Morgunblaðið - 25.09.2015, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2015
!
!"!
##
#!
!
$%"
$
""!
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
%
#"
#"
!
##
#
!%
$%
% %
"!#
!
#
#
%
#%
#%
!#"
$%
$
"!
#"
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● ALM Verðbréf hefur í samstarfi við
nokkra lífeyrissjóði stofnað Fjárfest-
ingafélag atvinnulífsins. Félagið er fjár-
magnað af lífeyrissjóðunum en ALM
Verðbréf hefur umsjón með fjárfest-
ingum þess og rekstri. Tilgangur með
stofnun félagsins er að fjölga fjármögn-
unarleiðum fyrirtækja sem teljast lítil
og meðalstór, segir í tilkynningu.
Fjárfestingafélagið mun kaupa
skuldabréf sem tryggð eru með veði í
fasteign eða lausafé. Þá verða keypt
skuldabréf sem gefin eru út í tengslum
við byggingu íbúðar- eða atvinnu-
húsnæðis og ótryggð skuldabréf fyrir-
tækja með gott lánshæfismat.
ALM Verðbréf stofnar
fjárfestingafélag
● Greining Íslandsbanka spáir óbreytt-
um stýrivöxtum Seðlabankans á næsta
vaxtaákvörðunarfundi sem áformaður er
30. september. Hins vegar spáir bankinn
því að á næsta ári hækki peningastefnu-
nefndin stýrivexti um 0,5 prósentustig
og sé þá að bregðast við aukinni verð-
bólgu, vaxandi spennu í efnahagslífinu
og minnkandi peningalegu aðhaldi. Ís-
landsbanki telur að nefndin muni rök-
styðja ákvörðunina um óbreytta stýri-
vexti meðal annars með því að benda á
að verðbólguhorfur hafi batnað talsvert.
Spá óbreyttum stýri-
vöxtum í lok september
STUTTAR FRÉTTIR ...
„Tilgangurinn með þessu ákvæði
var eingöngu sá að hægt væri að
ljúka nauðasamningum og beindist
því ekki gegn einhverjum sérstök-
um kröfuhöfum í búunum. Fram
hafa komið athugasemdir sem
verða teknar til athugunar í nefnd-
inni. Meira hef ég ekki um málið að
segja að svo stöddu,“ segir Brynjar.
Frosti Sigurjónsson, formaður
nefndarinnar, segir sömuleiðis að
þetta atriði verði án nokkurs vafa
skoðað eins og önnur þegar frum-
varpið verður tekið fyrir. Hann gat
ekki fullyrt hvenær málið yrði á
dagskrá nefndarinnar.
Vilhjálmur Bjarnason, sem einn-
ig á sæti í nefndinni, tekur í sama
streng. Hann segir nauðsynlegt að
fara yfir málið og kanna hvort
ástæða sé til þess að lengja frest-
inn, hafi hann verið gefinn of
skammur.
Tíminn að renna út
Heimildir Morgunblaðsins herma
að lögmenn skoði nú mögulega
réttarstöðu umbjóðenda sem ekki
höfðu tök á því að lýsa búskröfum í
slitabúin fyrir þann frest sem lög-
gjafinn gaf með fyrrnefndri laga-
breytingu.
Ljóst er að tíminn sem Alþingi
hefur til að fara yfir málið er að
renna út því nú styttist í að nauða-
samningar verði lagðir fyrir kröfu-
hafafundi. Undirbúningsfundur
vegna framlagningar slíks samn-
ings hefur nú þegar verið haldinn í
Glitni og samskonar fundir verða
haldnir í næstu viku hjá Kaupþingi
og LBI, gamla Landsbankanum. Þá
hefur slitastjórn síðastnefnda bús-
ins gefið það út að hún stefni að at-
kvæðagreiðslu um nauðasamning
þann 5. nóvember næstkomandi.
Ýmislegt kann að tefja afgreiðslu
þingsins á frumvarpinu sem efna-
hags- og viðskiptanefnd mun taka
til umfjöllunar, meðal annars sú
staðreynd að engir fundir verða
haldnir í nefndum þingsins í næstu
viku þar sem þá stendur yfir svo-
kölluð kjördæmavika.
Alþingi gæti þurft að lengja
kröfulýsingarfrest að nýju
Morgunblaðið/Golli
Lagasetning Alþingi mun á næstunni fjalla um hinn stytta kröfulýsingarfrest sem það festi í lög fyrr á þessu ári.
Aðilar sem misstu af kröfulýsingarfresti kanna réttarstöðu sína gagnvart ríkinu
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Í athugasemdum sem komið hefur
verið á framfæri við alþingismenn
vegna þeirrar styttingar sem Al-
þingi gerði á kröfulýsingarfresti
búskrafna í slitabú föllnu bank-
anna, er þeirri spurningu velt upp
hvort styttingin og hinn skammi
frestur sem gefinn var til lýsingar,
hafi brotið gegn meðalhófsreglu
stjórnsýslulaga. Þar hefur einnig
verið bent á að stytting lýsingar-
frestsins hafi falið í sér verulegt
inngrip í eignarréttindi þeirra sem
telja sig eiga kröfur á hendur búun-
um, þar sem hin nýja regla hafi
gert kröfur, sem enn í dag teldust
fullgildar að lögunum óbreyttum,
ógildar frá og með 15. ágúst síðast-
liðnum.
Þingið mun fjalla um málið
Efnahags- og viðskiptanefnd Al-
þingis mun á næstu dögum taka til
umfjöllunar frumvarp frá fjármála-
og efnahagsráðherra er varðar
breytingar á lögum um nauðasamn-
inga fjármálafyrirtækja. Í lögunum
er ekki að finna breytingar á bráða-
birgðaákvæði sem komið var fyrir í
gjaldþrotalögum á liðnu sumri og
fól í sér að kröfulýsingarfrestur
búskrafna í slitabú föllnu viðskipta-
bankanna var styttur og ákveðinn
15. ágúst síðastliðinn.
Brynjar Níelsson, fyrsti varafor-
maður efnahags- og viðskipta-
nefndar Alþingis, segir í samtali við
Morgunblaðið að í tengslum við
framlagningu frumvarpsins hafi
borist athugasemdir vegna fyrr-
nefnds ákvæðis og að nefndin muni
taka þær til athugunar.
Á fjarskiptamarkaðnum er búist við
að gagnasprengja sé framundan
þegar notendur auka til mikilla
muna það magn gagna sem fer í
gegnum net og síma. Þetta kom
fram á fundi sem Landsbankinn
stóð fyrir í gær þar sem forstjórar
fjarskiptafyrirtækjanna Nova,
Vodafone, Símans og 365 sátu fyrir
svörum.
Gagnamagn á mann í farsímaneti
á Íslandi er minna en í Finnlandi,
Danmörku og Svíþjóð. Gagna-
magnsnotkun er meiri í Bandaríkj-
unum en Evrópu og er búist við að
notkunin margfaldist á næstu árum.
Í Bretlandi hafa tekjur vegna sms-
sendinga í farsíma dregist saman á
sama tíma og tekjur vegna gagna-
flutninga hafa aukist. Sama virðist
vera að gerast hér á landi. Af fyr-
irtækjunum fjórum er gagnanotkun
hjá Nova áberandi mest.
Sveinn Þórarinsson, sérfræðingur
hjá Landsbankanum, stýrði fund-
inum og segir hann vöxt vera í píp-
unum og þá helst vegna myndefnis
sem notendur ná í. Mismunandi sýn
sé þó um það hvort vöxturinn verði
í þráðlausu gagnamagni eða meiri
ljósleiðaravæðingu. „Það gerir
þennan markað bara meira spenn-
andi. Gagnabyltingin er rétt að
hefjast en hvort gagnamagnið
fimmfaldast eða tífaldast er háð
mörgum þáttum.“ margret@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Fjarskipti Forstjórar Nova, Símans, Vodafone og 365 sitja fyrir svörum.
Gagnasprengja á
fjarskiptamarkaði
Vöxturinn verður vegna myndefnis
SÉRBLAÐ
Bílablað
Í þessu blaði verða kynntar
nýjar gerðir bíla, umhverfis-
vænir bílar - rafmagn, vetni og
metan, atvinnubílar af
öllum stærðum, vinnuvélar
og vörubílar, varahlutir, og
margt fleira spennandi.
PÖNTUNARFRESTUR AUGLÝSINGA:
fyrir kl. 12 mánudaginn 28. september.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
–– Meira fyrir lesendur
Morgunblaðið
gefur út glæsilegt
sérblað um
fjölskyldu-
atvinnu- og
umhverfisvæna bíla,
jeppa og fleira
þriðjudaginn
29. september