Morgunblaðið - 25.09.2015, Page 17

Morgunblaðið - 25.09.2015, Page 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2015 SMÁRALIND • 2 HÆÐ SÍMI 571 3210 Barnaskór í úrvali 3.995 Stærðir 20-25 Verð 5.995 Stærðir 20-25 Verð 6.995 Stærðir 27-32 m/hálkukló Verð 4.995 Stærðir 20-25 Verð 4.995 Stærðir 25-30 6.995 Stærðir 31-36 m/rennilás Verð 4.995 Stærðir 20-25 m/rennilás Verð 6.995 Stærðir 27-32 m/hálkukló Verð m/rennilás Verð Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Góður skriður er kominn á hreinsun á Siglufjarðarvegi í Mánárskriðum eftir að gríðarleg aurflóð féllu þar fyrir tæpum mánuði. Vegagerðin fékk verktaka frá Siglufirði og Skagafirði til að hreinsa veginn og hefur það tekið sinn tíma. Elstu menn muna ekki eftir jafn miklum aurskriðum á þessum slóðum, segir Sigurður Jónsson, yfirverkstjóri Vegagerðarinnar á Akureyri. Í miklu úrhelli í lok ágústmánaðar féllu skriðurnar á löngum köflum á Siglufjarðarvegi, sitt hvorum megin Strákaganga. Veginum var lokað og tók það verktakana 5-6 daga að kom- ast í gegnum mestu skriðurnar áður en hægt var að hleypa á umferð um veginn að nýju. „Þetta hefur gengið aðeins hægar en við reiknuðum með. Fengum lát- lausa rigningu, án þess þó að fleiri skriður féllu, en það var vonlaust að hreinsa við þær aðstæður,“ segir Sigurður, sem býst við að hreinsun ljúki endanlega í næstu viku. Hann segir vegfarendur hafa sýnt þessum framkvæmdum skilning en draga hefur þurft úr umferðarhrað- anum. Ekki er búið að reikna ná- kvæmlega út hvað vinnuvélar hafa þurft að ryðja til miklu efni en Sig- urður telur ljóst að það skipti hundr- uðum þúsunda rúmmetra. „Þessu fer vonandi að ljúka, svo að við getum farið að snúa okkur að öðrum verkefnum,“ segir hann en nú styttist í að það fari að snjóa á þess- um slóðum. Skriður á mokstri í Mánárskriðum  Rigningarveður hefur tafið hreinsun á Siglufjarðarvegi  Stefnt að verklokum í næstu viku Morgunblaðið/Örn Þórarinsson Mánárskriður Verktakar og Vegagerðin hafa mokað burtu af Siglufjarðarvegi gríðarlegu magni af drullu og grjóti síðustu vikur. Er verkinu loks að ljúka.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.