönnunarbyrði skaðsemi. Þessu
til viðbótar gætu skaðleg áhrif efn-
anna einnig haft áhrif í nánasta um-
hverfi vallanna,“ segir Freyr.
Fjallað var um þetta mál í Morg-
unblaðinu um síðustu helgi. Þar kom
fram að fyrir fimm árum ályktaði að-
alfundur Læknafélags Íslands þar
sem hvatt var til að bannað yrði að
nota dekkjakurl á íþrótta- og leik-
svæði. Dekkjakurlið gæti verið
krabbameinsvaldandi og því yrði að
bregðast við.
„Viðbrögðin eru sterk,“ segir
Freyr í samtali við Morgunblaðið.
Hann segir að þegar þetta mál hafi
fyrst verið rætt 2010 hafi borgin tek-
ið þá stefnu að aðgerðir biðu uns
kæmi að endurnýjun valla. Nú sé sá
tími liðin og útilokað sé að bíða leng-
ur, með tilliti til umhverfisáhrifa.
Verði þessum sjónarmiðum fylgt eft-
ir, meðal annars með fræðslufundi í
KR-heimilinu við Frostaskjól í
Reykjavík næsta sunnudag.
Kurl skaðlegt og börnin njóti vafans
Efni úr gúmmídekkjum víða á knattspyrnuvöllum Hætta á ferðum Úrbóta er krafist á Facebook
Morgunblaðið/Ómar
Gervigras Strákarnir í boltanum.